Tíminn - 06.12.1979, Side 6
6
Fimmtudagur 6. desember 1979
tJtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þór-
brinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfulltrúi:
Oddur Ólafsson. Fréttastjóri: Kjartan Jónasson. Auglýs-
ingastjóri: Steingrlmur Glslason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvætndastjórn og auglýsingar Slöumúla 15 simi
88300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verö I lausasölu kr. 200.00. Askriftargjald kr.
4000 á mánuði. _ Biaöaprent.
Leiftursóknin
Flestir spádómar og skoðanakannanir fyrir
kosningarnar bentu til þess, að Sjálfstæðisflokkur-
inn myndi vinna umtalsverðan sigur. TJtkoman
varð á aðra leið. Að visu varð útkoman hjá flokkn-
um nokkru betri en i kosningunum i fyrra, en þá
beið flokkurinn mestan kosningaósigur i allri sögu
sinni.
Ástæður til þess að þannig fór, eru að sjálfsögðu
fleiri en ein. Rétt þykir að vekja hér athygli á
nokkrum þeirra.
Sjálfstæðisflokkurinn átti um það að velja, þegar
vinstri stjórnin sagði af sér, hvort hann ætti heldur
að stuðla að utanþingsstjóm eða minnihlutastjórn
Alþýðuflokksins. Um þetta urðu hörkudeilur i þing-
flokknum, sem m.a. töfðu forsetakosningar i
nokkra daga. Að lokum klofnaði þingflokkurinn til
helminga.- Niu þingmenn voru fylgjandi minni-
hlutastjórn Alþýðuflokksins, en átta fylgjandi utan-
þingsstjórn. Það var hinn svonefndi Geirsarmur,
sem var fylgjandi minnihlutastjórn Alþýðuflokks-
ins. Geir Hallgrimsson og fylgismenn hans töldu sig
geta tryggt á þann hátt samvinnu við Alþýðuflokk-
inn eftir kosningarnar. Alþýðuflokksráðherrarnir
sönnuðu hins vegar gamla málsháttinn, að sjaldan
launa kálfar ofeldi, þeir notuðu sér ráðherradóminn
til margvislegs auglýsingaskrums, sem varð Al-
þýðuflokknum til ávinnings á kostnað Sjálfstæðis-
flokksins.
Sá ágreiningur, sem varð i Sjálfstæðisflokknum
um utanþingsstjórn eða minnihlutastjórn Alþýðu-
flokksins, stóð djúpum rótum i flokknum. Hann kom
m.a. fram, þegar framboðin voru ákveðin, en þá
reyndu svonefndir Geirsmenn að bola svokölluðum
Gunnarsmönnum frá framboði. Þannig tókst að úti-
loka Jón Sólnes og Eggert Haukdal. Þeir neituðu
hins vegar að beygja sig fyrir flokksvaldinu. Þannig
kom ósamlyndið og glundroðinn i Sjálfstæðisflokkn-
um glöggt i ljós.
Eftir er svo að telja það, sem varð flokknum mest
til hnekkis. Siðustu árin hafa ýmsir yngri menn i
flokknum hneigzt til róttækrar hægri stefnu, svo-
nefndrar markaðsstefnu, sem Hannes H. Gissurar-
son hefur túlkað manna mest. 1 þessum hópi er að
finna þá Ellert Schram, Friðrik Sophusson, Halldór
Blöndal og Davið Oddsson, svo að nokkrir séu tald-
ir. Þeim barst mikill liðsauki, þegar Birgir ísleifur
Gunnarsson missti borgarstjórastöðuna, og var
gerður að formanni i eins konar skipulagsráði, sem
m.a. fékk það verkefni að ganga frá stefnuyfirlýs-
ingu flokksins fyrir kosningarnar. Afkvæmi þessar-
ar nefndar var leiftursóknin svonefnda, sem nú er
fræg orðin. Ef hægt er að kalla nokkurn mann höf-
und hennar er það Birgir ísleifur Gunnarsson.
Þótt margir liti nú á leiftursóknina sem stundar-
fyrirbrigði, er fjarri þvi að svo sé. Fylgismenn
hennar segja, að hún hafi að visu orðið flokknum til
tjóns nú, vegna þess að mistekizt hafi að túlka hana.
En þeir halda eigi að siður fast við hana. Hún er
borin fram af yngri forustumönnum flokksins undir
forustu væntanlegs formanns hans. Hún þýðir i
reynd, að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lengur hinn
tækifærissinnaði og að sumu leyti umbótasami
flokkur, sem ólafur Thors og Bjarni Benediktsson
stjórnuðu. Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn harðsnú-
inn markaðsstefnuflokkur, — hreinræktaður ihalds-
flokkur. Þetta getur markað þáttaskil i islenzkri
stjórnmálasögu.
