Ísafold - 02.02.1889, Blaðsíða 3

Ísafold - 02.02.1889, Blaðsíða 3
39 vóru til að geymast á safni hjer í Kmhöfn, til þess menn gætu sjeð hagleik landsmanna við málmsmíði og trjeskurð, heldur en þeim ttiunum, sem árlega eru seldir til enskra og annara þjóða ferðamanna, og þannig dreifast VÍðsvegar og hverfa landinu að fullu. Til þess þó að vera viss um, að styggja engan, sýndi jeg forstöðumanninum fyrir Forngripasafninu í Reykjavík muni þá, er jeg keypti, og bauð honum að fá í skiptum, ef það væri eitthvað er hann áliti slæmt fyrir íslenzka safnið að missa. |>að var að eins einn hlutur, sem honum leizt vel á, en þó kom hann ekki aptur, til að fá þetta, áður en jeg sendi dót mitt til Kaupmannahafnar. Af því mig hefir langað til að auka safnið í »Dansk Folkemuseum« af munum og »Kunstindustri« frá Islandi, og sömuleiðis það lítilræði, er jeg á sjálfur, og þannig varðveita hlutina frá glötun, þá hef jeg útvegað frá Islandi, síðan jeg var þar, nokkra muni af málmi og trjeskurði, en jeg hef ekki reitt af íslandi einn einasta hlut, sem hægt er að kalla forngrip, og jeg hef heldur ekki selt einn einasta hlut til Englands eður þýzkalands, hvorki til safna, eður einstakra manna. »Fj,- konan« fer því með bein ósannindi í þessu efni. Fyrst ritstj. »Fj.konunnar« var svo fund- vís á það, sem stóð um mig í »Nationaltid.« í júlímán., þá, hefir hann líklega fundið það sem stóð aptur í ágústmán. í sama blaði, þar sem blaðstjórnin gaf til kynna, að hún frá viðkomandi stöðum hefði fengið áreiðanlega vissu fyrir því, að þær sakargiptir, sem á mig vóru bornar, væru rógburður frá vissum manni, og með öllu tilhæfulausar. Hefði ritstj. »Fj.konunnar« viljað vera rjettlátur maður, þá hefði hann átt að taka í blað sitt leiðrjettingu þessa, svo þær ósönnu sakargipt- ir, er hann óverðskuldað hafði birt um mig, ekki stæðu sem sannleikur. Menn gætu kallað það þjóðrækni, þegar einhver gengst fyrir því, að engin nýtilegur eldri hlutur fari út úr landinu; en þjóðrækni getur það og heitið, að koma atkvæða-hlutum á söfn erlendis, svo þarlendir menn geti met- ið hagleik og snild forfeðranna. Hvernig ætti fjöldi manna víða um heim, að geta glatt sig við að skoða grfsk, rómversk og egipzk listaverk, ef enginn hefði mátt flytja þaðan slíka muni? * Að kaupin á þeim fáu hlutum, sem jeg fjekk á íslandi, hafi hindrað rannsóknir mínar —áhrærandi laxveiðar og vötn á Islandi—, því neita jeg algjörlega. þótt »Fj.konan« sje óverðskuldað að ybbast við mig, þá hef jeg sama hlýja hug til landa yðar fyrir það«. Aethue Feddeesen. * * * Að halda á lopti röngum áburði um sak- lausa menn, og ekki taka hann aptur, þegar hið sanna er upplýst, hlýtur hver góður mað- ur að virða sem vert er. Auk þess er það óhyggilegt, að reyna koma að inn kala hjá þeim mönnum, sem vilja og geta gjört land- inu gagn. Grein þeirri, er nálægt miðju sumri stóð í »Fj.konunni« til mín út af hr. Feddersen, er jeg búinn að gleyma, og hirði ekki um að svara, og sama er að segja um tvær aðrar greinir, er stóðu í »Fj.konunni« um sama leyti : iium ódýrt far til Kaupmannahafnar með póstskipunum« og um íslenzka