Ísafold - 19.01.1895, Side 2
10
■Wir.nipeg, svo sem ispióg, er ristir ísinn i
ferstrenda reiti, sem eigi þarf svo annað
en að nota litils háttar sög ogjárnkarl til
þess að losa alveg, en þar til gerðar teng-
nr hafðar tii að ná síðan npp jakastykkj-
unum, sem ern síðan flutt á sleðum í húsið
og hlaðið þar upp snyrtilega eins og tíg-
ulsteini, en allar rifur fylltar muidum klaka
og hellt í vatni, þar tii úr verður samfelid
kiakabreiða, eins þykk og húið er hátt.
Fyrir ísplógnum ganga 2 hestar. Sleði
heflr og verið smíðaður eptir fyrirsögn hr.
J. G., betri miklu en hjer hefir þekkzt
áður. ísinn af Tjörninni, sem ýmsir hafa
imyndað sjer óbrúklegan vegna óhreininda,
synis vera vel tær og fallegur.
Hin rjetta slátrunaraðferð.
í síðasta tölublaði »ísafoldar« (XXII. 2)
er grein eptir doktór J. Jónassen: »Hin
rjetta slátrunaraðferð«.
Óbeit alþýöu á rotunaraðferöinni og að
Ieggja niður gamlan vana við slátrun
sauðfjár hetir hingað til verið nógu mikil,
svo óþarfi virðist vera á það að bæta.
Mjer hafa verið kunnug ummæii þessara
liffræðinga í Frakklandi, sem getið er um
í ánlinnztri grein, en jeg hef metið þau
litils, þvi mótmæli hafa koraið jafnhliða
fram gegn áliti þeirra, og svo trúi jeg
hetur eigin augum og skepnanna, þegar
þær eru að deyja.
Á yngri árum tók jeg lífið af mörg
hundruð skepnum: sauðkindum, hestum og
nautgripum. Hvort orsökin var sú, að jeg
gjörði það betur en aðrir, veit jeg ekki;
en jeg var ætið valinn til að gjöra slíkt,
þar sem jeg var. Þó jeg vegna venj
unnar væri fyrst hugsunarlítill um það,
eins og aðrir, að skepnan hefði hugsun og
greind, þá tók mig opt sárt að sjá, hve
skeþnan varð hrædd og kvaidist mjög,
meðan lífið var tekið af henni. Jeg fór
snemma að taka nákvæmlega eptir augna-
ráði skepnunnar, þegar hún varlögð niður
við blóðtrogið, og þegar búið var að skera
á hálsæðarnar. Sumar fengu líkt yttrliði,
vegna hræðslu og blóðmissis, en margar
fengu teygjur, líkt krampa, augun rang-
hvoifdust og rounnurinn klemmdist fast
utan um fingurinn. Þær Fprikluðu ákaílega
og var auðsjeð á öllu, að þær liðu afar
miklar kvaiir.
Mjer hafði ekki verið sagt það, og jeg
hafðí ekki vitáþví—jeg var þá ungur—t
að sképnan missti meðvitund, þegar að
mænan væri skorin sundur; en af tilviljun
tók jeg eptir því. Jeg skar kind, sem
venju framar ranghvolfdi augunum, þegar
jeg var búinn að skera báðar hálsæðarnar,
svo jeg sá á öllu, að hún kvaldist ákaflega,
meðan hún barðist við dauðann; skar jeg
því í ofboði mænuna sundur þá þegar,
og sá jeg jafnskjótt á augunum, að með-
vitundin hvarf um leið og kvalirnar hættu.
Upp frá því skar jeg aldrei kind svo, að
jeg ekki jafnskjótt skæri mænuna sundur,
og vil jegbiðjaalla góða menn, sem siátra
og þetta lesa, að gjöra slíkt hið sama,
svo lengi sem hálsskurðarvenjan helzt.
Jafnframt því, að jeg skar sauðfje, þeg-
ar jeg var ungnr, skaut jeg hesta og naut-
gripi, og sá naut svæfð'; jeg tók einnig
nákvæmlega eptir augnaráði og hreifingum
þeirra, þegar lííið var að hverfa, og var
það mjög ólíkt hálsskurðinum. Þegar
skotið kom beint í aptari heilann — sem
mjer misheppnaðist aldrei, — þá dó skepnan
á sama augabragði, eins og skiljanlegt >‘r,
því að tiifinning og maðvitund hefir ekki
upptök sín í bióðinu, beldur í herilanum
svo þótt lífs skilyrðið sje tekið frá skepn-
unni með því, að tæma úr henni blóðið
á nokkrum sekúndum eða mínútum, þá
getur iífið eigi horfið jafn-fljótt eins og
þegar eyðilögð eru á Yiooo úr sekúndu.
sjáif upptök iífsins, tilfinningar og mcð"
vitundar. (Sumir gjöra sjer að regiu,—og
átti fyrst að kenna mjer það ungura,—að
viðhalda lífinu sem lengst, svo »vel blæði«
og blóðmörskeppurinn verði sem sfærstur.
Sorglegt hugsunarleysi fyrir tilfinningum
saklausra dýra).
Nú á tímum eru gæðingar hinna upp-
lýstu þjóða að rita um og reyna fyrir
sjer, hver kvalaminnsta og mannúðlegasta
aðferðin sje, til að taka lífið af þeim ol-
bogabörnum hamingjunnar, sem dæmdar
eru til lífláts, og hefir rafmagn með flciru
verið reynt. Mig furðar á þvi, að for-
göngumenn þessara tiirauna skuli eigi hafa
fundið það ráð, að leggja auðnuleysingja
þessa niður við trog, látið halda fótunum,
og svo skorið þá á háls, fyrst líffræðing-
arnir frönsku kveða þann dóm upp, sem
stendur í áminnztri grein, að hálsskurður
sje sú »hin bezta, sársauka-minnsta, lang-
greiðasta og mannúðlegasta« aðferð, að
taka lífið af skepnum. Eptirtektavert er
það, sje lýsing þessi sönn, að hvergi meðal
siðaðra þjóða eru skepnur skornai| á háls
nema hjer á landi. Þær eru ýmist rotaðar
eða stungnar undir bóginn í bjartáð, og
tel jeg eigi eptirbreytnisverða *faina síðari
aðferð, því opt misheppnast að hitta hjart-
að svo, að skepnan deyi undir eins.
Þegar læknarnir ætla að gjöra stórar
»óperatiónir«, þá svæfa þeir sjúklinga sína.
sem svo er kallað, eður gjöra þá meðvit-
undarlausa með »klóróformi«, meðan þeir
eru að skera, svo sjúklingurinn finni' ekki
sársaukann. Sama tilgang höfum vjor,
helgrímumenn ; vjer viljum rota, skepnurn-
ar, svo þær sjeu meðvitundarlausar, meðan
lífið er tekið af þeim. Vjer höfum því
vænzt þess, að læknar væru hlynntir mál-
efninu, þar sem tilgangur vor er sami og
þeirra.
Jeg ætla mjer ekki að standa í deilum
við doktora og líffræðinga um þetta efni;
jeg vil nota annað ráð, sem er einfaldara
og sannfærir landsmenn miklu betur um
það, hver slátrunaraðferð er mannúðlegust
og skepnunum kvalaminnst.
Jeg ætla að biðja þá af löndum mínura,
sem slátra fje, að taka eptir því með
greind og gætni, hvernig augnaráðið er í
sauðkindinni, áður en hún er lögð niður,
og þegar búið er að leggja hana niður
við blóðtrogið, þegar búið er að skera
yfir hálsæðarnar, og svo þegar búið er að
skera sundur mænuna. Eptir breytingum
í augum skepnunnar þarf að taka, opt og
nákvæmlega, þegar maður vill flnna sann-
leikann. Þar næst verða menn að aðgæta
titringinn á aflvöðvunum, meðan blóðrásin
er, og aflraun þá, er skepnan gjörir til að
reyna að losa sig úr þjáningunum, meðan?
kraptarnir eigi þrjóta. í öðru lagi bið jeg
hina sömu menn, að líta á augnaráð og
aðra atburði hestsins, sauðkindarinnar og
nautgripsins, þegar höfuðið er skorið af
þeim eptir að þcssar skepnur hafa verið
rotaðar eða dauðskotnar.
Jeg er sannfærður um, að þeir sjá fljótt
að munurinn er svo mikill, að greinar frá
m.jcr og útlendum líffræðingum eru alveg
óþarfar. Þeir verða fyrir sitt leyti full-
komlega sannfærðir, af því, 'Sem þeir sjá,
hvort kvalaminna er fyrir skepnuna, að
líflð sje tekið af henni með fullri raeðvit-
und og tilfinning, eða þegar hún hefir
enga meðvitund.
Fyrir mitt leytierjeg fullkomlega sann-
færður í þessu efni, hvað sem líflfræðingar'
segja suður í París. En sú er orsök til
þess, að jeg hef ekki enn lagt fram alla
krapta mína til að gera helgrímuna al-
• raenna hjer á landi, að mjer líkar eigi-
lagið fullkomlega enn þá. Til þess að hún
geti komizt »inn á hvert heimili« þarf
hún að vera handhæg og ódýr, og til þess
að jeg vilji óhikað mæla með henni, þarf
hún að vera svo gjörð, að rothöggið aldrei
misheppnist, enda þótt hún sje í höndum
klaufa og viðvaninga. Að helgrímu, sem
áreiðanlega hefir þessa tvo kosti, hef jeg
verið að leita í huga mínum, og hjá öðr-
um innanlands og utan, og vona jeg að
hún finnist áður langur timi líður.
Skyldi svo fara, að einhverjir landsmenn,
mínir legðu trúnað á ummæli þessara út-
landu lijjpsfeðinga, sem doktorinn styður,
þá hef kg við hendina aðra frásögn frá
útlöndljrn, sem er miklu þýðingarmeiri.
I lýðvaldsríkinu Sviss, þar sem sannarlegt
frelsi og matfnúð að margra áliti á sjer
heimkynni frekar en í nokkru öðru landi
í Evrópu, var samþykkt í fyrra haust með-
allsherjar-atkvæði landlýðsins (referendum),
að rota skyldi búfjenað allan, áður en
hann væri skorirm. Þetta var samþykkt
með 200.000 atkvæðum gegn 120.000. Af
þeim, sem á móti voru, voru flestir Gyðingar-
Svissar hafa þó víst þekkt skoðanir
liffræðinganna hjá nágrannaþjóð sinni,
Frökkum.
Tryggvi Gunnarsson.
Rangárvallasýslu 31. des. 1894. Það sent-
af er vetri þessum hefir tíðarfar verið mjög
óstöðugt, opt rigniugar mjög stórgerðar eða
þá frost og snjór; hefir fjenaður því talsvert
hrakazt, einkanlega þar, sem lítt hefir verið
hirt um að hýsa hann eða heyja, en í sum-
um sveituin sýslu þessarar mun eigi enn vera
farið að gefa fullorðnu fje eða hrossum og að
eins fyrir skömmu búið að taka lömb. Er þó
auðsætt, þrátt fyrir það þótt hagbeit sje, að
f.íe leggur af og verður rýrara fyrir slíka með-
ferð. En það er eins og sumir láti sjer seint
segjast, þótt prjedikað sje fyrir þeim að fara
vel með skepnurnar; þeim er mest um að
gjöra að hafa höfðatöluna.
Fjárpest heíir stungið sjer niður í öllum
sveitum hjer, en gert mestan usla í Pijótshiíð
og undir Eyjafjöllum.
Fundur í Stokkseyrarpöntunarfjelaginu var
haldinn 18. þ. m. að Hala, og gerðist þar fátt
sögulegt. Formaður var kjörinn síra Skúli
Skúlason í Odda, í stað amtmanns Páls Briem.
Nýjum lögum útbýtt. Flestir munu ætla að
verða í fjeiagi þessu áfram, og gerir það eink-