Ísafold - 21.07.1886, Side 4
að offyllast af bókum; meðan verið er að
ráðgast um það fram og aftr, hvort leggja
eigi, og hvenær, út í þann kostnað að
byggja nýja viðbót, eða nýja bókhlöðu og
slíkar bollaleggingar ganga venjulega lengi,
eins og náttúrlegt er, áðr enn í svo harða
nauðsyn rekr, að allir sjái, að lengr verðr
ei undan komizt, — meðan þessu gengr, segi
eg, offyllist safnið, og allskonar óregla
kemr inn með þeirri, eins og allri annarri,
offylli. Að þessu rekr aldrei með þá bók-
hlöðu sem hér ræðir um. Hana má færa
út hvenær sem vill. Húu er, eins og er-
lendir byggingameistarar hafa einróma ját-
að, »svo gjörð, að hún víðkar hæglega um
leið og hún vex að innan, og verðr hin
ódýrasta er menn líklega geta hugsað sérn.1)
það er nú ekki vegna þess eingöngu, að
íslendingar þurfa bókhlöðu, að eg dirfist
að vekja athygli þeirra á þessari; heldr
að þeir geta með þessari byggingu slegið
þó ekki svo fáar flugur í einu höggvi sér
til sparnaðar. þeir geta haft sömu bygg-
inguna til skýlis fyrin bókasafn lands, og
landsskjala-safn (Archiv), fyrir bókmennta-
fjelagið, fornleifafjelagið, og yfir höfuð öll
söfn lands, listaleg og vísindaleg, um langa
tíma. þegar bóksafn yxi svo, að þar að
bæri, að það gengi á þann hluta byggingar,
sem næsta safn væri í, þá þyrfti ekki ann-
að enn að flytja það safn um set fram
fyrir öll hin söfnin, svo að það yrði þásíð-
ast, sem áður var fyrst.
Yrði þessu framgengt á Islandi, þá hefðu
íslendingar leyst þann hnút, sem mörg
efnaðri þjóð vildi hafa leyst fyrir löngu,
að hafa helztu söfn sín undir sama þaki.
Fyrir hina samanberandi vísinda-stefnu
þessarar aldar er slíkt fyrirkomulag á vís-
indalegum og öðrum söfnum alveg nauð-
synlegt. í þessu efni er því Islendingum
gefið að verða fyrirmynd annara þjöða, ef
þeir vilja sýua af sér dálitla frammtíðar
búhyggju. Sóma síns vegna, óhjásneiðan-
legrar nauðsynar vegna verða þeir að fá
vanhirtum söfnum sínum skýli; enn þetta
verður þeim ódýrara enn nokkurt annað
til frammbúðar.
Eg held yfir höfuð að tala, ef Islend-
ingum þykir líklegt að þeir noti þetta
húslag fyrir söfn sín með tímanum, að
hyggilegast væri fyrir þá að heimila sér
réttinn til þess, meðan eg sjálfur er eig-
andi uppgötvunar minnar. f>að verðr þeim
1) Hr. A. Waterhouse, sem er Bnglands lang-
mesti húsasmiðr, hefir farið |)essum orðum um
uppdi'átt miun í skýrslu um hann til háskólans.
Munnlega hehr Waterhouse látið uppi við mig
álit sitt um hann, sem eg læt biða síðari tíma
að birta. Að öllu óreyndu myndi það otiof hykja.
ódýrara enn að eiga við aðra eigendr henn-
ar, sem verða kunna.
Cambridge, 27. júni, 1886.
Eirlkr Magnússot?.
AUGLÝSINGAR
i simfeldu máli m. smáletri kosla 2a. (Jiakkaráv. 3a.) hvert orá 15 stafa frekast
a öíru letri eJa setning I kr. fjrir þumlnng dálks-lengdar. Bargun át í hönd
Samhvœmt beiðni umboðsmanns fyrir verzl-
un Carl Franz Siemsens í Beylcjavík, G.
Emil Unbehagens, í brjefi dags. 28. f. m.
meðteknu 12. þ. m., verður eign þessa verzl-
unarhúss, svo nefnt Kórunes (að fráskildum
öllum reka) sunnanvert við Straumfjörð, með
grandanum austur undir grös, selt við opin-
ber uppboð, er fara fram á þann hátt, er
hjer segir :
1. priðjudaginn 29. þ. m. kl. 12 á hádegi.
2. priðjudaginn 13. júlí ncestkomandi kl. 12
á hádegi.
3. priðjudaginn 27. júlí nœstkomandi kl.
12 á hádegi.
Hin 2 fyrstu uppboð fara fram á skrif-
stofu sýslunnar, hið priðja og síðasta á eign-
inni, sem seld er.
