Ísafold - 07.10.1893, Blaðsíða 3

Ísafold - 07.10.1893, Blaðsíða 3
271 mega telja þetta meira en meðal heyskap- arár allvíðast og snmstaðar afbragðsgott. Hvalveiðarnar. Hvalveiðar Norð- manna hafa vel heppnazt þetta sumar sem fyr. Ellefsen, á Sunnuhvoli viö Önundar- fjörð, hefir fengið 194 hvali, á 5 gufubáta; Berg á Framnesi við Dýrafjörð 131 hval á 4 báta; Th. Amlie 64 hvaii á 2 báta og Stixrud á Tálknafirði 40 hvali á 2 gufu- báta. Báðir þeir Ellefsen og Berg eru búnir að koma upp hjá sjer áburðarverk- smiðjum — Ellefsen í fyrra —, alimikil- fenglegum, þar sem þvesti og beinum úr hvölunum og öðrum úrgangi er breytt ým- ist í nokkurs konar fóðurmjöl handa skepn- um eða áburð. Hefir Ellefsen flutt afþví marga farma utan í sumar og seit dýrum dómum. Er óhætt að kalla það mikið og merkilegt framfarafyrirtæki, og vonandi, að landsmenn komsit einnig upp á að hag- nýta almennt það sem frá verksmiðjum þessum kemur, bæði fóðrið og 'áburðinn. Er þegar fengin nokkur reynsla hjer um hvorutveggja og hún góð. Slátursverð. Hæst verð á sauðakjöti er og hefir verið verið hjer í haust 18 a. pundið, móti peningum, 5 fjórðunga föli og þar yfir. Rýrara fje 16 og 14 a. Mör 25 a. og gærur 18—20 aura. Hjá kaup- mönnum lítið eitt hærra gegn vörum. Slát- urtöku handa bæjarmönnum gegn peninga- borgun annast nú mestmegnis 2—3 kaup- menn (Kristján Þorgrímsson, Jón Þórðar- son og F. F.), þ. e. taka við fjenu af sveita- mönnum, láta slátra því og seija síðan »eins og það leggur sig« fyrir peninga í umboði eigendanna, gegn ákveðnu hundr- aðsgjaldi i ómakslaun, og er það hvorum- tveggju mikill hægðarauki, sveitamönnum og bæjarmönnum. Strandasýslu 22. sept.: Núeru allir hætt- ir við heynkap, en hej er víðast úti enn, því siöan rúmri viku fyrir leitir heíir ekkert þorn- að fyr en nú tvo síðustu dagana, en sá þerrir heíir ekki komið öllum að notum sakir snjós sem fjell 18. og 19. þ. m. og sem nú er um það leyti að taka upp til dala. Grimdarfrost er nú á hverri nóttu, óvanalega mikið svo snemma á tíma. Það verður því ekkert gjört að haustverkum á meðan svo stendur. Þetta sumar heíir annars verið eitt hið kald- asta hjer um pláss, og grasvöxtur rýr, einkum á harðvelli, en þó heyskapur almennt í meðallagi. Afii er nú á Steingrímsíirði en róðrar ný- byrjaðir. Af Alþingissíðindum, B-deild, umræðum neðri deildar, eru nú út komnar 60 arkir (6 heptij. Tapast hefir úr heimahögum, siðari part sumars, rautt mertrippi 2 vetra mark: sýlt h., brennimark á framhófum HJB. Hver sem hitta kynni tjeð trippi, um- biðst að koma því til mín, eða gjöra mjer aðvart. Keflavík, 22. sept. 1893. H. J. Bartels. Proclama. Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 sbr. op. br. 4. jan. 1861 er hjer með skorað á þá, er til skulda teija í dánarbúi Sveins Krist- jánssonar frá Hausthúsum á Vatnsleysu- strönd, sem drukknaði hinn 5. þ. m., að gefa sig fram og sanna skuldir sínar fyrir undirrituðum skiptaráðanda innan 6 mán- aða frá síðustu birtingu þessarar auglýs- ingar. Skrifst. Kjósar- og Gullbr.sýslu 19. sept. 1893. Franz Siemsen. (Þakkarávarp). Sunnudaginn hinn 20. þ. m. varð jeg fj'rir því óhappi, meðan jeg var í kirkju, að eldur kom upp í loptherbergi, sem jeg hefi bæði til íbúðar og geymslu; hrann, auk meiri hluta þekjunnar, talsvert innifyrir, eihk- um klæðnaður og rúmföt. Þetta hefði orðið tilfinnanlegt tjón fyrir mig, fátækan ein- stæðing, ef mjer hetði engin hjálp komið. En eptir hjálpinni þurfti ekki lengi að bíða. Þeg- ar daginn eptir brunann skntu Sauðárkróks- búar gjöfum saman handa mjer, og það svo rausnarlega, að jeg tel mjer skaðann þættan^ Jeg bið guð að launa hinum vegiyndu gef- endum, og sjerstaklega þakka jeg verzlunar. stjóranum, hen-a Stepháni Jónssyni, sem gekkst fyrir gjöfunum og safnaði þeim. Sauðárkrók 28. ágúst 1893. tíiibfinna