Ísafold - 07.01.1885, Síða 1

Ísafold - 07.01.1885, Síða 1
íemur ál á mlðvikudagsniorjna. íerf árpijsins (55-GÖ arkaö 4kr.: erlendis 5 kr. Borjisl íjrir miíjaa júl'niánuð. ISAFOLD. öppso'jn (sknfl.) kndin vi5 áramól 6- gild nema komin sje lil nlj. tjrir 1. ok'. Afgreiðslusloía i Isaloldarprentsm. I. sal. XII 1. Reykjavík, miðvikudaginn 7. janúarmán. 1885. ÍSAFOLD 1885. Utgefandi og ritstjðri Björn Jónsson. ÍSAFOLD kemur út þetta ár á hverjum miðvikudegi, snemma dags, heilt blað i hvert sinn, svo að aldrei ber út af. ÍSAFOLD kemur út þetta ár eigi ein- ungis á hverjum miðvikudegi, heldur stundum tvisvar í viku, heilt blað í hvert sinn, líklega einkanlega um alþingis- tímann. ÍSAFOLD er vegna leturdrýginda að jafnaði eýnismeiri, hvert blað fyrir sig, held- ur en hin blöðin, sem eru i stærra broti, að Norðanfara undanskildum. ÍSAFOLD kostar að eins 4 kr. árgangur- inn (erlendis 5 kr.), eins og áður, þótt árg. verði nær 60 en 50 blöðum. ÍSAFOLD verður því hið lang-ódýrasta blað á landinu að tiltölu. ÍSAFOLD vonast til að geta einnig orð- ið þetta ár fullt eins vandað og eigulegt blað að efni til eins og hin blöðin. ÍSAFOLD er stækkuð svona nú, án verð- hækkunar, í þess notum, að kaupendum hennar heflr fjölgað svo heiðarlega hin síð- ustu missiri. ÍSAFOLD heitir þvi, að láta kaupendur njóta þess eptirleiðis á líkan hátt, ef þeim fjölgar enn að mun, sem dável vottar fyrir nú um þessi áramót. ÍSAFOLD verður send, þetta fyrsta núm- er, ókeypis nokkrum mönnum, sem ekki eru orðnir kaupendur hennar enn.til reynslu; eru þá þeir, sem að kaupum ganga, beðnir að gera við vart um það sem fyrst, og munu þá fá jafnskjótt framhaldið. ISAFOLD greiðir þóknun fyrirað útvega nýja kaupendur að þessum árgangi, um fram þá sem nú eru, og standa greið skil á andvirðinu: 1 kr. þóknun fyrir hvert expl. þ. á., ef ekki eru færri en 3. 1. Innlendar frjettir m. m. 2. Árið 1884. Ritníð og stigamennska. 3. Kurteisi og krossasótt. 4. Skýrslur um súrheysverkun. Hitt og þetta. Augl. Forngripasafmð opið hvern mvd. og ld. kl. 1—2 Landsbókasafnið opið hvern rúmheigan dag kl. 12—2 útlán md„ mvd. og ld. kl, 2—3 Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd. og ld. 4—5 Veðurathuganir 1 Reykjavík, eptir Dr. J. Jónassen Des. Jan. Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt. ánóttu um hád. fm. em. fm. em. M. 24. - 2 0 29,9 29.7 Sv h d Sv hv d F. *S. - I 0 29.5 29,5 Sv hv d Sv hv d F. 26. - 3 -7- 2 20.6 29,1 Sv hv d Sv hv d L. 27. - 2 + I 28,3 29,1 Sv hv d Sv hv d S. 28. - io -4- 8 29,6 29,5 Na h b Na hv b M. 29. - 4 0 29,4 29 A h d Sa h d f>. 30. 0 + I 29,2 29,3 Sv hv d A h d M. 31. i 1 + r 29,3 3° A h d A h b F. 1. 0 + 1 29.7 29,1 A h b A hv d F. 2. + 2 + 1 29 29,2 S hv d Sv h b L. 3. 0 + 1 28,9 28,8 A hv d Sv hv d S. 4- - 1 — 2 28,4 28,6 Sv h d Sv h d M. 5. - 5 -4- 2 28,7 28,9 Sv hv d Sv h d Þ. 6. - 6 4- 3 29 29. A h d A h d Fyrri vikuna gekk stöðugt útsynningur (sv) opt með miklum brimhroða og rokhvass með blindbyl (h. 27.); stöku sinnum sló til austurs með bil. Síðari vikuna hefir verið alveg sami útsynn- ingur með miklum byljum, svo nú er hjer kom- inn mikill snjór á jörðu. 