Ísafold - 28.06.1890, Blaðsíða 2
‘20fi
er það óneitanlegt. að þegar er farið að
brydda á meiri vandlæting um siðferði
prestastjettarinnar en áður var. Á þess-
um stutta timá er þegar búið að gera
meira í þessa átt heldur en gerðist á allri
embættistíð fyrirrennara hans.
þ>að sem af er síðan í fyrra sumar, að
herra Hallgrímur kom á biskupsstól ís-
lands. bendir eindregið í þá átt, að hann
muni að ýmsu verða nýtur og fram-
kvæmdasamur embættismaður. Hann
hefir vel byrjað. Mætti honum auðnast
að halda áfram að sama skapi; þá er í
öllu falli óhætt að segja, að Island græð-
ir á sínum síðustu biskupaskiptum“.
í síðari greininni, sem er svar til H, P.,
út af nýjum rógburðar-austri úr honum,
segir meðal annars:
,.Að öll hin ísl. þjóð hafi talið síra
Heiga sjálfsagðan til biskupsembættisins,
— eins og síra H. P. hafði sagt — hef-
ir enginn vottur sjezt til á íslandi, og sá
úr ritstjórn „Lögbergs“, sem þykist öllu
kunnugri almenningsálitinu en síra Haf-
steinn, vill fullyrða, að hann hafi engan
mann á íslandi heyrt telja síra Helga
sjálfsagðan til þess. nema síra Hafstein!
einan.------Aila þá stund, sem það er
ekki embættisstarf biskups á ísiandi að
yrkja sálma og tína saraan kirkjusögu-
brot, eða semja barnalærdómsbækur, þá
þýðir ekkert fyrir H. P. að vera að tína
hjer upp aptur það, sem aðrir hafa áður
sagt á undan honum um, að síra Helgi
hafi unnið þessi afreksverk. Plann hefir
ekki sýnt, að þessir verðleikar sjeu neinn
vottur um hæfileika síra H. H. til
biskups“.
Kjörfundur Eyfirðinga. Akureyri 21.
júní: »Hjer hefir verið líflegt þessa, dagana.
Fyrst var fjölsóttur kjörfundur, þar sem
Skúli Thoroddsen sýsiumaður isfirómga var
kosinn þingmaður Eyfirðinga með 205 atkv.,
en Einar Asmundsson í Nesifjekk ekki nema
105 atkv. Skúli kom eitthvað 10 dögum áð-
ur á hvalveiðaskipi norsku og með honum
báðir þingmenn Isfirðinga, Sigurður og Gunn-
ar. Hjeldu þeir 4 fundi með kjósendum á
ýmsum stöðum í kjördæminu og túlkuðu sitt
mál sem bezt þeir gátu. En Einar gamli
ljet ekkert á sjer kræla, hvorki í ræðu nje
riti, fyr en á kjörfundinn kom, og þá munu
margir hafa verið búnir að lofa atkvæðum
sínum, og það jafnvel sumir, sem voru bún-
ir að skora á Einar að gefa sig fram. Á
fundinum hjelt Einar ágæta ræðu, og kvaðst
hann sjer þess ekki meðvitandi, að hann hefði
breytt skoðun sinni, frá því hann var síðast
á þingi; en ef kjósendur hefði breytt skoðun
sinni, þá bað hann þá að kjósa sig ekki;
fyrir því lítur svo út, sem kjósendur hafi
breytt skoðun sinni en Einar ekki. Stjórn-
arskrármálið var aðalumtalsefnið, en enginn
kjósandi lagði nokkra spurningu fyrir Einar
til úrlausnar. Erfitt var að gjöra greinarmun
á skoðunum Einars og Skúla í því máli, því
að Skúli var svo óákveðinn í orðum sínum,
nema í því einu, að hann kvaðst vilja alinn-
lenda stjórn; en hvorki vildi hann segja,
hvernig henni skyldi fyrir komið, nje hverjar
Iíkur hann hefði fyrir því, að þessi innlenda
stjórn, hvernig sem hann hugsar sjer hana,
kæmist nokkurn tíma á. Eigi vildi hann
heldur segja, hver munur væri á skoðunum
sínum og Einars, þótt hann væri spurður um
það. Að öðru leyti þótti Skúli koma stilli-
legar fram í ræðu en í riti; en í flæmingi
fór hann undan að svara ýmsum spurningum,
sem fyrir hann voru lagðar, svo sem um tolla
og fleira.
