Ísafold - 14.07.1894, Page 2

Ísafold - 14.07.1894, Page 2
170 ú prenti, kennurum og öðrum hlutaðeigend- um til ieiðbeiningar. í fundarsalnum var til sýnis fjölskrúð- ugt safn af kennsluáhöldum, fyrir kennslu í náttúrufræði, landafræði, sögu, reikningi, leikflmi o. s. frv., og hefir skólastjóri Mor- ten Hansen öll þessi áhöld til sölu, og útvegar fyrir mjög lágt verð öll kennslu- áhöld, sem óskað er. Kennarar eða aðrir, sem að skólunum standa, þurfa því eigi annað en að snúa sjer til hans, og verður pöntun þeirra afgreidd fljótt og vel. Hann gefur einnig bendingar um það, hver áhöld eru hentugust að fá, ef tilgreind er einhver fjárupphæð, sem verja má til verk- færakaupa. Fyrir stofnun smærri kennarafjelaga mælti skólastjóri Jón Þórarinsson, og var lögð fram á fundinum áskorun frá barna- kennurunum í Skagafirði um það, að hið ísl. kennarafjelag taki að sjer sem undir- deild fjelag þeirra, er stofnað var í vetur. Barnakennarar í Skagafirði hafa að und- anförnu haldið málfundi sín í milli um ýms kennslumál og sýnt lofsverðan áhuga í því efni; væri efalaust mjög æskilegt að aðrir færuaðþeirra dæmi, og stofnuðu smærri fjelög sín í milli. Slík smáfjelög ættu að geta orðið til þess að vekja áhuga almenn- ings á kennslumálutn og uppeldismálum. Fundurinn vildi að sínu leyti styrkja að því, að slík fjelög kæmist upp, með því að fara fram á svo fellda breytingu á lögum hins ísl. kennaratjelags, að aptan við 3. gr. bætist svo látandi málsgrein: »Heimilt skal og smærri kennarafjelögum út um land að ganga í fjelagið gegn einnar krónu árstillagi fyrir hvern fjelagsmann sinn, en hinn helmingur árgjaldsins renni i sjóð hlutaðeigandi fjelags i hjeraði«. I>á vakti skólakennari Halldór Briem máls á því, að kennarafjelagið ætti að styrkja að útgáfu tímarits eða blaðs um uppeldismál og kennslumál, og fal íundur- inn stjórn fjelagsins að annast það á lík- an hátt og að undanförnu. Reikningur fjelagsins var af sjálfsögðu lagður fram endurskoðaður. Fjelagsmönn- um hafði fækkað nokkuð seinasta ár, 1 dáið, nokkrir sagt sig úr, og einn kennari var tekinn í fjelagið á fundinum. Stjórn fjelagsins var endurkosin: formað ur Jón Þórarinsson skólastjóri, o. s. frv. Skiptapi. Hinn 4. þ. mán. fórst bátur i lendingu úr fiskiróðri frá Akri í Staðar- sveit á Snæfellsnesi. Varð einum skipverja af 5 bjargað, en fjórir drukknuðu: formað- urinn Magnús Ileigason, bóndi á Akri; Gísli Guðmundsson, bóndi í Gerðakoti; Kristján og Bjarni Vigfússynir frá Akri, ókvæntir. Útskrifaður úr latínuskólanum í þ. m. Jón Eunólfsson (frá Holti á Síðu) með I. eink., 93 st. Biskupsvisitazia. Herra Hallgrímur biskup Sveinsson lagði af stað 7. þ. m. austur að vísitera Vestur-Skaptafellsprófasts- dæmi og Rangárvalla; er væntanlegur heim aptur í mánaðarlokin. Sjönleikirnir. í kveld og á morgun verður mikið í borið hjá hinum dönsku leikendum hjer og fylgir sú nýjung, að leikirnir eru settir í samband við skemmti- ferðir með gufubátnum Elínu báða dag- ana milli Akraness og Reykjavíkur, með afslætti í gjaldi. Verður fernt leikið hvort kveldið, þar á meðal bæði kveldin hið nýja rit »Fra Reykjavik til Gejser«, eptir Wulff þann, er hjer var í fyrra, með nýj- um tækifærisvísum innan