Ísafold - 18.05.1895, Page 3
171
Þjóðólfs-lokleysan.
í síðasta blaði ísafoldar rnótmælti jeg
|)eirri lokleysu »Þjóðólfs«, að heimkoma
xnín hljóti endilega að vera sönnun fyrir
þvi, að þeim 15 þúsundum íslenzkra manna,
sem í Vesturheimi eru, liði svo og svo
illa, og að jeg hafl að undanförnu verið
«•0 skrökva í Lögbergi um hag þeirra.
Ritstióri »Þjóðólt's« lsetur sem sjer þyki það
mjög óviðurkvæmilegt, að jeg skuli ekki
taka slíkri röksemdaleiðslu þegjandi eða
með þökkura, og í tilefni af því lætur
hann blað sitt flytja hjer um bil tveggja
dálka grein um mig.
Bókstaflega sagt um mig — því að ekki
ber hann við að minnast einu orði á um-
ræðuefnið, sem okkur greinir ;l um, það,
hvort heimkoma mín s.je sönnun fyrir því,
«em hann telur hana sanna. í stað þess
svarar hann mjer með því, að prenta
öþverrakafla um mig eptir Winnipeg-
frjettaritarann sinn makalausa, kafla, sem
hann hefur ekki rtður getað fengið af sjer
að prenta vegna þess, hvað hann er lubba-
^egur. Þessi brjefkafli kemur ekki einu
s*nni svo rnikið tnálinu við, að heimferð
'ffiín sje þar sett í samband við eymdar-
ástand Vestur íslendinga, heldur ætti að
naega ráða af honum hið gagnstæða, ef
nokkuð yrði annars ráðið af slíkum þvætt-
ingi, því að þar er talað urn fje mikið,
sem Vestur íslendittgar muni leggja fram
til þess, að koma mjer af höndum sjer
Úr því nú ritstjórinn leggur svona alger-
lega niður rófuna og reynir að laumast
burt frá lokleysu sinni, þá þarf jeg ekki
að ræða það við hann frekaru, sem okkur
hefir greint á um. Því að ekki fer jeg að
deila við hann urn mína prívat hagi. Um
þá skal jeg lofa honum og Eldon að hafa
orðið einum. Þar á naumast við annað
svar, en það sem manninum varð að orði,
þegar hrækt var framan í hann: »Det
san være meget godt, men det beviser
ífigen Ting«.
Að eins skal jeg leyfa mjer að bæta því
við, að það æt.ti að vera nokkurn veginn
Ijós bending um það, hve heppinn ritstjóri
»Þjóðólfs« hefur verið i vali frjettaritara
þar vestra, að sá írjettaritari skuli senda
honum svo óþverralega brjefakafla, að
hann sjálíur, Þjóðólfs-ritstjórinn, ekki næm-
ari tilflnningar en hann hefur sem blaða-
maður, skud ekki geta fengið af sjer að
prenta slíkt fyr en hann er orðinn reiður.
Kinar IJjörleifsson.
Póstskipið Laura kom at Vestfjörðum
aptur 15. þ. in. og hjelt at stað Áleiðis til
Khafnar þá um kveldið. Fór margt fólk með
henni, þar á meðal amtmannsírá C. Jonassen,
t)r. Björn M. Ólsen, kaupin. G. Zoega og J>.
Kgilsson o. fl. Sömuleiðis tvennar skipshatn-
ir af strönduðum skipum.
Giufuskipið Stamford trá Newcastle (Zöll-
ner & Co.) kom hingab daginn eptir ab post-
skipib fór, með vörur til Brydes verzlunar;
hatði atíermt nokkuð á Akranesi, til kaupm.
Thor Jensens, og fór degi síðar með aigang-
inn austur á Stokkseyri, handa Pöntunarfje-
iagi Arnesinga.
