Ísafold - 19.04.1893, Blaðsíða 3

Ísafold - 19.04.1893, Blaðsíða 3
88 eyðzt hafi hjer nm bil: Kelly, Tunica og Clevcland. Ráðherraskipti á Frakklandi. Það gerðist á þinginu í París á skírdag. 30. f. nián. —skírdagur er ekki haldinn helgur á Frakklandi —, að atkvæði gengu ráða- neytinu í móti, þeim Ribot og hans fjelög um, þó að litlu munaði, 5 atkv. af nálega 500 á fundi, og sögðu þeir aí' sjer völdum þegar í stað, þótt Carnot rikisforseti bæði þá mikillega að vera kyrra. Asteytingar- steinninn var deila milli þingdeildanna út af þvi, að fuiitrúadeildin hafði sett hinar og þessar rjettarbætur í íjárlög, í stað þess að hafa þær sjerstökum lögum lögum, þar ámeðal um aukinn áfengistoll, en öldunga- deildin strykaði það allt tít, taldi sig borna ráðum með slikri báttsemi. Ráðaneytið vildi, að fulltrúadeildin slakaði til, en það fjekkst ekki. Þess er getið, að Ribots ráðaneytið var var hið 28. í röðinni siðan er þjóðveldið komst á stofn fyrir rúmum 22 árum, og hefir alls eitt þeirra enzt í 2 ár rúm, það er Ferry stóð fyrir í síðara skiptið (1883— 1885), en fæst hinna ári lengur og mörg ekki nema fáa mánuði. Meiri „Þjóöv.“-sannindi. Hinn setti syslumaður ísfirðinga og bæj- arfógeti hefir enn beðið Isafold fyrir svo látandi greinarstúf: I 12. tölublaði »Þjóbviljans unga«, dags. 16. f. m., befir ritstjórinn sýnt mjer þá virðingu, að gjöra mig að aðalumtalsefni í blaði sínu. Hefir hann belgað mjer 4 greinar og eru þær allar hver annari líkar; andinn hinn sami og ósannindin hin sömu, nema hvað nokkur fót- ur er fyrir grein þeirri, er ber fyrirsögnina »Rifið upp brjef«. Nú með þvíaðjeg ekki vil taka öllum þeim ósannindum og tilhæfulausu dylgjum, sem hrúgað er saman í greinum þessum, þegjandi, neyðist jeg til þess en á ný að biðja yður, herra ritsjóri, að ljá Hnum þeim, er hjer fara á eptir, rúm í blaði yður. Fyrstu greininni eða greininni »8tutt svar«, þarf jeg ekki að svara; jeg stend við það, sem jeg hef sagt í því efni áöur. Um greinina »Rifið upp brjef« er það að segja, að í síðastliðnum janúarm. hafði, ásamt póstbrjefum mínum, borizt til min eitt brjef til hr. Sk. Thoroddsen; opnaði jeg brjefið í grandleysi, en sá þegar á fæti brjefsins, að brjeíið var til hr. Sk. Th. Sló jeg þá strax utan um brjefið, sendi hr. Sk. Th. það og bað hann afsökunar á opnuninni. Man jeg, að brjefið var frá amtinu, en ekki veit jeg hvað í því stóð og get því hvorki sagt af eða á um, hvort brjef þetta muni hafa verið svar amtsins upp á kæru þá yfir mjer, er hr. Sk. Th. segist hafa sent amtinu áður. Kann jeg svo ekki þessa sögu lengri og er það, sem hjer er sagt, hið eina sanna í greininni. Greininni: »Einkennilegt rjettarhald« getjeg að svo stöddu ekki svarað öðru en því, að hún er ósSnn frá upphnfi til enda. Fyrir flestu af því, sem þar er sagt frá, er enginn fótur. Hitt er annaðhvort rangt'ært, aukið eða úr þvi dregið. A 3.-marz-brjef hr. Sig. Gíslasonar hefði hr. Sk. Th. ekki átt að minnast. I þessu brjeíi, sem hr. S. G. ekki sendi mjer, heldur syni sínum, og sonurinn seinna afhenti mjer, dregur hr. S. G. að vísu nokkuð úr framburði sínum fyrir rjettinum að Hesteyri, en getur þess í privatbrjeíi til sonarins, sem fylgdi brjeíinu til mín, að hann (o: sonurinn) skyldi því að eins afhenda mjer brjeíið, að álíta megi T>að það komi Skúla í hag«. Skrifar hr. S. G. mjer svo seinna og biður mig blessaðan að taka ekki mark á 3.-marz-brjeíinu, hann bafi skrifað það drukkinn og eptir annara hvötum, það sem hann hafi borið fyrir rjett- inum að Hesteyri, sje allt satt, og sje hann reiðubúinn til að »eiðfesta það aptur«. I seinustu greininni: »Málareksturinn gegn Sk. Th.« getur hr. Sk. Th. þess, að rannsókn- inni gegn sjer hafi verið Htt hraðað í febrú- ar, en láist að segja frá því, að jeg var á embættisferð vestur í Arnarfirði þangað til fram yfir miðjan mánuðinn. Að öðru leyti er greinin ósönn. Að lokum skal því lýst yfir, að jeg ætla mjer ekki að svara »Þjóðviljanum unga« apt- ur, en talast munum við, ritstjórinn og jeg,. við seinna, og þá annarstaðar en í blöðunum. ísafirði 12. apríl 1893. Lárus Bjarnason. Til ritstjóra »Isafoldar«. Leiðarvísir ísafoldar. 