Ísafold - 07.09.1889, Blaðsíða 2

Ísafold - 07.09.1889, Blaðsíða 2
286 og þar af leiðandi óhjákvæmileg fljótvirkni, ef eigi hroðvirkni í afgreiðslu málanna helzt við þangað til vjer fáum innlenda stjóm. |>ar liggja hinar dýpri rætur að þessu ólagi. það stafar af því langmest, að þingið nýtur svo lítils og ófullkomins liðs af hinni útlendu, ókunnugu stjórn, sem við lagasmíðið fæst annars vegar. f"það er stjórnin, sem á að rjettu lagi að vinna mestallt, sem vinna þarf að lagasmíð- inni. Hún á að vera og getur verið skip- uð hinum færustu mönnum til slíkrar vinnu, bæði fyrir þekkingar sakir og annara hæfileg- leika. Hún getur haft allan tímann út gefinn við það, jöfnum höndum við framkvæmdþeirra laga, sem þegar eru til orðin. þingmenn verða að hlaupa að þessu »frá orfinu» örstutt- an tíma annaðhvort ár. þeir ættu að rjettu lagi lítið annað að þurfa að gera en að segja af eða á, hvort þeim líkar eða líkar ekki það, sem stjórnin hefir búið til. Hún á að hafa fyrir því bæði að undirbúa frumvörpin, og að laga þau síðar svo, að þingmenn vilji aðhyll- ast þau, ef þess er kostur, og ekki tekst að færa þeim heim sanninn um, að aðfinnslur þeirra sjeu eigi á rökum byggðar. þetta er stjórnarinnar rjetta ætlunarverk. Vilji hún ekki eða geti hún ekki leyst það af hendi, þá hefir hún ekkert að gera með að sitja í valda- sessinum. þetta er sú meginregla, sem þing- ræðið byggist á, og hún skapast sjálfkrafa, þar sem hvorutveggja, þing og stjórn, skilur rjett sína stöðu. Er þá annaðhvort, að stjórn- in verður ekki annað en nefnd úr þinginu sjálfu, itrval af hinum færustu, reyndustu og greindustu þingmönnum, eins og segja má að eigi sjer stað þar, sem þjóðhöfðinginn velur sjer ráðanauta beinlínis úr þingliðinu, þá helzt, sem þar kveður mest að. Eða þá, að stjórn- in er skipuð þeim mönnum, þótt utan þings sjeu, sem þjóð og þing ber gott traust til, og hafa góð tök og góðan vilja á samvinnu við þingið. það er engin von, að hver sljettur og rjett- ur þingmaður sje þess megnugur, að koma því í góðan lagabúning, sem hann kann að bera fyrir brjósti. þó að nefnd á þingi sjeu fengnir í hendur jbil umbóta vanmetagripir þeir, er hinir og þessir eru að burðast með, þá brestur slíkar nefndir alveg tíma, þó ekki væri annað, til að rannsaka og íhuga svo málið, sem við þarf, ef þar á að komast almenni- leg lögun á, og því síður geta aðrir þingmenn fengizt við það til neinnar hlítar. Sú stjórn aptur á móti, sem er þjóðinni samlend og innlífuð öllum hennar hag, hún fer þegar fyrir fram nærri um, hvað helzt vanhagar um til umbóta í löggjöf landsins og telur sjer skylt að taka það að sjer til ræki- legs undirbúnings og meðferðar alla Iagasetn- ingarleiðina í gegn frá upphafi til enda. þar með fylgir svo hitt, að þegar stjórn landsins gjör- ir sig kunna að elju og áhuga við slík störf, þá varpa menn eðlilega sinni áhyggju upp á hana til þeirra hluta, og fá hana eða fela henni á hendur að taka að sjer til flutnings það sem þeir óska eptir. J>á, og þá