Ísafold - 29.04.1891, Síða 3
135
Hafnará, er opt getur orðið viðsjál yfirferð-
ar, en lítið þyrfti fyrir að hafa að brúa,
ekki nema 7 álna haf, og ætti sýslunefndin
að taka það að sjer, þar sem þetta er í
þjóðbraut. Margir eru hjer samdóma herra
Tryggva Gunnarssyni um, að nauðsyn beri
til lögskipaðs eptirlits með öllum hinum
stærri brúm.
jbrátt fyrir áskorun landlæknis og um-
kvörtun eins fundarmanns á sýslufundi á
Akranesi í vetur hefir ekki neitt borið á, að
ráðm sje bót á vanrækslu þeirri, sem hefir átt
sjer stað með kúabólusetningu í sumum
hreppum sýslunnar, fyr en nú þessa daga,
að sýslumaður hefir fyrir skipað almenn-
ar bólusetningar, hvaða árangur sem
það hefir. þó ekki sje á útkjálka lands-
ins, veit jeg af 14 ára gömlum ungl-
ingum óbólusettum, sem hafa þó verið
hreifingarlausir í sömu sókn; en hvað langt
er síðan hefir verið bólusett reglulega, get
jeg ekki dæmt um; það hefur ljósast verið
gjört fyrir mitt minni.
Almennar skoðanir á fje hefir sýslumaður
nú einnig fyrir skipað.
Mýbasýslu (Hraunhreppi) 23. apríl
(sumardaginn fyrsta) : Til þessa hefur
Hraunhreppinga lítið verið getið í blöðum,
en það er þó vert að geta þess, sem gjört
er. Eptir þvf sem frjezt hefur úr nálægum
hreppum, mun mega fullyrða, að þeir hafa
gengið á undan öðrum í því að mennta
ungmenni, þar sem þeir hafa í marga und-
anfarna vetur, einkum þrjá hina síðustu,
kostað mann, kennara, eingöngu til að upp-
fræða börn sín. Mestan þátt í því hetír
átt Jónatan bóndi Salómonsson á Hjörsey,
sem ásamt sambýlismanni sínum Sigurði
Guðmundssyni hefur haft manninn á heim-
ili sínu meiri 'nluta hins umgetna tíma, og,
auk þess að láta kenna sínum eigin börn-
um, hafaþeir tekið börn aföðrum víðsvegar úr
hreppnum, og jafnvel víðar, um langa tíma,
með mjög vægri meðgjöf, í samanburði við
hvað það getur kostað að taka mann á
heimilið fyrir fá börn, og líka munu þeir
um nokkurn tíma hafa gefið börnum sumra
fátæklinga bæði fæði og kennslu. Hjá þess-
um mönnum lýsir sjer mjög sómasamleg
menntunar- og framfaratilfinning barnanna
vegna og velvild við sveitarfjelagið, og væri
vel, ef fleiri tæki sjer slíkt til fyrirmynd-
ar.
—........... I.IM.II
Leiðarvísir ísafoldar.
Fyrirspyrjendur eru beðnir: a) að hafa
jafnan fyrirspurnir sjer á blaði, en ekki innan
um annað, í brjefum o. s. frv.; b) að hafa á ept-
ir hverri spurningu nœgilega eyðu fyrir svarið ;
c) að láta nafns síns getið, — ekki til birtingar,
heldnr til leiðbeiningar fyrir ritstj., ef viö þarf.
Qagnslausum fyrirspurnum eða almenningi ó-
viðkomandi er ekki svarað.
730. Er það samkvæmt löguœ, að taka lögtaki
það fje, sem áður er veðsett og þinglýst ?
Sv.: Lögtaki má taka það, en ekki selja öðru
visi en eptir samkomulagi við veðhafanda, nema
lögveð sje, svo sem t. d. fyrir brunabótagjaldi.
