Ísafold - 21.07.1886, Qupperneq 1
íeiLur 51 á niðvituda^smorgna. 7er9
irjanjsins (55-60 arkai 4kr.; erlendis
5 kr. Borjist [jrir miðjan júlímánuð.
t
Uppsögn (skrifL) kndin vi5 áramól, í
jild nema komin sje íil ífj. tyrir 1. akL
Atsreilslusloia í Bamaskólahúsinu
XIII 30.
Reykjavik, miðvikudaginn 21. júlimán.
1886.
117. Innlendar frjettir.
118. Útlendar frjettir. Bókhlöðufyrirmynd.
120. Auglýsingar. _____________________________
Brauð laust: Ríp 30/e.....................722
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Sparisjóður Rvíkur opinn hvern mvd ogld. kl. 4 — 5
Söfnunarsjóður Rvíkur opinn I. mánud. í
hverjum mánuði ki. 4—5
Veðuratlmganir í Reykjavík, eptir Dr.J. Jónassen
jÚlí 2 Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt.
nóttu|um hád. fm. | em. fm. em.
M. 14. + 5 + 10 29,4 29,5 N h b N h b
F. I5- + 5 + 10 29,6 29,6 N hv b N hv b
F. 16. + 4 + 10 29.7 29,7 N h b N h b
L. 17. + 4 + 10 29,8 29,8 N h b N h b
S. 18. + 7 + 9 29,8 29,8 N h b N h b
M. 19. + 8 + 12 29,8 29,7 0 d N h b
J>. 20. + 7 + 14 29,6 29,1 N h b N h b
Alla vikuna hefur hann verið við norðanátt,
hægur og optast hið bjartasta veður. Síðari
part vikunnar hefur heldur hlýnað í veðri. Alla
vikuna hefur verið úrkomulaust. í gær 19.
mikið mistur í loptinu um og eptir miðjan dag.
Reykjavík 21. júlí 1886.
Júbil-dagur biskups. Hinn 17. þ.
m. voru 50 ár liðin síðan biskup landsins,
Dr. theol. Pjetur Pjetursson, tók prests-
vígslu (að Breiðabólsstað á Skógarströnd),
og var þess minnzt hjer í bænum með
nokkrum hátíðabrigðum. Flestir embætt-
ismenn bæjarins og ýmsir aðrir voru sam-
an komnir á heimili hans og fluttu honum
hamingjuóskir : fyrst eptirfylgjandi ávarp,
er þórarinn prófastur Böðvarsson las upp
og afhenti biskupi, þá munnlega kveðju
frá prestaskólanum, er forstöðumaður, lec-
tor H. Hálfdánarson flutti; sömuleiðis á-
varpaði formaður bæjarstjórnarinnar, land-
ritari Jón Jensson, hann nokkrum orðum,
og því næst rektor lærðaskólans, Dr. Jón
þorkelsson, og loks af hendi læknaskólans
dósent Tómas Hallgrímsson (í fjarveru
landlæknis). Biskup þakkaði með nokkr-
um viðkvæmum orðutn.
Aminnzt ávarp var svo hljóðandi :
Háœruverðugi herra biskup l
Hálf öld er nú liðinn síðan þjer voruð vígður
til kenniraannlegs emhættis í kirkjunni; í hálfa
öld hafið þjer unnið sem trúr og mikilhæfur
verkinaður í víngarði drottins, kirkju og krist-
indómi til eflingar á meðal vor. í meira en
20 ár hafið þjer setið með sæmd á biskupsstóli
lands vors, og annálar kirkju vorrar munu
geyma nafn yðar meðal hinna mörgu ágætis-
manna, sein vorið hafa fyrirrennarar yðar í
pessari stöðu, og getið sjer ódauðlegan orðstír
sem beztu menn þjóðarinnar. En áður en þjer
tókuzt á hendur hið ábyrgðarmikla yfirhirðis-
starf, höfðuð þjer unnið þýðingarmikið verk í
þjónustu kirkjunnar, þar sem þjer, sem fyrsti
forstöðumaður prestaskóla lands vors, komuð
þessari harla þörfu menntastofnun á fastan
fót og stýrðuð henni í 19 ár.
Háæruverðugi herra biskup!
Ásigkomulag lands vors veldur þvi, að ein-
ungis iáir af hinum mörgu, sem þess mundu
óska, eiga kost á að ávarpa yður við þetta
hátíðlega tækifæri. þótt vjer sjeum ekki sjer-
staklega til þess kvaddir, leyfum vjer oss þó að
bera fram fyrir yður þakklætisorð og blessun-
aróskir á þessum degi, ekki einungis í nafni
sjálfra vor, heldur og í nafni kennidómsins á
landi voru, já í nafni allrar þjóðarinnar, því að
vjer erum þess fullvissir, að allur landslýður
muni taka undir með oss.
