Ísafold - 13.01.1894, Qupperneq 4
8
Aukalæknar. í eitt af 6 nýjum auka-
læknisdæmum, samkæmt síðustu fjárlögum
heflr landshöfðingi sett mann 30. f. m.,
Sigurð Hjörleifsson,háskólakandídat,nefnil.
í Háls-, Grýtubakka- og Ljósavatns hreppa,
fyrst um sinn til eins árs. Enn fremur hefir
landshöfðingi sett til bráðabirgða lækna-
skólakand. Ólaf Finsen (póstmeistara) auka-
iækni á Skipaskaga,í stað Björns augnalæknis
Ólafssonar, sem hingað er fluttur til bæjar-
ins og seztur hjer að fyrir fullt og allt (í húsi
því, er Tómas heit. Hallgrímsson docent
bjó í).
Prestaskölinn. Docent síra Þórhallur
Bjarnarson er settur forstöðumaður þar, í
stað síra Helga sál., sem verður jarðaður
í dag.
Hátíðaskemmtanir voru ekki mikiar
hjer í höfuðstaðnum í þetta sinn. »Söng-
fjelagið frá 14/i ’92« söng tvö kvöld fyrir
jólin, með allgóðri aðsókn og við mikið
góðan orðstír. Lærisveinar latínuskólans
ljeku 4 kveld milli jóla og nýárs í skóla-
húsinu Genboerne og annað rit útlent,
íslenzkuð bæði, en ofviða fyrir þá, og
buðu til vandamönnum og kunningjum.
Loks ljek Hornafjelagið á sín hljóðfæri tvö
kvöld um þrettándaleytið í Templarahús-
inu fyrir gjald. og þriðja kvöldið á sama
stað kauplaust fyrir fátæklinga, með hús-
fylli þá, en heldur fátt um áheyrendur hin
kvöldin, og þótti þó þeim, sem heyrðu,
bezta skemmtun, aukin með mikið fögrum
solosöng stúdents Benidikts Gröndals (Þor-
valdsonar); hefir Hornafjelagið svo opt
skemmt bæjarmönnum fyrir ekki neitt, að
þeim væri vorkunnarlaust að sjá ekki eptir
þeim fáu aurum, er það setur upp við
svona tækifæri, til þess að standast nauð-
synleg útgjöld sín, en sannarlega í engu
ábataskyni.
Kveflandfarsótt gengur hjer í bæn-
um og nágrenninu, en snýst upp í lungna-
bólgu á sumum.
Mannalát. Nýársdag andaðist hjer í
bænum merkiskonan Sesselja Þórðardóttir,
ekkja Þórðar bónda Jónssonar á Syðri-
Reykjum í Biskupstungum, móðir Halldórs
bókbindara og þeirra bræðra, en dóttir
síra Þóröar Halldórssonar á Torfastöðum.
Hinn 4. þ. mán. andaðist að Neðra-Hálsi
í Kjós húsfreyjan þar, Guðrún Guðmunds-
dóttir, kona Þórðar hreppstjóra og amts-
ráðsmanns Guðmundssonar, á 50. aldursári,
með fremstu konum í sinni röð, góðsöm
og hjálpfús við alla,. Þeim hjónum varð
8 barna auðið, er 6 lifa, þeirra á meðal
einn iærisveinn í lærða skólanum.
Hjer í bænum andaðist 9. þ. m. af
lungnabóigu Kristinn bóndi Ólafsson frá
Steinum (hjá Bráðræði), maður um fimmt-
ugt, tengdasonur Magnúsar heit. dbr.manns
í Bráðræði, dugnaðarmaður, vel látinn.
Öllum þeim ótal mörgu, sem hafa
sýnt mjer og mínum ógleymanlega hlut-
tekningu meðan maðurinn minn sálugi
Tómas læknir HaJlgrímsson lá og við
dauða hans og jarðarför, færi jeg hjer
með mitt innilegasta þakklæti.
Iteykjavík 6. jan. 1894.
Ásta Hallgrímsson.
Góður sjómaður getur fengið skiprúm
suður í Höfnum á næstkomandi vertíð. Ritstj.
vísar á.