Skilmálar fyrir sölunni verða til sýnis
hjer á skrifstofunni 4 dögum áður en hið
fyrsta uppboð fer fram.
Skrifstofu Mýra og Borgarfjarðarsýslu ff '86
(xiiðm. Pálsson.
Meff þvi að jeg hefi framselt þeim
herra B. Muus & Co. í Kaupmanna-
höfn allar mínar útistandandi skuhiir,
eins og þœr eru eþtir verzunarbókvmtm
þann 22. júní þ. á , og hefi falið cand.
jur. Gufflaugi Guðmundssyni a hendur
aff ganga eptir skuldunum, þá vil jeg
hjer með áminna alla, sem skulda mjer,
um að borga skuldir sínar hið fyrsta.
Reykjavík, 20. júlí 1886.
J»orlákur Ó. Johnson.
*
* *
Samkvœmt ofanritaðri auglýsingu er
hjer með skorað á alla hlutaðeigendur
að greiða mjer hið fyrsta skuldir sínar,
eða semja við mig um borgun á þeim.
þeir innanbæjar- og nœrsveitamenn, er
eigi hafa gert það nú þegar, geta bú-
izt við lögsókn án ýtrari fyrirvara.
d. u. s.
Guðl (xuðmunsson.
cand. juris.
Næstliðinn kóngsbænadag hvarf mjer úr
heimahögum, grá hryssa, 3 vetra, óafrökuð, vök-
ur, mark að mig minnir heilrifað hægra, (grann-
gjört,) hvern þann sem hitta kynni hryssu |iessa.
bið jeg gjöra mjer aðvart eða halda til skila,
til mín að Haga í Holtum. Siguröur Sigurðsson.
Hattar, nýir, nióðins,
frá hinni nafnkenndu hattaverksmiðju
Bodackers í Khöfn, fást nú hjá
F. A. Lö\c í Reykjavík.
Til almcnnings!
Læknisaðvörun.
þess hefir verið óskað, að ég segði álit mitt
um „bitter-essents“, sem hr. C. A. Nissen hefir
búið til og nýlega tekið að selja á íslandi og
kallar Brama-lífs-essents. Ég hefi komizt yfir
eitt glas af vökva þessum. Ég verð að segja,
að nafnið Brama-lífs-essents er mjög vill-
andi, þar eð essents þessi er með öllu ólíkr
inum ekta Brama-lífs-elixir frá hr. Mans-
feld-Búllner & LaS3en, og því eigi getr
haft þá eiginlegleika, sem ágæta inn egta.
par eð ég um mörg ár hefi haft tækifæri til, að
sjá áhrif ýmsra bittera, en jafnan komizt að
raun um, að Brama-lífs-elixír frá Mansfeld-
Bullner & Lassen er kostabeztr, get ég
ekki nógsamlega mælt fram með honum
einum, umfram öll önnur bitterefni, sem ágætu
mellingarlyfi.
Kaupmannahöfn 30. júlí 1884.
E. .1. Melchior,
læknir.
Einkenni ins óekta er nafnið C. A.
NISSEN á glasinu og miðanum.
Einkenni á vorum eina egta Brama-
lífs-elixir eru firmamerki vort á glasinu, og á
merki-skildinum á miðanum sest blátt Ijón og
gullhani, og innsigli vort MB & L í grænu
lakki er á tappanum.
Man sjeld-BúUncr & asscn,
sem einir búa til inn verðlaunaða
Brama-lífs-elixir.
KAUPMANNAHÖFN. [4r.
Hjer meö er skorað á þá, er cnn eiga ógreidda
áfallna vexti til sjóða þeirra, sem eru undir
minni umsjón, að greiða þá sem fyrst, og skal
athygli leitt að því, að höfuðstóll er samkvæmt
skutdabijefunum sjálffallinti til endurborgunar
þegar eigi er staðið í skilum með vextina ná-
lægt rjett'.m gjalddaga.
Biskupinu yfir Islandi.
Revkjavik 19. júli 1886. P. Fjetursson.
Til sölu með góðu verði væn húseign hjer
í bænum : íbúðarhús 20 álna langt og 12 álna
broitt, með garði og útihúsum. Nánari vísbend-
ing hjá ritstjóra þessa blaðs.
TIL SÖLIJ á afgreiðs’.ustofu ísafoldar:
Gröndals Dýrafræði.................2,25
Gröndals Steinafræði................1,80
islandssaga þorkels Bjarnasonar . . 1,00
TJm uppeldi barna og unglinga eptir
Herbert Spencer...................1,00
Sparsemi, eptir Samuel Smiles . . . 1,50
Hættulegur vinur...................0,25
Landamerkjalögin....................0,12
Ljóðmæli Gríms Thomsens .... 1,00
Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.