Erlent yfirlit
Allra veðra getur
verið von í Kóreu
Enn ríkir mikil óvissa eftir fráfall Parks
1 þessari viku mun kjör-
mannaþing Suöur-Köreu
velja forseta til bráöabirgöa
og þykir fullvist, aö fyrir val-
inu veröi Choi Kyu Hah, sem
var forsætisráöherra, þegar
Park forseti var myrtur, og
tók þá viö forsetaembættinu,
unz kjörmannasamkundan
kæmi saman. Ætlunin er aö
Choi undirbúi nýja stjórnar-
skrá, sem breyti fyrirkomu-
lagi forsetakjörsins, og siöar
veröi forseti kosinn sam-
kvæmt henni.
Eftirfarandi grein, sem fjall'-
ar um ástandiö f
Suöur-Kóreu, birtist nýlega i
bandariska vikurkinu U.S.
News & World Report.
MORÐIÐ á forsetanum var
nógu slæmt. Nú er traustu
bandalagsriki Bandarikjanna
ógnaö af óróa heima fyrir og ó-
væntri árás úr norðri.
I Seul virðist allt vera i ró og
spekt. Undir herlögum hefur
veriö haldiö uppi reglu. Fyrir-
tæki og opinberar skrifstofur
hafa starfað eins og venjulega.
Flestir Suöur-Kórear hafa hald-
ið óbreyttum lifsvenjum, þrátt
fyrir morðiö á Park Chung Hee
forseta 26. október.
En þó að allt sýnist rólegt á
yfirborðinu, var þjóðin eins og
timasprengja, sem getur
sprungið hvenær sem er, þegar
er jarðarför Parks fór fram 3.
nóvember og framagjarnir for
ustumenn voru farnir að takast
á bak viö tjöldin um að fylla það
tómarúm, sem morðiö á Park
skildi eftir sig.
Augljóst er, að bandariskir
embættismenn voru áhyggju-
fullir yfir þeir.ri ókyrrð, sem
hlýtur að myndast meö þessari
þjóð, sem lengi hefur haft stórt
hlutverk i stefnumótun Banda -
rikjanna i málum, sem varða
Asíu. Utanrikisráðherra Banda-
rikjanna, Cyrus Vance, sem var
fulltrúiCartersforsetavið útför
Parks, hét fullum stuðningi
Bandarikjastjórnar viö bráða-
birgöastjórn Suður-Kóreu undir
stjórn Choi Kyu Hah forseta.
En á sama tima vöruðu
bandarlskir embættismenn viö
öllum innri átökum, sem gætu
veikt varnir Suður-Kórea og
freistað Norður-Kórea til að
gerainnrás I landið. Sem fyrir-
byggjandi aðgerð var hersveit-
um Bandarikjamanna i landinu,
sem telja 38.000 manns, haldiö I
aukinni viðbragðsstöðu og sjó-
herdeild undir forustu Kitty
Hawk, 81.000 tonna flugvéla-
móðurskips, var send upp að
ströndum Suður-Kóreu.
Sumar staðreyndir i' sam-
bandi við dauða Parks veröa
sennilega aldrei kunnar. En
fréttaskýrendum, kóreskum og
útlendum, ber saman um þrjú
atriöi:
Fyrrum yfirmaöur kóresku
leyniþjónustunnar, Kim Jae
Kyu, sem hefur viðurkennt aö
hafa skotið Park i kvöldverðar-
boði 1 byggingu leyniþjónust-
unnar, haföi eða áleit sig hafa
stuðning annarra háttsettra
embættismanna.
Oánægja með ósveigjanlega
pólitik Parks fór ört vaxandi og
hefði hrundið af stað miklum
innanlandsvanda, jafnvel þó að
hún heföi ekki leitt til morðs á
honum.
Nú mun aukast þrýstingur i
þá átt að „byrja upp á nýtt” I
pólitikinni til að reyna að færa
ákvaröanatökur á fleiri hendur
og fella Ur gildi ýmsar lagasetn-
ingar,sem gáfu forsetanum allt
að þvi alræðisvald.
Athyglin I Seoul beinist eink-
um aö þvi, hvaö I rauninni gerð-
ist dagana, jafnvel klukku-
stundirnar fyrir dauða Parks.
Fáir fallast á þá kenningu, aö
Kim og nokkrir aöstoðarmenn
hans hafi staðiö að verki án
Choi Kyu Hah.
stuðnings annarsstaðar frá, eða
að ástæða Kims hafi verið ótti
um að Park ætlaöi að reka hann
úr stöðu sinni.
Fréttaskýrendur álita, að
Kim hafi verið einn af mörgum
embættismönnum, sem voru
þess fullvissir, að blátt bann
Parks við vinnudeilum,
stúdentamótmælum og annarri
andstöðu væri fremur til þess
fallið að auka á vanda
Suður-Kóreu en að leysa hann.