fyrst, verður frumkvæði einstakra þingmanna á þinginu sjálfu óþarft að miklu leyti, þótt það hverfi engan veginn og eigi alls eigi að hverfa með öllu. Yegurinn, eini vegurinn til þessa er, að fá innlenda stjórn með ábyrgð fyrir þinginu. þetta er því eitt af mörgu, sem sýnir á- þreifanlega, hver nauðsyn er á stjórnarbót þeirri, sem alþingi er að berjast fyrir. Patreksfirði 29. ágúst. Veðrátta hefir, það sem liðið er af slættinum, verið hin á- kjósanlegasta, að heita má sífelld blíðviðri, deyfa eða smágerð rigning við og við, en þurk- ur allt af í millí, hitar í meira lagi, allt að 12, 13, 14 og 15°E. í skugga um hádegi. í dag er þó fremur kalt, 5° hiti um hádegi, enda hvasst norðvestan, með allmikilli rign- ingu undir hádegi, og brim æði-mikið til sjáv- ar. Annars hafa vindar verið allt að þessu jafnaðarlega hægir, opt logn. Grasvöxtur í bezta lagi allvíðast á túnum og þurlendum engjum, og nýting ágæt allt til þe8sa. Lítur því út fyrir, að heyskapur verði almennt í mesta og bezta lagi, haldist líkt tíðarfar og verið hefir. jpeir, sem því gátu sinnt fyrir öðrum önn- um, hafa aflað vel fram eptir sumrinu ; en nrt mun lítið eða ekkert fást, þótt réynt sje. I Tálknafirði veit jeg til, að 3 menn á bát hafa aflað 2000 síðan með sláttarbyrjun inni í firði, og hjer inni í firði var einnig góður afli fram yfir túnaslátt. En sárfáir gátu gefið sig við, að nota það. þilskipin öfluðtrvípjög lítið í síðustu útilegu sinni, og sum þeirra eða flest verður víst farið að setja upp. Verðlag á vörum mun nú vera hjer um bil víst þetta : grjón 23 kr. tn. (200 pd.), rúgur 15 kr., mjöl 17 kr., kaffi llklega 1 kr., kandís líkl. 35 a.(?). Af innlendri vöru mun ull verða á 70 a. og 45 a. (misl.), fiður á 70 og 35 a. (misl.), og fiskur á 50 kr. og 40 kr. (smáf.), smjör á 60 og 70 a. pd.». Arnarfirði, 1. sept.: »Tíðin hefir verið mjög góð og hagstæð í sumar, og hefir því heyskapur gengið með bezta móti, þar sem mannafla enn hefir ekki vantað. En Arn- firðingar leggja meiri stund á sjóinn en land- ið, og þess vegna eru hjer víða fáir við hey- skap. Sumir eru nú að hœtta heyskap, til þess að byrja haustróðra. Voraflinn varð fremur lítill, og var það mest beituleysi að kenna. Á Bíldudalsvognum hefir árlega feng- izt töluvert af síld í beitu, en nú í vor brást síldaraflinn því nær alveg. þilskip þau, sem þaðan ganga á fiskiveiðar, er nú verið að setja upp á land á Bíldudal. J>au hafa aflað talsvert minna nú en í fyrra sumar, og kom það til af því, að í ár hafa þau enga síld haft, en í fyrra sumar fengu þau næga síld. Sum af skipunum eru enn eigi komin til uppsetningar; en þau, sem inn eru komin, hafa aflað þetta að tölu : María, eign P. J. Thorsteinsens kaup- manns............................... 38,000 Katrín, eign P. J. Thorsteinsens og Gísla Asgeirssonar á Álptamýri o. fl. 37,000 þjálfi, eign P. J. Thorsteinsens og Gísla Oddssonar i Lokinhömrum . 