Ísafold - 26.06.1889, Side 4
204
Skagafirði 29. maí: Veðráítan hefir
verið ágæt í allt vor; stillt og blítt veður
stöðugt síðan um þorralok. Gróður er
ko 1 inn mikill, og meiri en opt mán-
uði til 6 vikum síðar. Hafís hefir ekki
sjezt á firðinum. Menn f)'rna almennt hey
og skepmchöld eru hin beztu; fjeð mjög
fallegt. Bjargrceðisástand er gott. hugl
er farinn að aflast við Drangey; fiskur
enginn. Siglingar eru greiðar. „Thyra“
kom á ákveðnum tíma; með henni kom
Sig. E. Sæmundsson með vörur frá L.
Zöllner, er hann verzlar með í sumar fyr
ir hross og sauði. L. Popp kaupmaður
fjekk vöruskip rjett eptir sumarmálin, og
er búinn að láta byggja hús til verzlunar
í Kólkuósi. V. Claessen kaupm. er ný-
búinn að tá vörur á seglskipi.
Búnaðarskóliiui á Hólum. faðan út-
skrifuðustívor (8.— 11. maí) Jóhannes Sveins-
son úr Húnavatnssýslu með aðaleinkunn
vel -)-, Marteinn Bjarnason úr f>ingeyjars.
með vel -j-, Ingvar Ingvarson úr ping-
eyjars. með vel, Guðm. Jónsson úr Skaga-
fjarðarsýslu með vel —f-. Pródómendur
voru skipaðir af stjórn skólans, þeir síra
Zophonfas Halldórsson og Jósep J. Björns-
son búfræðingur. — í stjórn skólans eru:
Olafur alþingism. Briem (form.), Pjetur
Pjetursson búfræðingur á Gunnsteinsstöð
um og Árni óðalsbóndi þorkelsson á
Geitisskarði.
Póstskípið Laura lagði af stað hjeðan
I nótt. Með því fóru kaupm. G. Zoéga, og
til Færeyja Bdílon Grímsson skipstjóri.
Reykjavíkurbrauðið. fessir hafa þeg-
ar sótt um dómkirkjubrauðið: síra Isleifur
Gíslason í Arnarbæli, síra Jóhann þorkels-
son á Lágafelli, síra Olafur Ólafsson í Gutt-
ormshaga og cand. theol. Hafstemn Pjeturs-
son ; en að eins óbúnir að sækja—hafa falið
mönnum hjer að sækja fyrir sig—Eiríkur
próf. Kúld í Stykkishólmi, síra Stefán M.
Jóns á Auðkúlu og síra þorvaldur próf. Jóns-
son á Isafirði. Síra Matth. Jochumsson er
og sagður á leiðinni að norðan í sömu erinda-
gjörðum.
Önnur prestaköll. Um Vestmanna-
eyjabrauðið eru þessir þrír í kjöri: síra Brynj.
Gunnarsson (þjónandi prestur þar), síra Odd-
geir Guðmundsen í Kálfholti og síra Olafur
Stephensen í Mýrdalsþingum.
Síra Björn Jónsson, er fengið hefir veitingu
fyrir Miklabæ, sækir nú aptur um sitt fyrra
brauð, Bergstaði.
Brauð veitt. Hofs prestakall á Skaga-
strönd veitt 24. þ. m. síra Jóni Jónssyni
(frá Kvíabekk), samkvæmt meðmælum sókn-
arnefnda. Aðrir sóttu eigi.
Alþingiskosning. Kosning hlaut í Norð-
Múlasýslu 20. f. m. Jón bóndi Jónsson á
Sleðbrjót, í stað Einars sýslum. Thorlacius.
Síra Sigurður prófastur Gunnarsson fekk 16
atkvæðum færra.
Tíðarfar. Megnustu óþurrkar ganga hjer
um suðurland, og mun lík veðrátta norðan-
lands og vestan, að því er frjetzt hefir.
Vöruverð er almennt nokkuð hjer í bæn-
um á þessa leið í reikning: rúgur 7 a. pund-
ið, rúgmjöl 8 a., bankabygg 12—13 a. baun-
ir 10 a., riis 12—13 a., overheadmjöl e.(
kaffi 95—100 a., kandís 32—36 a., hvítt syk-
ur 28—30 a., rjól 120 a., rulla 190—200 a.
