Ísafold - 03.06.1893, Qupperneq 4
13G
heflr kennt mörg orð úr mennsku máli. Kvenn-
api (Orangútang) einn hefir orðið ástfanginn í
þjóni hans og hefir út af því lært að segja :
«Ekki nema það þó!«
Leiðarvísir ísafoldar.
1242. Segist nokkuð á því, að taka vænan
fjárliund í óleyfi t. d. efst í Árnessýslu og
reka með honum ijárrekstur til Reykjavíkur
skiija hann svo við sig í ráðstöíunarleysi, svo
eigandi tapar honum?
Sv.: Spyrjandi getur krafizt skaðabóta og
þar að auki kært til sekta.
1243. Ef nú þetta hefðu gjört 3 menn, sem
hver um sig segist vera laus þar við, því
hinir samferðamennirnir hafi gjört það, hvern-
ig skyldi eigandi þá að fara?
Sv.: Þeir virðast allir eiga að hera ábyrgð
á þessu tiltæki.
■ 1244. TJm lokin (12. mai) ljeði jeg manni
hest með því skilyrði, að hann skilaði honum
v aptur um Jónsmessu, en rúmar 12 vikur af
sumri varð jeg að taka hestinn af manninum,
en var þá búinn að tapa af honum sumar-
gagninu. A jeg að líða þetta botalaust?
Sv. Nei, spyrjandi getur höfðað mál á
móti þeim sem hestinum hjelt til skaðabóta
og málskostnaðarútláta.
1245. Hvað segist á því, ef hreppstjóri
hjálpar stórglæpamönnum til Ameríku, t. d.
systkynum, sem hafa átt barn saman, sjálf-
sagt í þeim tilgangi, að forða þeim frá hegn-
ingu, í stað þess að kæra þau fyrir hlutað-
eigandi yfirvaldi, sem að líkindum mundi
skylda hans? og er það ekki skýlda sýslu-
mannsins, ef hann kemst að þessu framferði
hreppstjórans, og það sannast upp á hann, að
láta hreppstjórann sæta ábyrgð fyrir gjörðir
sínar, fyrst ekki er hægt að ná í þá, sem glæp-
inn drýgðu?
Sv.: Fangelsi, embættismissir eða sekt.ir
eptir málavöxtum.
Bækur Þjóðvinafjelagsins verða
sendar með »Thyra« 4. júní út um landið
til útsölumanna fjelagsins.
Fjelagsmenn fá þetta ár 4 bækur fyrir
2 kr. tillag sitt.
1., Almanakið með myndum; efnið er
fróðlegt og skemmtilegt, líkt og undan-
farin ár.
2., Andvari með mynd og æfisögu Pjet-
urs biskups, ásamt greinum um kaupfjelög
og stjórnarskrármálið m. fl.
3., vllvers vegna? vegna þessf« síðasta
hepti. Þessi fróðlega bók er þannig öll
prentuð.
4., »Dýravinurinn«, 5. hepti, með mynd-
um og góðum dýrasögum, enn fremur leið-
beining til betri aðferðar við slátrun en
verið hefir, einkum á sauðfje.
Þeir sem gjörast nýir fjelagsmenn í ár
geta fengið 1. og 2. hepti af »Hversvegna?
vegna þess?« fyrir 2 krónur, sem annars
kosta 3,20 a. Verður því árstillag nýrra
fjelagsmanna að eins 80 a, þegar þessi
tvö hepti eru reiknuð fullu verði.
Vonandi er að margir noti tækifærið til
að eignast góðar bækur fyrir óvenjulega
lágt verð.
Reykjavík 25. maí 1893.
Tr. Gunnarsson.
Eptir samkomulagi vib þingmenn kjördæm-
isins boöast þingmálafundur að Kollafirði
í Kjósarsýslu laugardaginn 24. júní n.kom. á
hádegi.
Hálsi, Móum, Reykjakoti, maí 1893.
