Ísafold - 24.12.1889, Síða 2
410
|>að er Gullbringu- og Kjósarsýsla. J>ar
verður varla gjört ráð fyrir rninna en 25 kr.
þingfararkaupi, iniðað við hálfa vegalengd frá
Eeykjavík út á sýsluenda. |>ar eiga nú 4
þingmenn heima, og varð þingferðakostnaður
þeirra allra samtals 77 kr., af því þeir búa
allir nokkuð nærri Eeykjavík, en hefði orðið
100 kr. eptir nýju reglunni,—eða 120 kr., ef
30 kr. þætti hæfilegra.
— Eins og áðar er á vikið, yrði að hafa
einhverja undantekningarreglu fyrir það, ef
þingi væri stefnt saman á óvanalegum árs-
tíma. Mætti þá láta þingmenn gera reikning
fyrir þeim aukakosttiaði, er þeir hefðu haft
þess vegna. Sömuieiðis, ef þingmaður á heima
erlendis og ferðast þaðan til alþingis. En
þá er nú svo auðgert að halda sjer við far-
gjaldið og auðfengin vissa um tímann til ferð-
arinnar. þetta verður hvorttveggja fágætt,
einkanlega þó þinghald á óvanalegum árs-
tíma, og virðist vel mega hafa þar gömlu
regluna, sem fyrrum var hjer í lögum : að
foraeti ávísi þeim reikningum. þessi reikn-
inganefnd, sem lögleidd var 1877, til þess að
bæta úr eldra fyrirkomulaginu, hefirnaumast
reynzt hagfelldari. Að minnSta kosti munu
nóg dæmi þess, að þeir þingmenn, er bezt
hefðu ef til vill þótt kjörnir í þá nefnd, hafa
færzt undan eða haft sig undati kosningu í
hana vegna þess, að — það væri svo óþakk-
látt verk að vera í henni og gera þar gagn.
Barðastr sýsla vestanv. 11. nóv. Haust-
vcðráttan hefir yfir höfuð verið góð, nokkuð
rigningasamt framan af, en þó sjaldan mjög
stórkostleg úrkoma, og allt af hlýtt 1 veðri.
Stillt og kyrrt og fagurt veður frá 10.—21. okt,.
og að eins mjög lítið frost einstöku sintium
um nætur, en ávallt enn hlýtt um daga.
Eptir það fór aptur að breytast til rigninga.
Og um veturnætur skipti alveg um til úr-
komusamrar og órólegrar veðráttu, og hafa
síðan verið optast stormar a,f ýmsum áttum
og optar úi'koma. Með vetrinum tók og veð-
ur mikið að kólna, úrkoman varð krapajel,
en snjóaði á fjöll, og þá er áttin var norðan,
tók og töluvert að frysta. Hinn 3. þ. m.
var jörð alhvít af snjó að morgni; þann dag
og næstu suðvestan jeljagangur með all-
mikilli fannkonu. Pje hefir sumstaðar verið
hýst í þessu snjóhreti, en lömb tekin á gjöf,
og er það hjer óvenjulega snemmt. Nú í 3
daga sunnan- stormur og stórfeld rigning opt-
ast. Orðið alautt í byggð; -f- 5°
Agætur afli hefir verið í Dölum, einkum
framan af haustinu, og smokkur aflaðist þar
þá og ágætloga. þangað hafa menn því sótt
úr Tálknafirði til fiskafla, og af Isafirði og
víðar að til smokkkaupa. Fiskaflinn hefir
verið bæði þorskur og ýsa. Beytingur hefir
og verið bæði í Patreksfirði.og í Tálknafirði,
og framan af haustinu góður afli sumstaðar
hjer, nærri upp í landssteinum, þegar gæftir
eigi bönnuðu sjósókn, en það var lengi fram
eptir. Haustið má því yfir höfuð teljast
aflasælt, eptir því, sem hjer er að venjast.
Fje hefir reynzt í betra lagi til niðurlags.
Kjötverð hefir verið líkt og að undanförnu:
11—18 aurar eptir þyngd eða gæðum, ull
35 a., mör 40 a., nema garnmör minna, og
hvert pd. í gærum 25 a., eins og undanfar-
in ár.
