Ísafold - 25.11.1891, Page 2

Ísafold - 25.11.1891, Page 2
874 stæða, og er furða, að slíkt skuli hafa verið tekið í mál. Auk þess er einmitt þar niður frá vað á ánni, alfært fyrir kunnuga meiri hluta sumars. Síra 0- V Gíslason og nokkrir »Strandarmenn«. „það sem þjerviljið að menn- irnir gjöri yður, það eigið þjer einnig þeim að gjöra“. í 88. tbl. »ísafoldar«, sem jeg meðtók í dag er grein undirskrifuð: tStrandarmenm; það’ er óþokka grein, eins og óþverra-vegur- fnn á Ströndinni, þar sem eigi verður spor stigið, nema jafnframt að ausa slettum á alla, sem í grennd eru; það er óþokka- greiu sem auðsjeð er að af sama toga er spunnin sem greinar hr. þ. Egilssonar um »bjargráð«, og þótt jeg vildi leiða hjá mjer að svara henni, altjend hvað hið persónu- lega snertir, þá neyðist jeg samt til, eins og menn svo opt að orði komast, að minn- ast á nokkur atriði greiuarinnar, vegna bjargráða-málsins. Jeg þykist ekki eiga hjer við nema fá- eina menn á Ströndinni; því þótt ekki væru nema 3'feður greinarinnar, hafa þeir óefaða heimild, gagnvart mjer, að skrifa sig »Strand- armenn, úr því þeir dyljast nafna, sem einatt er notað þegar hxnu ílla er fylgt og ósanna; jeg á hjer við þingmálafundarskýrslu Vatnsleysustrandarhrepps frá 4. júlí þ. á., sem lögð var fram á alþingi í sumar er leið, sjálfsagt til stuðnings greinum hr. f>. Egils- sonar viðvíkjandi aðgjörðaleysi bjargráða- nefnda við Eaxaflóa, þar sem óvildar-flokk- ur »bjargráða« eigi hefir sjeð sjer greitt að vefengja þær skýrslur bjargráðanefnda, sem jeg sendi inn á þing, og fram lagðar voru; þvílík þingmálafundarskýrsla var svo hent- ug framan í þingmenn vora, þegar nöfnin: J Breiðfjörð (fundarstjóri) og Guðm. Guð- mundsson (skrifari) voru undir skrifuð; þau hlytu að vera óefandi sönnun fyrir hinu ó- sanna, »að bjargráðanefndirnar gerðu ekkert gagn«, og þar sem útdráttur úr fundargjörð- fnni, staðfestur, var lagður fram á bjarg- ráðadeildarfundi 24. okt. þ. á., og hr. Jóm Sveinbjörnssyni falið að svara þeirri grein, fylgir hjer útdrátturinn og undirtekt fund- arins: FUNDARSKYESLA. (Eptirrit). Sökum þess, að þeir menn, sem ætluðu að fara á þingmálafund þann. sem alþingismenn Kjosar- og Gullbringusýslu hjeldu þann 20, f. m., ekki gátu mætt þar, vegna ýmsra hmdrana, sem um þær mundir komu fyrir, var afraðið að halda fund með nokkrum mönnum hjer í hreppi og rjpða þar hin helztu mál, er menn búast við að tekin verði til umræðu á alþingi því, sem haldið verður í sumar. Eptir undangegna fundarboð- un frá hreppsnefndinni var því fnndur settur í þinghðsi Vatnsleysustrandarhreppi laugardaginn 4. júli og komu þar þessi mál til umræðu 8. Allar smáfjárbænir óskar fundurinn að þingmenn taki til nákvæmrar yfirvogunar áður en þeir mæla með þeim. Sjerstaklega vill fund- urinn biðja þingmenn aðmæla sterklega mótipví. að hinum svonefndu „Bjargráðanefndum11 verði framvegis nokkur fjárstyrkur veittur af almanna- fje með því sjómenn þykjast sannfærðir um, að engin þeirra, sem stofnaðar hafa verið hjer í Eaxaflóa, hafi hið allra minnsta gagn gjört, enda eru bjargráð þeirra orðin svo kunn af ræðum og ritum, að ekki sýnist lengur þörf á að hafa um- ferð ar'kennara launaðan af landssjóði til að minna menn á að nota það, sem nýtilegt þætti úr þeím ráðum, ef það nokkuð væri; en það er eptir vitnisburðum sjómanna að eins lýs- ið, og vissu menn það löngu áður en bjargráða- néfndir voru stofnaðar hjer. Vatnsleysustrandarhreppi 4. júli 1891. J J. Breiðfjörð Guðm. Guðmundsson (fundarstjóri). (skrifari). Til alþingismanna Kjósar- og Gullbringusýslu. Að ofanritað sje rjett dregiðút úr mjer