Ísafold - 02.05.1894, Blaðsíða 3
91
Útfararfylgdin hin skrúðmesta og stórkost-
legasta. HöfTxð-lfkraeðuna hjelt Maurus
Jókai, frægasta skáld Ungverja og borgar-
stjóri höfuðboi'garinnar.
Kossúth játaði »reformeraða« trú, og
höfðu tveir prestar þeirrar kirkju flutt
ræður yfir kistu hans í Túrin.
Frú Spáni. Friðurinn fullsaminn við
Marokkókeisara, sem hefír gengizt undir
að borga 15 miij. króna i herkostnað,
hegna þeim, sem hafa gert Spánverjum
óskunda á Meiillasvæðinu, og haida varð-
sveitir við þann griðlandsgeira, sem milli
er þess markaður og Kabýlabyggða.
Margt og mikið hjer unnið til að hepta
óaldarliða, en á tveim stöðum hafa enn
tundurvjelar fundizt fyrir skömmu. þó áð-
ur en þær oliu spellum eða manntjóni.
Þó er nú mest bjeðan borið um óeiru i
borgum, einkum verkmannaiýðsins, sem
sökum atvinnuleysis lifír við hungurkosti.
Þeir víta mjög atgjörðaleysi stjórnarinnar,
þar er elnin bresta tii bjarga af hreppanna
og borganra háifu. Frá einim bænnm
frjettist fyrir skönmu, að þargað fluttust
matvæii til útbýtinga, en hungraða fólkið
þusti að þúsundum saman og hver hrifs-
aði það er hendur mátti á festa, en um
leið sló í áflog og barningar, sem lög-
gæzian varð að stilla. Hitt hneyksiar
verkmannalýðinn í annan stað, hvernig
yfirhirðar kirkjunnar gangast fyrir um
bjargir. Þeir hafa nýlega gert út margar
þúsundir pilagríma til Kóms. Það eru
reyndar verkmenn — eða flestir þeirra —
og þeir fá svo nóg til viðurlífis á ferðinni,
en þeir eiga um leið að færa blessuðum
páfanum 258 þúsundir króna, eða leggja
þær i »Pjet,urskistuna«. Af þessu klutust
róstur og lýðsatgöngurí Yaiencíu, þar sem
helmingur pilagrímanna gekk á skip, og
17 af þeim fengu meiðsl af grjótkasti og
öðrum vigvölum. í sjálfri kirkjunni fjekk
Madrídarbiskupinn rýtingsristu gegn um
kápu sína, en gluggarnir voru brotnir á
vagni erkibiskupsins frá Seviilu.
Frá Norðurameríku. Nýmæli um
nýja peningamótan úr silfri, eða um að
koma því aptur á líkt framfæri og í gildi,
sem Shermanslögin gerðu, fengu atkvæða-
fylgi í öldungadeildinni, en þau mættu
neikvæðum af hálfu Clevelands forseta, og
svo brast atfylgið í fulltrúadeildinni til að
gera neitun hans apturreka.
Yið vorkosningar til embætta í sumum
Bandaríkjanna hafa orðið stríðustu viður-
eignir, ogíChicago hlutu tveirmenn bana.
Í Cólóradó hafa konur atkvæðarjett og
kjörgengij^ og þar sættu þær svo kappsam-
lega færi, að 11 af þeim komust í embætti.
í norðurn'kjunum haía samveldismenn haft
drjúgan árangur.
Um Bandarikin er ekkert ýkt, þegar
um auðdyngjurnar er talað, en hitt ekki
heldur, sem berst þaðan nú af atvinnuleysi,
sulti og seyru. í vestri rikjunum og mið-
rikjunum hafa bjargarlausir menn tekið
sig saman um að leggja af stað í tveim
fylkingum — annari á 1C0 þúsunda, hinni
á 50—og ferðinni heitið austur til Was-
hington, að þinghöllinni, og ætla þeir að
gera þar sjón sögum ríkari um ástand
verkmannalýðsins. Hvað hjer rætist úr,
verður að biða seinni frjetta.
Frá Brasiliu. Nú er uppreisnin þrotin
að fullu og öllu. í Rio Grande beið Mello
aðmiráll fullan ósigur fyrir skömmu, og
leitaði siðan skjóls hjá Uruguaymönnum,
og hlaut að selja þeim öll vopn í hendur.
Póstskipið Laura (Christiansen) kom
í gærmorgun og með henni allmargir far-
þegar: kaupmennirnir Ditlev Thomsen,
Th. Thorsteinson, Þorbjörn Jónasson og
W. Breiðfjörð hingað, og til vesturlands
S. E. Sæmundsen frá Ólafsvík, P. J. Thor-
steinson frá Bíldudal, N. Chr. Gram kon-
súll .frá Þingeyri, L. A. Snorrason frá ísa-
firði og J. Thorarensen fi á Reykjarfirði;
enn fremur Joh. Möller frá Blönduós. Þá
dr. Jón Þorkelsson frá Khöfn; cand. juris
Magnús Jónsson frá Laugabóli; car.d.med.
& chir. Guðmundur Hannesson, settur
læknir á Austfjörðum ; stúdent Jón Jónsson
frá Mýraihúsum. Ftk. Sigríöur Jónsdóttir
(Pjeturssonar háyfird ). Kapteinn í danska
landhernum Christensen að nafni (til að
kaupa nokkra íslenzka hunda í herþjón-
ustu). Enn fremur fiskikaupmaður Mr.
Ward frá Teignmoutb, sá er fiskinn keypti
i fyira af Akumesirgvm; og tveir
Englendingar aðrir.
Gufuskipakaup. Kaupmaður A. G.
.Ásgeirsson frá ísafirði hefir keypt nýlega
danskt gufuskip, viðlika stórt og »Thyra«,
(nær6C0Ismál.), eráaðveiöa i ícrvm milli
landao.s. íi v.l aöiiyi ii x eizlvn hanscgaöt a,
ernota vilja. Það hjet» Hélgi« áöur og var
eign guíuskipafjelagsins »Danmark«; en
hinn nýi eigandi hefir skírt það upp og
nefnt A. Asgeirsson eptir föður sinum.
'Það er hiö Íyr6ta meira háttar gufuskip í
eign Islendings, og gerir það meðal ann-
ars að vonandi er það þarfaverk, að skerða
oívilítið eirokunairjett guívskipafjelagsins
sameinaða til vöiuflutninga bjer ogmanna
milli landa.
Þá hefir hinn alkunni atorkumaður 0.
Wathne á Seyðisfiröi keypt sjer skip i
vetur, hjer um bil helmingi stærra en
»Waagen«, eða nál. 3C0 smálestir, og skirt
það Egil (Skcillagiimssori). Sennilega ætlar
hann sjer meðal annars að hafa það til
landssjóösstrandferða að ári, þeirra er J.
Randulff var ætlað, en bann hefir gefizt
upp við.
Jón Ólafsson, ritstjóri í Winnipeg, er
nú skilinn við »HeimskringIu« ; baíði orðið
saupsáttur við eigendur blaðsins. Ætlar
nú að reyna að koma upp mánaðarriti,
fræðandi og skemmtandi o. s. frv.
Sigling. Apríl 28. Ternen (38, Chr.
Georgsen) með við til lausakaupa, frá
Mandal. 30. Stckkseyri (58, Bjerge) frá
Mandal með við til, lausakaupa. S. d.
Cecilie (113, Svinding) frá Khöfn til Bryde
með alls konar vörur, mest þó til Vest-
manneyja. S. d. Lucinde (81, P. 0. Larsen)
frá Khöfn til P. C. Knudlzon & Sön með alls
konar vörur. S. d. Dagmar (94, [N. T.
Nilsen) frá Mandal með við til lausakaupa.
Maí 1. Ziba (56, Tli. Tönnesen), norskt
fiskiskip.
Inflúenzasóttin er nú á ferðinni um
Vesturland og hefir gjört þar mikinn usla
í sumum sveitum, sem sjá má á eptirfar-
andi mannalátum, er öll stafa af landfar-
sótt þessari, nema Hafiiða í Svefneyjum.
