Ísafold - 18.05.1895, Qupperneq 2
170
virðingarverðar sniáþjóðir telja góðar og
gildar.
En það hefir enn ekkert orðiö úr þvi,
að þessi skattur kæmist á, af því að menn
hafa iátið stjórnast af tilfinninga næmleik,
sem áreiðanlega er um skör fram. Þótt
kynlegt megi virðast, kemur ekki þessi
viðkvæmni fram hjá ríkinu, þegar ræða
er um »lotteri«, enda þótt það sje með
öllu órjettlátur og óhafandi skattur. í því
efni hugsar ríkiö sem svo: heimurinn vill
iáta blekkjast — þess vegna er bezt að
láta hann fá meira af nýjum lotteríseðlum.
En ný frímerki mega menn ekki fá, þótt
eptir þeim sje æskt. Hvers vegna ekki?
Að minnsta kosti lít ieg svo á, sem þessi
varfærni ríkisins eða póststjórnarinnar eigi
að rýma úr sessi, þegar slíkur alþjóða-
skattur er á lagður undir góðri umsjón i
eindregnu mannúðar-augnamiði. Jeg legg
það því til, að gefin sjeu út ný íslenzk
frímerki í því skyni, að fá fje til stofnun
ar holdsveikisspítala handa þessu fátæka
landi.
Ef nokkur skyldi efast um, að unnt sje
að fá því framgengt, sem fyrir mjer vakir,
þarf jeg ef til vili ekki annað en vekja
athygli ð þvi, sem jeg hef skýrt frá hjer
að framan, og svo bæta, því við, að þegar
póststjórnin tók til sin 1891 gömlu íslenzku
skildingaf'rímerkin, sem verið höfðu í gildi
árin 1872—75 að eins, þá seldi hún islenzk-
um kaupmanni nokkrum afganginn fyrir
7.000 krónur; hann seldi svo frímerkin
aptur málafærslumanni einum í Kaup-
mannahöt'n með miklum ábata, og svo
seldi málafærslumaðurinn aptur hinum og
öðrum. Menn geta að eins gizkað á það
verð, sem fengizt hefir fyrir þessi sjald-
gæfu f'rímerki.
Tillögur mínar eru þær, er nú skal greina:
1. Póststjórnin gefur út ný frímerki
fyrir Island. Þau ættu að vera svo vönd-
uð, sem unnt er, helzt á hverju frímerki
sjerstök mynd af atriðum frá hinni miklu
sagnaöld iandsins (t. d. vfkingur, víkinga-
skip eða lúðurþeytari) eða af binni til-
komumiklu náttúru iaridsins (t. d. Geysir,
Hekla, Eiríksjökull) eða dýralífi þess (t.d.
t. d. hvaiur, sauðkind, hestur með böggum)
eða einh'mrju þess háttar. Auk annars
mundu þessi frímerki draga ferðamenn til
landsins.
Þessi frímerki sjeu í gildi ákveðinn,
stuttan tíma, nokkra mánuði, allt að ári.
2. Póststjórnin búi til reikning yfir tek.j-
ur, sem búazt hefði mátt við af venjulegri
f'rímerkjasöiu á landinu, og bæti við þá
upphæð kostnaðinum við prentun nýju frí
merkjanna. Þessar tvær upphæðir saman
lagðar dragist frá þeirri upphæð. er sa!a
hinna ný útgefnu frímerkja nemur, og af'-
gangurinn, ásamt þeim frímerkjum, sem
eptir verða óseld, þegar þau eru úr gildi
gengin, renni í sjóð til stofnunar holds-
veikisspítalans. Svo mikið sje iagt upp af'
frimerkjunum, sem svarar hinni venjulegu
frímerkjasölu á landinu, ásamt því, sem
þarf til að borga prentunarkostnaðinn, og
svo þeirri upphæð, sem taiið er að spítala
stofnunin muni kosta.
Dr. med. Ehlers.
