Ísafold - 12.04.1890, Side 1

Ísafold - 12.04.1890, Side 1
ttíemur út á miðvikudögum og laugardögum. Verð árgangsins :(l04arka) 4 kr.; erlendis 5 kr. Borgist fyrir miðjan júiimánuð. ISAFOLD. XVII 30. Reykjavik, laugardaginn 12. apríl Uppsögn (slcrifleg) bundin við áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir i.okt. Af - greiðslust. í Austurstræti 8, 1890. Útlendar frjettir. Kaupmannahöfn, 22. marz 1890. Yeðl'átta. Hún hefir að staðaldri verið raeð sama þlðumóti, sem að undanförnu, í flestum löndum álfu vorrar, og hjer er íþegar vorveðri fagnað. Ny SÓtt. Um hana talað i suðurlönd- um og upp komna á Ítalíu. Hún er þar No Nonna kölluð, og læknar tala um hana eins og einhvers konar dilk landfar- sóttarinnar ^lnfluenza^), af því aðra hefir hin nýja sótt til þessa ekki tekið en þá, sem höfðu af henni sýkzt. I.ýsingin er sú, að menn sæki þungan sveín, sem erfitt er að vekja þá af, en sumir liða alfatnir burt um leið. þegar dáinu linnir, líður opt á löngu áður menn ná sjer eptir máttleysið og önnur ónot. Danmörk Fólksþingið lauk við aðra umræðu fjárlaganna í gær, og þó er lítið •eptir þingtímans. Með lítilli hýru munu þeir í hinni deildinni við þeim taka. En vera má, að þingtíminn verði lengdur. Við samkomulagi um þrætumálin —• varnarvirkin um Höfn og fleira heimild- arleysi — er ekki að búast, og meðfram fyrir tímanaumleika sakir mun mörgum nýmælum framgöngu vant í þetta skipti, þó miklu þyki skipta, t. d. um fríhöfn við höfuðborgina og svo margt fleira. Á ráðherrunum enginn bilbugur, og auðvit- að, að þeir — eða járnkarl þeirra fyrir her- málunum (Bahnson) — halda sinu fram um varnir Kauj mannahafnar, hvað sem aðrir segja um, eða sýna, að þær geti að engu haldi komið og að stórskeytin nýjustu geti hleypt borginni í brand og bál á fám stundum, þeytt sem þeim má verða að henni í tveggja mílna fjarlægð frá bryndrekum, einkanlega á suðursviðum Eyrarsunds. Noregur Og' Svíjþjóð. Eitt af afrekum stórþingsins norska, sem misjafnt mælist fyrir, er það, að neita Jóhanni Sverdrúp um eptirlaun, 6ooo kr., en honum er sú upphæð goldin úr ríkissjóði, og það gjald „þjóðarlaun“ kallað. í Stokkhólmi var nýlega afhjúpaður minnisvarði Axels Oxenstierna, hins nafn- fræga ráðgjafa og rikismálasnillings á dögum Karls 9., Gústafs Adólfs og Krist- ínar drottningar. Oscar konungur mælti svo í niðurlagi stuttrar ræðu : „hamingj- an gefi, að konungar Svía geri sig ávallt slíkra vina verða, og þjóðin sjálf slíkra stjórnsnillinga !“. England. í seinustu frjettunum til ísafoldar mun hafa gleymzt að geta þess, að blaðið Times hafði gengið að bótakost- um við Parnell og goldið honum áburð- inn falska 90 þúsundum króna. Á þing- inu gekk það fram fyrir atkvæðaafla stjórnarinnar, sem hún vildi, eða þakkar- yfirlýsing af þess hálfu til dómnefndar- innar í Parnellsmálinu, tyrir glöggsæi sína í því og óhlutdrægni. Sama rjeð, er þeirri uppástungu Gladstones var hrundið, að við yfirlýsinguna skyldi hnýta ámælum þeim á hendur, sem hefðu átt hlut að fölsk- um sakargiptum við Parnell og þingmenn íra. Öldungurinn frægi flutti það snilldarer- indi ítvær stundir.aðjafnvelmargir úr Torý- manna liði gerðu róm að máli hans. Við- kvæðið var það í öllum blöðum, að hann hefði talað sem ern og ungur væri. Ýmislega talað um þann sigur stjórnar innar ; en sumir þingmenn Ira þóttu færa sönnur á, að hún hefði átt mök við suma í samsærisflokkum íra í Ameríku og keypt af þeim sagnir fyrir stórgjöld, eða meiri peningaupphæð en slikur varn- ingur mundi verður. Fyrir skömmu voru í tvö auð sæti kosn- ir menn af liði Gladstones. Um tíma hefir verið mikið um verka- föll á Englandi, einkum af hálfu náma- fólksins. Stundum hefir horft til stór- vandræða, er þeir voru taldir til 300 þús- unda, er frá vinnu liótuðu að ganga, auk alls hins mikla grúa, sem atvinnulausir