Ísafold - 15.06.1887, Side 4
108
þær átt heima í skólamim, ef þær vilja, en
líka út í bænum, ef það þykir betra. Jeg
hygg æskilegt, að allar námsmeyjar anuar-
staðar að (en úr Reykjavík) eigi heima í
skólahúsinu, og að þar gæti komizt á
nokkur talsverð búsýsla, er stúlkurnar til
skiptis tækju þátt í, eins og áður var sagt.
Yæri því þannig hagað til, gæti líka for-
stöðukonan átt kost á að hafa og hlyti að
hafa duglega aðstoðarkonu, er jafnan væri
við höndina að veita hinum ungu stúlkum
tilsögn og leiðbeiningu. Og þó þetta nú
aldrei yrði nema kaupstaðar-búsýsla, mætti
samt af henni mikið læra, er vel væri
notandi í öllum búskap, bæði til sjós og
sveita, en þó eiukum að því, er snerti
þrifnað og reglusemi.
Reykjavík, í maimánuði 1887.
Thóra Melstcð.
Hitt og þetta.
Hann VAB SAMT SÝKNAÐUR. það var á
„duggarabandsái um“ Kaliforriíu. það var bág-
borið rjettarástand þar sumstaðar í þá daga.
þjófar og bófar óðu þar uppi og alls konar ill-
þýði, en aldrei bar til, að nokkur þeirra kæm-
ist undir manna hendur fyrir athæfi sitt. Ym-
ist voru dómendur sjálfir eða nánustu vinir
þeirra og vandamenn samsekir bófunum meira
eða minna, eða þá hræddir við þá af öðrum
orsökum, enda ekki menn til að fást við harð-
snúna og slungna fanta, þótt þeir hefðu annars
haft allan vilja á því.
Enginn mundi dæmi þess í því hjeraði, að
nokkurn tíma hefði tekizt að láta afbrotamann
játa glæp sinn, þótt sekt hans væri bersýnileg
hverjum heilvita manni.
Hema einu sinni, að einhver bíræfnasti þorp-
inn, alræmdur fyrir rán og gripdeildir, játaði
ótilkvaddur á sig glæp, sem hann hafði meira
að segja ekki verið grunaður um í það sinn
öðrum fremur.
það var eins og ljett væri torfu af aumingja
fólkinu, sem átti undir þessum ókjörum að búa
og var farið að örvænta sjer allrar liknar fyrir
þeim ófögnuði. „þar fáum við loksins einn
fantinn dæmdan“ hugsaði það, „iiðrum til skelt-
ingar og viðvörunar“.
En þvi átti ekki að verða kápan úr því
klæðinu.
Dómendurnir sýknuðu manninn í einu hljóði.
Af hvaða ástæðu V
„Af því“, sögðu þeir, „að hann er og hefir
allt af verið sá fyriitaks-lygalaupur, að við
vitum ekki til að hann hafi nokkurn tima satt
orð talað síðan hann kom til vits og ára, og
þvi hlýtur hann að hafa logið á sig þessum
glæp iíka“.
FjÖLKVÆNI MobmÓNA. þingið í Vashiug-
ton hefir samið ný lög í vetur gegn fjölkvæni
Mormóna í Utah. þar er kirkjufjelag Mormóna
rofið og eignir Mormónakirkjunnar gerðar upp-
tækar, og skal þvi fje varið til alþýðuskóla í
Utah; óskilgetin börn skulu svipt erfðarjetti
og konur kosningarrjetti. Enginn Mormóni
fær að neyta atkvæðisrjettar síns nema hann
hafi unnið eið að því áður, að hann vilji halda
lög þingsius um að útrýma fjölkvæni.
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv.
3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða
setning 1 kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg.úti hönd.
Af því að kaffi allt af hækkar í verði
utanlands, og verður því svo dýrt hjer, að
tilfinnanlegt verður fyrir hvern og einn fá-
tækling að neyta þess eingöngu, hef jeg
flutt hingað ýmsar sortir af kaffiblending,
sem bæði má brúka eingöngu, en þó mun
verða bezt að blanda með kaffi, nefnilega:
Bú-kaffi (kaffiblending), sem kostar ðð
aura pundið, og má brúka ein-
göngu.
Mokka-kajfjí, sem brúkast til að blanda með
kaffi og drýgja það, á 40 aura
pundið; og
Mynda-kajfi, sem líka brúkast til að blanda
með og til drýginda, á 36 aura
pundið.
þessar sortir af kaffiblendingi fást hvergi
á Islandi nema hjá undirskrifuðum.
Reykjavík 7. d júnímán. 1887.
II. Th. A. Thoinsen.
Uppboðsauglýsing.
