Ísafold - 14.05.1884, Page 4
80
Tala póstafgreiðslustaða í þessum 27 lönd-
um var þá 113,000, með 388,000 embættis-
mönnum. Pósttekjurnar námu 720 milj.
krónum, kostnaðurinn 628 milj.; afgangur-
ur eptir því 92 milj. kr. — Um síðustu ára-
mót, 1883 og 84, voru 46 lönd gengin í alls-
herjar-póstsambandið og þar með mikið af
nýlendum Norðurálfuríkja í öðrum heims-
álfum, með 801 miljón manna ; það er hjer
um bil allur hinn menntaði heimur. Arið
sem leið nam tala venjul. sendibrjefa og
spjaldbrjefa 6257 milj., það verða 17 milj.
brjefaá dag að meðaltali; þar afí Norðurálfu
4089 milj. eða § af allri tölunni, og er það
órækur vottur um menntunaryfirburði þeirr-
ar álfu yfir hinar álfurnar. Kemur eptir
þessu 4£ sendibrjef á hvern heimsbúa á ári,
en 12J brjef á hvert mannsbarn í Norður-
álfunni.
Brautargöngín gegnum St. Gotthard. —
Svo er að heyra sem mjög hafi verið fáför-
ult yfir Mundíufjöll á dögum Rómverja. Er
svo sagt, að hvergi muni getið um leiðar-
skörð yfir fjöllin í rómverskum fornritum.
f»ó hefir fundizt rómverskt letur á einum
stað í Simplon-skarði frá árinu 196 fyrir
Kristsburð, á sama stað sem Napóleon
mikli ljet gera akbraut fyrir sig og lið sitt.
Eptir að Napóleon var runninn á vaðið
var farið að gera vegi yfir fjöllin hingað og
þangað smámsaman, og loks járnbrautir.
Við fyrstu járnbrautina yfir Mundíufjöll var
lokið 1853; hún er kenndvið fjallið Semme-
ring. Árið 1867 var Brenner-járnbrautin
fullgerð, og 1870 luku Frakkar (og Italir) við
járnbrautargöng og járnbrauf gegnum Mont
Cenis. þá stóðust eigi Svissar mátið og
þjóðverjar. þeir lögðu saman, og Italir
með þeim, og tóku til 2 árum síðar (1872)
að grafa sjer ný göng gegnum St. Gotthard.
f>að er í miðjum Mundíufjöllum, í Sviss; það
það erfjallás afar-mikill, og ganga fjallarm-
ar út frá honum í ýmsar áttir. Ymsarstór-
ár hafa þar upptök sín, og er þar mikið af
gljúfrum og fossum.
A 14. öld mun hafa verið orðin þjóðleið
yfir fjöllin á þessum stað, af Rómferlum.
þá var reist þar sæluhús það hið mikla og
fræga, er þar hefir staðið síðan og munkar
byggja. Á árunum 1828—30 var gerð ak-
braut yfir St. Gotthard. Umferðin fór allt
af vaxandi: 70,000 manna t. d. árið 1876;
þar af þáðu 20,000 gisting í sæluhúsinu ó-
keypis. f>ótti því brýna nauðsyn til bera
að gera leiðina sem greiðfærasta, enda var
á 10 ára fresti, 1882, búið að ,leggja járn-
braut byggða á milli í Sviss og Ítalíu, gegn-
um fjöllin, 31 mílu á lengd. Hún hafði
kostað líf 200 verkmanna, og 150 milj.
króna, þar af lengstu jarðgöngin gegnum
fjöllin, 2 mílur, 40 milj. kr. (hver þumlung-
urí göngunum 74 kr.). A 55 stöðum öðrum
hafði orðið að grafa göng gegnum fjöll og
hæðir á þessari leið og leggja 200 brýr, all-
ar úr járni. Tveimur miljónum punda af
dýnamíti hafði verið varið til sprenginga.
Fyrir þetta stórvirki má nú komast á_ 2£
sólarhring frá Khöfn suður í Maíland á íta-
líu, sem var margra mánaða ferð fyrir
50 árum.
AUGLÝSINGAR
! samfeldu mili m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hvert orð 15 stata frekasl
m. öSra lelri eía setning 1 kr. [jrá jmmlnnj dálks-lenjdar. Borgnn úl i hönd
Uppboðsauglýsing.
Laugardaginn h. 17. p. m. kl. 11 f. m.
verður við opinbert uppboð, er haldið verður á
bœjarþingsstofunni eptir beiðni forstöðumanns
hins sunnlenzka síldveiðafjelags, boðið upp
og, ef viðunanlegt boð fcest, selt hastbjóðanda
sil niðurrifs, nema kaupandi semji öðruvísi
við landeigendur, h ú s það, 30 álna langt
og 15 álna breitt, sem nefnt fjelag hefir byggt
í Geldinganesi. Skilmálar fyrir sölunni
birtast á uppboðinu ; að eins skal geta þess
að kaupandi getur fengið, ef hann œskir þess,
árs frest með kaupverðið, móti því að hann
setji veð fyrir borguninni og borgi t ársvexti
af kaupupphæðinni 4j°.
Skrifstofu bœjarfógeta í Reykjavik f?- 1884.
E. Th. Jónasscn.
Með því sótari bœjarins hefir kvartað yfir
því, að sumir bcejarbúar eigi vilji láta hreinsa
reykháfa í húsum sínum, þegar hann sam-
kvæmt erindisbrjefi sínu á að gera það, þá
auglýsist það hjer með, að eptir reglumþeim,
sem bæjarstjórninog brunamálanefndin hefir
samþykkt, á að hreinsa alla reykháfa í hús-
um 4 sinnum á ári eða á hverju 3 mánaða
millibili, og mega menn því ekki brjóta ámóti
þessari fyrirskipun bcejarstjórnarinnar.
Bæjarfógetinn í Reykjavík, 1884.
E. Tli. Jónassen.
Verzlun Símonar Johnsens selur eptir-
fylgjandi vín frá Kjœr & Sommerfeldt með
niðursettu verði, þannig :
Maraschino di Tiaxapr. kfl
Zouder Doornen
--»«--
Anisette
---»«--
Fleur d’ Orange
Créme de Traise
Créme de Rose
Parfait d’ Amour
Coffy Likör
ifl
ifl
ift
ifl
ifl
ifl
ifl
m
ifl
áður3,00 nú 2,70
3,00
1,70
3,00
2,44
1,70
1,70
1,70
1,70
1,70
2,70
1,53
2,10
2,20
1,53
1,53
1,53
1,53
1,53
£ Anker Rödvin med Træ =
20 pott. — 22,50 -20,50
Enn fremur alls konar »Conserves« og
nSyltetöú með 10j° afslœtti upp og niður.
Brugte Frimærker.
Brugte islandske Frimærker kjöbes til höi Pris
eller tages i Bytte mod udenlandske Frimærker.
Frankerede Breve og Pakker modtages.
Carl Hyllested
(O. 3151.) 3 Forhaabningsholms Allé.
Kjöbenhavn V.
Af því, að hjer eru sagnir um, að Jón Ágúst
Jónsson söðlasmiður, sem í fyrra fór til Ameriku,
muni sá er tekið hafi þann jarpa hest, er hvarf
úr Seltjarnarneshreppi sumarið 1882 og haft á
honum hestakaup við mann úr Húnavatnssýslu,
hvar hann þekktist af auglýsing, þá skal jeg hjer
með auglýsa, að nefndur Jón fór ekki suður land-
veg til Reykjavíkur, frá þvi um voríð 1882 að
hann fluttist að Lxafossi og þar til um vorið eða
seint á vetri 1883, að hann fór til Ameríku.
Jeg hefi fengið skrifiegan vitnisburð fyrverandi
húsbónda J. Á„ herra Siggeirs þórðarsonar á Lax-
fossi.
það virðist ekki ómögulegt, að lcoma hinum seka
t dagsbirtuna, og væri það því hryggilegt, ef sá, sem
varð fyrir býttunum, eklci skyldi á allan hátt leit-
ast við að komast eptir þessu, svo saklausir menn
eru hafðir grunsamir, en hinn seki sleppur, má skc
fyrir ódugnað eingöngu, og þá aldir npp þjófar f
landinu.
Hvítárvöllum 2. apríl 1884. A. Fjeldsted.
SAMSÖNGUE.
Að öllu forfallalausu verður samsöngur
haldinn í dómkirkjunni nœstkomandi laugar-
dag og sunnudag (17. og 18. þ. m.) kl. 6 e. m.
Inngangurinn kostar 50 aura. Ágóð-
inn er ætlaður til að kaupa fyrir nýtt
orgel í dómkirkjuna, eins og það fje, sem inn
kom við samsönginn um hátíðirnar i vetur.
Reykjavík 13. maí 1884.
Stéingrímur Johnsen. Björn Kristjánsson.
Á næstliðinni vetrarvartið tapaðist í Garðsjó (á
svo kölluðum Setum) skipsakkeri, sem átti að vera
merkt á leggnum M. f>„ en víst mjög óglöggt. Sá
er kynni að finna þetta akkeri, er beðinn að halda
þvi til skila tll undirskrifaðs mót fundarlaunum.
Halakoti 12. mai 1884. Magnús J>orsteinsson.
Höfuðbækur, alls konar, smáar og
stórar, strykaðar og óstrykaðar, fást með mjög
vægu verði hjá Kr. Ó. þorgrímssyni bóksala.
Bænakver-og sálma
eptir
síra Olaf Indriðason á Kolfreyjustað,
2. útgáfa, nýprentuð,
fæst á afgreiðslustofu Isafoldar innb. á 25 a.
Ágrip af mannkynssögunni
eptir
Pál Melsted,
2. útg., nýprent.,
fæst á afgr.st. Isafoldar, hept á 2 kr. 50 a.
TIL SÖLU á afgreiðslustofu ísafoldar:
Gröndals Dýrafræði.................2,25
Gröndals Steinafræði...............1,80
íslandssaga porkels Bjarnasonar . . 1,00
Ljóðmæli Gríms Thomsens .... 1,00
Um sauðfjenað, eptir Guðm. Einarss. 0,90
Undirstöðuatriði búfjárræktarinnar,
eptir sama.......................0,50
Erslevs landafræði, önnur útgáfa . . 1,25
Dönsk lesbók handa byrjöndum (S. H.) 1,00
Páls Melsteðs mannkynssögu-ágrip,
2. útg...........................2,50
Ahnaiiak hjóðvinafjelagsins 1884 er
enn til sölu á afgr.stofu ísaf. 50 a.
Um vinda, höfuðþáttur almennrar veður-
frœði, fæst á afgr.st. Isafoldar.
Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.