Ísafold - 20.07.1895, Blaðsíða 2

Ísafold - 20.07.1895, Blaðsíða 2
242 fregnritan yðar, því þá, er leyfi þettajatn- skjótt hafið. Alþingi 17. júlí 1895. B. Sveinsson. 'Til Herra cand. Einars Hjörleifssonar Reykjavík.» Forsetinn hafði svo mikið við þettaieyf- is- og áminningarbrjef sitt, að lesa það fyrir þingdeildinniúmþaðleytisem það fórafstað. Mjer finnst því ekki nema tilhlýðilegkurt- eisi af mjer að kvitta fyrir það opinbef- lega. Um leið og jeg þá þakka fyrir leyfið og get þess, að jeg mun nota það, þegar ritstjórn ísafoldar þykir ástæða til, meðan ])að stendur, skal jeg taka það fram, að jeg er dauðhræddur um, að þar kunni ef til vill ekki að vera tjaldað nema til einn- ar nætur. Jeg tek þetta fram til þess að Íesendur ísafoldar skuli geta verið viðþví búnir og verði ekki alveg standandihissa, «f svo hörmulega skyldi nú til takast, að forsetinn svipti mig apturþessu leyfi. Því að það vill svo óheppilega til fyrir mig, að það er ekki á mínu valdi að halda þessu leyfi, hvað mikið sem jeg legg mig í framkróka. Leyfið er því skilyrði bundið, að jeg ekki annað sinn eða optar gefi forsetanum eður þá öðrum þingmönn- um eða flokkum þingdeildarinnar tilefni til umkvörtunar eða kæru út af fregnrit- ■an minni. Jeg bið menn að taka vel eptir þessum orðum «f annað sinn eða optar». Með því er sagt, að jeg þegar hafi gefið tiiefni til umkvörtunar eða kæru. Engum blöðum er um það að fletta, að átt er við það, að jeg hafi gefið forsetanum það tiiefni. Og með því að engin sönnun er enn komin fram fyrir því, að nokkrum öðrum en hon- um hafi fundizt það tilefni vera ann- að en hugarburður og endileysa, þá er það sýnilegt, að það er hann, kærandinn, sem á að skera úr því, hvort tilefnið sje uokkurt eða ekkert. Jeg geri mjer í hugarlund, að forsetinn muni ætla að gera öðrum þingdeildar- mönnum, er eitthvað kunna að þykjast meiddir af fregnritan minni, jafn-hátt und- ir höfði í þessu efni eins og sjálfum sjer. FTiðurstaðan verður þá sú, að það á að taka ieyfið aptur, hvenær sem einhver þittgdeildarmaður álítur að hann hafl til- efni til umkvörtunar eða kæru, eða af einhverjum ástæðum reynir að teljamönn- Um trú um að hann hafl fengið það til- efni. Hvenær sem slik köst hlaupa í ein- hvern þingdeildarmanninn — segjumhann verði sjer að allrar þingdeildarinnar dómi til minnkunar og verði vondur út af því að blaðið skýri alveg rjett og nákvæm- lega frá háttalagi hans —, þá á að svipta ísafold öllu færi á að flytja þingfrjettir á sama hátt og viðgengst hjá öllum þjóðum heimsins, sem þing hafa. Og með því að ísafold er eina blaðið á landinu, sem stærð- ar sinnar vegna getur flutt slíkar frjettir, þótt af skornum skammti sje auðvitað, þá á að girða fyrir það, að þjóðin eigi nokk- urn kost á að fá slíkar frjettir af löggjaf- arþingi sínu — hvenær sem einhver einn þingmaður verðnr óánægður með þær.eða vill af öðrum ásfcæðum, að svo sýnist sem hann telji sig hafa tilefni til að vera óá- nægður! — Já, jeg þakka fyrir ieyfið. Og í þakk- lætis geðshræring minni get eigi þeirra orða bundizt, að mikið er frjálslyndi hins allrá- ypparsta þjóðfrelsisleiðtoga þessa lands! Einar Hjörleifsson. Eptirmæli. Magnús Mágnússon. I aprílmánuði 1894 andaðist Magnús Magnússon, er tyrrum bjó í Syðralangholti í Hrunamannahrepp. Hann var fæddur á Berghyl í sömu sveit 1831, og var sonur Magnú^ar hreppstjóra Andr jessonar, er síðar varð alþingismaður, og Katrínar Eiríksdóttur, dannebrogsmanns áReykjum, hins eldra, en bróðir Helga i Birtingahölti, Sigurð- ar á Kópsvatni og þeirra syzkina. Magnús fluttist ungur með foreldrum sinum að Syðra- langholti og ólst þar upp með þeim; 1856 kvæntist hann Katrínu Jónsdóttur, dannebrogs- manns á Kópsvatni, merkiskonu, og tók þá við hálfri jörðinni Syðralangholti; bjó hann þar þangað til 1881, að hann missti konu sína. Brá hann þá búi og dvaldi eptir það á ýms- um stöðum, lengst af í Reykjavík. Þau hjón éignuðust alís 11 börn. Af þeim komust 7 upp og mönnuðúst öll vel. Þau eru: Eggert, til heimilis á Staðarhrauni, Katrin, kona Guð- brandar skósmiðs Þórðarsonar í Reykjavík, Jón búfræðingur í Ólafsdal. Sigriður, kona SveinsbÓDdaBjarnasonarí Bergsholtskoti í Stað arsveit, Jóhanna Katrín, kona sjera Stef- áns Jónssonar á Staðarhrauni, Kristján, til heimilis í Unnarholti í Hrunamannahrepp og Helgi, við járnsmíðisnám í Reykjavík. Magnús sál. var mikill