Ísafold - 18.02.1893, Síða 3
31
vandræðin opt verða minni, en nú er raun-
in á, við fráfall eins og annars; þá mundu
spor margra ekkna verða bærilegri, mörg
börn og gamalmenni síðurfara á sveitina,
og, það sem ekki er minnst um vert, marg-
ur maður fara með meiri heiður á baki
sjer í gröflna.
Barnaskólinn í Þykkvabænum. Skóli
þessi var settur í haust 12. október, og er það
sá fyrsti barnaskóli í Eangárvallasýslu; í
skólann ganga milli 20og30börn, auk nokkra
íullorhinna sem nota kvöldskóla; kennari er
Nikulás Þórðarson, gagnfræðingur írá Möðru-
völlum, sjerlega gáfaður piltur og einkar vel
fallinn kennari. Kennt er kverið, lestur, skript,
rjettritun, bifliusögur, landafræði, mannkyns-
saga, danska og enska, sömuleiðis söngur.
Hversu barnaskólar eru nauðsynlegir þar
sem mögulegt er að þeir geti þrifizt, þarf ekki
að lýsa fyrir þeim, sem nokkuð hugsa um
menntamál þjóðar vorrar, en því miður virð-
ist nauðsvn og gagnsemi þeirra ekki almennt
komin inn í meðvitundina, og sýnir það bezt,
bversu erfitt gengur að reisa skóla af frjálsum
samskotum. Að visu er nú skóli sá sem hjer
ræðir um kominn upp af samskotum, en mjög
hefur það gengið erfitt að safna þeirn. Eaun-
ar befir árferði og erfið verzlun verið Þrándur
í Götu þetta ár fyrir öllum framkvæmdum,
en lítið má ef vel vill; allir bændur í Þykkva-
bœnum hafa gefið til skólans, en sökum fá-
tæktarinnar var það í smáum stíl bjá sumum;
nokkrir utan Þykkvabæjar bafa rjett bonum
hjálparhönd og má sjerstaklega nef'nasýslumann
okkar Pál Briém, sem hefur látið sjer sjerlega
annt um, að skólinn kæmist upp, og þar til
gefið honum rúmar 80 krónur. enda lætur
hann sjer mjög annt um menntun æskulýösins
í sýslu sinni. Skóli þessi kostaði rúmar 500
kr., stendur bann í skuld hátt á annað bundr.
krónur eptir bygginguna, og sjást engin ráð að
fá það fje, utan með því að reyna að stofna
tombólu, enda er það í ráði ef samþykki f'æst
að balda hana á næsta vori, og er vonandi
aö margur vekist upp til að gefa muni til
hennar, því sannarlega er því fje vel variö,
sem gengur til menntunar fátækum og fáfróð-
um æskulýð, og verð jeg að álita það hið
blessunarríkasta velferbarmál Tslendipga, að
auka af fremsta megni menntun hinna ungu,
því enginn efi er um það, að menntunin breytir
hugsunarbættinum og eikur sjálf'stæðisbugs-
unina, sem er eitt af' okkar vissustu skilyrðum
i'yrir menning og manndáð.
Að endingu skal þess getið, að skólakennsl-
an i Þykkvabænum á að standa í 6 mánuði,
og byggja hlutáðeigendur á þvi, að skólinn verði
aðnjótandi að drjúgum mun styrks af fje því
sem veitt er til barnaskóla af landssjóði, því
sökum fátæktar þeirra, sem börnin eiga, sem
á skólann ganga, þótti ekki fært að setja
skólagjaldið mjög hátt. Sýslusjóður Kangár-
vallasýslu og sveitarsjóður Ásbrepps haf'a
lagt nokkurt fje fram.
Hala í janúarmán. 1893.
Þ. Guðmundsson.
Dauðan svurtfugl hefir rekið brönnum
saman hjer sunnan lands í vetur hingað og
þangað nýlega, t. d. í Þorláksböfn 13—1400 á
skömmum tíma. Litur út fyrir að hann hafi
dáið úr hungri og hor, enda fádæma-sílislaust
í sjónutn, að sögn sjómanna, og fiskur einnig
mjög magur, sá er fengizt hefir upp á síð-
kastið.
Leiðarvísir ísafoldar.