3. var hjer ákafi. mik- ið- rok kl. 2—3 e. m. og gekk hann þá til frá austri til útsuðurs (sv) og var hægur að kveldi. í dag 6. dimmur austanbylur, en útsynningur undir. Reykjavik 7. jan. 1885. Bæjarstjórnarkosning í Reykjavík. Auk landshöfðingja, er eigi getur verið í bæjarstjórn vegna stöðu sinnar, áttu 5 úr að ganga um þessi áramót, allir kosnir af hin- um almenna gjaldendaflokki. þessir 5 voru; Egill Egilson borgari, Eiríkur Briem presta- skólakennari, Guðmundur þórðarson á Hól, Pjetur Gíslason í Ánanaustum og þorlákur Ó. Johnson kaupmaður. En eptir sátu þrír, kosnir af hærri gjald- enda flokki: H. Kr. Friðriksson yfirkenn- ari, L. E. Sveinbjörnsson og M. Stephen- sen yfirdómarar. Hin nýja kosning fór fram 3. þ. m. f>ess- ir hlutu kosningu, til 6 ára : Björn Jónsson ritstjóri.....með 169 atkv. Guðm. þórðarson á Hól(endurk.)— 164 — Jón Ólafsson ritstjóri ogalþ.m.— 95 — Páll þorkelsson gullsmiður..— 58 — Jón O. V. Jónsson verzlunarstj.— 51 — f>ar næst hafði Jón Jensson landritariðOatkv. Alls tóku þátt í kosningunni 187, af 419, sem á kjörskrá voru. Af þessum 419 voru 32 konur, samkvæmt lögum 12. maí 1882 um kosningarrjett kvenna; en engin þeirra kom á fund. Hæsta atkvæðatala á bæjar- stjórnarkjörfundi áður hefir verið 156. I flokki hinna hærri gjaldenda, sem kjósa skal 9.þ. m. einn mann til 3 ára í stað lands- höfðingja, mun vera almennur ásetningur að velja Eirík Briem prestaskólakennara. Einum kjósanda var bægt frá að kjósa, fvrir þá sök, að hann hefði ekki komið fyr en löngu eptir að liðin var sú hálfa stund, er lögin skglda kjörstjórnina til að bíða (frá því allir kjósendur eru kallaðir fram), „áður en hún slítur kjörfundi, til þess að þeir, sem þá eru eigi enn komnir, með þessu móti fái tækifæri til að neyta kosn- ingarrjettar síns“. En með því að þessi kjós- andi kom góðri stundu áður en kjörstjórnin var búin að Ijúka sjer af, svo þar kom engin bið fram, og með því að hún þar að auki á annað borð tók á móti atkvæðum frá öðrum kjóBend- um löngu eptir að þessi hálfa stund var liðin, þá verður þetta tiltæki hennar ekki skoðað öðruvísi en sem gjörræði, sem á að varða ónýt- ingu kosningarinnar að því leyti sem kosning- ar-úrslitin sýna, að þctta oina atkvæði gat hafa haft áhrif á þau (51 og 50 atkv.). — þess ber að geta, að formaður kjörstjórnarinnar, bæjar- fógetinn, sem er alkunnur að því aðkomajafn- an mannúðlega fram, kvaðst fyrir sitt leyti ekk- ert hafa á móti því að taka á móti þessu at- kvæði; það voru sessunautar hans, w/sr-dómar- arnir, sem voru bálharðir á því að, ao vísa þeSB- um kjósanda frá. Tíðarfar er hið ískyggilegasta og hefir verið langan tíma hjer sunnanlands. Frostlítið að vísu, en geysimiklar fannkom- ur, 8tórviðri og umhleypingar. Gjörsamlegt jarðbann að öðru hvoru. Skepnur allar á gjöf, hálfri eða heilli gjöf, frá því fyrir jóla- föstu. Báðgert að fara að skera fje af heyj- um í sumum sveitum austanfjalls. Aflabrögð. Sjaldan eða aldrei gefur á sjó. Á gamlársdag reynt víða í syðri veiðistöðunum, frá Garði og inn á Strönd, en ekki vart: tveir fiskar á skip hæst, að sagt er. Bæjarbruni. Á laugardaginn fyrir jól kviknaði að sögn eldur í baðstofunni á Langholti við Hvítá í Borgarfirði og brann til kaldra kola, með lausum munum, sem >ar voru inni. Oðrum bæjarhúsum forðað meðhjálp af næstubæjum. Bóudinn í Lang- holti, Guðmundur Maguússon, roskinn inað- ur, hafði verið nærri orðin til í bruuauum ; ætlaði að bjarga einhverju úr baðstofunni. Prófastur skipaóur i Strandasýslu 28. nóv. síra Páll 0Iafs9on á Prestbakka; liefir verið settur l'/j ár.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.