mannkostamaður. Hann vár trúrækinn maður og vandaður, góð- gjarn og greiðasamur, stillingarmaðurog prúð- ur í dagfari, en jafnframt glaðvær og skemmt- inn í viðkynningu. Optast var efnahagur hans fremur þröngur, þar sem fjölskyldan var mikil, en jarðnæðið ekki að því skapi, og hann sjálfur lengst af mjög heilsutæpur (brjóst- veikur). Þó var hann jafnan nægjusamur og rólegur, enda bjargaðist hann sómasamiega þrátt fyrir fátækt sína. Avallt var hann vin- sæll og mjög vel metinn af nágrönnum sínum og sveitungum og öðrum, er kynntust honum; en eigi gat hann sökum heilsufars síns og heimilisástæðna tekið verulegan þátt í al- menningsmálum, sem hann var þó vel fallinn til fyrir ýmsra hluta sakir. Hann var mjög greindur maður og vel að sjer í ýmsum grein- um fremur en almennt gjörðist um hans daga. Sást það meðal annars á þvi, að á efri árum sínurn, eptir að hann hætti búskap og gat ekki orðið aðstaðið við algenga vinnu, lagði hann það helzt fyrir sig að kenna börnum, og fór honum það vel úr hendi. V B. Langan vaðal flytnr »Þjóðólfur« á þriðjudaginn var um þingsályktunina í stjórnarskrármálinu, og skal rúmi ísafold- ar eigi eytt að þessu sinni til þess að svara því bulli lið fyrir lið; það tekur því ekki. Að eíns skal getið eins atriðis, en það er líka aðalatriðið í mótbárum Þjóðólfs gegn þingsályktuninni — ef stjórnarskrár- máls-endileysa blaðsins annars getur kall- azt mótbárur. »Þjððólfur« segir: »Hjer búsettur, inn- lendur maður, er mæti á alþingi«, getur ekki verið ráðgjafi, getur ekki haft æðstu stjórn (löggjöf og umboðsvaidj yflr íslandi, einmitt af því, að sá sem ábyrgðina ber og skrifar undir með konuDgi verður að vera við hlið konungs — eða landsstjóra«. Við þessa staðhæfing er þetta að atbuga: »Þjóðólfur« hefir ekki enn sýnt, hvers vegna ráðgjafinn ekki getur verið hjer bú- settur, innlendur maður og mætt á alþingi, hvers vegna hann ekki getur látið sjer nægja, að fara utan og dvelja í Kaup- mannahöfn tíma og tima, þegar hann þarf að leggja íslands mál fyrir konung og skrifa undir með honum. Og þótt »Þjóðólfi« tækist að sýna fram á, að slíkt gæti með engu móti tekizt, þá á hann eptir að sýna, að hverju leyti það kem- ur í bága við þingsályktunina, að ráðgjaf- inn væri þá hjer við hlið landsstjóra. Þingsályktunin útilokar ekki landsstjóra. En hún nefnir hann ekki, af því hann er ekkert aðalatriði; það mætti víst í'reinur segja, að litið sje á hann sem neyðarúr- ræði, vegna kostnaðarins, sem honum mundi samfara. Og þingsályktunin tekur að eins fram aðalatriðin í stjórnarkröfum þjóðar- innar. Hún ætlar stjórninni að koma þeim fyrir í frumvarpi á þann hátt, sem henni (stjórninni) þykir tiltækilegast. Það er að- almunurinn á þingsályktunarleiðinni og frumvarpsleiðinni. Sjái stjórnin veg til að fullnægja kröfum vorum landsstjóralaust, þá erum vjer ánægðir. Sjái hún engan veg til þess án landsstjóra, þá segir að minnsta kosti þingsályktunin ekki eitt orð móti honum. Meðan »Þjóðólfur« getur ekki látið sjer skiljast jafn-augljóst og ein- falt mál, ætti hann sannarlega helzt að þegja. Ferðamannafjelagið. Fundur var haldinn i fyrra kveld til þess að ræða og samþykkja til fullnaðar lög fyrir fjelagið kjósa stjórn m. m. Voru þá 36 menn gengnir í (jelagið með 10 kr. árstillagi hver. Fundarstjóri var herra Hallgrímur bisk- up Sveinsson, og skrifari Sighv. Bjarnason bankabókari. Björn Jónsson bar upp frum- varp það, er þeim forgöngumönnum fje- lagsstofnunarinnar hafði verið falið á fyrra fundinum, 8. þ. m., að búa undir þenna fund, og var það samþykkt óbreytt i einu hljóði sem lög fyrir fjelagið. Er fyrirætlun fjelagsins þar lýst svo, að hún sje »að hlynna að skemmtiferð um útlendinga hing- að til lands og gera þeim fýsilegt hjer að vera«. En þeim tilgangi »leitar fjelagið við að fá framgengt með því, að efla þekkingu manna erlendis á landinu og ferðalögum hjer; að láta skemmtiíerða- skrifstofum erlendis, einkum í Lundúnum, i tje nytsamlegar leiðbeiningar og skýrslur. að styðja að góðum samgöngum við önn- ur lönd, og þvi, að hjer komist upp góðir gistingastaðir fyrir ferðamenn; <ið láta hinum útlendu ferðamönnum í tje vísbend- ingar um veiðivötn, hentugar ieiðir fyrir þá, góða verustaði, fylgdarmenn, hestaeig- endur og reiðtygja m. m.; að leiðbeina eptir mætti eigendum veiðivatna og gist

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.