Ísafold - 30.06.1886, Qupperneq 4
beinlínis framtekið í henni, að það skuli
taka upp öll net, sem fyrir utan línu finn-
ast, en þó eru viðlagðar sektir fyrir að leggja
fyrir utan línu. það vita þó allir, að þegar
sekt er lögð við brot á einhverju banni, þáer
það á móti lögum, að ávinna sjer sektina
með því að brjóta á móti banninu ; þegar
svona ber undir, hvað á þá lögreglustjórinn
að gera ? það er rjett ómögulegt fyrir hann
að hindra brotið, eða brotin, og koma við
sektum, með öðru móti, en að láta taka
upp fyrir utan línu, því annars er ómögu-
legt að vita fyrir víst, hverjir eða hversu
margir brjóta, og þá sleppa rjett allir fyrir
sektum, en það er þó eigi löggjafans til-
ætlun, að þeir eigi að komasthjá sektum,
sem leggja fyrir utan línuna. Að leggja
fyrir utan línu, lýsir ofmiklu virðingarleysi
fyrir lögunum: að gera sjer það að daglegu
brauði að brjóta lögin. þetta finna þeir
líka í meðvitundinni, að er ekki frjálst,
þegar sumir vaka yfir netunum á nóttunni
og sumir leggja þau svo sem dufialaus,
og slæða þau svo upp. þetta lýsir allt of
miklum mótþróa, og er ekki hent nema í
beztu veðuráttu. Löggjafarinnar til-
ætlun er engan veginn sú, að vilja
hnekkja frelsi manna, heldur að koma
í veg fyrir, að einstakir menn vaði svo yfir
með yfirgangi, að þeir hreki fiskinn frá
grunnmiðunum, eins og undanfarin ár;
því það þykir nú fullkomlega sannað, að
fiskurinn hefir hörfað undan netastöppunni
úr Garðsjó og Leirusjó undanfarin ár.
f>eir, sem brjóta lögin, brjóta líka friðinn,
því slík aðferð kemur á stað óþokka og úlfúð
milli hreppa og sveitarfjelaga, og það er
til þess að spilla þjóðfjelagsskap, í stað þess
að menn ættu að vinna sem mest að sam-
heldni og drengskap í mannfjelaginu.
[Niðurl.].
AUGLÝSINGAR
í samleldu máli m. smáletn kosta Za. (þakkaráv. 3a.) hvert orá 15 síafa frekast
m. ö3ru letri eía selning 1 kr. tjrir 'þumlung dálks-lengdar. Borjun út i hönd.
Samkvœmt beiðni umboðsmanm fyrir
verzlun Carl Franz Siemsens í Reykjavík,
G. Emil Unbehagens, í brjefi dags. 28. f. m.
meðteknu 12. þ.m., verður eign þessa verzl-
unarhúss, svo nefnt Kórunes (að fráskildum
öllum reka) sunnanvert við Straumfjörð, með
grandanum austur undir grös, selt við opin-
ber uppboð, er fara fram á þann hátt, er
hjer segir :
1. þriðjudaginn 29. þ. m. kl. 12 á hádegi.
2. þriðjudaginn 13. júlí nœstkomandi kl.
12 á hádegi.
3. þriðjudaginn 27. júlí nœstkomandi kl.
12 á hádegi.
Hin 2 fyrstu uppboð fara fram á skrif-
stofu sýslunnar, hið þriðja og síðasta á
eigninni, sem selder.
Skilmálar fyrir sólunni verða til sýnis
hjer á skrifstofunni 4 dógum áður en hið
fyrsta uppboð fer fram.
Skrifstofu Mýra og Borgarfjarðarsýslu '86
Guðm. Pálsson.
Uppboðsauglýsing.
Laugardaginn nœstkomandi hinn 3. júlí
verður, samkvœmt beiðni frá skipstjóra Tönne-
sen frá Mandal, opinbert uppboð haldið hjá
nýju bryggjunni hjer í bœnum og verður
þar þá selt hœstbjóðendum ýmislegt timbur.
Uppboðið byrjar kl. 11. f. h. og verða
söluskilmálamir birtir á uppboðsstaðnum.
Skrifstofu bæjarfógetans í Rvík 26. júní 1886.
Jón Jensson.
settur.
Mánudaginn 5. júli verður opinbert upp-
boð haldið við húseign Valgarðar Breið-
fjörðs i Bröttugötu hjer í bœnum, og þar
seldir hœstbjóðendum ýmsir húsmunir, svo
sem eldhíisgögn, stólar, borð, speglar o. fi.
Uppboðið byrjar kl. 11 f. h. nefndan dag
og verða söluskilmálar birtir á uppboðs-
staðnum á undan uppboðinu.
Bæjarfógetinn í Reykjavik 24. júní 1886.
Jón Jensson
settur.
Með því að eg hefi framselt þeim herra B.