1170. Hefur hreppsnefnd nokkurn rjett til
að neita vinnukonu, sem á barn á sveitinni,
um að taka barnið til sín meðgjafarlanst, þar
eð henni býðst áreiðanleg vist með barninu;
og hefir nefndin rjett til að heimta kaup
hennar með barninu, þar eð henni var synj-
að um barnið?
Sv.: Nefndin getur ekki haldið harninu fyr-
ir njóðurinni, ef hún vill og getur annazt.það
sjálf styrklaust af sveitarsjóði, og þá auðvit-
að ekki heimtað kaup hennar með því.
1171. Jeg er vinnumaður hjer á bæ og tek
að mjer kvennmann fyrir fullt og allt, en gipt-
ist ekki, flyt mig hjeðan í hurtu á næstavori
ásamt unnustu minni í aðra sýslu, sem er
mín sýsla, en hreppsnefndin vill ekki sleppa
henni nema við giptum okkur, áður en við
flytjum hurtu; getur hreppsnef'ndin bannað
okkur að flytja hvert á iand sem við viljurn
ógiptum, þar hvorugt okkar höfum þegið af
sveit, og bvorugt okkar hefir ómaga fram að
færa og ætluin bæði fyrir vinnuhjú?
Sv : Þau eru bæði fær að ráða vist sinni.
1172. Getur handverksmaður skipað lærl-
ing sinum hvaða vinnu sem er, og ekki kem-
ur bandverkinu við, t. d. sækja vatn, keyra
kol, smala hestum, stinga upp kálgarð o. s.frv.?
Sv.: Fer eptir samningi.
1173. Eiga lærlingar ekki heimting á að
haf'a ákveðinn vinnutíma?
Sv.: Fer eptir venju á hverjum stað; en ó-
hæfa er að hann sje lengri en fyrir fullorðna.
1174. Geta ekki harnakennarar, sem halda
fjölsótta privat-barnaskóla í kaupstöðum. feng-
ið styrk af opinberu fje, eins og umgangskenn-
arar í sveitum, ef þeir leggja fram fullar
sönnur fyrir því, aö kennslan sje eða hafi
verið eins góð í privat-skólunum, sem hin-
um föstu skólum?
Sv.: Eigi nema þeim væri beinlínis veittur
slíkur styrkur með íj'árlögunum.
1175. Eru gjörðir þeirrar hreppsnefndar
gildar, þegar 2 af 5, er voru í netndinni og
burt áttu að víkja, eru kyrrir, án þess að vera
endurkosnir ?
8v.: Þeir sem eiga að víkja úr hreppsnefnd,
taka þátt í störfum nefndarinnar, þar til er
ný kosning í nefndina fer f'ram, hvort sem er
meiri eða minni hluti.
117G. Segist ekkert á þvi, að prestur í sveit
byrji ekki messugjörð í skammdeginu (á ný-
ársdag) fyrri en fullum 2 stundum eptir há-
degi, og gjöra þó söfnuðinum alls eigi aðvart
um það, fyrri en það er komið á kirkjustað-
inn langar leiðir fyrir venjulegan messutíma,
sem sje hádegi ? Ef nokkuð segist á slíku,
hverju varðar það þá?
Sv.: Eigi er lögákveðið, nær prestur byrji
messugjörð, en tilhlýöilegt er, að hann byrji
hana ávallt í sama mund. Dragist það að
forfallalausu mun lengur en vanalega, er það
óregla, sem þó segist vart á, nema bert
hirðuleysi geti sannazt upp á hann.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878, sbr. op-
br. 4. janúar 1861, er hjer með skorað á
þá, sem eiga að telja til skulda í fje.lags-
búi Kristínar sál. Bárðardöttur frá Kii’kju-
böli á Langadalsströnd, er andaðist þ. 23.
sept. 1891, og áður látins manns hennar
Guðmundar sál. Jóhannessonar, að lýsa
kröfum sínum í tjeðu dánarbúi innan 6
mánaða frá síðustu birtingu þessarar aug-
lýsingar og sanna þær fyrir undirskrifuð-
um skiptaráðanda.
Skiptaráðandinn í ísafjarðars. 6. jan. 1893.
