Tíminn - 06.12.1979, Síða 2
2
Fimmtudagur 6. desember 1979
40-50 bílþjófnaðir
upplýstir á þessu ári
annað eins óupplýst. Aðeins farið að örla á vasaþjófumi
FRI — „Við höfum upplýst um 40-
50 bilþjófnaði á þessu ári” sagði
Héðinn Skúlason fulltrúi hjá
rannsóknardeild lögregiunnar i
samtali við Timann ,,og ég held
að annað eins sé i rannsókn hjá
okkur núna. Þessi mái eru oft
timafrek .
Það er hrein undantekning að
bflar hverfi algerlega. Venjulega
finnast þeir. Það tekur þó mis-
munandi iangan tima og spilar
þar margt inn i.
Bilþjófnaður hafa farið vaxandi
að undanförnu. Það er ástæða til
að brýna fyrir mönnum og þá
sérstaklega Cortinu-eigendum,
en sá bill virðist vera i tisku hjá
bilþjófum, að ganga tryggilega
frá bilum sinum. I sambandi við
Cortinu-eigendur þá hefur Sveinn
Egilsson umboðið á boðstólum
sérstaka rofa sem gera það að
verkum að ekki er hægt að tengja
framhjá eða tengja beint I mæla-
borðinu.
Einnig má brýna fyrir mönnum
að gæta að vösum sinum og eign-
um en til min kom kona um dag-
inn og hafði veski verið rænt úr
vasa hennar i strætó, þannig að
vasaþjófnaður tiðkast ekki aðeins
i erlendum stórborgum”.
Snjómokstur og hálkueyðing
gengur sæmilega
— ökumenn nota ekki slaufuna á
Reykjanesbraut sem skyldi
FRI — „Snjómoksturinn og
hálkueyðingin hafa gengið
sæmilega”, sagði Ingi V. Magn-
dsson gatnamálastjóri I samtali
við Timánn. „Við höfum auglýst
eftir salti, en það er ekki vegna
skorts heldur viljum viö hafa
vaðið fyrir neðan okkur og eiga
góðar birgðir. Göturnar hafa
staðið saltburðinn vel af sér,
enda vel gengiö frá samskeyt-
um á malbikinu og sprungum I
þvi”.
„Vegna slæmrar færðar und-
anfarið þá munum við fara
framilr þeirri áætlun sem gerð
var um kostnað við hálkueyö-
inguna en áætlunin hljóðar upp
á 80 millj. kr.”
Slaufan
„Slaufan sem sett var á
Reykjanesbraut hefur valdið
nokkrum vandræðum þar sem
ökumenn hafa ekki áttað sig al-
mennilega á þvi sem hún gerir.
Þannig hafa þeir sem koma
norður Reykjanesbraut og ætla
vestur reynt að taka U-beygju á
Súöarvogi og hefur af þeim sök-
um myndast slysagildra þar.
Við höfum reynt að girða af
U-beygjuna en menn reyna enn
að smeygja sér i gegn.
I staðinn ættu þeir að vera á
hægri akrein á Reykjanesbraut
og taka slaufuna upp á Vestur-
landsveg og keyra siðan vestur
Miklubraut”, sagöi Ingi, „við
munum merkja þessa leið betur
og ég vil brýna fyrir ökumönn-
um að notfæra sér slaufuna”.
Hámarks
öryggi
isso
Olíufélagið hf.
Sterkar og léttar í ásetningu
ERLAU snjókeðjurnar eru framleiddar
úr sérhertu galvaniseruðu stáli.
ERLAU keðjurnar eru sérlega léttar
í ásetningu, sitja þétt og kyrfilega og
henta öllum tegundum hjólbarða.
Hægt er að setja þær á ökutæki serh
þegar er fast í snjó. Mynstur þeirra tryggir
hámarks rásfestu, ekki sístgegn hliðarrennsli.
Hentugar umbúöir
ERLAU keðjurnar eru seldar í sterkum
og handhægum plasttöskum með leið-
beiningum um ásetningu og viðhald.
Æfingadekk
Til þess að þú getir öðlast leikni í
ásetningu á ERLAU áður en í alvöruna er
komið, verða æfingadekk til staðar á
eftirtöldum stöðum: bensínsölum ESSO
Ægissíðu og Ártúnshöfða og á Akureyri.
lágmarks
fyrirhöfn!
Sölustaðir: Bensínstöðvar ESSO í Reykjavík
og víða um land.
Snjórinn er heimur út af fyrir sig. (Tímamynd: G.E.)
Lítið um árekstra
miðað við færð
FRI — Þrátt fyrir slæma færð i
gær þá var ekki mikið um á-
rekstra. Þannig urðu 18 árekstrar
á timabilinu frá kl. 6 I gærmorgun
til kl. 18 i gærkvöld. Tvö umferð-
arslys urðu á sama tima. Engin
alvarleg slys urðu I þessum ó-
höppum. Þrennt var flutt á slysa-
varðstofuna úr tveim árekstrum.
Bendir þetta til, að menn séu
farnir að venjast vetrarakstri
betur og aki varlegar.
Vesturland:
Fjórðungsmótið haldið
að Kaldármelum
- mikill hugur I hestamönnum á Vesturlandi
B.Á. Borgarnesi/FRI — Sjö
félög munu standa að fjóröungs-
móti hestamanna á Vesturlandi,
sem haldiö verður að Kaldár-
melum i Kolbeinsstaöarhreppi
dagana 3-6. júli 1980. Félögin
eru Dreyri Akranesi, Faxi
Borgarfiröi, Snæfellingur Snæ-
fellsness-og Hnappadalssýslu,
Glaður Dalasýslu, Kinnskær
Barðastrandasýslu, Blakkur
Strandasýslu og Stormur Vest-
fjörðum. Framkvæmdastjóri
mótsins veröur Leifur
Jóhannesson ráöunautur
Stykkishólmi.
Svæðið hefur ekki áður verið
notað undir svo stórt mót og
þarf þvi að byggja þar upp
ýmsa aðstöðu, svo sem hrein-
lætisaöstöðu ( stóöhestahús og
veitingasölu.
Mikill hugur er nú i hesta-
mönnum á Vesturlandi og þjálfa
þeir nú stóðhesta sina og kyn-
bótahryssur af miklu kappi
fyrir þetta mót.
Af stóðhestum sem vitað er
um að eigi að afkvæmasýna eru
Ófeigur 818 frá Hvanneyri,
Bægifótur 840 frá Gullbera-
stöðum og Fróði 839 frá Hesti.
Ennfremur verða afkvæma-
prófaðir Glanni 917 frá Skáney
og Fáfnir 847 frá Svignaskarði.
Einnig er meiningin að sýna
sem einstakling Klaka 914 frá
Gullberastöðum. Þetta eru þeir
hestar sem vitað er um núna en
eflaust eiga margir eftir að bæt-
ast við.