Ísafold - 17.07.1895, Side 3
239
til aðstoðar 2 tingfrúr aðrar, Miss Rnth
Shaffner, sem er handritari hennar, og Miss
Nana Pratt sem hraðritara. Miss Acker-
mann er mesti ferðagarpur og fullhugi,
hefir vanizt mjög svo margvíslegu ferða-
lagi, t. d. á filum í Asíu, úlföldum í Af-
riku, á hjólbörum í Kína o. s. frv.; farið
þvera Ástralíu m. m. Hún og þær föru-
nautar liennar dvelja hjer í bænum nokk-
urn tíma, ætla síðan landveg norður á
Akureyri og jafnvel víðarum land,helzt jafn-
vel einar síns liðs. Verður jafnmerkilegum
gestum væntanlega vel fagnað, ekki sízt
af bindindisliði landsins.
Gufuskipiö Stainford (300 smálestir, J.
Gemre) kom hingað í gærkveldi frá Englandi
með ýmsar vörur og eptir hrossaf'armi fyrir
Zöllner og Vídalfn.
Gufuskipið Bothnia, eitt af skipum »hins
samoinaða gufuskipafjeiags« (578 smál., J. O.
Holm), kom hingeð í fyrra dag og með því
allmargir farþegar, útlendir og innlendir.
Dr. Edv. Ehlers holdsveikislæknir og þeir
íjelagar lians 3, sem áður er getið: Dr. Cahn-
heim, Dr. Eickmúller og Dr. Gro.ssmann, komu
með þessu póstskipi, eins og til stóð, og
leggja af stað í fyrirhugaða landferð sína á
morgun.
Heiðursnaerki. Konungur vor hefir 24.
f. m. sæmt landfógeta A. Thorsteinsson, r. af
dbr., með hoiðursmerki dannebrogsraanna.
Heimdals-liðinu fagnað. Tillaga ísa-
foldar um daginn, að sýna þeim einhver fagn-
aöarhót fyrir vel rekið erindi gegn botnvörpu-
ribböldunum ensku, fjekk beztu undirtektir.
tCók þorri alþlngismanna fyrir forgöngu ,hr.
Tr. Gunnarssonar bankastjóra sig saman að
bjóða j'firmönnum skipsins í útreið m. m„ er
all-margir heldri bæjarmenn tóku einnig þátt
í og urðu fullir B0 saman, er hjeldu í einni
fylkingu upp i Itauðhóla í gær, í bezta veðri
®g blíðasta. Var þar staldrað við um hrið,
og minni drukkin. Mælti biskup fyrir minni
konungs, Klemens sýslum. Jónsson fyrir minni
Heimdals-liða, með þakklæti í nafni þings og
þjóðar fyrir frammistöðuna, en þeir Schultz
yfirforingi og prinz Carl þökkuðu og mæltu
fyrir minni Islands m. m. Degar heim kom
aptur í gærkveldi höfðu nokkrar heldri konur
bæjarins fyrirbúið heiðursgestunum og föru-
nautum þeirra viðhafnarlausan kveldverð á
»hótelReykjavík*.er allmargir bæjarmenn aðrir
tóku einnig þátt í, svo að um 100 manns voru
í því samkvæmi, karlar og konur. Þá var
dansað um hríð á eptir, og þess í milli hafzt
við í alþingisgarðinum, sem nú er orðiun
mjög svo snotur 0g þægilega útbúinn, með
tjaldbúð allmikilli og fl., fyrir framkvæmd hr-
Tr. Gunnarssonar; en lúðrasveit hr. Helga
Helgasonar skemmti prýðilega með sinni list.
Fór mannfagnaður sá allur mikið vel fram.
Þjóðhátíð Frakka. Herskipið franska La
Manche hjelt þjóðhátíð lands síns hjer á höfn-
inni sunnudag 14 þ. m. (Bastilledaginn) nieð
venjulegri viðhöfn: veifuskrúði, fallbyssuskot-
um, samkvæmi, — morgunverði þar sem boðn-
ir voru landshöfðingi og fáeinir embættismenn
aðrir úr bænum, ásamt yflrmönnum á danska
herskipinu >Heimdal«, er hjer lá þá líka og
tók að öðru leyti þátt í hátíðabrigðum Frakka
fyrir kurteisis sakir. I annan stað höfðu dát-
ar á »La Manche« boðið fjelögum sínum á
«HeimdaD til miðdegisverðar. Af landsmanna
hálfu var það gert til samfagnaðar, að gufu-
báturinn >Elín« fór um morguninn hlaðinn
íólki umhverfis >LaManohe« og með lúðrasveit
hr. Helga Helgasouar, er flut.ti þjóðsöng Frakka
(La Marseillaise) nokkrum sinnum, en liðið
allt á herskipinu, yfirmenn og undirgefnir,
hlýddi á berhöíðað og laust upp margföldu
fagnaðarópi. Siðan kvaddi söngflokkurinn
einnig »Heimdal« með »Kong Kristjun stod
ved heien Mast«, og var mætavel tekid.
