Ísafold - 15.11.1890, Blaðsíða 2

Ísafold - 15.11.1890, Blaðsíða 2
368 |>að er að hafa öll eða sein flest bæjar- húsin undir einu þaki, einu risi. Með öðrum orðum : hafa þau eins löguð og timburhús gerast annars eða steinhús. það er stórmikill hagur og sparnaður að því fyrirkomulagi, í alla staði. Bæjarhús samföst eru venjulegast ýmist 3 eða 5, og bæjargöng hið 4. eða 6. jpar við bætist svo útiskemma og smiðja, á flest- um bæjum. |>að verða 8 hús alls. Br það feykilegur ósparnaður, bæði að efni og verki, þegar byggt er. Efni fer miklu, miklu meira í þessi mörgu hús, bæði viður og torf og grjót, heldur en í jafnmikið húsrými í einu lagi, undir einu risi, auk margvíslegra óþæg- inda annara, er slíkum húsakynnum fylgja. Með einu baðstofuhúsi, portbyggðu, ekki meiru um sig en baðstofur gjörast almennt, og með kjallara undir því öllu, má fá jafn- mikið húsrúm og þó hentugra en með 6—8 bæjarhúsum, sem nú tíðkast, með gamla laginu. Látum baðstofuhús þetta vera 15 álna langt og 7 álna breitt t. a. m. Jeg hef kjallara undir því öllu saman. Kjallarar eru hin ódýrustu hýsakynni, sem til eru, því gólf og þak er sjálfgjört; — jeg gjöri ekki ráð fyrir nema moldargólfi í kjallaranum, og þakið er gólfið í húsinu. Kostnaðurinn er sá mestur, að koma moldinni burt og hlaða veggina. jþað þarf hvort sem er að grafa talsvert fyrir undirstöðum hússins, og getur því kjallaragröpturinn ekki talizt kostnaðar- og fyrirhafnarauki nema að nokkru leyti. Kjallaraveggina hef jeg bara úr torfi og grjóti, eins og bæjarveggi; að eins tómt grjót ofan til, þar sem húsgrindin liggur á, til þess að feygja hana ekki. Jeg hef utangengt í kjall- arann, og getur þar verið mjög óbratt ofan, ef vel hallar frá hússtæðinu, — og raunar hvort sem er. Kjallari þessi kemur nú í stað skemmu og smiðju og búrs að nokkru leyti; það er nóg rúm í honum til þessa alls. í baðstofuhúsinu sjálfu niðri hef jeg í öðr- um enda búr og eldhús, samhliða, og utan- gengt í eldhúsið í húsendann. I hinura endanum hef jeg stofuhús, gestastofu, og utangengt í hana um þann gaflinn. Nái sú stofa um þvert húsið og taki svo sem 5 álnir af léngd þess, en búr og eldhús í hinum end- anum aðrar 5 álnir, en hálfa breidd hús- ins hvort þeirra um sig eða þar um bil —, þá er enn eptir 5 álna bil þar á milli, miðbik hússins niðri. |>að get jeg hólfað í tvennt langsetis, og hef með annari hliðinni svefn- klefa fyrir gesti, og innangengt í hann úr stofunni, en hinumegin geymsluklefa fyrir þá hluti, sem eigi er hentugt eða hoilt að geyma í kjallara, og innangengt þangað úr búrinu. Úr eldhúsinu ætlast jeg til að gengið sje upp á loptið, baðstofuloptið. Baðstofuna má hafa afþiljaða í öðrum enda, eða öðru vísi, eptir því sem hver vill. J>etta segi jeg að sjeu sæmileg húsakynni, jafnvel á heldri heimilum í sveit. Stærðinni má auðvitað haga eptir þörfum og ástæðum. Aðalatriðið er hið haganlega fyrirkomulag. Og aðalhagnaðurinn að þessu fyrirkomulagi er þaksparnaðurinn: eitt þak, eitt ris yfir öllum bænum, og það ekki nema lítið á ann- að hundrað ferh.álnir að stærð, í stað mörg hundruð ferh.