Ísafold - 01.02.1894, Page 1
Kemur út ýmist emu sinni
^eða tvisvar L viku. Verð árg.
(minnst 80 arka) 4 kr.. erlendis
5 kr. eða l1/* doll.; borgist
fyri r miðj an j úlímán. (erlend -
is fyrir íram).
ÍSAFOLD.
Uppsögn(skrifleg)bundin yið
úramót, ógild nema komin
sje til útgefanda fyrir 1. októ-
b erm. Afgroibslustofa blaðs-
^ns er i Austurstrœti 8.
XXI. árg.
Reykjavik, flmmtudagiim 1. febr. 1894.
5. blað.
nulIjL llii öALur.
L. Jenscns Hotel i Akureyri, som i 32 Aar har været drevet med Held er naa ..r
Eierens Död, til Salg, eller i Mangel deraf til Leie paa billige Vilkaar —Om önskes kan alt invent ar 2
Kartoífelliaver og „Tún«, som aarlig giver c. 100 Heste Hö, fölge.—Reflecterende henvende si«- til ’
________ Faktor JOH. CHRISTENSEIV, Akureyri.
Utlendar frjettir.
Khöfn 14. jan. 1898.
Veðrátta. Fram til ársloka var hún
stööugt því líkust um alla álfu vora, sem
vor og haust færa, en svo fylgdu því storm-
ar, sem víða ollu mildum skipsköðum og
manntjónum. Við strendur Engiands fór-
ust dagana 18.—21. nóvember 237 manna;
þá daga náði sá útnorðanstormur vestur-
strönd Jótlands, að brimrótið bannaði fjölda
flskibáta landtöku og höfðu þar, við Har-
boöre og þar í nánd, 50 manns bana. Með
nýjári sló i kaldara veður,/ 'og þó borizt
hafi frá syðri löndum Evrópu af frosti og
snjókomum, heflr þess enn lítið kennt á
norðurlöndum.
Friðarhorf. Það er langt síðan, að
yíirlýsingar höfðingja á nýársdögum, og
eptir þeim blöðin síðan, hafa hikiaust tjáð
spár um friðar-blíðviðri á komanda ári.
Vilhjálmi Þýzkalandskeisara þótti ekki
þörf á að minnast á stjórnarhorf ríkjanna.
Vel þá, ef hjer gengur eptir. 'Allt um það
verða ríkjaþingin að sjá fyrir framlögum
til herauka og betri vígstöðva á sjó og
lancli. Jafnvel Englendingar leggja ríkt
við, að auka svo flota sinn, að þeir geti
framvegis — sein þeir enn segjast fuilfær-
ir til — mætt á haflnu tveimur mestu flota-
þjóðum Evrópu.
Frá heljarliði öaldarmanna. Auð-
sjeð er, að þeim fjöigar ár af ári í fiestum
löndum, og að fleiri og fleiri ganga undir
merki ófagnaðarboðskaparins, sem þeir
ltenna. Á seinustu tímum hafa þeir líka
gengið meir en fyr í berhögg við þegnlegt
fjelag. Boðskapurinn er mörgum kunnur,
fram borinn og itrekaður sem hann er á
ótal stöðum (seinast A fundi í París 9.
nóvember). Höfuðatriðin svo hljóðandi:
»Þegnfjelagið er eitrað og rotiðj fátækt og
vesaldómar engu öðru en eigingirni og
auðæfum einstakra manna að kenna. Þetta
fjelag verður í eldi að eyðast; látum oss
hefna bi’æðranna! Fjendur vorir eru ótta
lostnir fyrir tundrinu; þess skal neytt!
Látum oss clrepa þá, felia þá hrönnum
saman!« og svo frv.
Fyrir rúms sakir getum vjer að eins
síðustu höfuðatburða. Hinn 8. nóvember
var sprengivjel varpað á fólk í leikhúsi í
Barcelónu (á Spáni), og varð hún 23 mönn-.
um að bana, en 50 lemstruðust. Nokkru
áður hafði tundurtóli verið beitt til bana-
tilraunar við marskálkinn Martinez Campos,
en hún mistókst. Síðar var vjel sprengd
í Massilíu við hús hershöfðingja setuliðs-
ins, og olli það nokkrum skemmdum, en
eigi þeim, er til var ætlazt. Þar fannst
þá um leið meiri undirbúningur til stór-
sprenginga. Þess má enn geta, að þeir
Yilhjálmur keisari og Caprivi kanselleri
hans fengu um sömu mundir sendingar í
öskjum og átti í þeim að vera »sýnishorn
af nýju fræi« (frá Orieans), en þar tóku
aðrir við og varð engum skaði af, enda
svo kallað, að hjer væri allt óbanvænlega
til búið, og sendingin helzt til glettingar
ætluð eða hræðslu. En svo leið ekki á
löngu, áður þau tíðindi komu frá París, að
fólki varð felmt við í öllum löndum. Hinn
9. desember var sprengivjel kastað frá hin-
um efri setpöllum fulltrúaþingsins, sem
lemstraði ekki fleiri en 20 menn, en hjer
var til meiri tjóna ætlazt og undir búið.