731. í tilskipun um sveitarstjórn á Islandi 4.
maí 1872 39. gr. stendur: Hún (sýslunefndin)
skal semja reglugjörðir um notkun afrjetta, fjall-
skil, fjárheimtur o. s. frv. Enn, eptir 19 ár. er
engin slík reglugjörð útkomin frá sýslunefndinni
í Kjósar- og Gullbringusýslu. Hverjum ber að
halda sýslunefndinni til hlýðni í þessu efni ?
Sv.: Amtsráðinu, samkvæmt 52. gr. tilvitnaðra
laga.
732. Er ekkert húsfólk, karl eða kona, gjald-
skylt til styrktarsjóðs handa alþýðufólki (lög 11.
júl! 1890), hvort heldur það er einhleypt eða
hefir eitthvert skyldulið fram að færa, eða er
skepnulaust eða ekki ?
Sv.: Nei, að eins vinnufólk (,,hjú“) og „þeir
sem vinna fyrir sjer i lausamennsku“. Sbr.
frekar næstu fyrirspurn.
733. Hver er greinarmunur á húsfólki og
lausafólki, ef hvorutveggja er einhleypt og á
engar skepnur?
Sv.: Einhleypt fólk (þ. o. sem ekki hefir heim-
ili forstöðxx að veiia) getur eigi að lögum verið
i húsmennsku. það verður því að teljast með
lausafólki, sje það ekki í vist (og sektast, ef það
hefir eigi útvegað sjer lausamennskuleyfi).
734. Mega eigi fráfarandi og viðtakandi semja
sín á milli um álag jarðar, án þess að láta taka
jörðina út af úttektarmönnum ?
Sv.: Nei, ekki svo gilt sje, ef leiguliðar eiga í
hlut. Sjá lög 12. jan. 1884, 30. gr.: „þá er leigu-
liðaskipti verða á jörðum, skal taka þær út“ o.
s. frv. (Lagas. handa alþýöu 111. 307).
735. Er fráfarandi af jörðu skyldur að selja
viðtakanda hús og fyrningar heys og eldiviðar
m. m., sem hann á á jörðinni, eptir mati úttekt-
armanna, ef hann—iráfarandi —getur hagnýtt sjer
það fyrir meira verð á annan hátt, nefnil. ef
einhver býður hærra verð en virt er ?
Sv.: Já, sjá lög 12. jan. 1884, 9. og 10. gr.
(Lagas. III. 301—302).
736. Nær eigi rjettur skuldunauts eptir siðara
kafla 27. gr. i lögum 4. növ. 1887 til að undan-
skilja frá fjárnámi helztu hfsnauðsyn.jar, 20 kr.
eða 120 kr. viröi, einnig til opinberra g.jalda
(landssjóðs, prests, kirkju, sveitar), þ. e. þegar
taka skal slik gjöld fjárnámi ?
Sv,- Nei. Sjá niðurlag tilvitnaðrar greinar.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og
opnu brjefi 4. januar 1861 er hjer með
skorað d alla pá, er telja. til skulda í
dánarbúi Jóhannesar Guðmundssonar frá
Borg, er drukknaði í Stokkseyrarveiði-
stöð 25. p. m., að bera fram kröfur sín-
ar og sanna pœr fyrir skiptaráðanda hjer
í sýslu innan 6 mánaða frá síðustu birt-
ingu pessarar auglýsmgar.
Sömuleiðis er skorað á alla pá, er
skulda dánarbúinu, innan sama tíma að
gjöra skil fyrir skuldum sínum.
Skrifstofu Árnessýslu 31. marz 1891.
Sigurður Briem,
settur.
Uppboðsauglýsing.
Laugardaginn hinn 23. nœstkomandi
maímánaðar verður eptir ósk ekkjufrúar
Kristínar Skúladóttur haldið opinbert
uppboð í Kirkjubæ á Rangárvöllum á
allskonar húshlutum, bœði innan húss og
utan, rúmfatnaði, reiðverum, reipum, eld-
húsgöngum o. s. frv., miklum sauðfjen-
aði og hrossum m. fi.