þegar vjer í dag heilsum yður, háæruverð-
ugi herra biskup, sem júbilkennara í kirkju
vorri, þá þökkum vjer fyrst og fremst mcð yður
gjafaranum allra gæða, sem hefir leitt yður
og styrkt á langri liðinni æfi, og gefið yður náð
til að vinna mikið og gott verk. Vjer þökkum
yður því næst fyrir hið marga og mikla, sem
þér hafið unnið til heiðurs og heilla kirkjunni
og ættjörðinni. Vjer þökkum yður í nafni
hinna mörgu kennimanna, sem þjer hafið
menntað og vígt til hins háleita starfs, er
þeir gegna. Vjer þökkura yður í nafni safn-
aðarins fyrir hinar mörgu góðu og upp-
byggilegu guðsorðabækur, sem þjer hafið auðg-
að með hina íslenzku kirkju, og með fögnuði
hafa verið meðteknar og viðhafðar á flestum
heimilum landsins, og vakið og glætt guðræki-
legar hugleiðingar i hjörtum svo margra.
Vjer biðjum algóðan guð að halda náðar-
samlega styrkri verndarhendi sinni yfir yður
og ástvinum yðar á öllum ókomnum æfidögum;
vjer biðjum hann að gefa yður fagurt og frið-
sælt æfikvöld, og láta verk yðar bera blessun-
arríkan ávöxt á ókomnum tíma, sínu riki til
eflingar og ættjörðu vorri til varanlegra heilla.
Reykjavík, 17. júlí 1886.
pórarinn Böövarsson. Hallgrímur Sveinsson.
Magnús Andrjesson. Helgi Hálfdánarson.
Eiríkur Briem. Jens Pálsson.
Embættispróf við háskólann- Jón
þorkelsson frá Staðarstað tók kennarapróf
(magisterconference) við Khafnarháskóla í
norrænni málfræði 26. f. m. ('admissus).
Brauð, veitt. Kálfatjörn var veitt 30.
júní síra Árna jþorsteinssyni á Ríp.
Mýra-ogBorgarfjarðarsýsla.Lands-
höfðingi hefir 6. þ. m. skipað Sigurð þórð-
arson, settan málaflutningsmann við lands-
yfirdóminn, til að reka þá sýslu á eigin á-
byrgð, meðan hún er laus.
Strandferðaskipið Thyra kom hing-
að f gærmorgun. Hafði orðið að snúa
aptur við Horn 17. þ. m. austur um sök-
um hafíss. J>að fór aptur eptir einnar
stundar dvöl vestur á vesturhafnirnar. Með
því kom meðal annars skólastjóri Jón A.
Hjaltalín á Möðruvöllum með frú sinni,
síra Matth. Jochumsson frá Akureyri, al-
þingismennirnir Einar Thorlacius sýslu-
maður og síra Arnljótur Ólafsson', sýslu-
maður Jóhannes Ólafsson, cand.juris Hann-
es Hafsteinn, síra Lárus Jóhannesson o. fl.
Camoens, vesturfara- og hrossakaupa-
skip Slimops, er fór hjeðan 5. þ. m. vest-
ur fyrir land og norður, og komst
klakklaust alla leið, þótt ís væri fyrir Horn-
ströndum, kom nú hingað aptur frá Skot-
landi í gærkvöldi. Með þvíkom agent Sig-
fús Eymundsson og 14 enskir ferðamenn.
það fer aptur sunnudag 25. þ. m.
Hæstarjettardómur. Hæstirjettur
dæmdi 28. f. m. í máli því, er yfirdómari
L. E. Sveinbjörnsson hafði höfðað á hendur
landssjóði út af því, að þegar hann var
vorið 1878 settur til að þjóna bæjarfógeta-
embættinu í Reykjavík og sýslumannsem-
bættinu í Gullbringu- og Kjósarsýslu um
stundar sakir, eptir að hann var orðinn yfir-
dómari, hafði landshöfðingi að hans sögn
heitið honum auk hálfra sýslumanns- og
bæjarfógetalauuanna öllum óvissum tekjum
í þessum embættum, en ráðgjafinn skipaði
honum að skila aptur óvissu tekjunum, af
því að þær hefðu verið honum óheimilar
eptir launalögum 15. okt. 1875, 4. gr., sbr.
við 3. gr., og ljet halda þeim eptir af yf-
irdómaralaunum hans, er hann vildi eigi
hlýðnast því boði.
L. E. Sveinbjörnsson hafði unnið málið
fyrir landsyfirrjetti. En hæstirjettur komst
að gagnstæðri niðurstöðu, og segir svo í á-
stæðum hans:
»f>að er hvorttveggja, að, eptir því sem
fram er komið í málinu, hefir það ekki
verið tilgangur landshöfðingja að heita
stefnda [L. E. Svb.] meiri tekjum en hann
hafði heimild til eptir áminnztum lagafyr-
irmælum, með því að loforðið stafaði ein-
göngu frá skökkum skilningi á lögunum,
enda hefir stefndi eigi haft ástæðu til að
gera ráð fyrir, að landshöfðingi hafi viljað
gefa slíkt loforð. þetta sjest á ummælum
þeim, er landshöfðingi liafði, eptir því sem
stefndi segir sjálfur frá, þegar þeir áttu
tal saman um þetta, út af því að hann
hafði sjálfur boðizt til að þjóna embættun-
um með, enda er ekkert fram komið því