Ísafold - 28.11.1883, Síða 1
Árgangurinn, 32blöð, kostar
3 kr. innanlands, en í Danm.,
Svíþjóð og Norvegi um 3!/2
kr., í öðrum löndum 4 kr.
Borgist í júlím. innanlands,
erlendis fyrir fram.
ÍSAFOLD.
Auglýsingar kosta þetta
hver lína : aur#
, , ímeð meginletri.. 10
mnlendar I * .
Imeo smaletri .. • • 8
jmeð raeginletri.. 15
Iraeð smáletri.... 12
X 30.
Reykjavik, laugardaginn 28. nóvembermán.
1883
117. Innl. frjettir.
118. Fornleifarannsókn í Rangárþingi IH.
■120. Auglýsingar.
'Skrifstofa ísafoldar er í ísafoldarprentsmið-
ju, við Bakarastiginn, 1. sal.
Afgreiðslustofa ísafoldar er á sama stað.
Afgreiðslust. ísafoldarprentsmiðju er á s. st.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2.
Landsbóka^afnið opið hvern md., mvd. og ld. I—3.
Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd. og ld. 4—5.
Reykjavík 28. nóv.
|>essi 14 lög frá síðasta alþingi hafa ver-
ið staðfest af kpnungi, um fram þau sem
áður er getið (ísaf. X 27), fjögur hin fyrst
töldu 8. okt , hin öll tíu 8. nóv.
7. Fjáraukalög fyrir 1882 og 1883 (ísaf.
X 22); ;
8. Lög um breyting á^tilskipun 15. marz
1861 um vegina á Islandi (X 20);
9. Lög um bæjarstjórn á Akureyri;
10. Lög um bæjarstjórn í lsfjarðarkaup-
stað;
11. Fjárlög fyrir árin 1884 og 1885 (X
22);
12. Fjárlög fyrir árin 1880 og 1881 ;
13. Lög um að stjórninni veitist heimild
til að selja nokkrar þjóðjarðir (X 16);
14. Lög um að meta til dýrleika nokkrar
jarðir í Rangárvallasýslu;
15. Lög um að stofna slökkvilið á Isa-
firði (X 20);
16. Lög um linun í skatti á ábúð og af-
' notum jarða og á lausafje (X 21);
17. Lög um löggilding nýrra verzlunar-
staða (X 16, sbr. X 20);
18. Lög um breyting á 2. og 3. gr. laga
11. febr. 1876 um stofnun lækna-
skóla í Reykjavík (X 20);
19. Lög um afnám konungsúrskurðar 20.
janúar 1841 (X 20);
20. Lög um breyting á 7. grein laga um
laun sýslumanna og bæjarfógeta 14.
desbr. 1877 (X 21).
jpá eru þrettán eptir óstaðfest.
þar af er þegar búið að synja staðfesting-
ar á einum: lögum um eptirlaun embættis-
manna og ekkna peirra.
— Meistari Eiríkur Magnússon í Cam-
brigde hefir afsalað sjer þessari merki-
legu lánveitingu, sem honum var gefinn
kostur á samkvæmt áskorun neðri deildar
alþingis, eptir dyggilega viðleitni ýmissa
merkismanna á þinginu að spilla fyrir því
máli, til sóma þingi og þjóð, eða hitt þó
heldur.
—Fræðimaðúr einn í Ameríku, Dr. Elmer
B. Beynolds frá Washington í Bandarík
jum, hefir sent Fornleifafjelaginu hjer
gjöf aílmerkilega núna með póstskipinu.
|>að eru margs konar smíðisgripir úr steini,
eitthvað 700—800, frá frumþjóðum Vestur-
heims, svo 3em einkum örvar, spjót, hnífar,
hamrar o. fl. Hann hefir sjálfur safnað
þessum gripum allflestum á rannsóknarferð-
um sínum, einkum í Potomak-dalnum, og
hefir hann ritað mjög mikið um fornöld
Vesturheims, ogorðinn frægur fyrir. Hann
kvað hafa miklar mætur á fornsögum
vorum og öðrum fornum fræðum , og
mun þessi hugulsemi við oss þaðan
sprottin. |>að er efalaust allfróðlegt að
hafa hjer steinvopn frá Ameríku til saman-
burðar við norræn steinvopn frá fyrri öldum,
en af þeim eru til hjer nokkur sýnishorn,
gefin frá Danmörku.—Fornleifafjelagið hefir
afhent Forngripasafninu þessa tilvöldu gjöf
frá Dr. Reynolds.