Uppsigling um Lagarfljótsós m.m.
I «Austra» hefir herra alþm. Jón Jóns
son í Bakkagerði ritað meðal annars um
uppsigling Lagarfi.jótsóss. Þar (í 3. tölubl.
þ. á.) gjörir hann sjer far um að snúa út-
úr fyrir «gömlum Hjerað3búa», er hann
hyggur muni vera sami maður sem áður
hef'ur ritað um ósmálið eða samgöngumál
Hjeraðsbúa undir naf'ninu »Austuriands-
vinur«. Fyrir höfunda þessa, sem mjer
eru alls ókunnugir, dettur mjer ekkií hug
að svara, enda munu þeir færir um það
sjálfir. En grjinar þeirra fara í sömu
stefnu sem hugmyndir mínar um samgöng-
ur milli Hjeraðs og Fjarða; vildi jeg því
með leyfi yðar, hr. ritstjóri, mega leggja
þar orð í belg.
Fyrir 9 árum reit jeg grein í gamla
«Austra» um Fagradalsveginn («Dalbúi«)
að miklu leyti fyrir hvat.ir cand.phil. Páls
heit. Vigfússonar á Hallormsstað; og heflr
enginn orðið til að mótmæla henni meðá-
stæðum. Er .jeg enn sömu skoðunar um
nauðsyn þess vegar sem hins eina áreið
anlega í því efni. En um uppsigling Lag-
arfljótsóss, sem nú lítur út fyrir að sje efst
á dagskrá, að minnsta kosti Uthjeraðsbúa,
er jeg á annari skoðun en hr. Jón í
Bakkagerði. Þótt jeg sje eigi af eigin sjón
kunnugur ósnum, hef jeg um hann sagnir
kunnugra, greindra og gætinna manna, er
jeg óhikult trúi. Og þótt jeg hafi eigi
búið í Hjeraði, er jeg fullvel kunnugur
hinum miklu flutninga-erviðleikum, sem
Hjeraðsbúar eiga við að stríða, og hefl
löngum fundið sárt til þess, hve brýnþörf
þeim er á betri verzlunarvegum en þeir
nú hafa. En því miður óttast .jeg, að von
sú, er þeir gjöra sjer um Lagarfijótsós sem
aðalverzlunarveg, reynist tálvon. Það sem
einkum veldur ótta mínum er brimið og
hafísinn.
Sæta verður landátt til að komast að
ósnum. Sje hafátt, er optast brim, og er
þá eigi skipum fært að liggja á rúmsjóog
afferma þar. En að hleypa inn í ósinn,
þegar svo á stendur, mundi ‘engum þyk.ja
fýsilegt, enda mundi þá eigi vandalaust
að kanna dýpið eða hitta á, hvar állinn er
dýpstur, þar sem brimið brcytir honum á
hverri stundu fram og aptur. En hafátt
og brim er altitt á Austfjörðum, og það
enda mánuðum saman.
Þá er hafísinn alkunnur vogestur á Aust-
fjörðum. Liggur hann þar þrálega við
land fram til sláttaru'ina og stundum til
höfuðdags, sem kunnugt er. Þótt nú ísinn
sje sm.júgandi, eins og opt er, og komizt
yrði að ósnum, mundi hann g.jöra skipi ó-
mögulegt að ligg.ja ept.ir lagi við ósinn,
þar sem hann rekur fram og aptur fyrir
straumunum.
Engri átt nær það, að raiða við næstlið
ið sumar, sem var svo einstalct að veður-
blíðu og ró á sjó og landi; og því neitar
víst enginn, að þegar svo á stendur megi
takast að komast um ósinn. En það er
því miður svo sjaldgæft, að menn ei i því
að fagna. Þó kunna þeir, er yzt búa á
IJjeraðinu, að geta liaft gott af því að nota
slík tækif'æri til að ná að sjer vörura; en
lítið ljettir það fyrir Upphjeraðsbúum.
Því mun og eigi neitað, að með nógu
fje muni klejrft að »yfirvinna torfærurnar
við Steinbogann«, byggja vöru geymsluhús
við fossinn undan Kirkjubæ, leggja spor-
braut upp fyrir hann, og hafa gufubáta-
ferðir eptir Fljótinu. «svo langt sem það
nær»(?l) — en að hver.ju gagni kemur allt
þetta, ef vörunum verður eigi komið inn í
ósinn allt sumarið? og þetta máske sum-
ar eptir sumar.
Jegtelþvi mikið varasamt fyrir þing eða
þ.jóð að leggja stórfje ísvo ískyggilegt fyrir-
tæki. Sízt mundi jeg telja úr, að hr. kaup-
maður 0. Wathne nyti styrks af landsfje,
ef hann beitti hinum mikla dugnaði sínum
og framkvæmdarsama góða vilja þar að,
er viss not gætu að orðið; væri óskandi
að vjer ættum marga lians líka. En þótt
honum tækist að vinna stórvirki, sem svo
yrði að litlum eða engum notum, tel .jeg
honum það engan sæmdarauka. Það væri
og miður farið, ef hann l.jeti ginnast af
vanhugsuðum fortölum einstakra manna.
meðan hann er ekki nærri svo kunnugur
sem þyrfti harðýðgi náttúrunnar hjer við
la.nd.
Áður en kostað er fje að mun til að
Ijetta samgöngur Hjeraðsbúa, væri full
þörf á, að vegfræðingur (helzt Sig. Thor-
oddsen) skoðaði og kynnti sjer allt sem að
því efni lýtur, svo nákvæmlega sem unnt
er.
Fagridalur er sá eini vegur milli Hjer-
aðs og Fjarða, sem vafalaust getur orðið
að fullum notum. Af' því hann er lítið
hærri en sveitirnar, sem að honura liggja,
er hann optast fær eins og þær. Hovde-
nak mun hafa verið honum ókunnugur;
hann skoðaði aðeins heiðarnar til Seyðis-
fjarðar (sjá skýrslu hans í Andvara 1885),
en liklega heflr honum lítið verið kurin-
ugt um snjóþyngslin þar. Sje Fjarðar-
heiði að mestu sn.jólaus 2—3 mánuði árs-
ins, má gott heita. Akbraut milli Hjeraðs
og Seyðisfjarðar mundi því að litlum not-
um. en þar á mót yrði akbraut á Fagra-
dal að fyllstu notum, og eigi dýrara að
leggja hana þar en um flatlenda sveit.
Búðareyri yrði »e*ndastöð Eagradalsbraut-
ar» Fjarðamegin. «Austri» g.jörir skop að
höfninni þar, vcgna þess að guf'uskip hafl
slitið þar upp í af'takarokinu um árslokin;
en hann ber höfninni þó óvart bezta vitn-
isburð utn leið; botninn hjelt eptir öllum
akkerum! Hvasst getur einnig orðið á Seyð-
isfirði og það engu síður en á Reyðar-
firði. Jeg hefl sjeð skip brjóta upp á Seyð-
isflröi, en það dró akkerin með sjer. Og
hvesst heflr á Vestdalseyrarkirkju!
Komi góður vegur um Fagradal að
Lagarfljóti, hygg jeg að verzlunarstað-
ur myndaðist þar, t. d. á Egilsstöð-
um, sem er h.jer um bil middepill Hjer-
aðsins, og mundu Hjeraðsmenn þá eigi
þurfa lengra eptir nauðsvnjum sínum að
jafnaði. Þá gæti gufubátur á Fl.jótinu fyr-
ir ofan f'oss orðið að fullutn notum. Þeg-
ar svo væri komið, tæki eflaust Fljótsdals-
hjerað öllum hjeruðum landsins f'ram. að
fegurð, auðlegð og fleiri gæðum.
í maí 1895.
Eyjólfur Þorsteinsson
frá Berufiiði.