Menn eru nú farnir að hugsa um kennslu
á vetrinum að venju. Verða að líkindum 2
umgangskennarar hjer í sveit (Eauðasandshr.)
í vetur, og er annar þeirra búfræðingur sá,
ei' hið nýstofnaða búnaðarfjelag hreppsins
rjeð í sína þjónuscu næstliðið vor. Eiga þeir
að kenna: lestur, kristindóm, skript, reikning
og rjettritun. Auk þess heldur kaupm. S.
Bacmann á Vatneyri heimiliskennara fyrir
börn sín, eins og að undanförnu.
Isafirði, 1. desbr. Síðan á veturnóttum
liefir verið mjög rosa- og umhleypingasamt,
frost lítið og optast auð jörð en mjög veðra-
samt, og úrkoma fjarskaleg, svo að varla hef-
ir svo dagur liðið til enda, að eigi hafi rignt
eða snjóað. Gæftir hafa litlar verið, en afli
nokkur þá gefið hefir. Skepnuhöld góð og
lítið sem ekkert farið að gefna rosknu fje.
Hcilbrigði almenn.
Strandasýslu sunnanv. 11. des.: Fyrstu
dagana af þessum mánuði var bezta tíð,
hláka og hlýindi. En nú hefir snjókoma
nokkui' verið í þrjá daga, svo yfirfærð er
slæm.
Lömb voru hjer alinennt tekir á gjöf um
24. f. m. Hagi er nægilegur enn, svo rosknu
fje er lítið sem ekkert gefið enn. Mun samt
hafa verðið «hárað» (eins og það er kallað
hjer) nú síðustu dagana. Skepnuhöld æski-
lega góð hjer um slóðir.
Skagafirði 30. nóv.: Síðan 17. oktbr.
hefir veðráttan verið lengst af óstöðug; eink-
um þó mest allan þennan nóvemberm.; vind-
urinn hefir vanalega verið sunnan og vestan
opt með ákaflega mikilli rigningu. Frost
engin. 24. þ. m. breyttist veðrið tíl hins lak-
ara. Vindurinn snerist í norð-austur með eigi
rniklu frosti og snjókomu, og þessa liðnu viku
hefir verið nreira og minna hríðarveður, en
frostlítið, og vindur við og við snúizt í suð-
austur, og regn fylgt, svo snjór er eigi mikill.
Af þessari óstöðugu veðráttu hefir leitt, að
gœftaleysi hefir verið og aflaleysi, einkum í
þessum mánuði. þegar róið hefir verið, hefir
fiskazt 15—30 vanal. í hlut.
þeir, sem jeg hefi heyrt minnast á afdrif
stjórnarskrármálsins á þingi í sumar, eru óá,-
nægðir yfir aðferð þeirra þingmanna, sem ó-
nýttu, að það gengi fram, með þeirra ákaflega
undarlegu og ofsakenndu breytrii, að mæta
ekki á fundi. Hvað sameinaði þá parta, er
sýndust svo ólíkir í mörgu, til að ónýta
framgang málsins? Voru það hreinar, skyn-
samlegar föðurlandsástai'- hvatir? Eða gerðu
þeir ekki illt eitt? f>essar og ýmsar fieiri
svipaðar spurningar heyrum vjer. Eg veit,
að sumum þykir breytni þeirra í þessu kasta
á þá miklum skugga — vera óskynsamleg.
Eyrarbakka 16- des.: í gærkvöldi og í
nótt var hjer ofsaveður, rokstormur og hagl-
hríðir á útsunnan, svo að hús Ijeku á reiði-
skjáli. Sjórinn gekk npp yfir sjógarðinn, og
gjörði talsverðar skemmdir á honum fyrir
Háeyrarlandi. Trje (framt að20al. álengd),
sem rak í veðrinu, flutti sjórinn upp yfir sjó-
garðinn.
Alþýðuskólastyrk þ- á. handa Hljes-
skóga-skólanum, 500 kr., samkvæmt fjárlög-
um, hefir landshöfðingi »eigi sjeð sjer fært að
ávísa til útborgunar úr landssjóði, bæði sökum
umræðna þeirra, er urðu um þennan skóla á
alþingi síðastliðið sumar, og sökum þess, að
skýrsla sú um skólann fyrir síðastliðið skóla-
ár, sem umsóknarbrjefinu fylgdi, ber það
með sjer, að einungis einn lærisveinn hafi
verið á honum hið umrædda skólaár að stað-
aldri, og auk hans að eins tveir, sinn mán-
uðinn hvor«. (Stj.tíð.)