Mannalát. Hinn nafnkunni merkisöld-
ungur, uppgjafaprestur síra Friðrik Egg.
erz, andaðist 23. f. mán., að heimili sínu
Hvalgröfum á Skarðsströnd, kominn á 4.
um nírætt. Skömmu áður Ijezt Jíafliði
Eyjólfsson, dbrm. og óðalsbóndi í Svefn-
eyjum, rúml. sjötugur. Ennfremur 13. f
mán. frú Elín Einarsdóttir í Bæ í Króks-
firði, ekkja Jóns prófasts Jónssonar í Stein-
nesi (f 1862), á niræðisaldi i. Sömul. 11.
s. mán. Páll bóndi Ingimundarson í
Mýrartungu, faðir Gests heit. skálds og rit-
stjóra, og kona Páls seinni, Ingunn, viku
síðar (17.). Hinn 15. s. mán. Eggert bóndi
Stefánsson á Króksfjaröarnesi, Eggertson-
ar prests frá Ballará. Ennfremur Hákon
Loptsson, háaldraður bóndi, frá Kinnar-
stöðum í Reykhólasveit, og Kristin Orims-
dóttir, ekkja Daníels heit. Hjaltasonar í
Hh'ð i Þorskafirði, föðurbróður Jóns skóla-
stjóra á Möðruvöllum.
Herra Þorláknr Gu ð m u n d s so n,
Fifuhvamini.
Oss falla illa aðfarir eins blaðs við yður
i vetur, og álitum þæríalla staði óverðskuld-
aðar. Vjer óskum og vonum, að þjer megið
' enn lengi starfa, bæði sveitarfjelagi yðar og
landinu til gagns.
í aprílmán. 1894.
Ingjaldur Sigurðsson, Lambastöðum. Guð-
mundur Einarsson, Nesi. Þórður Jónsson,
Ráðagerði. Brynjólfur Bjarnason, Engey. Ei-
ríkur Bjarnason, Eiði. P. Sigurðsson, Hrólfs-
skála. Erlendur Guðmundsson, Skildinganesi.
Jón Guðmundsson, Bakka. Jóhann Kr. Arna-
son, Melshúsum. Pjetur Guðmundsson,Hrólfs-
skála. Ólafur Ingimundsson, Bygggarði. Jón
Ólafsson, Bygggarði. Brynjólfur Magnússon,
Nýjabæ. Jón Jónsson, Bollagarðakoti. Einar
Hjartarson, Bollagörðum. Eyleiiur Guðmunds-
son, Gesthúsum. Sigurður Sigurðsson, Mýr-
arhúsum. Sigurður Ólafsson, Nesi. M. Stephen-
sen, Viðey. Jón Einarsson, Skildinganesi.
Árni Árnason, Kópavogi. Jón Jónsson, Breið-
holti. Gísli Bjarnarson, Laugarnesi. Oddur
Einarsson, Kleppi.
Ferðaskýrsla D. Thomsens kaup-
manns er út kornin á dönsku, mikið fróð-
leg bók, nál. 5 arkir að stærð. Síðan er
hún væntanleg á íslenzku í Andvara.
Samsöngurinn (Concert) hjer 29. f. mán.
var prýðilega sóttur, alveg húsfyllir. Meðal
annara söng þar solo cand. theol. Geir Sæ-
mundsson (frá Hraungerði), er numið heíir
og tamið sjer rækilega sönglist í Khöfn, og
var gerður að mjög góður rómur.
Öllum þeim, sem hafa sýnt mjer hjálp og
hluttekning í sorg minni eptir mann minn
sáluga Árna Jónsson póst á Plóðatanga, sem
drukknaði 28. f. m., svo og öllum þeim, sem
heiðruðu jarðarför hans með nærveru sinni,
votta jeg hjer með þakklæti mitt.
Flóðatanga 9. apr. 1894.
Dýrunn Magnúsdóttir.
Jeg undirskrifaður lýsi því hjer með
yfir, að öll þau ósæmileg orð, sem jeg kann í
ölæði að hafa talað viðherra Jónas Gottsveins-
son, á heimili hans Görðunum, 19. f. m. þ. á.,
skulu hjer með apturkölluð og sem dauð og
ómerk álítast.
Hlíðarhúsum 1. maí 1894.
Guðmundur Runólfsson.
Snemmbær kýr er til sölu, 16 marka kýr.
Ritstjóri vísar á.