muni á sýningunni í Kmhöfn. Að nokkrir menn fengu fyrstu verðlaun á sýningunni fyrir íslenzka muni, er bezta svar- ið upp á aðra greinina, og fullnæg sönnun fyrir því, að eigi var allt frá Islandi því til óvirðingar á sýningunni. Og svar upp á hina greinina, og hvort eigi hefði verið betra, að fleiri hefðu notað hin ódýru farbrjef til sýn- ingarinnar, væri samróma vitnisburður þeirra fáu sem fóru: Jeg, hafði gaman af því, er hver þeirra fyrir sig sagði við mig, þegar þeir komu heim aptur. »Já þegar jeg sá allan þann auð, þá snild, hið fallega handbragð á öllu, þótt ódýrt væri, þá miklu verklegu þekk- ing m. m., þá sá jeg hvað jeg og við Islend- ingar erum í raun og veru litlir, og hve mik- ið við eigum eptir að taka okkur fram«. þetta þyrftu fleiri landsmenn að sjá og finna, og enda væri það ekki að óþörfu, að ritstj. »Fjallkonunnar« styngi hendinni í sinn eiginn barm. Te. Gunnaesson. Bókmenntafjelagið- Út af óljósum orðatiltækjum í fundarályktun Hafnardeildar- innar í sumar (16. júní) viðvíkjandi samkomu- lagsskilmálum milli deildanna út af »heim- flutningsmálinu« leitaði stjórn deildarinnar hjer þegar skýringar hjá stjórn Hafnardeild- arinnar, samkvæmt því er ráðgjört var á aðalfundinum hjer í sumar, og fekk undir eins góð og greið svör þar að lútandi, svo að eigi virðist að því leyti ástæða til fyrir deild- ina hjer að hika lengur við að ganga að skilmálum þessum. Skilmálarnir eru þeir, að Reykjavíkur- deildin hafi, þegar þetta ár er liðið, allar fjelagstekjur hjeðan af landi, en greiði þar af 500 kr. á ári til Hafnardeildarinnar, sem hefir allar hinar útlendu fjelagstekjur og arð- inn af fjelagssjóðnum (sem er í Höfn). Út- gáfa Skírnis og Skýrslna og reikninga færist hingað, og lúta lagabreytingar þær, er upp verða bornar á fundinum hjer í dag, ef skil- málar þessir verða samþykktir, eingöngu að því. Svar upp á konungsávarpið- í Stjórnartíðindunum (B. 1. 1889) er birt svar konungsins upp á hollustuávarp Reykjavíkur- búa út af ríkisstjórnarafmælinu. Ráðgjafinn ritar landshöfðingja, að »hans hátign hafi lagt fyrir sig, að tjá þeim, er ávarpið sendu, að hans hátign hafi verið einkar-kært, að fá á stjórnarafmælisdeginum einnig þessa kveðju frá mönnum á íslandi, og að hans hátign hafi með heitu og einlægu þakklæti fundið til þeirrar hollustu og ástar til konungs og kon- ungsættar, er ávarpið lýsir«. Póstafgreiðslan á Breiðabólstað í Fljóts- hlíð er að boði landshöfðingja flutt að Odda á Rangárvöllum. Lán til kirkjubyggingar. Lands- höfðingi hefir heitið Holtsprestakalli í Rar.g- árvallasýslu 2,000 króna láni úr landssjóði til kirkjubyggingar, með þeim kjörum, sem al- þingi 1889 ákveður. Jafnframt hafði sóknar- presturinn, settur prófastur síra Kjartan Ein- arsson, beiðzt leyfis landshöfðingja fyrir því, að flytja mætti kirkjuna frá Holti að jörð- inni Asólfsskála, en þess hefir landshöfðingi synjað, með því að það mál hafi eigi fengið löglegan undirbúning, og verði léyfið eigi veitt nema »málið sje á ný borið upp á hjer- aðsfundi, samkvæmt 12. gr. laga -\7- 1880, og meiri hluti allra hjeraðsfundarmanna sam- þykki á fundinum