Styrktarsjóður W. Fischers. Kon-
ungleg staðfesting á skipulagsskrá fyrir »Styrkt-
arsjóð W. Fischers» hefir verið út gefin 13.
sept. þ. á.
Sjóður þessi er, eins og fyr hefir verið frá
skýrt í Isafold, stofnaður af ekkju og aðal-
erfingja stórkaupmanns W. Fischers, eptin
ráðstöfun hans í lifanda lífi. Stofnskráin er
dagsett 28. júní 1889. Sjóðurinn er 20,000
kr. í kgl.ríkisskuldabrjefum, með 3-|ý> vöxtum,
og á að verja vöxtunum »til styrks handa
A. Ekkjum og börnum, sem rnisst hafa
forsjármenn sína í sjóinn, og eru verð hjálpar
og þurfa hennar.
B. Ungum Islenrlingum, sem hafa í tvöár
verið í förum á verzlunar- eða fiskiskipum,
sýnt iðni og reglusemi, og eru verðir þess, að.
þeim sje kennd sjómannafræði og þurfa styrks
til þess.
Allt að þriðjungi af vaxtatekjum styrktar-
sjóðsins skal, ef þörf er á, varið á ári hverju
til styrks þess, sem ræðir um undir staflið
B ; en ef eigi þarf að halda á þeirri upphæð.
og enginn sækir um slíkan styrk, má verja
öllum vaxtatekjunum það ár til styrkveitinga
þeirra, sem getið er um undir staflið A.
Til þess að geta komið til greina við fjár-
veitingu úr styrktarsjóðnum eru þessi skilyrði
nauðsynleg :
Ekkjur verða að hafa verið að minnsta
kosti 2 ár búsettar í Eeykjavíkur eða Kefla-
víkur verzluuarhjeruðum og vera það enn,
og sjómenn og börn að vera fæddir og að
nokkru leyti uppaldir þar. Með verzlunar-
hjeraði Eeykjavíkur er átt við : Bessastaða-
hrepp, Garðahrepp, öeltjarnarneshrepp og
Eeykjavík.
Við Keflavíkur verzlunarhjerað er átt við:
Grindavíkurhrepp, Hafnahrepp, Eosmhvala-
neshrepp, Miðneshrepp og Vatnsleysustrand--
arhrepp.
Styrkinn skal veita eptir þörf styrkbeiðend-
anna, þó svo, að þeir, sem heima eiga í verzl-
unarhjeraði Keflavíkur, skulu teknir fram yfir
aðra, þegar þörfin er söm».
Höfuðstólinn má aldrei skerða, heldur að.
eins eyða vöxtunum, til styrkveitinga.
Styrkur úr sjóðnum er veittur einu sinnl
á ári, fyrsta skipti 13. desbr. 1890, og fram-
vegis sarna dag ár hvert, i hlutum frá 50 kr.
til 100 kr.
Landshöfðingi stýrir sjóðnum og veitir styrk
úr honum ; »þó geyma eigendur verzlunar-
hússins »W. Fischer» sjer rjett til, meðan
verzlunarhúsið stendur, annaðhvort sjálfir eða
gegn um umboðsmann að skipa meðstjórn--
anda, sem ásamt landshöfðingjanum stýri
styrktarsjóðnum. Ef verzlunarhúsið W.
Fischer hættir að vera til, kýs landshöfðing-
inn sjer meðstjórnanda í stað verzlunarhúss--
ins«.
Efnafræðislegan fyrirlestur, með til-
heyrandi tilraunum til skýringa, hjelt kon-
súll W. G. Spence Paterson hjer í Good-
Templara-húsinu laugardaginn 21. þ. m., en.
— fyrir mjög fáum tilheyrendum. Höfuð--
staðarlýðurinn er of »lærður«, til að geta lagtr
sig niður við þess konar fróðleik! Hefði ver-
ið Sögð skrípasaga, danzað eða «trallað»,—þá
hefði sjálfsagt ekki skort áheyrendur í Good-
Templara-húsinu þetta kvöld.
Fyrirlesturinn varum efnasamsetning lopts--