Marga muu furða á því, að Eyfirðingar
höfnuðu gömlum og góðreyndum þingmanni,
svo sem Einari, en tóku mann alveg óreynd-
an. En það mun hafa ráðið mjög úrslitum,
að Einar gjörði sjer of lítið far um, að setja
sig í persónulegt samband við kjósendur, og
hitt annað, er ótrúlegt virðist, að menn vissu,
að báðir hinir konungkjörnu þingmenn í Eyja-
firði, Júl. amtm. Havsteen og Jón A. Hjalta-
lín skólastjóri, voru Einari meðmæltir. Ætti
það að vera áminning fyrir þá herra, að skipta
sjer ekki af kosningum framvegis«.
Minningarhátíð landnáms Eyja-
fjarðar byrjaði í gær kl. 11 — er oss skrif-
að af Eyjafirði 21. þ. m. — Samkomustaður-
inn var á Oddeyri. |>ar voru reist tjöld; eitt
langt með tveim örmum, og svo veitingatjöld
nokkur; skammt frá var ræðustóll (gamli prje-
dikunarstólinn úr Hrafnagilskirkju); þar rjett
I hjá var danspallur. Ikringum tjöldin, ræðu-
f stólinn og danspallinn voru settar niður laufg-
aðar hríslur úr Vaglaskógi í Fnjóskadal. Ætl-
að var, að nokkuð á annað þúsund manna
væri þar saman kornnir, ekki úr Eyjafirði
einum, heldur og úr jpingeyjarsýslu og Skaga-
fjarðarsýslu og víðar að. Veður var mjög
hæglátt og hlýtt, en sallarigning. Hátíðin
byrjaði með andlegri ræðu, er Davlð prófast-
astur Guðmundsson hjelt; þá mælti Júlíus
amtm. Havsteen fyrir minni kotíungs, þá Jón
A. Hjaltalín fyrir minni íslands. Söngvar
voru sungnir milli ræðuhaldanna. Síðar um
daginn sagði síra Matth. Jochumsson ágrip
af sögu Eyjafjarðar, og gat um helztu Ey-
firðinga; þótti honum mælast vel, en undar-
legt fannst sumum, að hann gleymdi Jónasi
Hallgrímssyni og síra Jóni lærða. Skömmu
síöar byrjaöi aansinn og hjeit á fram íram á
nótt. Tiltölalega fáir voru ölvaðir, ölvaðir,
enda voru búðir lokaðar, svo eigi náðist í
þriggja pela flöskurnar.
Um kveldið var leikinn »Helgi magri«, sem
fremur má heita langloka en leikur; en bún-
ingar voru góðir og leikendur gjörðu hje/ um
bil það sem gjört varð úr svo svæfandi efni.
1 dag er annar dagur hátíðarinnar. Eiga
þá enn að verða ræðuhöld, sýning á munum,
kappreið, glímur og fimleikar.
Þingmálafundurinn, sem halda átti í
jpórsnesi, var haldinn þann 10. á Miðhúsum
— er skrifað úr N.-Múlasýslu 15. þ. m. —
og var þar margt manna saman komið, þar
á meðal þingmenn Suður- og Norður-Múla-
sýslu. Fundarstjóri var kosinn síraJónpróf-
astur í Bjarnanesi og ritari Bjarni Jónsson
á jþuríðarstöðum. Var fyrst tekið til umræðu
stjórnarskrármálið, og tóku margir til máls í
því; voru fleiri á því, að miðlunarmennirnir
hefðu gengið of langt á síðasta þingi, en allir
vildu þó, að miðlað yrði málum, og aðstjórn-
in legði fram á næsta þingi frumvarp til
stjórnarskrárbreytingar. • Yms fleiri mál voru
rædd, svo sem gufuskipaferðir, skólamál og
launalögin. |>ann 13. var kosningaundir-
búningsfundur haldinn í J>ingmúla, og þann
14. kjörfundurinn.
Norður-Múlasýslu, 15. júní: »Upp úr
hvftasunnuhátíðinni gjörði kuldakast og hjelzfc
við fram yfir fardaga ; þ. 5.—6. snjóaði svo,
að skaflar komu í byggð og kaffenni í fjöll-
um; þó hef jeg ekki frjett að tjón hafi orðið
á fje. jpetta kast varð til mikils hnekkis
fyrir grasvöxt, sem áður leit út fyrir að mundi
verða í bezta lagi, en nú lítur út fyrir, að.
hann verði ekki meir en í meðallagi.