26,000 Póstskipið Laura kom að vestan aptur 4. þ. m. og með því allmargir farþegar, þar á meðal P. Fr. Eggerz frá Akureyjum með konu. og börn búferlum hingað í bæinn ; cand. theol. Tryde frá Khöfn, eptir talsverð ferðalög fyrir norðan og vestan, og stórkaupm. Holger Clau- sen frá Stykkishólmi, veikur, — báðir á leið til Khafnar. Enn fremur Sigurður Vigfússon fornfræðingur, úr fornmenjarannsóknarferð á vestfjörðum. Skipið fór aptur í morgun hjeðan tii Seyðis- fjarðar áleiðis til Khafnar, með talsvert af farþegum, þar á meðal til Austfjarða alþing- ismann, hjeraðsl. porvarð Kjerulf og síra Jón Bjarnason með konu sinni; til Khafnar: cand. jur. Klemens Jónsson með konu sinni, dr. Val- týr Guðmundsson með konu sinni, læknaskóla- kand. Sig. Sigurðsson, kaupm. Th. Thor- steinsson og D. Petersen, stúdentarnir Bjarni Sæmundsson, Jóh. Jóhannesson, Oddur Gíslason, Vilhjálmur Jónsson og þorlákur Jónsson o. fl. Hval fjekk þilskip frá Svefneyjum áBreiða- firði, eign nokkurra Eyhreppinga, í hlutarbót á innsiglingu mn flóann seint í f. mán., fer- tugan (40 álnir) milli skurða, nýrifinn til bana af háhyrningum. Eormaður á skipinu var Snæbjörn hreppstjóri Kristjánsson. Hjeldu skipverjar sig fyrst hafa sjeð bát á hvolfi, um nótt, en fundu, er þeir hugðu betur að, að þetta var hvalur, festu sig við bann, og fengu komið honum inn í Svefneyjar, við ill- an leik. Skipið hafði aflað yfir 50,000 fiskjar í sumar. Dómkirkjuprests-málið. Safnáðar- fundurinn út af því í Good-Templara-húsinu hjer í bænum í fyrra kvöld var all-fjölsóttur, nál. 200 manns, þgr af um 150 atkvæðis- bærir. Hinn setti dómkirkjuprestur, síra þórh. Bjarnarson prestaskólakennari, stýrði fundin- um. Var þar, eptir litlar umræður, samþykkt í einu hljóði sYo-Játandi fundarályktun: »Fundurinn lýsir yfir þeirri von og því trausti til landsstjórnarinnar, að-svo framarlega sem hinn kjörni dómkirkjuprestur, síra Sigurður Stefánsson, einhverra orsaka vegna eigi tek- ur við þjónustu brauðsins, þá verði söfnuðinum veittur aptur kostur á að neyta fullkominnar hluttöku í veitingu brauðsins samkvæmt lög- um 8. jan. 1886». Stungið var upp á, að bæta við ályktunina: »og að braúðið verði einnig auglýst laust apt- ur». En því var álitið of aukið, með því að ummælin um »fullkomna hluttöku .... sam- kvæmt lögum 8. jan. 1886» fælu það að sjálf- sögðu í sjer. Var svo viðaukatillagan tekin aptur. / Fyrirlestur. síra Jón Bjarnason hjelt fyrirlestur hjer í bænum 4. þ. m. um »ís- lenzkan nihilismusr. andlegan svefn, afskipta- leysi og kæruleysi í öllum efnum, er auð- kenndi Islendinga, bæði hjer og fyrir vestan haf. það væri eins og þeim stæði á sama um hvað eina; þeir hugsuðu um ekkert. Að- aluppspretta þessa kæruleysis væru mennta- stofnanirnar í Eeykjavík,—hinn andlegi Ör- æfajökull íslands. —Eyrirlesturinn þótti á- heyrilegur, þótt kenningin væri hörð og harla einræningsleg. |>að kvað vera von á fyrirlestri þessum á prent bráðlega. J>að verður nokkurs konar framhald af hinum fyrra |fyrirlestri síra J. B.: »ísland að blása upp«.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.