Eptir ráðstöfun skiptaráðandans í dánar-
bid kaupmanns M. Smiths verður nr. 5 í
Hafnarstrœti hjer i bænum (»Hotel Alex-
andra«) selt við opinbert uppboð, sem haldið
verður þar á staðnum laugardaginn 25. þ. m.
kl. 12 á hádegi.
Söluskilmálar verða til sýnis á skrifstofu
bœjarfógeta degi fijrir uppboðið.
tíæjarfógetinn í Reykjavík 14. júní 1887.
Halldór Daníelsson.
Skiptafundur
í dánarbúi Gísla heit. Björnssonar á Bakka
verður haldinn á bœjarþingstofunni föstu-
daginn 1. dag júlímán. nœsthomandi, og
verður þá meðal annars ráðstafað óseldum
eignum búsins og lagt fram yfirlit yfir skuld-
ir þess.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 14. júní 18ö7.
IlalUlór Daníelsson.
Proclama.
Hjer með er samkv. lógum 12. apríl 1878
og opnu brjefi 4. jan. 1861 skorað á alla
þá, er telja til skuldar í dánar- og fjelags-
búi Hákonar heit. Bjarnasonar kaupmanns
frá Bíldudal í Barðastrandarsýslu og eptir-
lifandi ekkju hans, frú Jóhönnu Kr. Bjarna-
son, að lýsa skuldum sínum og sanna
þcer fyrir skiptarjetti Beykjavíkur kaupstað-
ar áður en 12 mánuðir eru liðnir frá síðasta
birtingardegi þessarar innköllunar.
Bæjarfógetinn i Reykjavík 13. júní 1887.
Halldór Daníelsson.
genter til atsœlge lovlig tillaáte Stats-Rræmie-
Obligationer söger god Provision, eventuelt
fast Gage. Billet mrkt „God Agentw', Poste
restanie, Kjöbenhavn.
Sem umboðsmaður C. F. Siemsens i
Hamborg skora jeg hjer með á alla þá,
sem enn þa ekki hafa samið við mig um
borgun á skuldum sínum til verzlunar
þeirrar hjer i bænum, sem G. E. Unbe-
hagen i fleiri ár hefur verið forstöðu-
maður fyrir, að borga þær til min fyrir
ágúsimánaðarlok næstkomandi.
Reykjavík 7. júní 1887.
N. Zimsen.
6000 kr.
Gegn ágœtri tryggingu óskast 6000 kr. til láns
meö 5°/0 ) entu. Nánari vísbending hjá ritstj.
Kvennaskölinn i Reykjavik.
f>eir, sem vilja koma konfirmeruðum,
efnilegum yngisstúlkum í kvennaskólann
næstkomandi vetur, (1. okt. til 14. maí),
eru beðnir að snúa sjer í þeim efnum til
undirskrifaðrar forstöðukonu skólans, eigi
seinna en 31. ágústmán. næstkomandi.
Reykjavik 4. júní 1887.
Thóra Melsteð.
Meó því aó jeg ferafstaó til Skotlands hinn
13. þ. mán. og verð fjarverandi um nokkurn
tíma, þá bió eg alla þá, sem þurfa aó finna
mig annaóhvort vióvíkjandi Vesturheimsferðum
eða í prentunarerindum, að snúa sjer til stú-
dents Olafs Rósenliranz, sem veitir andsvör og
afgreióslur í þeim efnum fyrir mína hönd, og
verður hann vanalega að hitta á hverjum virk-
um degi í húsi mínu í Lækjargötunni frá kh 8
f. m. til kl. 7 e. m.
Reykjavík 11. júní 1887.
Sigfús Eymundarson.
10% Rabat.
1 efri búð minni eru nýkomnar kramvörur,
sem seljast með bezta verði; það, sem eptir
er frá því áður, aí kram-, járn- og glasvörum
o. fl., selst með 10 prósent afslætti.
M. Johannessen.
þeim, sem getur gefið upplýsingar, sem leiða
tii uppgötvunar um, hver hafi síðastliðinn
sunnudag eða aðfaranótt mánudags slitið land-
taug á LAXANÓT minni við Batteríið, iofa
jeg þóknun.
Um ieið vil jeg biðja menn. ef þeir þurfa að
róa hjá laxanótum mínum, að þeir þá rói fvrir
utan og ekki þvert yfir þær, eins og margir
hingað til hafa gjört, þv að það spillir fyrir
veiðinni, og skemmir netin.
M. Johannessen.
Undertegnede Repræsentant
for
Det Kongelige Octroierede Almindelige
Brandassurance Compagni
for Bygninger, Varer og Effecter, stifte
1798 i Kjöbenhavn, modtager Anmeldelser
om Brandforsikring for Syslerne Isafjord,
Bardastrand, Dala, Snæfellsnes og Hnappa-
dal, samt meddeler Oplysninger om Præ-
mier etc.
N. Chr. Gram.
Ritstjóri Björn Jónsson, cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar