Ísafold - 06.04.1895, Side 2
122
að hann verður miklu dýrari en í Keykja-
vik eða þar í grennd. Veit jeg að mjer
kann að verða svarað, að hjer dugi ekki
um sparnað að tala. En nú skulum vjer
gera oss hinar beztu vonir, ef spítali yrði
stofnaður, að þá mundi veikin verða að
mestu yfirunnin eptir 20—25 ár. Hvað
verður þá úr húsinu, ef það væri á af-
skekktum stað ? En væri það í Reykjavík,
mundi það eptir sem áður geta orðið notað
til almennra þjóðþarfa. Því jafnan mun
hjer sem annarsstaðar flnnast einhverjir
geðveikir, sárir og sjúkir. Gerum oss það
Ijóst, að aliir þeir, sem á spítalann flyttust,
eiga einhverja vandamenn eða vini, og að
margir af þeim kveddu þá í síðasta sinn.
Og enn fremur her þess að gæta, að allur
fjöldinn af þessu fólki er vanur að hafa
einhverja vinnu handa á milli. ef hend-
urnar eru til þess færar. Hjer þarf því
eitthvað, sem vegur á móti þessu tvennu,
til að stytta stundirnar, svo að lífið verði
ekki gleðisnauðara en það var. Yæri því
nú bætt ofan á ættingja- og átthagaþrá,
að setja þá á afskekktan stað, þar sem
þeir sæju ekki annað fólk en sína líka, og
þásem þeim hjúkruðu, þá gengi mannúðar-
hliðin á málinu saman.
Tiigangur slíkrar stofnunar, sem hjer
um ræðir, er: 1., að varna útbreiðslu sýk-
innar; 2., að bjarga með lækningum þeim,
sem bjargað kann að verða; — 3., að
stytta kveldskuggana, en ekki iengja,
mýkja helstríðið, en ekki herða.
Enn er eitt ótalið, sem mælir mjög með
því, að spítalinn sje í Reykjavík, en ekki
úti í eyjum. Það er, að læknaskóiinn hafl
einhverjar námsnytjar af stofnuninni, þegar
hún væri komin á fót. Því það er ekki
einskisvirði, að læknar út um landið hafi
einhverja þekkingu á þessum sjúkdómi.
Það er gáta, sem ráða þarf — : hvernig
hefir veikin horflð af sjálfri sjer í sumum
plássum, en aptur komið fram með miklum
krapti í öðrum stöðum. Hver sá, sem
þessu gátu rjeði, hann mundi vinna þessu
máli mikið gagn, og yfir höfuð læknis-
fræðinni i þessari grein.
Smávegis eptir Dr. J. Jónassen.
IV.
Það mun eigi vera neinn vafi á því,
að sjúkdómur sá, sem í útlöndum er
hinn lang-algengasti og jafnframt mann-
skæðasti og nefnist lungnatœring,
sje að færast heldur ískyggilega í vöxt
hjer á landi. Fyrir 20—30 árum síðan
bar mjög lítið á þessari veiki á inn-
lendum mönnum, og væri illa farið, ef
þessi ólæknandi og langvinni sjúkdóm-
ur næði að festa rætur hjer í landi.
Lungnatœring er sjerstö/c brjóstveikis-
tegund, sem lang-optast leggst á yngra
fólk.
Jeg skal hjer stuttlega skýra frá or-
sökum hennar og hverja varúð þarf að
viðhafa til þess að forðast hana.
Það, sem veldur sjúkdómnum er
sjerstök smáögn — baktería — og er hann
þvi nœmur. Það úir og grúir af þess-
ari bakteríu í hinum veiku lungum, og
allar skepnur, sem menn hafa spýtt
þessari bakteriu inn í, hafa veikzt af
henni og fyrr eða siðar drepizt af sömu
veiki, þ. e. drepizt af tæringarveiki í
einhverju líffæri. Þessi baktería er
mjög svipuð þeirri bakteríu, sem menn
hvervetna finna 1 holdsveikum mönnum,
en sá er aðalmunurinn á þeim, að hing-
að til hefir engum tekizt að koma holds-
veiki i nokkra skepnu, sem henni hef-
ir verið spýtt inn i, og ágætismaðurinn
Dr. Daníelsen í Bergen reyndi optar
en einu sinni að bólusetja sjálfan sig
með henni, en það fór á sömu leið og
með skepnur; það sakaði hann ekki
hót.
Sóttnæmið í lungnatæringunni felst i
uppgangi sjúklingsins; í honum úir og
grúir af þessúm skaðvænu smáögnum,
bakterium. Sumir eru miklu móttæki-
legri fyrir þessa sóttnæmi en aðrir, svo
sem þeir, sem hafa átt brjóstveika for-
eldra, þeir, sem lifa i þröngum og lopt-
litlum húsum og við illan aðbúnað að
öðru leyti.
Samkvæmt heilbrigðis-skýrslum hjer-
aðslækna virðist þessi veiki á sumum
stöðum þegar orðin allmögnuð. Guð-
mundur hjeraðslœlcnir Hannesson á Sauð-
árkrók segir svo i skýrslu sinni: »í
heilbrigðislegu tilliti ætla jeg hjeraðinu
mesta hættu búna af tuberculose (— þetta
er almennt nafn á þeirri veiki, sem
nefnd bakteria veldur, hvort sem það
er í lungunum eða öðrum líffærum),
sem jeg ætla að sje hjer mjög svo að
færast í vöxt. Mjer virðist að hjer
horfi til faraldurs af tuberculose, enda
er slikt ekki að furða, þegar hýbýli og
þrifnaður eru á jafnlágu stigi, sem víð-
ast mun vera hjer um sveitir, þó naum-
lega sje það verra en annarsstaðar á
landinu. Mjer er kunnugt um, að á
einum bæ eru nú á nál. 10 árum und-
anförnum dánar 4 persónurúr lungna-
tæring, og að frá þessum bæ hefir veik-
in flutzt á 5 bæi i sveitinni. Mætti
eptir þessu ætla, að horfur framvegis
sjeu ekki góðar. Hjer er að minni
hyggju ekki svo mjög þörf á spitala
og isolation (einangran) fyrir holds-
veiki sem fyrir tuberculose. Enn þá
væri máske unnt að stemma stigu
fyrir veikinni; seinna mun það veita
erfitt«. —
Þetta er sannarlega mjög alvarleg
hugvekja.
Hvernig skal fara að á heimili þar
sem sjúklingur er, sem er veikur af
lungnatæring?
Með því að full vissa er fengin fyrir
því, að sóttnæmið felst í því sem geng-
ur upp úr sjúklingnum með hóstanum,
ríður um fram allt á því að fara var-
lega með uppganginn. Opt hefir mjer
boðið við að sjá, hversu sóðalega og ó-
varlega farið er með það, sem upp úr
brjóstveikum sjúklingum gengur yfir
höfuð að tala; optast hrækir sjúkling-
urinn á gólfið án þess þar sje ílát fyr-
ir, eða í klút; jeg tala ekki um þann
viðbjóð, sem jeg við og við sje, þegar
sjúklingurinn hrækir í hönd annars.
(»taktu við hrákanum®), sem svo slett-
ir því á gólfið eða þurkar í tusku eða
jafnvel í fötin. Setjum svo, að brjóst-
veiki sjúklingsins sje lungnatæring, —
en um það getur að eins læknir borið
— er hættan í því fólgin, að bakterí-
an berist ofan í mann með andardrætt-
inum, en slíkt má verða, ef eitthvað af
uppganginum nær að þorna og sam-
lagast öðru ryki, sem maður þá kann
að anda að sjer. Aldrei ætti það að
eiga sjer stað, að nokkur sjúklingur
með uppgangi frá brjósti hrækti á gólf
eða í klút, því slíkt er viðbjóðslegt,
heldur í eitthvert ilát, en sjerstaklega
er þetta áriðandi, sje um lungnatœring
að rœða. Þá er algjörlega nauðsyn-
legt að sjúklingurinn ávallt hræki í ílát,
t. a. m. í bolla, krukku eða skál eða
eitthvað slíkt, og ætti svo við og við að
hella úr ílátinu og þvo það vel upp, og
ætti ávallt að hafa dálítið af sterkri
karbólsýrublöndu fyrir í því. Nauð-
synlegt er að þvo vel og vandlega gólf,
þiljur, rúmstæði og lopt í því húsi
(herbergi), sem lungnatæringar-sjúkling-
ur hefir legið í og dáið; eins ríður mjög
á því að fara varlega með allan þann
fatnað, sem sjúklingurinn hefir brúkað,
viðra hann vel og þvo allt, sem þveg-
ið verður; óvarlegt er að annar brúki
íveruföt sjúklingsins fyrr en búið er að
viðra þau opt, og síðan láta þau hanga
í hálfan sólarhring í brennisteinssvælu.
Ef þess er nokkur kostur, ætti sjúkl-
ingur, sem veikur er af lungnatæring,
aldrei að liggja innanum heilbrigt fólk.
Pöntunarfjelag Skagflrðinga. Aðal-
fundur var haldinn í fjelaginu að Ási í
Hegranesi 9. og 10. jan. þ. á. Var ákveðið
að halda pöntunum áfram komandi ár, eine
og að undanförnu, við þá hr. L. Zöllner &
Vidalín. Sömu starfsraenn voru valdir innan-
hjeraðs, og ýmislegt undirbúið undir pöntun
næsta ár.
Athugasemdir hr. Bj. Kristjánssonar í við-
aukablöðum Isafoldar hata vakið all mikla
eptirtekt, og þykir sjálfsagt að menn fái eitt-
hvað verulegt að heyra frá þeim Zöllner &
Vídalín til andsvara. Tvísýnt þykir oss,
hvort nokkur maður hefir sannfærzt af grein
Jóns frá ; Reykjum í «Pj.kon« nje grein
Thor Jensens í »Þjóðólfi«, og er hún þó
mun greinilegri en Jóns.
Pöntunarfjelagið
ljet 4307‘/2 pd. ull á .... kr. 2665,85
œðardún 5484/ioo pd. fyrir . . — 462,85
Skinn 192...................■ — 54,32
Sjóvetlinga 98 pör — ... — 22,54
Hross 118 7139,52
Sauði 7779 — ... — 94653,23
Aðrar tekjur (umbúð) . • • — 52,78
_________ kr. 105Ö5LÖ9'
Kaupverð á aðfluttum vörum var kr. 43243,44
Kostnaður á aðfluttum vörum — 13681,40
Peningar til deilda................— 45441,40
Álagning á peningana .... — 1119,92
kr. 103486,16
Fjelagið fær sifellt vöru umfram það, sem
um er beðið, sem er mjög óhentugt, og veld-
ur óánægju.
Póstskipið Laura (Christiansen) lagði af
stað hjeðan sunnudag 31. þ. mán. áleiðis til
Khafnar og með henni þessir kaupmenn og.