Fiskictfli er nú kominn allmikill í Fjörðum.
Allt útlit er fyrir, að verzlun verði hag-
stæð í sumar. Valdemar Davíðsson, verzlun-
arstjóri á Vopnafirði, hefur kveðið upp 80 a.
vérð á ullinni, þrátt fyrir það, að hún hefm
fallið rlendis.
f>ilskipa-afli. þilskip frá Bfldudal hafa
aflað af þorski hjer um bil þetta í vor :
»Tjálfi«, skipstjóri Edílon Grímsson, 17000,
»Katrín«, skipstj. Gísli Asgeirsson, 16000.
»Helga«, skipstj. Mattías Asgeirsson, 16000..
»María«, skipstj. Bjarni Bjarnason, 13000.
»Kjartan«, skipstj. Sturla Ólafsson, 14000.
Skipin eru öll að mestu eign P. J. Thor--
steinssonar kaupmanns á Bíldudal, nema.
»Kjartan«; hann á Einar hreppstjóri Gíslason
í Hringsdal o. fl.
Skagaíirði, 16. júní: »|>ær 2 vikur, sem.
liðnar eru af júni, hefir veðrdttan verið ólík,
þannig, að fyrri vikuna var veðrið mjög kalt,
optast með mesta kuldastormi á norðan og
norðaustan, og snjóaði nokkuð, einkum í fjöll-
um og á Fljótum. Sú vika var rnjög erfið.
fyrir sjómenn við Drangey. jpeir eigi að eins
öfluðu ekkert, heldur misstu mikið af veiði-
flekum sínum. Seint í þeirri viku (6. þ. m.?)
rak hval, fertugan að sögn, á Keldum í Sljettu-
hlíð, sem ekkjan þar, Lilja að nafni, átti,
Vætt af spiki hans var seld 4 kr., en rengi
3 kr. fæssi síðari vika hefir aptur verið öll-
um hagstæð og arðsamleg á landi og sjó:.
hagfelt veður og mikill landburður af fugli,
og fiski (300 af allvænum fiski t. d. til hlutar
hjá einum í Hofsós yfir vikuna). 31. maí
kom fyrst fiskur hjer á land, og er því bjarg-
n* Át P Jn + n an J i A A + r Tn n -v-> /,, 7, " 7 J L-L -, 1 ± , • — -y
/ U/l/no.,uiivl-n.win/ tA'ÖLA_' ° ° utu ociiuu KJCÍ
verzlun í góðu horfi : C. Knudsen, sem hjer
er mörgum að góðu kunnur, er kominn til
Sauðárkróks með nauðsynjavörur, ar hanu
selur móti peningum og fyrir hross, sem gefið.
er nú töluvert betur fyrir en í fyrra (40—•
85 kr. Sömnleiðis lætur Jón Vídalín,
verzla á Sauðárkrók með vörur fyrir peninga
og hross. f>orl. Ó. Johnson lætur verzlaþar
með kramvöru fyrir peninga og ull. Aldrei
munu því eins margir hafa gefið sig við verzl-
un á Sauðárkrók sem nú, enda stækkar hann
árlega. Sýslumaður Jóh. ólafsson er þegar
seztur þar að í fallegu nýju húsi, og præp,
hon. síra Jón Hallsson, er þegar búinn að
láta reisa sjer þar hús, og verður það einnig.
fallegt«.
Færeyingar á Austfjörðum. Fjölda
margir Færeyingar komnir til Austfjarða —
er skrifað af Seyðisfirði 17. þ. m. — á að
gizka 5—600, og búizt við enn fleirum; er
því hætt við litlum afla hjá sumum innlend-
um í ár.
Færeyingur, að nafni Martinus Petersen,.
hefir í orði keypt Hánefsstaði á Seyðisfirði:
fyrir 8000 krónur.
Barðastr-sýslu vestanv. 19. júní: »Allt
vorið hefir verið hin mesta blíðviðristíð, að>
undantekinni vikunni eptir trínitatis eða dag^
ana 1. til 7. júní. f>á var allsnarpur norð-
angarður, frost um nætur og festi snjó á fjöll,