Erá íslendiugum í Aisicríkn. t»i ír ís-
lendingar hafa í vor útskrilMZt ,úr Gústav
Adolfs latinuskólanum í St. Peter í Minnesota:
Thomas H. Johnson frá Baldur, Man., Run-
óllur Marteinsson úr Winnipeg (systursonur
sira Jóns Bjarnasonar) ogBrandur J. Brands-
son frá Gardar í Norður Dakota — allir með
loflegum vitnisbui ði. — Frá prestaskóla Lúters-
trúarmanna i Filadelfíu hetur Þorkell Ó. Sig-
urðsson útskrifazt í vor, ætlar að gerast prest-
ur íslendinga í Argyle og átti að vig,jast á
kirkjuþinginu í sumar. Svo hefur og lækna-
skólakandídat Óiafur Stephensen (frá Vatns-
firði) tekið próf í vor við læknaskólann í
Winnipeg, og er nú læknir þar í borginni.
Eptirmæii. Dáinu er 24. mal þ. á Brynjólf-
ur bóndi í Gerði á Akranesi, Brynjólfsson
Teitssonar hins kynsæla Sveinssonar, sem
kominn varaf fátæku tólki i Skagafirði. (Frændi
hans var séra Sveinn sál. Skúlason). Teitur
átti konu Guðríði Gunnarsdóttur merkismanns
í Skagafirði; hann bjó í Örfirisey (Efiersey)
á 18 öld; þá var þar byggð; varð verkstjóri
ullarverksmiðju í Reykjavík; var mesta lipur-
menni og listamaður. BörnTeits voru mörg og
mannvænleg, og er mikil ætter frá honum komin.
1. var Arndís gipt Einnboga, móðir Teits dýra-
læknis í Reykjavík, séra ‘Jakobs á Steinnesi
og þeirra systzkina; 2., Þórunn gipt Magnúsi
Bergmann, móðir Teits gullsmiðs í Litlabæ^
Guðríðar konu sjera Geirs Bakkamanns og
þeirra systkina, 8., Þuríður gipt Gísla bónda
í Neðrihrepp, móðir Jóns bónda á Súlunesi
og hans systskina; 4., Guðmundur giptur
Ástríði dóttur Óiafs smiðs frá Kalastaðarkoti
faðir Guðmundar bónda á Krossi og þeirra
bræðra; 5 , Brynjólfur áðurr.efndur sem var
uppalinn hjá konferenzráði Maguúsi Stephen-
sen á Jnnrahólmi og giptist þaðan Margréti
þjóliustustúlku Brandsdótturaf borgfirzku kyni
móður Brynjólfs heitins í Gerði og hans syst-
kina: Bjarna dannebrogsmannsá Kjaransstöð-
um, Teits bónda á Kúlu, Guðbrands, Guðríð-
ar. Guðrúnar, og Margiétar og Magnúsar
hreppstjóra og dannebrogsmanns á Dysjum.
Fleiri börn átti Teitur Sveinsson en hjer eru
talin og öll höfðu þau, eins og allir hans af-
komendur, þettagóða einkenni; lipurð og Ijúf-
mennsku — fáir auðsæld, en fleiri heilsutæp-
ir.
Brynjólfur heitinn fæddist í Gerði 21. ágúst
1819, var þannig á 76. aldurs ári er hann ljezt;
að frá teknum nokkrum árum i uppvextinum
ól hann allan sinn aldur í Gerði, þar bjó hann
sem bóndi í íull 50 ár; hanu var tvíkvæntur,
17 ár Guðnýu Nikulásdóttur, og 26 ár Hali-
dóru Sveinsdóttur, sem líka er látin; með fyrri
konunni átti hann 6 börn og eru 3 á lííi, en
með hinni síðari 8 börn, 1 á lííi. Brynjóltur
heitinn var maður vaudaður í allri framkomu,
skyldurækinn í allri sinni köllun, ljúfur og
viðfeldinn í umgengni við alla, gestrisinn og
greiðasamur eptir megni; lífskjör hans voru
opt blönduð sorg og söknuði, efnin voru aldrei
mikil en guðsótti og nægjusemi, sem honum
var tamast, var honum mikill ávinningur.
Sá sem er trúr yflr litlu, mun verða settur
yfir meira. H. J.
Fundizt hafa hláar »lorgnetter« á götum
um bæjarins. Yitja má á afgreiðslustofu Isa-
foldar.
Proclauia.
Eptir lögum 12. apríl 1878 og opnu br.
4. jan. 1861 er hjer meö skorað ;i alla þá
sem til skulda telja í dánarbúí Iíelgu
Bjarnadóttur frá Esjubergi, sem andaðist
hinn 22. marz þ. á. að tilkynna og sanna
kröfur sínar fyiir undirskrifuðum skipta-
ráðanda innan 6 mánaða frá síðustu birt-
ingu auglýsingar þessarar. Jafnframt
er skorað á þá, sem skulda tjeðu búi, að
borga skuldir sínar innan greinds tíma, að
öðrum kosti verða þeir lögsóttir.
Skriístofu Kjósar- og Gullbr.s. ll.júlí 1895
Franz Siemseir_______________________
Proclama.
Eptir lögum 12. apríl 1878 sbr. op. brjet
4. jan. 1861 er bjer með skorað á aila þá,
sem til skulda telja í fjelagsbúi þeirra
hjóna, past. emer. síra Kjartans Jönssonar
á Eiiiðavatni, sem andaðist hinn 1. marz
þ, og eptirlifandi ekkju hans, Ragn-
hildar Gísladóttur, að framkomu með kröf-
ur sinar og sanna þær innan 6 mánaða
frá síðustu birtiugu auglýsingar þessarar
fyrir undirrituðum skiptaráðanda.
Skrifstofu Kjósar- og Gullbringusýslu
10. júli 1895.
Franz Siemsen.
*i.. Uppboösauglýsing-.
Laugai-daginn 20. þ. m. kl. 11 f. hád.
verður opinbert uppboð haldið í húsinu
nr. 3 í Aðalstræti til að selja tóma kassa,
poka, stðla, kopiupressu,decimalvog, sæng-
urföt, prjónamaskínu, íverufatnað, ýms
smiðatól, áhöld til tannlækninga, og tanna-
tilbúnings, bækur o.fl., allt tiiheyrandi dán-
arbúum Þorþjarnar kaupm. Jónassonar og
O. bliekolin tannlæknis.
Söluskilmálar verða birtir á undan upp-
boðinu.
Bæjarfógetinn I Reykjavik 13. júlí 1895.
_ Halldór Danielsson
Stj ör nu-h eilsu d r ykkur.
Stjörnu-heilsudrykkurinn skarar fram úr
alls konar
„Lifs-Elixír",
sem menn allt til þessa tíma bera
kennsli á, bæði sem kröptugtlæknislyf
og sem ilmsætur og bragðgóður drykk-
ur. Hann er ágætur læknisdómur til
að afstýra hvers konar sjúkdómum,
sem koma af veiklaðri meltingu, og eru
áhrif hans stórmjög styrkjandi allan
líkamann, hressandi hugann og gefandi
Sóða matarlyst. Ef maður stöðugt,
kvöld og morgna, neytir einnar til
tveggja teskeiða af þessum ágæta heilsu-
drykk í brennivíni, vini, kaffi, te eða
vatní, getur maður varðveitt heilsu sina
til eísta aldurs.
I»etta er ekkert skrum.
Einkasölu hetir
Edv. Christensen.
Kjöbenhavn K.
Fundizt hegr 9. þ. m. á Tungu í Grafningi
2 hestar, annar dökkskjóttur marklaus, nýlega
járnaður með nýjum skaifum ppttuðum átún-
um, vel vakur og viljugar; hinn móbrúnn með
marki stýft hægra; járnaður með óvönduðum
skeitum, klárgengur og viljugur. Hestanna má
vitja til Sigurðar Sigurðssonar á Tungu i
Grafningi gegn hirðingarlaunum og auglýsing-
argjaldi. __________________
Gleraugna, sem fundizt hafa, má vitja til
Jónasar Jóussouar á Laugaveg. Auglýs.borgist.