Muus <£ Co í Kaupmannahöfn allar mínar
útistandandi skuldir, eins og þær eru eptir
verzlunarbókunum þann 22. júní þ. á., og
hefi falið cand. júr. Guðlaugi Guðmundssyni
á hendur að ganga eptir skuldunum, þá vil
eg hjer með áminna alla, sem skulda mjer,
um að borga skuldir sínar hið fyrsta.
Reykjavík 22. júní 1886.
forlákur Ó. Jolinson.
* *
Samkvœmt ofanritaðri auglýsing er hjer
með skorað á alla hlutaðeigendur að greiða
mjer hið fyrata skuldir sínar, eða semja við
mig um borgun á þeim. þeir innanbæjar
og nœrsveitamenn, er eigi hafa gert það fyr-
þann 5. júlí þ. á., geta búizt við lögsókn án
ýtrari fyrirvara.
d. u. 8.
Guðl. Guðinundsson
cand. jur.
Hjermeð skal brýnt fyrir almenningi, að
ekki er leyfilegt að ríða eptir eða reka hesta
eptir hinum nýja vegí, er verið er að gera
fyrír neðan Svínahraun, á meðan Jiann er
ekki fullgerður.
Amtm. yfir Suður- og Vestur-amtinu ?6<l 86.
£. Tli. Jónassen.
þeir menn sem vilja borga skuldir sinar
til þrotabús Sigurðar kaupmanns Magnús-
sonar í vörum, eru beðnir að leggja þær inn
til þessara manna, er hafa umboð mitt til
að veita þeim móttöku :
I Reykjavík : Geirs Zoéga kaupmanns.
» Grindavík: Einars Jónssonar í Garð-
húsum.
» Garði: Jóns Eyjólfssonar í Sjóbúð.
» Njarðvík : Áma Pálssonar í Narfakoti, og
á Ströndinni: Jóns Breiðfjörðs á Brunna-
stöðum.
Allir þeir, sem eigi hafa greitt skuldir
sínar til greinds þrotabús eða samið við mig
um greiðslu þeirra fyrir 1. dag september-
mánaðar þessa árs, verða tafarlaust lögsóttir.
Reykjavík hinn 29. jiíní 1886.
Franz Siemsen
málaflutningsmaður við landsyfirdóminn.
-----------------------------------------A__
Til athugunar.
Vjer undirskrifaðir álítum það skyldu vora
að biðja almenning gjalda varhuga við hinum
mörgu og vondu eptirlíkingum á Brama-lífs-
elixír hra. Mansfeld-Búllner & Lassens, sem fjöldi
fjárhuga kaupmanna hefir á boðstólum; þykir
oss því meiri ástæða til þessarar aðvörunar,
sem margir af eptirhermum þessum gera sjer
allt far um að líkja eptir einkennismiðanum á
eata glösunum, en efnið í glösum þeirra er
elcki Brama-lífs-elixír. Vjer höfum um langan
tíma reynt Brama-lífs-elixír, og reynzt hann
vel, til þes8 að greiða fyrir meltingunni, og til
þess að lækna margskonar magaveikindi, og
getum því mælt með honum sem sannarlega
heilsusömum bitter. Oss þykir það uggsamt, að
þessar óegta eptirlíkingar eigi lof það skilið,
sem frumsemjendurnir veita þeim, úr þvi að
þeir verða að pr^ða þær með nafni og einkenn-
ismiða alþekktrar vöru til þess að þær gangi út.
Harboöre ved Lemvig.
Jens Christian Knopper. Thomas Stausholm.
C. P. Sandsgaard. Laust Tiruun.
Niels Chr. Jensen. Ove Henrik Bruun.
Kr. Snied Rönland. I. S. Jenscn.
Gregers Kirk. L. Dahlgaard Iiokkensberg.
N. C. Bruun. 1. P. Emtkjer.
K. S. Kirlc. Mads Sögaard.
I. C. Paulsen. L. Lassen.
Laust Chr. Christensen. Chr. Sörensen.
N. B. Nielsen. N. E. Nörby.
Heilt eða hálft hús fæst keypt með góöu
verði og gððum söluskilmálum. Lysthafendur
semji við Stefán pórðarson við Hliðarhúsaveg.
Skip sexróið með öllu tilheyrandi í góðu
standi er til sölu hjá
Níels Eyólfssyni á Klöpp við Reykjavík.
TIL SÖIiU á afgreiðslustofu ísafoldar:
Gröndals Dýrafræði..............2,25
Gröndals Steinafræði............1,80
íslandssaga þorkels Bjarnasonar . . 1,00
Um uppeldi barna og unglinga eptir
Herbert Spencer....................1,00
Sparsexni, eptir Samuel Smiles . . . 1,50
Hættulegur vinur.....................0,25
Landamerkjalögin................0,12
Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prentsmiðja Isafoldar.