hlutu að verða, er kolin þrytu í verk- smiðjum og til lýsingar. Seinustu frjettir bera, að málum sje nú miðlað og náma- eigendur hafi gengið að kauphækkun, sem innan skamms tima nemi 5 af hundr- aði og sama viðbæti um miðsumarsleytið. Snemma í þessum mánuði varð nýtt sprengigos í kolanámu skammt frá Car- diff, þar sem 88 menn fengu bana. J>að annað slys að segja, að skip, Quetta að nafni, rakst á klapparrif nálægt Yorks- höfða í einu eyjasundinu í Indlandshafi á heimleið frá Ástralíu til Englands. Hjer fórust um 180 manna. J»ýzkaland. jþaðan er markverðustu tíðindin að segja, enda um þau svo látið í sumum blöðum, sem nú hlyti allt af göflum að ganga í Evrópu. þ>að er skjótt frá að segja, að Bismarck er vikinn úr kansellerasætinu og hefir um leið beiðzt lausnar frá öllum öðrum embættum sínum. Til margs getið um orsökina, eða um ágreining með þeim Vilhjálmi keisara; en sú sennilegust talin, að Bismarck vildi ekki fallast á þá nýbreytni, er keisarinn vildi láta það ráðherrunum heimilt, að tala við sig um vandamál í þeirra stjórn- ardeildum, án þess að sækja leyfi til hjá stjórnarforsetanum eða koma sjer saman við hann á undan. Sumir segja, að Bismarck hafi verið ráðum keisarans mótfallinn i verkmanna- málinu og ríkjafundinum í Berlfn um það mál. J>essu taka blöð Bismarcks fjarri, og minna menn á, að það sje einmitt Bismarck og þeir Vilhjálmur keisari hinn fyrsti, sem hafi byrjað baráttuna fyrir lagasetningum verkmannastjettinni í hag og henni til tryggingar. Hinu neita þau líka, að Bismarck hafi guggnað við kosningalokin, en það lætur nærri, að honum þyki keisarinn auðveld- ari en skyldi við frelsismenn og jafnvel sósíalista. Meir en miðlungi eptirlátur mun keisarinn þó vart reynast, þó hann þiggi svo fylgi, sem honum þykir bezt þörfum gegna. Á hitt benda orð hans í niðurlagi ræðu til fylkisþingmanna Bran- denborgar fyrir skömmu. Hann kvað lönd sín og þegna vera það pund, sem guð hefði fengið sjer til meðferðar, og með það yrði hann svo að fara, að hann gæti geit reikning ráðsmennsku sinnar. „þeir sem hjer ráðast mjer til liðs og stuðn- ings, eru mjer hjartanlega velkomnir — hverjir sem eru, en hina brýt jeg vægð- arlaust á bak aptur, sem móti mjer rísa!“. Auðvitað var, að Bismarck mundi helzt bera fyrir sig lasleik og þreytu, er hann beiddist lausnar, en hann hefir nú bráð- um fimm um sjötugt. Andsvör keisarans voru full lotningar og þakklætis, og þeim fylgdu nýmetorð : fiiertogi af Lauenburg“ og „yfirmarskálkur riddaraliðsins“ eða hans virðing. Caprivi hershöfðingja, fyrrum ráðherra flotamálanna, hefi keisarinn gert að ríkis- kansellera. Hann er mesti skörungur og framkvæmdamaður, vann frægðarafrek í herförinni til Frakklands, efldi stórum flota pjóðverja og gerði sem rammlegast- ar allar sjóvarnir þeirra og strandavirki. Sagður nokkuð svipaður Bismarck að á- sýndum, en hinn viðfelldasti í öllu viðmóti og sem bezt af öllum látinn. Utanríkis- málin munu einhverjum öðrum á hendur falin, en Herbert Bismarck vill fylgja föður sínum frá stjórninni. Sagt er. að hann muni taka þar við erindarekstri, er sendiherra verður frá kvaddur (í Lundún- um?) til utanrikismálanna. — Annars þykj- ast allir vita, að keisarinn vilji í þeim málum sem öðrum láta sem flest til sinna kasta koma. Við kosningarnar náðu sósialistar 36 þingsætum í stað 11, en flokkur „hinna frjálslyndu“ 69 í stað 38. Á verkmannamálsfundinn komu um 60 fulltrúar. Af þessum eru 3 frá Danmörku, en meðal þeirra eða fyrir þeim framtaka- skörungurinn Tietgen etazráð. Meðal fulltrúanna frá Frakklandi er Jules Simon frá öldungadeildinni, og hann mjög af keisaranum og fleirum í hávegum hafður. — Keisarinn á að hafa sagt, að hann byggist við góðum árangri af funáinum. Frakkland. í byrjun þ. m. gekk Con-

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.