álna, sem fara á 6—8 bæjar- hús. Jeg veit, að margir muni koma með þá mótbáru, að hin þökin, á 6—8 bæjarhúsum, sje líka rniklu ódýrari, þó talin sjeu saman, vegna þess, að það geti verið moldarþök, en yfir svo lagað baðstofuhús, sem hjer var lýst, þurfi betra þak og því miklu dýrara. En það er eintómur hugarburður. pv að þessir hinir sömu búvitringar gjöri ekkert úr allri vinnunni, sem fer til þess að leggja 6—8 moldarþök 5. til 8. hvert ár, og þó að þeir vilji ekki gjöra neitt úr því, að moldarþökin feygja fyrir þeim alla viðina á ekki fleiri árum, þá skal jeg geta sýnt með einföldum reikningi, einfaldri samlagningu, að það fer meira efni að verði til, auk torfs- ins, í öll þessi mörgu þök — sem ekki end- ast nema 5 til 8 ár —, heldur en hið eina þak, baðstofuþakið, sem tekur yfir öll bæjarhúsin í einu lagi, og þó með hagfeldara fyrirkomu- lagi. Svo jeg minnist aptur á kjallarann, þá er það vitaskuld, að sje ekki nógu þurrlent þar sem hann er grafinn, verður að hafa nógu djúp ræsi, lokræsi, allt í kringum hann, til þess að veita öllu vatni frá honum. þessi kjallari er ágætis-geymsluhús, svalt á sumr- um, hlýtt á vetrum. J>ví miður hagar víða svo til, að ekki er hægt að hafa nema torfveggi á bæjarhúsum, vegna grjótleysis eða skorts á hentugu grjóti. En það skyldi enginn hugsa sig um stundu lengur, að hafa heldur steinveggi en moldar- veggi þar, sem því verður með hægu móti við komið, þar sem fæst bentugt grjót, sem gott er að kljúfa og laga til, og þar sem ekki er mjög örðugt að ná sjer í dálítið af sementi, tíl að sletta í rifur milli steina að utan, þó ekki væri annað; því ekki eru þeir góðir án þess. Slíkir veggir standa því nær um aldur og æfi, almennilega gerðir í fyrstu, og er það enginn smáræðis-fjársparnaður. Að þeim má líka vinna, þ. e. undirbúa grjótið og draga það að, á þeim tíma árs, sem önnur atvinna flest er bönnuð vegna veðuráttunnar, svo varla er sá smábóndi eða einyrki, að hann geti eigi gert býsna mikið í þá átt, ef viljann hefir og framtak nóg til þess. Slíka veggi má og hafa nægilega háa til þess, að baðstofuhúsið verði fullhátt, þótt þakið sje haft mjög rislítið. En gallinn á steinveggj- unum er kuldinn, skjólleysið. Við því er ráðið að hafa þiljur fyrir innan þá, annað- hvort með veggjapappa eða þá troðið á milli þils og veggjar, reiðingstorfum eða einhverju öðru til þess hentugu. Auðvitað eykur það nokkuð kostnað. En alsiða er samt, að þilja hús innan, þar sem torfveggir eru hafðir, og kemur sá kostnaður þá í sama stað niðar. Sjeu torfveggir hafðir, má til að hafa risið talsvert meira, vegna þess, að með þeim fæst ekki nægileg veggjahæð, svo stæðilegt verði. Gerir það undir eins mikið til að jafna upp kostnaðarmuninn á torfveggjum og steinveggj- um, hvað sem endingunni líður. En sjeu torfveggir hafðir, þá ríður á að gjöra ekki þá vitleysu, sem altíðkanleg er þó, að setja stoð- irnar í húsgrindinni á steina og skorða hana í veggina, en hafa engar skástoðir. Torf- veggirnir svíkja fyr eða síðar, optast á fárra ára fresti, og fara þá með allt saman. I stað þess að grindin á að geta haldið sjer, hvað sem veggjunura líður. Má þá éndurnýja þá án þess að rífa húsið niður. Bezt væri að hafa aðra hlið hússins, framhliðina, úr timbri, helzt með járni utan yfir, þótt gaflar og önnur hlið væri úr torfi; fer lítið í það, því hliðin verður mestöll gluggar ; þarf litla sem enga glugga á hinum veggjunum. f>ar sem jeg ætlast til, að eldhús sje haft undir sama risi og önnur bæjarhús, undir baðstofulopti, þá getur það auðvitað ekki, orðið nema höfð sje eldavjel og þar