sýndri frumritaðri fundarskýrslu, vottast hjer með not- arialiter eptir nákvæman samanburð. Notarius publieus í Reykjavík, 29. eept. 1891. ilalldór Daníelsson. Borgað 25—tuttugu og fimm— aurar. Halldór Danielsson. Á bjargráðadeildarfuníi f Hafnarfirði 24. f. m. var mjer í einu hljóði falið á hendur, sem jeg og hjer rneð gjöri. að birta í blaðinu „ísafold1' ofanskráðan, staðfestan útdrátt úr fundarskýrslu Strandarmanna og jafnframt yfirlýsing lundarins, að því leyti, sem þá skoðun megi leiða af fund- argjörðinni. að „engin þeirra bjargráðanefnda, sem stofnaðar hafa verið við Eaxaflóa, hafi hið allra minnsta gagn gjört“, þá sje það með öllu ósatt. Húsatóptum í Grindavík, 3. nóv. 1891. Jón Sveinbjarnarson. Sýnir þessi fundargjörð, að mennirnir hafa ekki verið margir; er mikil furða, þar sem um svo vandasöm mál var að ræða, að enginn af forkólfunum komst til að sækja fund þann, sem þingnxenn þeirra höfðu boð- að til, en þar var líklegra, að »bjargráð« hefðu fengið betur grundaðan dóm, þótt máske ekki öllu velviljaðri. þessarar þing- málafundarskýrslu 8. gr. og svo ýmislegt annað, sem öðrum kemur ekki við en bjarg- ráðanefndinni, olli því, að jeg skoraði ekki 1 á nefndina, að láta mæta á deildarfundi 24. okt. þ. á., í Hafnarfirði. Hvað fyrirspurn tveggja manna í Vogum snertir, þá var hún lögð fyrir deildarfund 11. sept. 1890 (ekki 89). þessi fyrirspurn, um að fá úr sýslusjóði 40 kr. til að koma upp sundmerkjum fyrir opin skip og þil- skip, var rædd á fundinum, og að fengnum upplýsingum (hjá hr. Jóni Breiðfjörð) áleit fundurmn, að hann gæti eigi mælt með beiðni þessara manna, að svo stöddu, þar sem engar skýrslur lægju fyrir, eða vottorð um, að nauðsyn bæri til, að hafa svo kostn- aðarsöm merki á Vogavík, en rjeð þeim til, að bera málið upp á bjargráðanefDdarfundi, og ef þar yrði á það fallizt, þá að leita samþykkis og meðmæla hreppsnefndar, aó sýslunefndin veitti fjeð (og rjeð herra Jón Breiðfjörð mestmegnis þessari tillögu, sem kunnugastur í Vatnsleysustrandarhreppi, þar sem hann var á fundinum og kosinn þar fyrir hönd bjargráðanefndarinnar á Vatns- leysuströnd af fundarmönnum, sem auk hans voru 9 á fundinum, sbr. fundargjörð- arbók bjargráðadeildarinnar). r þetta álit fundarins var þegar auglýst í »Isafold«. Tilgangur þessarar óþokka-greinar, þar sem dyngt er saman sönnu og ósönnu, rjettu og röngu, miðar auðsjáanlega til þess, að reyna að eyðileggja viðleitni mína, að glæða framfarir í sjómennsku og sjómanna með aðstoð sjómanna, og til þess þarf að niðra aðgjörðum bjargráðanefnda og forsmá viðleitni þeirra og góðan vilja, og tefja fyrir auðsjáanlegum framförum og fjelagsskap meðal sjómanna, því í nefndunum eru víð- ast hvar menn, sem af hjarta, hug og vilja vinna að því, svo freklega sem það er af þeim þegið, að efla samfjelag sjómanna í framförutn og dugnaði í öllu, er atviunuveg þeirra snertir, og í orði og eptirdæmi fá þá til að afla sjer þekkingar og viðhafa var- kárni, svo lífi þeirra væri síður hætt. Að spilla þessu er ekki fallegt, og það með ó- sönnum getsökum; það er líkt því, sem kveikt væri í byggingu, áður en hún yrði matin til vátryggingar, svo gildi ^hennar eða verð væri öllum ókunnugt. Aður en þjer fellduð ósannan og ranglátan dóm, hefði verið sómasamlegra fyrir yður, að leyfa mjer ótálmað að vinna þetta sumar og komast að raun um, að hverju gagni mætti verða. þar sem nú í fjölda bjargráðanefnda urn allt land (þær eru nú 60 að tölu, að ótal- inni nefndinni í Strandarhrepp), bæði við Eaxaflóa og annarsstaðar, eru góðir menn, margir yðar ígildi, og ýrnsar aðgjörðir nefnd- anna hafa