Ísafold - 18.04.1888, Blaðsíða 1

Ísafold - 18.04.1888, Blaðsíða 1
itemur út á miðvikudags- morgna. Verð árgangsins (60 arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrirmiðjan júlfmán. ÍSAFOLD. Uppsögn (skrifl.) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útg. fyrir I.okt. Afgreiðslu- stofa i ísafoldarprentsmiðju. XV 18. I Reykjavík, miðvikudaginn 18. apríl. 1888 69. Innl. frjettir. 70. ísfirðingar og minni hlutinn í stjórnarskrár- málinu. Orðabókar-ritdómurinn. 71. Óbeit á þakkarávörpum. Augljs. Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. I—9 Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. I—2 Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 11—2 útlán md„ mvd. og Id. kl. 2—3 Söfnunarsjóður Rvíkur opinn I. mánud. í hverjum mánuði kl. 4—5 Veðurathuganir í Reykjavík, eptir Dr. J.Jónassen aprfl | Hiti (Cels.) Lþmælir Veðurátt. ánóttujumhád. fm. | em. fm. em. M.U. - 4 A- 1 29,9 | 29.9 0 b 0 b F. 12. - 4 0 29,6 29,8 N hv b N h b F.i3. - 5 + 3 29,8 29,9 N h b N h d L. 14. - 2 + 3 30, 3°d Na hv b N h b S. is. - 2 + 4 3°.l 30.1 Na h b N h b M.16. - 2 + 2 3°, 3°, N h b N h b Þ. 17. - 5 + « 3°. 1 3°. N h b N h b Alla vikuna hefir vindur blásið frá norðri, opt rok-hvass til djúpa, hjer optast hægur innfjarða og bjart og heiðskírt veður, og sama veðrið helzt við enn þá; talsverður kuldi á hveni nóttu. Reykjavík 18. apríl 193. í>ingmálafundur. A almennum fundi er samkvæmt fundarboði 1. alþingismanns Isfirðinga var haldinn á Tsafirði 16. þ. m. og þar sem mættir voru um 80 manns, þar á meðal flestir sýslunefndarmenn ísafjarð- arsýslu, var í einu hljóði samþykkt svolát- andi fundarályktun: iFundurinn lýsir fullu vantrausti áþeim þingmönnum, cr á síðasta alþingi skárust nr liði í stjórnarskrármálinUyOg skorar fast- lega á þá að leggja niður þingmennsku fyr- ir ncesta þing, svo að kjósendum þeirra gef- ist kostur á að láta í Ijósi með nýjum kosn- ingum, hvort vilji þeirra i stjórnarskrár- málinu sje annar en við kosningarnar 1886*. þessa ályktun var oss af fundinum falið biðja yður, herra ritstjóri, að birta í blaði yðar. ísafirði 17. marz 1888. Matthías Ola/sson. Skiíli Thoroddscn. þorsteinn Benediktsson. Til ritstjóra ísafoldar. Afmæli Forngripasafnsins- Eptir- farandi ávarp, skraut-ritað af Benedikt Gröndal, var sent í f. m. síra Helga Sig- urðssyni: Til síra HELGA SIGURDSSONAR, fyrr- um prests að Melum.—Út af nýafstöðnu 25- ára-afmæli Forngripasafnsins, sem þjer þvímiður ekki gátuð verið viðstaddir, leyfum vjer oss að senda yður, háttvirti herra, sem áttuð svo mikla hlutdeild í stofnun þessa þýðingarmikla safns, kveðju vora. Yður má vera það mikil gleði á ellidögum yðar, að vita þessa stofnun, sem þjer lögðuð hyrningarsteininn í, vera orðnaeina hinahelztu prýði höfuðstaðarins og sóma landsins. Oss hefði verið einkar-kært, að yður mætti hlotnast verulegri viðurkenning en hingað til hefir raun á orðið; en hvort sem þess verður auðið eða ekki hjer eptir, þá viljum vjer ekki láta þetta fyrsta minningarár safnsins líða hjá án þess að láta yður i Ijósi í orði þakklæti vort og viðurkenningu og óska yður allra heilla. Ret/kjavík 14. niarz 1888. E. Th. Jónassen. P. Pjetursson. Arni Tlwrsteinsson. Hallgrtmur Sveinsson. Jon porkelsson. Björn Magnússon Olsen. porvaldur Thóroddsen. Páll Melsteð. T. Hallgrimsson. Jón Árnason. R. Kr. Friðriksson. Guðbr. Finnbogason. pórhallur Bjamarson. Asmundur Sveinsson. Björn Jonsson. Halldór Datuelsson. Bj'örn Kristjánsson. Benedikt Gröndal. Steingrimur Johnscn. porl. <). Johnson. Hcrdís Benedictseti. Jón Pjctursson. Einar Júnsson. 