Ísafold - 20.07.1895, Qupperneq 3
243
ingarsiaOa, svo og fylgdarmönnum, hesta-
eigendum o. s. frv., og jafna ágreining, ef
npp kemur milli þeirra og hinna útlendu
ferðamanna<.
Sjerstaklegt ný’mæli í lögunum og lik-
legt til góðra áhrifa er þessi grein:
»Ágreining og misklíðir, er upp koma
rnilli útlendra ferðainanna og landsmanna,
-er við þá skipta, á hinn útlendi málsaðili
kost á, að leggja í gerð 3 manna, er fje-
iagsstjórnin velur 2 þeirra, sinn fyrir hvorn
málsaöila, en hinn þriðja konsúll útlend-
ingsins, eða hinn brezki konsúll, ef land
hans á engan konsúl hjer. Kjósi útlend-
ingurinn þá leið til að Ijúka þrætu, er
hinn innlendi málsaðili skyldur því að
.hlíta, sjo hann fjelagsmaður, eða viðskiptin
þannig uudir komin, að fjelagið hafi ráðið
hann eða raælt með honum. Úrskurður
gerðardómsins, er upp skal kveða hið
skjótasta og málsaðilum kostnaðarlaust, er
•hrjúfanlegur og jafngildur sætt fyrir
rjetti*.
Þessir voru kosnir í stjórn fjelagsins
fyrsta árið, þ. e. til næsta aðalfundar, i
júlímánuði 1896:
fíj'órn Jónsson ritstjóri
Iryggvi Gunnarsson bankastjóri
Dítl. Ihomsen kaupmaður,
•og auk þess varamaður, fyrir forföllum,
Jul. Havsteen amtmaður.
Þá voru kosnir endurskoðunarmenn þeir
Halldór Jónsson bankagjaldkeri og Sig-
■hvatur Bjarnason bankabókari.
Það var tekið fram af hendi stjórnar-
innar, að veruleg afskipti af ferðalögum
útlendinga lijer á þessu sumri væri ekki
við að búast að fjelagið gæti haft hjeðan
af, og hlyti starf þess á þessu ári því að
beinast aðallega að undirbúningi undir
næsta sumar.
Með 500 liesta í'ór gufuskipið Stamford
í gær bjeðan til Englands (Newcastle).
Herskipið „Heiindal“ lagði af stað apt
ur í fyrra dag vestur fyrir land og síðan
austur.
Enskum herskipum fjórum er ef til vill
von á hingað bráðlega, eptir því sem segir í
ensku blaöi lyrir nokkrum vikum, — hinum
sömu og hingað komu sumarið 1892.
Pyrirlestur um bindindi hetdur Miss
Jessio Ackermann annað kveld í G. T.-
húsinu. Aðgangur ókeypis, það sem rúm
leyfir.
Landlmknir Schierbeek er settur »phys-
ikus< yfir Norðursjáiandi, með aðsetur á Prið-
riksbergi; veiting talin sjálfsögð að liðnum
orlofstimanum frá embsettinu hjer, 1. okt.
Þjórsárbrúin er nú svo langt koinin,
að hún verður fullgerð í næstu viku og á
að vígjast sunnudag 28. þ. m. kl. 4 e. h.
Sakir forfalla landshöfðingja vegna þings-
ins verður landritarinn, Hannes Hafstein,
þar við staddur fyrir hans hönd.
Alþingi 1895.
v.
Lög frá alþ. Þrenn smálög hefir
þingið þegar iokið við: um stækkun lög-
sagnarumdæmis Akureyrar, um breyting á
bæjarstjórnartilskípun Reykjavikur (rífkun
lcosningarrjettar), og viðaukalög um prent-
smiðjur (hlunnindi fyrir bókasafn Austur-
amtsins).
Lands-gufuskip. Samgöngumálanefnd-
in, þeir Valtýr Guðmundsson og 4 þm.
aðrir, bera upp frumv. um að kaupaskuli
á landssjóðs kostnað eimskip, 600 sinálestir
og með 100 farþega rúmi. yfirbyggt ogmeð
11 mílna hraða- Skip þetta skal gert út
á kostnað landssjóðs og því sigit milli
íslands og útlanda og kring um strendur
landsins, samkvæmt ferðaáætlun, er alþingi
samþykkir. Kaup á skipinu og útgerð
skal falin á hendur farstjóra með 4000 kr.
launum m. m. undir yfirumsjón fargæzlu-
manna, er alþingi kýs, með 600 kr. þókn-
un hvor. Landshöfðingi skipar farstjórann
samkvæmt tillögum fargæzlumanna. Far-
stjóri annast ráðningu skipverja á skipið,
farþjóna á skrifstofur sínar og fargreiðslu-
meun á þeim stöðum, er þurfa þykir og
ákveður laun þeirra. Hann ákveður og
fargjaldog farmeyri,verð ávistum ogöllu, er
þar að lýtur, með samþykki fargæzlumanna.