Þórður Guðmundsson. Þ. Runólfsson.
Björn Bjarnarson.
Kvennaskólinn í Reykjavík.
Þeir sem vílja kotna koofermeruðum og
efnilegum ýngisstúlkum í kvennaskólann
næstkomandi vetur^(l. okt. ti) 14. mavj,
eru beðnir að snúa’ sjer í þeim efnum til
undirskrifaðrar forstöðukonu skólans, eigi
seinna en 31. dag. ágústm. þ. á. En sjer-
staklega bið jeg þá, er ætlast til að stúlk-
ur þeirra verði til heimilis í skólahúsinu,
að láta mig vita það sem allrafyrst.
Reykjavík 29. maímán. 1893.
Thóra Melsteð.
Maður reglusamur, ungur og ein-
hieypur, sem um mörg undarfarin ár hefi
vanizt alls konar verzlunarstörfum og heflr
góð meðmæli húsbænda sinna, óskar að
fá atvinnu við verzlun, helzt strax eða
þá í sumar eða haust.
Nákv. uppl. fást hjá ritstj. ísafoldar.
Uppboðsauglýsing.
Við opinbert uppboð, sem haldið verður
í leikflmishúsi barnaskólans lijer í bænum
og byrjar föstudaginn 9. júní næstk. kl.
11 f. hád., verður selt mikið og gott safn
af innlendum og fit.iendum bókum, er átt
hefir amtmaður E. Th. Jónassen sál. Skrá
yflr bækurnar er til sýnis hjer á skrifstof-
unni.
Söluskilmálar verða birtir áður en upp-
boðið byrjar.
Bæjarfógetinn i Reykjavík 19. maí 1893.
Halldór Daníelsson.
Frá Útskálum hafa stiokið til fjalls nær
30 sauðkindur órúnar, þar á meðal 19 ær ó-
bornar. Þá. er hitta kunna kindur þessar,
bið jeg vinsamlega, að rýja þær og rnarka
lömbin, gegn ómakslaunum. Mark mitt er:
Stút'rifað hægra og hamarskorið vinstra.
S0/5 ’93 Jens Pálsson.
og dauði (ljóðm.), þýtt Stgr. Th. — Biðjið án
afláts. S B. — Oleymið ckki prestsekknasjóðn-
um, Z. H. — Hvað er guðs andi? þýtt B. J. —
Aldamót. útg . m. m.
Kbl., III. árg., 15 arkir, auk 5 nr. af nýjum
kristilegum smáritum, kostar 1 kr. 50 a., í
Ameríku G0 cts, f'æst hjá prestum og bóksöl-
um og útg. Þórb. Bjarnarsyni I Rvík.
1. árg. 75 a. ^25 cts), og 2. árg. 1 kr. 50 a.
(60 cts), fæst hjá sömu.
Gufuskip til Austfjarða.
Með Wathnes-skipi er von á nokkr-
um bændum frá Austfjörðum: Seyðis-
firði, Mjóafirði o. s. frv., til að ráða
til sín sjómenn og verkafólk, sem
bjóða gott kaup og borga fargjald
fyrir þá, sem til þeirra ráðast.
Upplýsingar fást hjá undirskrifuðum
kl. 4—5 e. m. og kl. 8—9 e. m. í nr.
3 Þingholtsstræti.
Sjómenn ! TaJcið leiðbeiningum !
Reykjavik 1. júní 1893.
Oddur V. Gíslason.
Rúllugardínur, alveg nýjar, með mjög
skrautlegum myndum, fást keyptar með afar-
lágu verði. Ritstjóri vísar á.
Gufuskip austurl0.júuíl893.
Hjer með tilkynnist öllum þeim, sem
til Austfjarða ætla sunnanlands, að miðl-
un er fengin í fargjaldi með skipi herra
O. Wathnes, »Uller«, eða öðru er hann
sendir, þannig;
Verði 200 áslcrifenda, þá er fargjald-
ið að eins 12 (tólf) krónur fyrir hvern
mann, sem Jiafa má nauðsynlegan flutn-
ing til vinnu í fari sínu.