þegar borið góðan ávöxt, og það svo, að nokkrir menn hafa þegar skýrt frá því, að þau bjargráð, sem nefndirnar halda fram, hafi orðið mönnum að lífshjálp; og þótt nokkrar nefndir hafi ekkert gjört og nokkr- ar sjeu að eins að nafninu, þangað til þær vita, hvað þær eigi að gjöra, hvernig _þær eigi að gjöra það og til hvers þær eigi að gjöra það, þá efast jeg ekki um, að með guðs hjálp (þið kunnið að geta spillt mörg- um mannanna) nær bjargráðamálið þeim viðgangi, sem yður eigi varir; og hvað mig- sjálfan snertir, segi jeg yður fjelögum það alvarlega, að hafi bjargráðaviðleitni mín verið byggð á sandi, þ. e. eigingjörnum hvötum eða metnaði, þá væri hún þegar fallin um sjálfa sig, en af því hún er byggð á Jesú Kristi, á kærleika til guðs og manna, þá er hún meiri en yða meðfæri, og þjer rekið yður á það, að þótt þjer reynið til og gjörið mjer illt, þá snýr guð því til góðs;— án hans megnið þjer ekkert. Með innilegri ósk um. að framfarir yðar,. fjelagsskapur og bróðui kærleiki taki sem. beztum og mestum framíörum. Stað 22. nóv. 1891. Yðar 0. V. G. þess má geta í sambandi við þetta mál, að merkur maður í Khöfn skrifar hingað nú með þessari ferð: »Svo er mikil eptir- spurn eptir fiski þeirra Orum & Wulffs, að miðlararnir neyðast til að halda uppboð á honum, og fá mikið verð fyrir hann með þessu móti. Jeg minntist á það við þá N. N., að merkilegt væri það, að Austfirð- ingar skiluðu nú betur verkuðum fiski en Sunnlendingar, og þetta væri af því, að Austfirðingar færu eptir tillögum síra O. V. Gíslasonar, þar sem hinir þættust upp úr því vaxnir, og samsitmtu þeir því. Starf sfra 0. V. G. hefir haft góð áhrif þar í fyrra«. Fiskiverkunarmálið. Nýjar umkvart- anir komu frá Spáni með þessari ferð, um fleiri farma en áður voru nefndir. Helztu útvegsbændur af Seltjarnarnesi og úr Reykjavík hjeldu funa hjer 11. þ. m.,. ásamt öllum kaupmönnum og verzlunar- stjórum hjer í bænum og nokkrum úr Hafn- arfirði. þar voru kosnar tvær nefndir til að endurskoða fiskiverkunarreglurnar frá 1886. Eiga tillögur þeirra nefnda og aðrar þessu máli viðvíkjandi að leggjast fyrir að- alfund kaupmanna og bænda innan skamms, til fullnaðarumræðu og úrslita. I annan stað áttu allir kaupmenn og verzlunarstjórar í Reykjavík, ásamt kaup mönnum úr Hafnarfirði, fund með sjer hjer í bænum 17. þ. m., og sömdu þar og sam- þykktu ýtarlegar reglur fyrir móttöku saltfiski, töluvert strangari en áður. Svo er í ráði, að kaupmenn með vorinu haldi fund til þess að gjöra ákvarðanir við- víkjandi betri aðferð við móttöku og flutn- ing á fiski þeim, er þeir eiga í geymslu hingað og þangað í veiðistöðunum. f>á skulu og matsmenn valdir, með ráði bænda, en yfirvald skipar þá. Málið fær yfir höfuð beztu undirtektir, og er ótrúlegt, að þær beri eigi nokkurn ávöxt. Konsúll G. Finnbogason, er mest hefir gengizt fyrir þessu máli í haust, siglir nú með póstskipinu, og tekur verzlunarstjóri Gunnl. E. Briem þá við af honum. »YíirlýsÍng«. Síra Matth. Jochumsson kvað hafa í sumar í »Norðurljósinu« tjáð sig samþykkan trúarfráhvarfi síra Magnúsar Skaptasonar í Nýja-íslandi, sammála honum um að hafna fordæmingarkenningunni. Sfð- asta tbl. »Kirkjublaðsins« flyiur nú hátíðlega yfirlýsingu frá honum (síra M. J.), þar sem hann segir, að bÍRkupinn hafi ritað sjer al- varlega áminningu og áskorun út af grein þessari, og tjáir sjer vera næsta ljúft og kært, að geta hjer með látið að þeirri áminn- ingu og áRkorun: kveðst hafa ritað öll þau svæsnu orð í grein þessari, er valdið geti hneyksli, með of miklum hita og í bráðræði,

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.