Uppboðið byrjar kl. 10 fyrir hádegi.
Uppboðsskilmálar verða auglýstir á itpp-
boðspinginu.
Skrifstolu Rangárvallasýslu 10. apríl 1891.
Páll Briem.
Samkvcemt lögum 12. apríl 1878 og
opnu brjefi 4. jan. 1861 er hjer með
skorað á erfingja Einstínveigar Einars-
i
92
hans, þunguð að sagt var, og missirisgamalt barn þeirra
hjóna; vinnumaður Magnúsar og 2 vinnukonur. En meybarn
þeirra Magnúsar, ungt, hafði Magnús flutt til ömmu þess í
Helgafellssveit, Ljótunnar Asmundsdóttur, prests garnla á
Breiðabólstað á Skógarströnd; það hjet Alfrún. Hana átti
síðar Guðmundur Guðmundsson á Stóra-Hrauni. þeirra son
var Sigurður spítalahaldari á Hallbjarnareyri, þar áður hjet
Ondverðareyri. Sigurður var faðir Guðmundar spítalahaldara,
föður Ólafs prests á Hjaltabakka (+ 1866).
3. kap. Frá Guðbrandi og þormóði skáldi.
Guðbrandur Jónsson var hinn mikilhæfasti maður, svo
jafnan hefur verið orð á gjört. Hann var maður vel viti
borin, hraustmenni mikið og sægarpur svo mikill, að nálega
vissu menn engan hans jafnoka á hans dögum.
f>ess er áður getið, að þormóður skáld fekk Brynhildar
systur hans. Var hún sögð allskapstór, sem segir í þætti
þormóðar.
það er sagt, að þeir mágar, Guðbrandur og þormóður,
ræddu eitt sinn um sjóferðir, og þótti jpormóði hann gera
lítið úr sjómennsku sinni, því Guðbrandur sagði að lítt þyrfti
hann að stæra sig af sjómennsku, þó sumt hefði hann yfir
flesta aðra; er þá mælt að jþormóður hafi sagt, að bíða mætti
bann þess, að reyndan mundi hann fá sig, en miklu líkara er
það, að slíkt væri spá lians en að hann gerði galdraveður
síðan að Guðbrandi; því jafnan var Guðbrandur vel til f>or-
móðar. Einmælt er það, að Guðbrandur vísaði Brynhildi
89
stuðning af veggnum við bakið, segir hann að Benidikt megi
koma, ef hann langi til. Benidikt hleypur svo á hann, en
karl tekur í móti honum svo, að hann tekur annari hendi í
bringu hans og hinni um buxnalinda, vegur hann upp og
leggur á hrygginn ofan í poll, sem var þar á hlaðinu, og segir
um leið: »Jeg kann ekki að glíma, Bensi«.
Eiríkur dó í Hofteigi hjá síra Sigfúsi, á áttræðisaldri.
Hann var alla æfi mjög heilsuhraustur og varð ekki meint
af neinu.
J>áttur af
Guðbrandi Jónssyni sægarpi
og Þorsteini sterka syni hans.
Eptir Guðbeand Stuelaugsson.
1. kap. Frá œtt og uppruna Guðbrandar.
Guðbrandur hjet maður og var Kristófersson. Hann bjó
í Sellóni í Helgafellssveit. Oddný hjet kona hans, ættuð úr
norðurlandi. Voru þeirra synir Guðmundur og Jón.
Guðmundur bjó í Höskuldsey og átti Margrjeti eldri
Jónsdóttur að norðan, en sumir telja úr Rauðseyjum, eina
af börnum Jóns Rauðseyjaskálds Guðmundssonar, er sagðnr
var ættaður úr norðurlandi. Pjögur eru talin börn þeirra