Heljarbóflnn hafði orðið fyrir hnippingu
af konu við hliðina á sjer, þegar hann
varpaði frá sjer vjelinni, og rakst hún á
handriðið og sprakk svo á lopti áður en
niður kom. Hann hafði miðað þar til sem
menn eru vanir að þyrpast helzt saman,
við sæti forsetaeða ræðustólinn; hefði tek-
izt að hæfa þar, mundi mesta líftjón hafa
unniö orðið. Vaillant heitir sökudólgurinn
og meiddist sjáifur, en heflr áður sætt
hegningu fyrir ýms brot. Yfir honum er
nú líflátsdómur upp kveðinn. Fyrir dómi
var bann hinn harðsvíraðasti og sparaði
sízt illyrðin og hótanirnar við þingið, dóm-
endur og samþegna sína. í þingsalnum
voru á honum hendur hafðar, því öllum
dyrum var lokað undir eins og brestirnir
heyrðust.
Eptir atburðina í Barcelona og París
var sem ákafast grafizt eptir ógtjórnar-
mönnum (anarkistum) og fylgsnum þeirra
í öllum löndum. Spánverjum heflr tekizt
að ná í þá flesta, sem hlut áttu að morð-
verkinu í Barcelona og fleirum tilræðum,
og þeir ráku eðu fluttu þá alla alla út yfir
landamærin, sem að komnir voru frá örðr-
um löndum. Af innlendum sökudólgum
eða samsærismönmtm þess liðs hafa þeir
flutt 37 til útlegðar (og þrælavinnu?)] á
eyjunni J'leruando Po í Guineaflóa. Vist-
in hin óheilnæmasta, já, banvæn kölluð,
fyrir Evrópumenn. Frakkar standa enn
stöðugt í rannsóknum i öllum stórborgum
sínum, og hafa uppgötvað margar morð-
v.jelar og leyndarsmiðjur,' en í sumum bústöð-
unum brjef og skjöl, scm gefa margvísleg-
ar vísbendingar. Mörg hundruð manna
þegar í höptum og fjölda visað úr landi
aðkominna manna. Enn fremur eru lögin
strengd og nýmæli samþykkt til varnar
gegn illvirkjaráðum óstjórnarmanna. Líku
er nú og framhaldið í flestum Evrópuríkj-
um.
Danmörk. Til skamms tíma hafa blöð
hægri manna og sarnbræðenda (»sammen-
smæltere«) látið ekki ólíklega um, að við
samruna og sáttunt mætti búast með vor-
inu. En þó vill sitt hvað lienda, sem
mörgum þeirra bregður í brúnir við, t. d.
samvinna manna af öllum flokkum á fund-
um landbúnaðarvina (»agrara«), sum upp-
kvæði á þeim fundum um afneyzlu ríkisfjár
eptir ríkisþörfum, og siðan stirðar undir-
tekt.ir stjórnarinnará þinginu gagnvart þeim
nýmælum, sem frá þvi samtakafjelagi
stöfuðu. Nú er líka fjárhagsnefndarálitið
komið í blöðin, og þykir það ekki hafa
meiri tilhliðrunarblæ en hin fyrri. _ Hið
ískyggilegasta er þó, að við hinar nýaf-
stöðnu kosningar bæjarfulltrúa liafa vinstri-
menn unnið nær því fullan sigur í flestum
helztu bæjum Jandsins. Von, að þeir kalli
þet.ta á gott vita fyrir næstu þingkosn-
ingar.
Vel og greiðlega var vikizt við, sem
Dönum er títt, sanjskotunum til ekkna og
munaðarleysingja eptir skipskaðana á Jót-
landi. Talin 200 þús. króna.
England. A ið lagabætur og nýmæli,
sem varða umboðsstjórn í hjeruðum og
borgum, kirkju- og safnaðamál og svo frv.,
nútur Gladstone sama fylgis sem fyr í
neðri málstofunni, og stundum drjúgum
meiia. Fyiir fám dögum var fundum
frestað til 12. febrúar. í verkfallsmáli
kolanámamanna fekk hann Rosebery lávarð
td formennsku í gerðarnefnd—17. nóvem-
ber; verkfallið byrjaði í júlí —’og gekk hjer
saman til stundarfriðar, eða til 1. febr. þ. á.
I þessu þrái höfðu verkamenn beðið fjár-
missi á margar miljónir / og aðrir ekki
minni.
Vel er látið yfir erindalokunum í Kabul
(í Afghanistan), þó fjárframlögur Englend-
inga til jarlsins hafi við þau hlotið að auk-
ast. Sú afleiðing verður þó ekki minnst
verð, ef til samkomulags dregur með þeim
og Rússum um fjalllendi, sem Pamir heitir,
og þeir skjóta því undir yfirráð Afghana
°g Sínlendinga, svo það verði þeim ekki
sjálfum lengur að tortryggðar- eða deilu-
efni. Urn þetta nú samið í Pjetursborg.
Sökum rigninga og vatnavaxta hafa Eng-
lendingar hætt við eptirförina eptir Lohen-
gula konungi, en hann á að láta fyrirber-
ast einhversstaðar við Zambeze.
Dáinn er Samuel White Baker.hinn frægi
Afriku-Iandkannari og uppgötvari vatnsins
Albert Nyanza.
Frakkland. Hreifir og hróðugir gengn
J rakkar á þing 14. nóvember og minntust
bæði ráðherrar og forsetar þingdeildanna