Vogagerð. í gær lagði lyrsti vegageröar-
flokkurinn af stað hjeðan, upp á Hellisheiði,
undir forustu Erlends Zakaríassonar. Þeir
verða yfir 40 í hóp og eiga að Ijúka vib það
sem eptir er af leiðiuni, háheiðina, um 5rast-
ir, og að því búnu að gera veg frá því skammt
iyrir neðauKamba og austur ylir Varmá, sem
mun vera nær ;5 röstum. Verði þessari vega
geið, alls 1 mílu vegar, lokið íyrir haustið,
eins og til stendur, er loks komin akbraut
alla leið frá Reykjavik austur að Ölfusár-
brúnni, að fráskildum nokkrum spölframmeb
Ingóltsfjalli, þar sem er að eins reiðvegur, og
með því móti ab umbættur sje Svínahrauns-
vegurinn (borið ofan í hann á löngum kafla,
að minnsta kosti).
Þilskipaafli sagður góður á Vesffjöröum.
einkum Arnarfirði (Bíldudal). H jer helir hann
og lánazt íremur vel, mörg skipin tengið 10
—12 þús. til lolca, fleiri þó minna.
Skúlamálið. Stjórnin vill ekki setja Skúla
aptur inn í sýslumannsembættib á ísaflrði,
heldur býður honum Rangárvallasýslu. en
hann mun ekki vilja þiggja, heldur kýs lög-
urn samkvæmt fremur algerba lausn trá em-
bætti með löglegum eptirlaunum, þ. e. um
helming embættisteknanna ísflrzku. Er ekki
ólíklegt, að honum þyki sjálfum þau málalok
hin girnilegustu eptir atvikum. En landssjóði
eru þau miður holl.
SigiiníJ. Þessi kaupskip fiingað komin frá
því síðast.
Maí (3. «James Walker» (71), frá Huli með
kol o. fl. til Sturlu Jónssonar; ætlað til fiski-
veiða.
8. íOcean Belle» (285, D. Baker) frá Liver-
pool meb salt til G. Zoega & Co.
18. «Johanne» (66, Nielsen) írá Khöt'n með
alls konar vörur til Brydes-verzlunar.
17. «Axel» (67, J. M. Hansen) frá Khöfn
með alls konar vörur til II. Th. A. Thomsens.
Sjónleíkirnir dönsku. Það er mikið á-
litlegt «prógrammið» þeirra fjelaga til næsta
kvelds, einkanlega «Elskovsdrikken»; 4 leikir
alls.
Sparisjóður Árnessýslu, á Eyr-
arbakka, gefur 3 kr. 60 au. i vöxtu
af 100 kr. um árið, eður liærra en
flestir sparisjóðir; heflr góða tryggingu.
Er opinn daglega fyrir langferðamenn.
Kjörþing
fyrir K.jósar og Gullbringusýslu til þess
að kjó-a alþingismann fyrir kjördæmið til
næstú 5 ára eptir fyrirskipun Landshöfð-
ingja verður haldið í Goodtemplarhúsiim í
Hafnarflrði laugardaginn Jiinn 15. júní
næsikom. og byr.jar kl. 12 a hád.
Skrifst. Kjósar- og Gullbringus. 11. mai 1895.
Franz Siemsen.
Jeg undirskrifaður
gjöri hjer með kunnugt, að jeg hefl
aptur tekið að mjer starf'a þann, sem .jeg
áður hafði á hendi á verkstofu skraddara-
meistara íí. Andersens hjer í bænum;
apturkalla ,jeg því hjer með og týsi ógild-
ar auglýsingar mínar i blaðinu »ísafold«,
XXri. árg.. nr. 35 og 40, 20. april og 8. maf
þ. á., en skuldbind mig til eptii-ieiðis að
leysa af hendi alla vinnu, sem jeg hef á
verkstofu nefnds H. Andersens, svo fijótt,
vel og trúlega, sem f'rekast er kostur á
h.jer á laudi; svo lofa jeg einnig í fjærveru
II. Andersens að sjá um, aö öl 1 vinna á
verkstof'u hans veröi leyst eins fljótt og
vel af' hendi, eins og þegar hann sjálfur
er við, og í einu og öllu að stunda lians
-gagn eins og mitt eigið.