um, og á morgun »Redaktionsekretœren*, þar sem hr. Winther leikur Bassing ritstjóra (og 3 aðra í dular- gerfi), en hann er snillingur að leika; enda mega þau öll 4 eiga það, að þau kunna vel til sinnar iðnar og eru stórum færari um að skemmta vel en hjer er títt ella. Naglalegt sigurhrós. Það er kátbroslegur naglaskapur, sigur- hrósið, sem ræfilsgreyið »Þjóðólfur« æpir í gær út af forsetaskiptunum í Bókmenntafje- laginu um daginn. Það er eins og hann og hans frægu(!) kumpánar hafi farið einhverja stórkostlega herför og sigur vegið gegn ofurefli liðs, eptir harða viðureign og langa. Ráða þeir sjer síðan eigi fyrir of- metnaði og fögnuði, er heim kemur. En hafi nokkurn tíma sannazt málshátt- urinn, að »Iitlu verður Vöggur feginn«, þá er það í þetta skipti. Undirskrifaður ritstjóri ísafoldar, sem verið hefir forseti fjelagsins (Reykjavíkur- deildarinnar) í 10 ár undanfarin, hafandi í fyrstu tekið þann starfa að sjer nauðug- ur, fyrir fastleg tilmæli ýmissa helztu og beztu manna í fjelaginujog endurkosinn síð- an ár eptir ár með þeirra ráði, síðari árin nærfelt 1 einu hljóði, — var nú einráðinn að taka ekki móti kosningu framar, þóttist lög- lega afsakaður eptir 10 ára þjónustu, svo miklar annir aðrar sem jeg hefi, og hefði lýst þvi yfir fyrir fram og afdráttarlaust, ef jeg hefði sjálfur haldið ársfundinn 9. þ. mán. En með því að jeg gat ekki komið því við, vegna ferðalags, og varð þvi að fá annan mann úr stjórninni til þess að halda fyrir mig fundinn, i forföllum vara- forseta líka, en sá hinn sami mæltist fast- lega til, að þurfa ekki að bera það mál upp á fundinum. heldur að því væri frest- að til næsta aðalfundar, þá ljet jeg það svo vera rjett í þetta sinn. En af því að jeg hafði haft orð á fyrirætlan minni við fleiri, bæði í stjórn fjelagsins og utan henn- ar, svo að borizt hafði út, þá hagnýttu sjer það fáeinir alþekktir skuggasveinar, er opt höfðu verið á höttunum áður á undan kosningum í fjelaginu til að koma mjer frá, og fengu nú aflað sjer nægilegs fylgis með þvi að segja að jeg tæki ekki á móti kosningu framar, en fundur mjög fámenn- ur, svo að harla lítils þurfti við. Það er með öðrum orðum, að með því að nota það þrennt: fjarvist mína, fæð fundar- manna og orðróm um að jeg ætlaði að segja af mjer, tókst þeim nú að koma fram fyrirætlan sinni, það er að segja, að fá mjer hafnað sem forseta án þess aðjeg segði reglulega af mjer, en mjer síður en eigi til nokkurs ama, eins og hver maður skilur á því er nú hefir sagt verið. Það er i fyllsta máta mínum vilja samkvæmt, baiði að jeg er eigi framar forseti í fjelag- inu, og að sá hlaut kosningu í minn stað, er fyrir henni varð; hann hefði jeg bæði sjálfur kosið og haldið honum fram við aðra. Þykir mjer það eitt að, að jeg hef orðið þess valdandi, með því að hætta við að segja af mjer í þetta sinn, að beitt hefir verið launpukursundirróðri til að koma honum að, í fjarveru hans og án hans vilja og vitundar, í stað þess að hann mundi að öðrum kosti hafa verið kosinn með almennu og frjálslegu fylgí fjelagsmanna, en ekki, eins og nú, með 1 atkvœðis mun (9 atkv., móti 8, sem jeg- fekk). Sigurhrós »Þjóðólfs« er þannig hinn aum- legasti »naglaskapur«, sem ekki er raunar neitt nýnæmi um hann, garminn, og ónota- hnútum hans til mín geri jeg ekki nema brosi að. Það er svo sem auðsjeð, að þær eiga að vera hefnd eða endurgjald fyrir alþingiskosningahrakfarir bæði ritstjór- ans sjálfs og nokkurra vildarvina hans og máttarstólpa, en það er broslega og brjóst- umkennanlega slælega úti látin hefnd. B. J. r Af kjörfundi Arnesinga. i. Frjettabrjefið af kjörfundi okkar i Fj.kort- unni 19. júní þ. á. gefur mjer tilefni til a?