kirkjuflutninginn, og biskup síðan leggi með honum« (Stjt.). Svínahraunsvegurinn. Til vegagjörð- ar frá Fóelluvötnum áleiðis til Reykjavíkur hafa veittar verið enn sumarið 1888 alls 12,648 kr. 86 a. Oveitt prestaköll. Breiðabólsstaður i Fljótshlið, augl. 16. jan., metinn 2562 kr. 99 a., en 700 kr. greiðast frá brauðinu í lands- sjóð. Miklibær í Blönduhlíð, augl. 30. jan. Met. 1077 kr. 99 a. Vöruverð. Eins og sjá má á skýrsl- j unni í síðasta blaði hefir kaffi hækkað enn í verði utanlands, enda er það nú komið upp í 1 kr. hjer í reikning, — 90 a. móti peningum. Tveir af eigendum hinna stærri verzlana hjer við Faxaflóa sunnanverðan, er reka verzlun í öllum þremur kaupstöðunum, Reykja- vík, Hafnarfirði og Keflavík, nefnil. Fischer og Knudtzon, hafa að sögn komið sjer saman um að gefa öllum hinum betri (skilvísari) viðskiptamönnum sínum þá uppbót á saltfisks- verðinu árið sem leið, að það verði 42 kr. alls fyrir skippundið. Annars var hæsta verð í kauptíðinni 40 kr., og það að eins hjá fáein- um kaupmönnum öðrum. Póstvanskil. Með desemberpóstinum hafði einhver aðgætinn póstafgreiðandi beint »ísafold« til Stykkishólms og fleirum sending- um þangað norður í land, og komust send- ingar þessar ekki til skila fyr en með næstu póstferð að norðan (frá Stað í Hrútaf.). Ekki gat verið því uin að kenna, að utanáskript væri ógreinileg, því hún var prentuð utan á ísaf., eins og vant er, og ekki er Stykkig- hólmur svo óþekkt bæjarnafn, að póstaf- greiðslumaður þurfi að villast á því. Sem von er til, kemur kaupendum blaða það illa, þegar þau koma ekki með skilurn. En þeir geta sjeð sjálfir, að ekki getur út- gefandinn fylgt þeim eptir til hvers kaupanda til þess að líta eptir góðum skilum í hans hendur, og eins hitt, að útgef. muni ekki telja sjer þann búhnykk í óskilum á blöðum, að hann leiki sjer að því að kasta höndum til afgreiðslunnar. Gnfuskip kom frá Englandi (Liverpool) hingað í gær, norskt, Thor, fermt salti, 250 smálestum, til þeirra J. O. V. Jónssonar kaup- manns í Reykjavík, og þ. Egilsons, kaupm. í Hafnarfirði. Hafði verið lengi á leiðinni, lengur en póstskipið frá Skotlandi. Vesturheimsferðir 1888. Heims- kringla segir, að 1160 manns hafi fluttzt frá íslandi til Ameríku árið sem leið, þar af 1044 komið til Winnipeg. Af Islendingum í Ameríku bárust engin sjerleg tíðindi með þessari póstferð. Blöð þeirra þegja um hallærið í Dakóta í haust, sem sagt var frá í Isafold, enda hefir mest kveðið að því í suðurhluta fylkisins, sunnar en Islendingar byggja, og hefir það ef til vill lítið náð til þeirra, sem betur fer. Einn íslendingur í Dakota, Eiríkur Berg- mann, hefir verið kosinn þar á þing, fylkis- þingið eða hjálenduþingið (Dakota er hjá- lenda, territorium). Good-Templara-Qelagið eflist stórum um þessar mundir, einkum hjer í höfuðstaðn- um. Fjelagatala í »Einingunni«, stærstu stúku landsins, er nú yfir 180 (var 101 fyrir 3 mánuðum), og hinni fullorðinna stúkunni lijer, »Verðandi«, 134 (1. nóv. 114). þriðja stúkan, unglingastúkan »Æskan«, vaxið á sama tíma úr 70 upp á 183.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.