SKIPT UM SKOÐUN? Sam-
særi um að losa sig við hann
hefði verið eðlileg þróun mála.
„Týndi hlekkurinn”, segir
asiskur diplómat, „er, að eng-
inn — hvorki óbreyttur borgari
né neinn tengdur hernum — gaf
sig I ljós og tók völdin, svo aö
þetta var ekki bylting i venju-
legri merkingu.”
Þeir, sem til þekkja i Seoul,
hafa skýringu á þessu lika: Hin-
ir samsærismennirnir skiptu
um skoðun og aðferðir á siðustu
stundu, annað hvort með það að
leiðarljósi, aö það að losa sig
viðPark jafngilti byltingu, eða
þeir ákváðu að losa sig við þá
báða á einu bretti, Park og Kim.
Þeir, sem aðhyllast sam-
særiskenninguna, benda á, að
Kim var ekki kallaður svikari I
blöðunum, sem eru undir
ströngu eftirliti stjórnarinnar.
Þeir benda lika á, að yfir-
maður leyniþjónustunnar fór til
fundar við a.m.k. einn háttsett-
an hershöfðingja strax eftir
morðið, og að 30-50 manns hafa
verið yfirheyrðir.
I Seoul þykir diplomötum þaö
áhrifamikið og mikilvægt, að
stjórn Chois hefur lagt áhezlu á
að halda gangandi venjulegri
pólitiskri starfsemi. „Enginn
hefur nefnt, aö leysa beri þingiö
upp eða fela hernum stjórnina,”
segir einn þeirra.
Þó að herinn undir stjórn for-
manns yfirherstjórnarinnar,
Chung Seung Hwa, haldi um
stjórnartaumana, er ekkert,
sem bendir til þess að þar sé að
finna metnaöargirni umfram
þaö að viðhalda öryggi landsins
og rannsaka dauðdaga Parks.
„Þeir eru ákaflega heiðarleg-
ir,” segir vestrænn embættis-
maður.,,Miðað við sögu Kóreu
byggist maður ekki við þessu
taumhaldi.”
EN STÖR spurning er, hvort
sllkt taumhald haldist, ef og
þegar pólitisk samkeppni hefst
á ný I hefðbundnum öfgafullum
kóreskum stil, en þvl búast
flestir sérfræðingar við.
Forustumenn stjórnarand-
stöðunnar hafa haft sig meira I
frammi á undanförnum vikum
en á mörgum umliðnum árum,
og er búizt við, að þeir þrýsti á
stjórnarvöld að taka sem fyrst
upp opnari og hömluminni
stjórnarhætti en Park. Þeir
kunna jafnvelað fara fram á, að
nýr forseti verði kosinn I bein-
um kosningum i stað þeirra ó-
beinu kosninga, sem stjórnar-
skráin kveður á um.
Það er of róttæk breyting fyrir
núverandi valdhafa, bæöi
borgaralega og hershöfðingja.
Sumir þeirra óttast, að hún
hefði i för með sér, að margir
flokkar mynduðust og enginn
þeirra fengi hreinan meirihluta.
Aðrir óttast, að hún yrði til þess,
að aftur færi af staö óeirða-
bylgja meðal almennings, svip-
uð þvi, sem kom Park til valda i
byltingu hersins fyrir átján
árum. Það eru jafnvel talsverð-
ar deilur innan stjórnarand-
. stööunnar um, hversu langt ætti
‘ að ganga i „frelsun” með tilliti
til hættunnar á árás frá
Norður-Kóreu. Þó að margir i
hernum séu talsvert frjálslynd-
ari en Park eru takmörk fyrir
þvi, hversu mikið los þeir eru
tilbúnir að fallast á.
Þrátt fyrir nánast algert sam-
komulag um, að geysilegar
framfarir hafi orðið i
Suöur-Kóreu i efnahags- og
þjóðfélagsmálum á valdatlma
Parks, var jafnvel strax á
sorgartimanum eftir lát hans sú
skoðun almenn, að nú væru
breytingar I vændum.
Kóreum sjálfum og útlending-
um ber saman um, að fram-
tiðaröryggi landsins þarfnist
þess, að slakað sé á hefðbund-
inni þjóðernisstefnu til að koma
til móts við kröfur sifellt meira
upplýsts almennings um meira
pólitiskt frjálsræöi.
Þetta verður ekki auðveldur
leikur. Frá striðslokum hefur
Kóreum aldrei tekizt að hafa
friðsamleg stjórnarskipti.
Dauöi Parks veitir tækifæri til
þessa, en sérfræðingar eru á-
hyggjufullir. „Þetta er þvi lik-
ast, aö spá i framtíðina eftir te-
laufum i skitugum bolla,” segir
einn diplómatinn.
(þýtt K.L.)
Þ.Þ.