tilheyr- andi járnpípa upp úr húsinu fyrir reykinn og vel um það búið. Hlóð stoðar ekki að hafa öðru vísi en í sjerstæðu eldhúsi. En elda- vjel er líka kjörgripur í baðstofuhúsum eða sveitabæjum, eins og í kaupstaðarhúsum. Hún sparar stórum eldivið og ver húsið skemmdum. Jeg hefi hjer, eins og aðrir, gert ráð fyrir járni á baðstofuþök, af því járnþök eru nú algenguat orðin í kaupstöðum og þykja til- valin. En margfalt ódýrari í þak er samt »asfalteraður steinpappi«, ekki nema 20 au. ferh. alin, og þó ef til vill hjer um bil eins góður og járn, ef rjett er með farið. Reyn- ist hann áreiðanlega góður, væri tóm hand- vömm, ef öll torfþök á mannahýbýlum hjer á landi hyrfu eigi á fám árum. Eða þá líka á hlöðum t. d. Mjög hættir mörgum þeim, er hugsa um að bæta húsakynni sín, einkum til sveita, við þeirri yfirsjón, að ráðast í þess konar fyrirtæki án þess að hafa fengið áreiðanlega lagðan niður fyrir sjer allan kostnað til þess fyrir fram eða verið sjer úti um góða leið- beiningu um tilhögun á hýbýlunum, svo að sem hagfeldast sje og kostnaðarminnst; sömu- leiðis með útvegun og aðdrætti á efninu, við og járni og þess háttar. Gjörir margur sjer stórskaða með því, að ráðfæra sig ekki við þó, sem vit hafa á betur en þeir geta haft, og hieypa sjer stundum ófyrirsynju í þann kostnað, er þeir geta eigi staðizt. (Einar J. Pdlsson, trjesmiður, Bvík). Sannieíkurinn er sagna beztur, eða skipstjórinn á „Thyra“ og „þjóðólfur“. í næst síðasta tölubl. „þjóðólfs11 er grein um „Sam- einaða gufuskipafjelagið og strandferðirnar11, er á að sýna „bezt“, hvernig strandferðaskipstjórarnir „misbjóða íslendingum“. þar er kveðið svo að orði: „Sum dansklunduð stórmenni Reykjavíkur kvað reyndar hafa talið (>að lofsvertaf skipstjóran- um, að fara ekki alveg fram hjá Skagaströnd“. þessi orð þykja mjer eigi vel valin; eg skil eigi í því, að menn þurfi að vera „dansklundaðir“ og því síður „stórmenni11 til þess, að þykja vænt um, að strandferðaskipstjórinn kosti kapps um að reka erindi sitt sem rækilegast að unnt er. það mun heldur eigi vera svona að orði komizt af því, að „þjóð.“ ætli, að þá þori enginn að andæfa sakar- giptunum, heldur mun það vera eins og orðið, priedikað i tima og ótíma. En eptir því, sem eg hefi áreiðanlegastar fregnir haft af mönnum, er sjálfir voru með skipinu, og sem erd alls kostar óhlutdrægir, þá er skýrsla „þjóð“. eigi rjett. „þjóðólfur“ skýrir svo frá: „sannleikurinn er, að. þegar Thyra kom þar (o: á Skagaströnd) undir nótt í fyrsta skiftið 1 f. m., þorði skipstjóri ekki að liggja þar yfir nóttina, þótt veður væri ekki mjög vont, heldur hjelt vestur á Reykjarfjörð“. þetta er að visu sannleikur, en hann er ekki nema hálfur; þegar skipið kom þar i fyrsta sinni, lagðist það fyrir utan höfðann (sunnan undir honum mun, eptir því sem íslenzkir skipstjórar hafa mjer sagt, eigi vera nógu djúpt), en aðfall og straumur bar að höfðanum, svo að þar var eigi öruggt lægi; þegar því var illfært eða ófært að liggja þar, fór skipið yfir á Reykjarfjörð og lá þar um nóttina. þar sem „þjóð.“ segir, að logn hafi verið komið, þegar skipið kom vestur á flóann (o: á þessari leið þess yfir á Reykjarfjörð) og „ef það þá hefði snúið aptur til Skagastr., hefði það getað lokið sjer af þann dag“, þá er ekki að tala um neinn,

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.