A innlendum vörum er verð óuppkveðið
enn, nema að kaupm. J. O. V. Jónsson gef-
ur 38 kr. fyrir smáfisk og 32 kr. fyrir ýsu.
AUGLYSINGAR
í camfeldu máli með <?máletri ko«;ta 2 a. (þakkaráv. 3 a.)
hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning
1 kr. fyrir þuml. dálks-lengdar. Borg. út í hönd.
Allir þeir, er til skulda telja_ i búi kaup-
manns Th. Thorsteinssonar á Isafirði, inn-
kallast hjer með samkv. opnu brjefi 4. jan-
uar 1861 og lögum 12. apríl 1878 til þess
innan 12 mánaða frá síðustu birtingu þessar-
ar auglýsingar, að lýsa kröfum sínum og sanna
þær fyrir undirritaðri ekkju hans, er situr í
oskiptu búi.
ísafirði 4 júní 1889.
Amalie Thorsteinson.
Gufubátsfjelagið.
Eins og ráð var fyrir grert á stofnunar-
fundi gufubáts-fjelagsins 7. f. m. verður
fundur haldinn í fjelaginu laugardag 29.
þ. m. kl 5 e. h. í Kirkjustrœti nr. 2.
(Hótel Reykjavík), til þess að ræða og
samþykkja lög fyrir fjelagið og kjósa
stjórn m. m. Eru ailir þeir, sem styrkja
vilja hinar fyrirhuguðu gufubátsferðir,
beðnir að sækja fund þennan, ef þeir
geta því við komið.
Bráðabirgðastjórnin.
Aðalfundur hins ísl. kennarafjelags
verður haldinn miðvikudaginn 3. júlí næst-
komandi kl. 4 e. m. í leikfimishúsi barna-
skólans. Yerður þar: 1. Borin undir atkvæði
inntaka nýrra fjelagsmanna. 2. Bætt um
ýms málefni, sem fjelagið varða. 3. Kosnir
embættismenn fjelagsins. 4. Bætt um laga-
setning viðvíkjandi alþýðukennslu. 5. Bædd
önnur mál, sem fjelagsmenn kunna að bera
UPP-
R e f a r.
Heiðruðu fjáreigendur Gullbringusýslu!
Ef þjer hugsið eigi til þess að friða ref-
inn með lögum, þá vil jeg benda yður á
hitt, að eyða honum, og skal jeg fús mót
sómasamlegri borgun, að koma yður á
rjetta leið til þess, ef þjer viljið þýðast
nauðsynlegar aðfarir. Komið yður sam-
an um, hvort væri tiltækilegra.
p. t. (leysi 2ö. júní 1889.
O. V. Gíslason.
Hið íslenzka garðyrkjuíjelag
heldur aðalfund hinn 15. júlí kl. 5 e. h. í
leikfimishúsi barnaskolans Reikningur
fyrir árið 1888—89 verður framlagður og
nýir embættismenn kosnir i stað þeirra
er frá fara.
Reykjavík 25. júní 1889.
Schierbeck
(p. t. formaúur).
FJÁRMAE.K (nýupptekið) Olafs Ólafssonar
á Stóru-Mörk: tvö stig apt. h., sýlt v.
Til útsölumanna.
TJtsölumeun geta látið áskrifendr fá „Sjálfsfræð-
arann“ með áskriptarverði gegn borgun út i hönd.
Fyrir þannig úti látin expl. verða útsölumenn að
senda borgun í peningum í októher nærtk., og
verðr þeim þá bœttr upp verðmunrinn í reikningi
þeirra. Áskriptin er bindandi fyrir það sem kemr
út í ár. Sölulaun af „Sjálfsfræðaranum11 eru 25°/0
í lausasölu, en 20°/0 með áskriptarverði.
Bókverzlun Sigf. Eymundssonar.
Ný bók.
Sagan af Hálfdáni Barkarsyni.
porleifur Jónsson gaf út.