Reykjavik 17. maí 1895.
N. Bengtsson,
skraddari.
Gufubáturiim „0DDUR“.
Eptir í dag gerðum samningi við sýslu-
nefndirnar í Arness- og Rangárvallasýslum,
fer gufubáturinn »Oddur« £ sumar eptir-
taldar 7 ferðir:
1. milli 18.—26. mai :
Milli Þórshafnar, Grindavíkur, Selvogs, Þor-
lákshafnar, — Eyrarbakka.
2. milli 28. maí — 6. júní :
Milli Eyrarbakka, Stokkseyrar, Landeyja —
Eyjafjalla.
3. milli 8.—12. júni :
Milli Grindavíkur, Selvogs, Þorlákshafnar
— Eyrarbakka.
4. milli 19.—27. júní :
Milli Reykjavíkur, Hafnarfjaröar, Keflavík-
ur, Þorlákshafnar — Eyrarbakka.
5. milli 1,—7. júlí:
Milli Eyrarbakka, Stokksevrar, Landeyja —
Eyjafjalla.
6. milli 9. —17. júlí:
Milli Reykjavíkur, Hafnarfjarðar. Keflavík-
ur, Þorlákshafnar — Evrarbakka.
7. milli 19___26. júli:
Milli Eyrarbakka, Stokkseyrar, Landeyja
— Eyjafjalla.
Þeir, sem senda eóss með bátnum, eiga
að setja skýrt einkenni og aðflutningsstað
á hvern hlut (Collo).
A tilvísunarbrjeflnu, sem ávallt á að fyigja
hverri sendingu, á sá, er sendir, að skýra
frá innihaldi, þyngd (bruttovigt) eða stærð
hvers hlutar (Collo).
Menu eiga að skila og taka á móti góss-
intt við hlið skipsins á öilum viðkomustöð-
um. A Eyrarbakka verður annazt um upp-
og útskipun fyrir væga borgun.
Eyrarbakka, 30. apríl 1895.
P. Nielsen.
WilHIBIIIIIIIWIHmjJllllliJllUlnlL'.miJ.illillB
ö<y ægte Normal-Kafl'e
. (Fabrikken
eX
»Nörrejylland«),
sem er miklu ódýrra, bragðbetra og
hollara en nokkub annað kaffi.
Fundizt heíir hjer A götum bæjarins, í gær,
blikkdós með brauðmerkjum í (A. F.). Vitja
má að Nýjabæ við Bakkastíg.
Tímarit handa Ijósmæðrum.
„Tidskrift for Jordemödre. fíedigeret af
Dr. Th. B Hansen. Kemur út i Kaupmanna-
höfn og Kristjaníu einu sinni á mánuði.
5. árgangur hófst 1. október 1894. Ár-
gangurinn kostar 2 kr. Burðargjald undir
árg. með póstum cr 36 aur.
Rit þetta má panta hjá bókaverzlun
minni, en borgun árgangsins verður að
fyigja pöntuninni og burðargjaid að auk,
ef kaupendur vil ja fá það sent með póstum.
Sig'fús Eymundsson.
Til verzlunar
H. Th. A. Thomsens
kotn aptur i gærdng skip frá útlöndum,
hlaðið af vörum. Þegar búið er að pnkka
upp má sjá mikið úrval af alls konar
þarflegum og lientugum vörum í liúpinni.
Það þarf varla að benda á það, hversu
hagkvæmt það er fyrir kaupendurna, að
hafa úr mörgu að vel.ja; með því móti
geta þeir fengið einmitt þann hlut, sem
bezt hentar, vandaöan eða ódýran.
Verðið mjög lágt, einkum möti pen-
ingaborgun.