Lárus Bjarnason
settur.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878, sbr. op.
br. 4. janúar 1861, er hjer með skorað á
alla þá, er til skulda eiga að telja í dán-
arbúi Haraldar sál. Halldórssonar frá Eyri
í Skötufirði, er andaðist þ. 20. október
1890, að lýsa kröfum sínum í tjeðu dánar-
biíi innan 6 mánaða frá síðustu birtingu
þessarar auglýsingar og sanna þær fyrir
undirrituðum skiptarráðanda.
Skiptaráðandinn í ísafjarðars., 6. jan. 1893.
Lárus Bjarnason
settur.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu
brjefi 4. janúar 1861, er hjer með skorað
á alla þá, er telja til skulda í dánarbúi
prestsekkju madame Marenar Níelsdóttur,
sem andaðist að Miðgili í Langadal 21.
júní f. á., að lýsa skuldum sinum og sanna
þær fyrir skiptaráðanda hjer í sýslu innan
6 mánaða frá síðustu birtingu þessarar
auglýsingar.
Skrifstofu Húnavatnssýslu 1. febrúar 1893.
Lárus Blöndal.
Proclama.
Samkvæmt lögum 12. apríl 1878, sbr. op.
br. 4. janúar 1861, er hjer með skorað á
alla þá, er til skulda eiga að telja í dán-
arbúi Steindórs sál. Benjaminssonar frá
Meðaldal í Dýrafirði, er drukknaði af ame-
rísku skipí snmarið 1891, að lýsa kröfum
sínum í tjeðu dánarbúi innan 12 mánaða
frá síðustu birtingu þessarar auglýsingar
og sanna þær fyrir skiptaráðandanum í
ísafjarðarsýslu.
Með sama fyrirvara er skorað á erfingja
hins látna að gefa sig fram og færa sönn-
ur á erfðarjett sinn.
Skiptaráðandinn í ísaf'jaröars., 6. jan. 1893.
Lárus Bjarnason
settur.
Proclama.
Hjer með er skorað á þá, sem til skulda
telja í dánarbúi Sveinbjarnar Þórðarsonar
í Sandgerði, sem andaðist hinn 14. f. m.,
að tilkynna kröfur sínar og sanna þær
fyrir undirskrifuðum skiptaráðanda innan
6 mánaða frá síðustu birtingu auglýsingar
þessarar.
Með sama fresti er skorað á þá, sem
skulda tjeðu dánarbúi, að greiða skuldir
sínar til mín.
Skrifstofu Kjósar- og Gullbr.s. 13. febr. 1893.
Frana Siemsen.
Proclama.
Hjer með er skorað á þá, sem til skulda
telja í dánarhúi Jóns Sveinbjarnarsonar í
Sandgerði, sem drukknaði hinn 29. apríl
f. á., að lýsa kröfum sínum og sanna þær
fyrir undirrituðum skiptarráðanda innan 6
mánaða frá síðustu birtingu þessarar aug-
lýsingar. Með sama fresti er skorað á þá,
sem skulda tjeðu dánarbúi, að greiða til
mín skuldir sínar.
Skrifstofu Kjósar- og Gullbr.s. 13. febr. 1893.
___ Franz Siemsen.
Allir þeir sem skulda Prentfjelagi ís-
firðiiic/a fyrir blaðið »ÞjóðviIjann« og fleira
eru hjer með beðnir að greiða þær skuld-
ir sínar fyrir lok næstkomandi júnímánað-
ar til Þorvaldar læknis Jónssonar á ísafírði.
ísafirði 28. janúar 1893.
Prentfjelagsstjórnin.
Sjónleikir í Hafnarfirði, í kvöld (ld.)
kl. ðYa (»Hrólfur« og »Narfi«) og annað-
kvöld (sunnud.) á sama tíma og sömu leik-
ir, í Good-Templarahúsinu. Bílæti, 50, 40
og 30 a., fást pöntuð hjá hr. úrsmið Teiti
Th. Ingimundarsyni, Suðurgötu 13, Rvík,
til kl. 11 f. liád. á morgun (sd.)
Forstöðunefndin.
»LEIÐARVÍSIR TIL LÍF’SÁBYRGÐAR*
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim,
sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynleg-
ar upplýsingar.