IV-J-16 bls. Fæst í bókverzlun ísafoldar-
prentsmiðju (Austurstræti 8), og hjá út-
sölumönnum Bóksalafjelagsins. — Kostar
hept 15 a.
ÖÓÐ MJÓXjKURKÝR óskast til kaups. Má
ekki bera seinna en um miðjan janúar. Ritstj.
vísar á kaupanda.
Bókaverzl. ísafoldarprentsm.
(Austurstræti. 8)
hefir til sölu allar nýlegar íslenzkar bækur,
útgefnar hjer á landi.
Ký bók.
Hvernig er oss stjórnað?
eða
stutt yfirlit yfir löggjöf og landsstjórn ís-
lands, eins og hún er nú,
eptir
Jón A. Hjaltalín.
IV -þ92 bls. Innihald: staða íslands; löggjafarvald-
ið (lögreglumálefni, kirkjumálefni, kennslumálefni,
heilbrigðismálefni, vegir og póstgöngur, skattamál)
þjóðeignir og opinberir sjóðir, sveitastjórn); dóms-
valdið.
Fæst í bókverzlun ísafoldarprentsmiðju
(Austurstræti 8) og hjá útsölumönnum
Bóksalafjelagsins.
Kostar innb. 60 a.
Ký bók.
Saga Hávarðar Isfirðings
(frá prentsmiðju ísfirðinga).
Pæst í bókverzlun ísaf.-prentsm. og hjá
útsölum. Bóksalafjelagsins.
Kostar hept 60 a.
THÖRVARDSQN & JENSKN.
BOKBANDS-VERKSTOFA.
Bankastræti 12 (hús Jóns Olafssonar alþm,'.
PENINGABUDDA hefir týnzt hér í bæn-
um með nálægt 20 krónuui. Finnandi er
beðinn að skila henni á skrifstofu blaðsins.
V íll Siíl 1 o Íe8 fengið í hendur hr.
» 1 IIk5ttjlílj kaupmanni P. J. Thorsteinsson
á Bildudal einkasölu á mínum góðkunnu vínum
og áfengum drykkjum á Bíldudal og nálæg-
um hjeruðum, gerist hjer með kunnugt heiðr-
uðum almenningi.
Peter Buch.
Halmtorv. 8. Kjöbenhavn.
LEIDARVÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR fæst
ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr. med. J. Jón-
assen, sem einnig gefur þeim, sem vilja tryggja
líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar.
Almanak f>jóðvinafjelagsins 1890
er til sölu á afgreiðslustofu Isafoldar.
Rll lrO fíí (kaffiblendingur), sem má brúka
Hti-jVdl-II eingöngu í staðinn fyrir kaffi-
baunir, fæst eins og vant ei við verzlun H. Th. A.
Thomsens í Reykjavík, á 56 aura pundið.
Forngripasafmó optð hvern mvd. og fd. kf. 1—2
Landsbankinn opinn hvern virkan dag kl. 12—2
Landsbókasafnið opið hvern rúmhelgan dag kl. 12—2
útlán md„ mvd. og ld. kl. 2—3
Söfnunarsjóðurinn opinn I. mánud. í
hverjum mánuði kl. 4—5
Veðurathuganir I Reykjavik, eptir Dr. j, Jónassen.
Júní Hiti (á Celsius) Loptþyngdar- mælir(milliinet.) Veðurátt.
ánóttujum hád. fm. | em. fm em.
Ld. 22. + 6 + !3 762.0 762.0 S h b Sa h d
Sd. 23. + 9 +12 762.0 1 759.5 s h d Sa hv d
Md. 24. i 10 +12 751-4 1 756.9 s hv d S h d
Þd. 25. + 8 +11 756.9 i 749-3 Sa hv d Sa hv d
Mvd.26. + 9 746.8 1 s h s
Alla undanfarna daga hefir verið sunnan-landsunn-
anátt (S, a.), opt hvass, og með sífelldum rigningar-
skúrum ; hefir svo að kalla aldrei sjezt til sólar, og
virðist engin breyting enn á veðri.
Ritstjóri Björn Jónaaon, cand. phil.
Prentsmiðja ísafoldar.