0. Finsen. Joh. Hansen. Einar Arnason. N. Zimsen. Jón 0. V. Jónsson. Kristján Jónsson. G. Zoéga. S. E. Waage. Geir T. Zoéga. L. E. Sveinbjörnsson. Guðm. Thorgrimscn. Hallgr. Melsteð. Páll porkclson. N. S. Krugcr. Sighvatur Bjarnason. E. porkelsson. Ó. Ámundason. Th. Thorsteinsen. H. Hálfdánarson. St. Thorarensen. Vald. Ásmundarson. Pálmi Pálsson. Gcstur Pálsson. Egilsson. Hannes Hafstein. Helgi Helgason. H. Guðmundsson. Halídór Jónsson. Guðl. Guðmundsson. Jónas Helgason. Halldór Melsteð. J. Jónassen. Sigurður Sigurðsson. Björn Guðmundsson. Jón Arason. S. Melsteð (handsalað). Bjöm Jensson. Jón Jensson. lndriði Einarsson. Ó. Iiósenkranz. Skipskaða er að frjetta vestan úr Patreksfirði, í stórviðrinu 26. f. m., 11 menn á áttæring í hákarlalegu, formaður Guð- bjartur Jonsson, ungur bóndi efnilegur, frá Breiðuvík, hásetarnir vinnumenn af ýms- um bæjum í sveitinni (Rauðasandshreppi) flestir eða allir. Ekkert fundizt af skip- inu eða mönnunum; haldið, að skipið hafi sokkið af frosti. Hafís segja fiskiskútur af vestfjörðum hafa verið kominn vestur fyrir Isafjarðar- djúp í vikunni fyrir helgina. Frá Djúpinu frjettist nokkru áður, að ekki væri fært fiski3kútum á sjó fyrir ís.—Fiskilítið og gæftalaust á vésturfjörðunum. Aflabrögð. I gær og í íyrra dag hefir verið mikið góður afli hjer, vestur á Sviði, framt að 60 í hlut af þorski og stútung, mögrum nokkuð; en misfiskið, enda sjó- veður ekki gott í gær: helmingur sneri aptur. Suður á Miðnesi hafði verið bezti afli vikuna sem leið. Úr Garði og Leiru o. s. frv. eru frjett- irnar þessar, eptir brjefum sunnan að: 7. apríl. „Hinn 5. þ. m. reru meun hjer al- mennt [af Ströndinni] út í Leiru og Garðsjó, og öfluðu þá almennt heldur líflega á jœri, sjer í lagi í Leirusjó, af allvænum fiski, sem leit út fyrir að vera ný ganga. Færamenn kvörtuðu sáran yfir því, hvað þeir hefðu verið umkringdir af lóðum, einkanlega í Garðssjónum, þvi þar hafði varla nokkurt skip sjezt með annað veið- arfæri en ýsulóð, enda fengu þau færaskip, sem þangað fóru, bæði færra í blut og miklu rýr- ari fisk en hin, sem sátu í Leirusjó. Allflestir færamenn fengu frá 10—20 í hlut, nokkrir 20—30, og einstöku skip um 35, eitt skip fekk 40 í hlut þennan dag; en lóðarmenn hlóðu flestir, og sumir komu ekki aflanum á, en urðu að hausa út, vestur í Garðsjó, til nið- urburðar fyrir gönguna! í gærdag reru menn almennt á sömu slóðir, flestir þá í Leirusjóinn, því þar var lóðarmergð- in minni og fiskurinn vænni, en þá varð varla nokkur tnaöur var á fœrin, enda litið eða mjög misjafnt á lóðina líka. J>að lítur þess vegna núna út lyrir, að lóða- mergðin eyðileggi aflabrögðin, af því að mönn- um gaf að róa þessa daga, á meðan út leit fyrir að fiskurinn væri að ganga. í gær (6.) var sagður bezti afli úr Höfnum og af Miðnesi. Ef sú ganga, sem þar er nú, kemst einhvern tíma bráðum inn fyrir Garðs- skaga, þá mætir hún þar þessari takmarkalausu lóðabendu, sem nú með vaxandi straum rekst þar um sjóinn fram og aptur og rakar botninn, svo allt fer á sömu leið og áður: að fiskurinn hefir þar ekkert viðnám, en hörfar aptur til hafs eða norður svið“. 12. apríl. „Nú ofbýður mjer aðferð fiski- manna. í Garð- og Leirusjó hefir komið mik- ill færafiskur, sem vafalaust hefði komið inn á grunn, ef menn hefðu ekki nú fundið upp á því, að fæla hann burt með lóðum, fyrst net voru þar bönnuð. Og eigi að síður er þó tals- verður fiskur í Leirusjó, þetta frá 5—30 í hlut á færi, og í gær varð vel vart fyrir innan lín- una, 10—20 í hlut í Leirunni“. 14. apríl. „í>ví miður ætlar reynslan hjer að sanna sama, sem hvervetna kringum landið,

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.