— Prestaskólakennari síra Helgi Hálfdán-
arson tók sig fram um að minnast nokkuð
Lúters á 4-alda-afmceli hans, 10. nóv. ; það
var nefnilega ekki gert nokkurt viðvik í þá
átt af landstjórnarinnar hálfu, en í öllum
öðrum Lútei-s-trúuðum löndum meðal annars
lagt fyrir kennimenn að minnast dagsins í
kirkjum. Herra Helgi flutti fyrirlestur í
latínuskólanum, í alþingissalnum gamla, um
ástand kristinnar kirkju fyrir siðbótartím-
ann ásamt ágripi af æfi Marteins Lúters.
Aheyrendur voru skólapiltar og ýmsir heldri
menn bæjarins. Tveim dögum síðar flutti
hann ræðu í dómkirkjunni um sama efni.
þ>að mun veraí ráði að fyrirlestur þessi verði
birtur á prenti.
— Stúdentafjelagið hjer í bæn-
nm heldur áfram sunnudagaskólakennslu
sinni sem það hóf í vor. Bæjarstjórn-
in leggur til kennslustofur í barnaskólanum
hita, ljós, þvott, allt ókeypis. Skólinn byrj-
aði fyrra sunnudag 18. nóvember. |>á voru
komnir 110 ; fleirum er eigi hægt að taka
við í bráð. Vegna rúmleysis var stúlkum
eigi veitt viðtaka og höfðu þó ýmsar farið
þess á leit. Af þessum 110 eru ekki fullir
20 utanbæjarmenn, 55 eru sjómenn, 33 iðn-
aðarmenn, hinir vinnumenn eða unglingar í
foreldrahúsum. Enginn tekinn á skólann
yngri en 15 ára. Hjer um bil 70 læra reikn-
ing, 30 skript og jafnmargir rjettritun og
fullir 40 hvort málanna um sig, en þau eru
danska og enska. Eitthvað um 20 stúdent-
ar og kandídatar skiptast á um að kenna.
Kennslan veitt ókeypis. Fyrir skólanum
standa þeir Gestur Pálsson, Indriði Einars-
son og þórhallur Bjarnarson.
— Alþingistíðindin árið 1883 eru nú
fullprentuð. Eptir kostnaðaryfirliti því, sem
þar er prentað, eins og vandi er til, er al-
þingiskostnaðurinn nokkuð minni en að
undanförnu, nefnilega tæplega 30700 kr.
eða rjettara sagt hjer um bil 29600 kr., ef
frá er talinn prentunarkostnaður á áliti yfir-
skoðunarmanna, er ekki mun hafa verið tal-
inn með að undanförnu. Er hjer sett til
samanburðar yfirlit yfir alþingiskostnaðinn
nú og á 4 þingum á undan, síðan 1875, eptir
skýrslunum í tíðindunum.
1875 ......................... 31,600 kr.
1877 .......................... 35,400 -
1879 .......................... 31,800 -
1881 .......................... 32,700 -
1883 .......................... 29,600 -
— Tiðarfar hefir verið hið hagstæðasta
víðast um land fram eptir haustinu lengur
eða skemur, en mjög óstillt og stormasamt
upp á síðkastið, með mesta móti hjer syðra.
— Vegna hins ágæta heyskapar í sumar
hefir, sem beturfer, fjárfækkun verið óvenju-
lítil í haust víðast um land, einkum nyrðra ;
í sumum sveitum hjer um bil hvert lamb á
vetur sett. Sjer 1 lagi lítið um fjártöku í
kaupstöðum, og geypiverð gefið fyrir. Frá
Akureyri og Oddeyri t. a. m. ekki flutt út
1 haust nema 400 tunnur að kjöti, en í fyrra
2210 tunnur; frá Borðeyri 300 tunnur;
Húsavík 300 tunnur. A Borðeyri gefið fyr-
ir væna sauði frá 24 til 30 kr., geldar ær
16— 20 kr., mylkar 12—16. Úr Húnavatns-
sýslu skrifað : »A kjöti er hjer nyrðra afar-
hátt verð, og dæmi til að tvævetur sauður
hefir verið seldur á 30 kr., en mylkar ær á
17— 19 kr.« I Múlasýslum gáfu Englend-
ingar 22 kr. eða meir fyrir tvævetlinga.