Þeir, sem ekki hafa skrifað sig til
ferðar með skipi herra O. Wathnes tyrir
5. júní að kvöldi, missa kröfu sína til
hinna fyrirheitnu fæðispeninga, ef skip-
ið kemur eigi á rjettum tíma (sbr. augl.
í ísaf. 3. maí).
Mig er að hitta í Reykjavík, Þing
holtsstræti nr. 3.
Sjómenn! Fyrir yður hef jeg útvegað
farið.
O. V. Gíslason.
Lífsábyröarstofnun ríkisins.
Samkvæmt lögum 18. júní 1870 17. gr.
innkallast Itjer með sá eða þeir, sem kynnu
að eiga lieimtingu á endurgjaldi fyrir lífs-
ábyrgðir Litr. A. nr. 20965 og 20972, sem
fjellu úr gildi í janúar 1888, til þess inn-
an 6 mánaða f'rá dagsetningu þessarar
auglýsingar að gjöra lífsábyrgðarstof'nun-
inni aðvart um rjett sinn og sanna hann,
þar endurgjaldið að öðrum kosti hverfur
til stofnunarinnar sjálfrar og verður num-
ið burt úr bókum hennar.
Stjórn lífsábyrgðarstofnunarinnar
3. júní 1893.
Þingmálafundur fyrir Mýrakjördæmi
verður að forfallalausu haldinn að Eski-
holti fimmtudaginn 22. þessa mánaðar, og
byrjar hann kl. 11 f. m.
Landakoti við Reykjavík 2. júní 1893.
B. Kristjánsson.
Horfin úr heimahögum um miðjan f. m.
rauðblesótt hryssa, 5—6 vetra gömul; mark:
sneiðrifað fr. h. Hvern þann, sem hitta kynni
hryssu þessa, bið jeg gera mjer aðvart hið
fyrsta.
Saltvík & Kjalarnesi 3. júní 1893.
Guðm. Asgrímsson.
Kirkjublaðið, III, 7: Hjónavígslusálmur,
L. H. — Upplestur eða tala, H. P. — Elska
Að klippa hár manna fæst jeg eigi fram-
ar við; hef ekki tíma til þess.
H. Andersen (Aðalstr. 16).
»LEIÐARVÍSIR TIL LÍFSÁBYRGÐAR»
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr-
med. J. Jónassen, sem einnig gefur þeim
sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynleg
ar upplýsingar.
Forngripasafnið opið hvern mvd. og ld. kl. 11-12
Landsbankinn opinri hvern virkan d. kl. Uþs-21/.
Landsbókasafnið opið livern rúmh. d. kl. 12—2
utlán mánud., mvd. og ld. kl. 2—3
Málþráðarstöðvar opnar í Rvík og Hafnarí
hvern rúmh. dag kl. 8—9,10—2 og 3—5
Söfnunarsjóðurinn opinn 1. virkan mánud. i
hverjunr mánuði kl. 6—6.
Veðurathuganir í Rvík, eptir Dr. J. Jónassen
maí júní Hiti (á Celsius) Loptþ.mæl. (millimet.) Veðurátt
á nótt. um hd. fm. em. fm. em.
Mvd.31. + 8 + V2 772.2 764.5 0 d 0 b
Fd. 1. + 9 + 12 764.5 762.0 0 b 0 d
Fsd. 2. Ld. 3. + 9 + 6 + 12 762.0 762.0 762.0 A h d 0 b 0 d
Sama veðurhægðin sem að undanförnu; ein-
stök sumarbliða.
Meðalhifi á nóttu í maímánuði + 4.7
— á hádegi í — ý 9.9
Ritstjóri Björn Jónsson cand. phil.
Prentsmiöja ísafoldar.