Den danske Landmandsforsamling
hefur ráðið að haida sýningu á öllu því,
sem að búnaði lýtur næsta sumar í Rand-
árósi, dagana 26. dag júnímán. til 1. dag
júlímánaðar, og hefur kosið mig umboðs-
mann sinn hjer á landi. Ef einhverjir Is-
lendingar kynnu að vilja senda eitthvað á
sýningu, og geta þeir, sem það vilja snúið
sjer til mín til að fá skýringu um það,
hversu þeir eigi að liaga sjer í því efni.
Reykjavík ö. jan. 1894.
H. Kr. Friðriksson._____
Aðvörun út ai' eitrun rjúpna.
Með því að rjúpur þær, sem eitraðar
hafa verið fyrir refi, ekki munu hafa ver-
ið svo rækilega auðkenndar, að óyggjandi
vissa sje fengin fyrir, því að þær geti ekki
óviljandi slæðzt saman við nýskotnar rjúp-
ur og oröið boðnar fram sem verzlunar-
vara, og þannig orsakað slys, viljum vjer
sem ritum nöfn vor hjer undir, aðvara
viðskiptamenn vora og aðra um, að vjer
alls engar rjúpur kaupum til útflutnings
fyrst um sinn.
Reykjavík 9. jan. 1894.
pr. W. Fischer pr. H. Th. A. Thomsen
Guðbr. Finnbogason. Johs. Ilansen.
pr. W. Christensen pr. P. C. Knudtzon & Sön
S. E. Waage. . J. Nordmann.
G. Zoega & Co. W G.. Spence Faterson.
pr. E. Felixson pr. J. P. T. Bryde
Ámi Eyþórsson. N. B. Nielsen.
Sturla Jónsson.
Til yesturfara.
Eins og að undanförnu annast jeg undir-
skrifaður um fólksflutninga til Ameríku
fyrir hönd Allan-línunnar, og verður
sent beinlínis skip næsta sumar eptir f'ólk-
inu, ef nógu rnargir lia'fa skrifað sig eða
pantað f'ar hjá mjer eða agentum mínum
svo tímanlega, að jeg fái að vitatölu þeirra,
er ætla að flytja sig til Ameríku á næstkom-
andi sumri með minni línu, í síðasta lagi
með póstum, er koma bingað til Reykja-
vikur í aprilmánuði næstkomandi eða með
fyrsta strandferðaskipi í vor komandi. Það
er mjög áríðandi, að fólk gefi sig fram i tíma,
svo jeg geti pantað hæfilega stórt skip til
að sækja fólkið ‘nógu snemma, því þeir,
er síðar gefa sig fram, verða því að eins
teknir, að plássið sje nóg í skipinu. Einnig
flyt jeg með dönsku gufuskipunum þá, er
heldur vilja fara með þeim.
Allir, sem ætla vestur að sumri, ættu að
vera tilbúnir um miðjan júní; það er mjög
áríðandi, að komast nógu snemma vestur,
til að tapa ekki af sumarvinnu þar.
Manitoba-stjórnin sjer um að útvega fólk-
inu vinnu strax og hún veit hvað margir
muni koma, svo engir þurf'a að bíða eptir
að fá vinnu, þegar þangað kemur; en til
þess að jeg geti látið stjórnina vita það
nógu snemma, verða menn að skrifa sig
sem allra fyrst, eins og hjer að ofan er sagt.
Áreiðanlegur túlkur verður sendur alla
Ieið með fólkinu til Winnipeg.
Hvað fargjald verður næsta ár, get jeg
ekki sagt um enn þá; það kemur mest
undir því, hvað margir skrifa sig í tíma,
en eins og allt af nð undanförnu mun
Allan-línan flytja fyrir lægsta. verð og
upp á haganlegasta máta fyrir þá, er fara.
Munið eptir, að skrifa ykkur í tíma, svo
hægt verði að útvega ykkur skip á rjett-
um tíma, og vinnu strax og þið komið til
Ameríku.
Reykjavík 12. jan. 1894.