1204. í tjeðri verzlun hefur einn af verzl- unarþjónum tekið út úr reikningi mínum 118 kr. 74 a. án vilja míns og vitundar, en borgað mjer þó til baka 80 kr. af þessari upphæö; en er jeg krafði hann eptirstöðvanna, hótaði hann mjer lögsókn og öllu hörðu, ef jeg ekki þegði. Hvaða hegning liggur við þessu at- hæfi, sem þjónninn vill fóðra með þvi, að jeg einhvern tima áður, þegar hann spurði mig, hvort við ekki ættum að hafa reikningaskipti, jankaði því í gamni? Sv.: Fangelsi eða betrunarhússvinna. 1205. Er jeg skyldugur að borga skuld, er jeg skulda síðan 1873 og ekki hef fengið reikn- ing upp á í fleiri ár, fyr en nú, að jeg er kraf- inn um hana ? Sv: Já. 1206. Jeg fjekk saltávísun hjá kaupmanni í byrjun vetrarvertíðar í fyrra, 1892, upp á svo mikið salt, er jeg þyrfti með; hefur nú afhend- ingarmaður saltsins, sem ávísunin er stíluð til, heimild til að neita mjer um salt út á þessa ávisun til næstanýárs? eða gildir ávís- unin ekki einnig fyrir haustið ? Venja í þessu plássi er, að afhendingarmenn (anleggsmenn) láta út á ávísanir til næsta nýárs. Sv.: Afhendingarmaður saltsins er skyldur til að svara út á ávísunina allan þann tíma, er hún heimilar; sje ekkert timatakmark til tekið í ávísaninni, þá er það komið undir venju í byggðarlagi spyrjanda, hve lengi slík- ar ávísanir eru látnar gilda almennt. 1207. Hefur kaupmaður ekki fyrirgert rjetti sínum með skuld, ef hann ekki hefur gefið reikning í 6 ár ? Sv.: Nei. 1208. Á ekki jarðarábúandi forkaupsrjett á ábýlisjörð sinni, ef landsdrottinn selur? Sv.: Jú, með sömu kjörum og aðrir bjóða, hafi hann «byggingu og lífsfestu» fyrir jörð- inni, sbr. tilsk. 18. júní 1723. 36 tethiði að segja honum, það er skylt var, að hann vissi — svo væri á drottins valdi, hversu þá skipaðist«. Og nú var hún alráðiu við sig. Hún bar engan kvíðboga fyrir, hversu fara kynni, en ljet sjer einungis um það hugað, að það, sem gera skyldi, færi sem bezt fram. Svo sem hálfa aðra viku sjávar þaðan ætlaði cimskip á suðurleið að koma við um hádegisbilið. ! En var eigi afhættis að ná í það, ef þegar væri brugðið við^ sjálf gat hún róið undir með hinum dygga sveini. Hún ráðstafaði við hann tilsjón með skútunni, en ljet þess ó- getið, hvert hún ætlaði. Það átti enginn að vita fyrr en erindislokin sýndu sig. Hún kom í tæka tíð á viðkomustöðina; en er hún var komin upp á þilfar skipsins með barnið í fangi sjer og sýndist þar allt svo ógegndarlega stórt, eptir langdval- irnar í þrönghýsinu á skútunni —, þá fjekk hún snöggv- ast svolitla kvíða-aðkenning; en hún hvarf brátt aptur, og æðrulaust hugsaði hún til þess, er framtíðin geymdi í skauti sjer. Um sólarlag voru þau komin á móts við bústað Hol- geirs gamla, og þar var hún flutt á land í einum af bát- unum hans. Hún drýgði sporin sem mest hún mátti upp að húsinu, og var eigi annað að sjá, en að hún ætti til fagnaðar að flýta sjer; þó var hraðinn í rauninni öllu heldur flótti fyrir einhverjum geig, er lá við að ætlaði 33 »Segðu ekki það«, mælti Ragna og laut grátandi of- an yfir sveininn. Þá fló svartvængjaður fugl ógæfunnar gegn um sál hans í hugrenningar líki, og hann formælti föður sínum, af því hann drægi sjálfum sjer öll hlynnindi, er þau mæðgin yrði að fara á mis. »í guðs bænum!« hrópaði Ragna; »nú ert þú ekki með sjálfum þjer, Ásmundur!« Og hann var það ekki. Hann stjakaði henni frá sjer, er hún vildi stilla hann, stökk upp á þilfarið og settist þar, og hann var svo yfirkominn af harmi, að hann nötraði allur frá hvirfli til ilja, þótt ekki væri honum fysjað saman, svo sem þá er stormur skekur einmana eik á hamri uppi. Þessi geðæsing snerist upp í nokkurs konar þung- lyndi, er frá leið, og gerðist hann liljóður og óþjálh Þá var það svo sem mánuði síðar, að hann fjekk brjef frá föður sínum, er bað hann að setja tafarlaust einhvem mann í sinn stað fyrir skútuna, en takast sjálfur ferö á hendur af föður síns hálfu. Verzlunin »H. Bjarki & sonur* — það var í fyrsta sinn, er karlinn nefndi verzlun sína svo — ætti sem sje á hættu að missa allmikið fje«. »Sjálfs er höndin hollust«, kvað hann, »hollari en óvalins mál- færslumanns«; og því bað hann son sinn hafa hraðann

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.