> leiðrjetta sumt og segja gjörr frá þvi, sem geröist á fundinum. Um brjef Boga er ekki neitt ab segja. Þab var gagnort og hreinskilnislegt, eins og hon- um er lagið að koma fram. Rjett er það, ah Hannes »Þjóðólfs«-ritstjóri talaði langt; en skiptar munu skoðanir um það, hvab snjöll ræðan var. Framburðurinn áhrifalítill og ekki skemmtilegur. Honum er hvorki í ræðu nje riti lagið að koma fram. hugsun sinni i fám orðum. Tal hans hring- snerist mest um lagafrumvörp þau frá síð- asta þingi, sem enn liggja ósamþykkt á stjórn- arhillunni; en ekki minntist hann á, hvað háskólinn mundi kosta! Hann kvað söfnin hjer því miður ekki eiga neina þýzka laga- hók til hjálpar við að semja lög, sem hindr- uðu mannfrelsi til að flytja sig aí landi burt, (væri máske gerandi, að fá lagakver frá Rúss- landi!). Tr. Gunnarsson kvað slikt ekki verða. með lögum hindrað; hitt mundi heldur ráð, að gera sem hezt við landið sjálft. Aðrirönz- uðu þessu ekki. A brúargæzluna minntist rit- stjórinn litið eða alls ekki. Sjerstaklega marg- tugði hann það upp, að hann væri mótfaílinn öllum sköttum (vissi hvað »fólkinu« kom!); litu þá margir kjósendur hver til annars;- hefir þeim liklega flogið í hug landbúnaðar- skattsnýmælið hans í B0. thl. »Þjóðólfs« f. á. Síðari tala hans varð enn óáheyrilegri en sú t'yrri; því eptir að hann hafði lært af hinum þingmannaefnunum að taka ofan fyrir þing- heimi, þá var hann allt af að fiðra við hárið á sjer. Tr. Gunnarsson kvað það mest hafa hvatt sig til að bjóða sig hjer fram, að hann sæí að þetta bjerað stæði til mikilla bóta og sig langaði til að styðja að framförum með aukn- um samgöngubótum og eflingu atvinnuveg- anna í þessu hjeraði og í heildinni. Hann hefði lagt hönd á flest það. er bændur yrðu að starfa, auk margs annars, og hann hefði sjeð margar framfarir í öðrum löndum, sem hann hefði óskað að næði einnig hingað. Væri einhverjir kjósendur hræddir við að kjósa sig af því, að hann kynni að vilja koma á brúartolli, þá þyrftu þeir engu slíku að kviða, úr þvi að annað væri nú með lögum fastákveðið, og mundi mega eiga það undir drengskap sínum. Þorlákur Guðmundsson talaði síðast. Hann. hvað það hafa sýnt sig greinilega að afstöðn- um síðustu kosningum, að þetta kjördæmi hefði borið traust til sín um hart nær fjórð- ung aldar, með því að þá hefði verið kosið til 6 ára — þó að sá tími hefði nú verið skert- ur með þingrofi —, og þar sem framkoma sín á síðasta þingi hefði verið í fullu samræmi við það, sem talað hefði verið á síðasta kjör- fundi, t. d. í stjórnarskrármáli og eptirlauna- máli o. fl., þá vænti hann enn hins sama trausts. Að vísu hefðu verið gerðar athuga- semdir við þingmennsku sína út af brúar-

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.