Sigfús Eyrmindsson.
Hús til sölu
í Vesturgötu, hentugt hvort heldur er fyrir
handiðnamenn eða sjómenn. Nánara á af-
gr.stofu Isafoldar.
Laugardaginn hinn 20. þ. m. kl. 5 e. m.
verður fundur haldinn í Jarðrœktarfjelagi
Reykjavíkur í leikfimishúsi barnaskólans.
Verður þar skýrt frá gjörðum fjelagsins
og lagður fram reikningur fyrir hið liðna
ár, rætt um, hversu verja skuli fjelagssjóði,
og kosin fjelagsstjórn og endurskoðunar-
menn m. m.
Reykjavík 12. d. janúarm. 1894.
H. Kr. Friðriksson.
Prjónavjelar,
með beztu og nýjustu gerð, seljast með
verksmiðjuverði hjá
Siraon Olsen,
Kjöbmagergade Nr. 50, Kjöbenhavn.
Eptir vjclum þessum er mikil eptirspurn,
af því, hve traustar og nákvæmar þær
eru, og að þær prjóna alls konar prjónles
jafnt úr smáu sem grófu bandi. Vjelar
þessar má panta hjá
P. Nielsen á Eyrarbakka,
sem sýnir, hvernig þær fara að prjóna og
veitir ókeypis tilsögn til að brúka þær.
Hjer á íslandi eru einkar lientugar
vjelar með 124 nálum, sem kosta 192 kr.
do. — 142 — — — 230 —'
do. — 164 — — — 244 _
do. — 166 — — — 280 —
Verðlistar sendast þeim, er þess æskja.
Eg hef eitrað í rjúpur fyrir refi á heiðinni
fyrir ofan Elliðakot, og til auðkennis skorið
af' þeim lappirnar. Elliðakoti ‘/i ’94.
Guöm. Magndsson.
Tapazt hefir á þrettándadagskvöld frá J.
E. Jensens bakaríi upp að skólavörðu peninga-
badda með hjer um bii 0 kr., sem finnandi er
beöinn að skila mot fundarlaunum á Afgr.stofu
isafoldar.
Peningar fundust á miili bæja á Sel-
tjarnarnesi núna á nýjársdag. Rjettur eig-
andi má vitja þeirra tii Guðmundar Ólafs-
sonar í Mýrarhúsum.
Hús til söiu eða leigu hjer í bænum’
vandað og hentugt fyrir þá sem ekki hafa
mikiö um sig. Ritstj. vísar á.
Bann. Hjer með f'yrirbýð jeg einum og
sjerhverjum, að skjóta fugia, seli og hvað
helzt sem er í minni landareign og fyrir mínu
landi. Brjóti nokkur bann þetta, neyðist jeg
til að leita rjettar míbs, eptir því sem lög
trekast leyfa.
Vatnsnesi við Keflavík 12. janúar 1894.
Guðni Jónsson.
Húsið nr. 7. í Grrjotagötu
fæst til kaups eða leigu, semja má víð
Magnús Ólafsson.
Voðurathuganir í Rvík, eptir Dr. J. Jónassen
jan. Hiti (á Celsius) Loptþ.mæl. (millimet.) V eðurátt
á nótt. | um hd. fm. em. fm. em
Ld. 6. — 2 + 3 759.5 759.5 0 b 0 b
Sd. 7. — 4 — i 759.5 751.8 A h b A hv b
Md. 8. 0 + i 749.3 746.8 A h b A h d
Þd. 9. + 2 + 2 749.3 749.3 A. h d A h 4
Mvd. 10 — 1 -)-• 3 73G.6 729.0 A h b A h d
Pd. 11. -i- 2 + 6 734.1 729.0 A h b A h d
Fsd. 12. + 5 + 3 739.1 739.1 Sa h b 0 d
Ld. 18. + 1 741.7 0 d
Heíir verið við austan (landsunnan)átt alla
undanfarna daga, opthvass um stund; rigning
mikil með köflum.
Ritstjóri Björn Jónsson cand. phil.
Prontsmiðja Isafoldar.