Björnsdóttir. Uppboðsaug-lýsing’. Mánudaginn hinn 16. næstkomandi októ- bermánaðar verður að Keldum á Rangár- völlum haldið opinbert uppboð á eptirlátn- um fjármunum Guðríðar sál. Guðmunds- dóttur á Keldum, svo sem: bókum, fatnaði, sauðfjenaði og þessum fasteignum: hálfri jörðinni Götu í Vetleifsholtshverfi í Áshreppi 2Á2 hndr. að fornu mati, f/s af jörðinni Kaldárholti í Holtahreppi 2’/2 að fornu mati og 2 hndr. að fornu mati af jörðinni Arn- geirsstöðum í Fljótshlíð. Uppboðið hefst kl. 12 á hádegi og verða þá söluskilmálar birtir. Skrifstofu Rangárvallasýslu 25. sept 1893. Páll Briem. Aristomyndir. Myndasmíði í vetur. Með því að jeg undirskrifaður hefi haft talsverðar annir við myndasmíði síðan jeg kom hingað til bæjarins, enda þóttjeghafi orðið að neita mörgum, sökum þess að veður hefir bannað, þá gefst mönnum hjer til vitundar, að jeg hefi nú ráðið bót á þessu, með því að jeg á nú kost á að taka myndirnar undir glerþaki. Vinnustofa mín er frá í dag 7. okt. hjá hr. kaupm. W. O. Breiðfjörð. Inngangur í Bröttugötu. Reykjavík 7. okt. 1893. Aug. Guðmundsson, Ijósmyndari Fuiidizt heGr 1 vor um Jónsmessuna með þjóðveginum í ölfusinu lítill strigapoki með karlmanns-fatnaði og smjöri í; hver sem iýsir rjett eptir hver íatnaður það er, og hvað smjörið vigtar, má vitja þess til Jóns Jóns- sonar á Hrafnatóptum í Holtum mót sann- gjörnum fundarlaunum og borgun á þessari auglýsingu. 148 »Drottinn minn! Veit, að ranglæti það, er hjer á fram að fara, komi þeim í koll, er verið hefir hvatamað- ur glæps þessa. En lát eigi hefndina koma niður a kon- ungi mínum!« Ruy Lopez stóð út í horni og brá skikkjunni fyrir auglit sjer. Hann tók til að hafa yfir bænir fyrir deyj- anda manni. Calavar gekk að Don Gusman og tók til að leysa af hálsi honum. En Don Gusman hrökk við, er böðullinn snerti hann. »Bkkert yður viðloðandi skal snerta mann af Gus- mana-kyni, nema öxin ein«, mælti hann, tók sjálfur af hálsi sjer og lagðist á böggstokkinn. »Höggðu!« mælti hann síðan ; »jeg er viðbúinn!« Böðullinn reiddi öxina; loks átti svo að fara, að dómur konungs yrði framkvæmdur. Þá heyrðist óp og köll álengdar, hratt fótatak og hávær máikliður. Við það kom hik á böðulinn. Armleggur hans nam staðar upprjettur. Sveit vopnaðra manna hafði ráðizt á dýflissudyrnar 0g hrökk hurðin undan átökum þeirra. D’Ossuna rudd- ist inn sem kólfi væri skotið 0g fleygði sjer milli böðuls- ins og bandingjans. Þar mátti eigi tæpara standa. »Hann lifir!« hrópaði Tarraxas upp yfir sig. »Honum er borgið!« gall D’Ossuna við. »Hjartkæri 145 sporum, ætluðu alveg að hníga niður af þreytu; þeir voru albrynjaðir og því mjög þungir á sjer. Don Tarraxas stóð óbifanlegur, með aptur augu, lík- astur járnlíkneskjum þeim, er skreyttu sali hinna ham- römmu Gota. D’Ossuna hallaðist upp við marmarastoð og horfði í gaupnir sjer. En konungur gekk órór um gólf og nam staðar við og við til að hlera, er hann hjelt sig heyra eitthvað. Eptir þeirrar tíðar háttsemi lagðist hann á knjebeð við 0g við frammi fyrir likneski hinnar heilögu meyjar, til þess að biðja fyrirgefningar fyrir hermdarverk það, er þá skyldi vinna. Hljótt var í höll- ínm ; því enginn var svo tiginn, að mæla þvrði, nema kon- ungur byði svo. Þegar konungur sá síðasta sandkornið falla í stundaglasinu, hýrnaði yfir honum. »Nú deyr svikarinn«, gall hann við. Það var eins og færi bljóðskrafskliður um allan hóp- inn. ^ »Stundm er liðin, greifi af Biscaya«, mælti Filippus konungur, og sneri sjer að Don Ramirez, »ogþarmeð er fjandmaður yðar einnig frá«. »Fjandmaður minn, yðar hátign?«, spurði Ramirez 0g ]Jet sem h^nn vissi eigi, hvaðan á sig stóð veðrið. ’ »Hví hafið þjer eptir orð mín, greifi?« svaraði kon- ungur. »Lögðuð þið Don Gusman eigi hug á hina sömu

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.