Kjötverð á Seyðisfirði 27 a. pundið, á Eski-
firði 30 a.
— Ftskiafli lítill sem enginn við Isafjarð-
ardjúp í haust, einkum upp á síðkastið ; við
Strandir aflalaust, við Vatnsnes góður atíi
framan af, en síðan tók gæftaleysið fyrir
hann ; allgóður afli á Skagafirði, en rýr á
Siglufirði og Eyjafirði; sömuleiðis um Aust-
firði. — nSildarafli varð nokkur á Eyjafirði í
haust, en mjög misjafn, og verða víst all-
rnargir þar, sem hafa skaða á þeim útvegi
aptur í ár, því kostnaðurjnn er mikill. ,A
Siglufirði varð svo sem engjnn síldarafli«. (Úr
brjefi að norðan). Við lsafjarðardjúp hefir
og síldarafli brugðizt í ár, og mun einnig
hafa verið harla rýr á Austfjörðum að öllu
samtöldu.
|>rettán hvölum hafa þeir náð í haust
Norðmennirnir sem hafa bækistöðu við
Alptafjörð vestra.
Hjer við Faxaflóa er lítið um aflabrögð
um þessar mundir, einkum vegna staklegs
gæftaleysis.
— Verzlunarfrjettir frá Khöfn 'slæmar.
Lýsi fallið úr 57—58 kr., sem gefnar voru
fyrir það þar í sumar, niður í 47 eða jafn-
vel 46 kr., að ílátinu meðtöldu. Fiskur líka
að falla í verði. Norðlenzk vorull hvít 64|—
66 a., sunnlenzk og' vestfirzk 61^—62. Hvít
haustull þvegin 55, óþvegin 47. Óþvegin
vorull hvít 47. Útlend vara hjer um bil
með sama verði sem í vor, nema kaffi hækk-
að töluvert (um 12 a.) og grjón sömuleiðis.
Tilefnið til þess, að lýsið hefir fallið í
verði, er sagt að sje það, að síðari part sum-
ars kom ákaflega mikið af selslýsi (um 60,000
»föt«) frá New-Foundland til Hamborgar, og
var boðið þar fyrir 8 kr.minna en íslenzka lýsið.
Blautfiskskaupmennirnir ensku ráðgera
að koma hingað á gufuskipi til fiskikaup-
anna dagana 7.—9. marz.
— Skrifað hingað frá Khöfn[8. nóv.: »Lítið
gengur áfram með mdlþrdðinn til íslands en
þó heldur í horfið«.
— Norskt síldveiðaskip strandaði á Skaga
11. nóvembér; var á heimleið frá Eyjafirði.
Menn komust allir (5) af, og voru sendir
hingað til Reykjavíkur áleiðis heim til sín
með póstskipinu. Skipskrokkurinn seldur
við uppboð fyrir 50 kr. Annað síldveiðaskip
norskt kvað hafa strandað við Hjeraðssand í
októbermánuði.
— Póstskipið (Laura) kom hjer 23. nóv.,
fer naumast aptur fyr en 3.—4. desbr.
— Dáinn 25. okt. síra Guðjón Hálfdánar-
son, prestur að Saurbæ í Eyjafirði, fæddur
6. júlí 1833, góður kennimaður, mesta ljúf-
menni og hinn samvizkusamasti og skyldu-
ræknasti maður í sinni köllun.
Dáin seint í október ekkjufrú Margrjet
Jónsdóttir prests að Möðrufelli, ekkja síra
Einars Thorlacius í Saurbæ í Eyjafirði,
komin töluvert yfir nírætt.
Dáinn nýlega Friðrik Davíðsson, verzlun-
arstjóri á Blönduós.
Dáinn 21. nóv. þórður Sigurðsson, smið-
ur og hreppstjóri á Fiskilæk í Borgarfirði.