Lagaskóli. Þeir Þorleifur Jónsson og
Jón Jakobsson bera upp frv. um stofnun
lagaskóla í Reykjavík, með 2 kennurum
(3000 kr. og 2500 kr.). Kandídatar það-
an skulu eiga aðgang að lögfræðingaem-
bættum. Lögin komi þá fyrst til fram-
kvæmdar, er alþingi hefir í fjárlögunum
veitt fje til skólans.
Gagnfræðakennslumálið. Meiri hluti
nefndarinnar í því máli í efri d., þeir Jón
Jakobsson, Sigurður Jensson og Sigurður
Stefánsson, vill ekki fallast á frv. stjórn-
arinnar, heldur að eins iáta skora á land-
stjórnina að hlutast tii um, að komið verði
á stofn gagnfræðakennslu í tveim neðstu
bekkjum hins lærða skóla í Reykjavík, að
latína og gríska verði að eins kennd í 4
efri bekkjunum og kennslan í þeim mál-
um minúkuð sem mest má verða. Möðru-
vallaskólann vill meiri hlutinn láta standa;
telur hann mundu án stórvægilegra eða
kostnaðarsamra breytinga geta orðið ódýra
undirbúningsstofnun undir 2. eða 3. bekk
lærða skólans fyrir námssveina á norður-
og austurlandi, sem þeim landsfjórðungum
mundi mikii eptirsjón í.
Mínni hlutinn, þeir Jón A. Hjaltalín og
Hallgr. Sveinsson, vill þar á móti aðhyll*
ast stjórnarfrv. óbreytt.
Ýms ný frumvörp. Þingmenn Rang-
æinga bera upp frv. um samþykktir til að
hindra eyðileggingu af vatnaágangi.
Um undirbúniug verðlagsskráa hefir
Guttormur Vigfússon ný lög í smiðum.
«Hvervetna á Islandi skal selur rjett-
dræpur*. Það er Jón Jónsson, þra. Norð-
mýlinga, er borið hefir upp svolátandi frv.
Verzlunarstaðarlöggilding nýja vilja þeir
hafa, Guðjón Guðlaugsson og Jen Pálsson,
á Salthólmavík við Tjaldanes í Dalasýslu.
Nýtt læknisbjerað vill J. J. þm. N.mýl.
fá, fyrir Seyðisfjarðarkaupstað og næstu
firði, með 1500 kr. launum, og að Seyðis-
fjörður sje gerður að aðalsóttvarnarstað á
Austurlandi og þar reist sjúkrahús álands-
sjóðs kostnað.
Nokkrir þingmenn, Jón Þórarinsson o.fl.,
bera upp frv. til viðauka við sveitarstjórn-
arlögin, um niðurjöfnun eptir efnum og
ástæðum.
Um meðferð á hrossum og sauðfje, er
selt er til útflutnings, er frv. upp borið af
Þorláki Guðmundssyni við 3. mann.
Um búsetu fastakaupmanna ber Sk. Th.
upp frv., er vera mun samhljóða því frá
síðasta þingi.
Út af ísafold. Fyrri þm. ísfirðinga,
Vigurklerkurinn, ber upp þingsáiyktunar-
tillögu, er á að afstýra þeirri ósvinnu, að
Isafold ein stórgræði á því, að flytja opin-
berar auglýsingar svonefndar. Tillaga
þessi kvað vera samkvæm eindregnum
þjóðvilja að minnsta kosti á einum stað í
ísafjarðarsýslu, eins og hið sama eða eitt-
hvað líkt var skýlaus þjóðvilji hjer uppi
í Reykjakoti fyrir nokkrum inissirum.
Þá virðist forseta neðri deildar, herra
Benid. Sveinssyni, heldur geðfeldara að
útgefandi Isafoldar græði ekki á því, að
hafa flutt frásöguna af forseta-atkvæðis-
hneykslinu hjer um daginn jafngreinilega
og gert var; notalegra að þagað hefði
verið um það eða frammistaða forsetans
gerð heldur veglegri. Vill ólmur láta þá
vanrækslu ávirðing kosta ábm. ísafoldar
talsverða sekt eða fangelsi, málskostnað
og annan ófögnuð. Bara að dómararnir
gætu nú orðið á því bandi.
ÖLLiUM þeim, sem heiðruðu jarðar-
för sonar okkar, Jóhaunesar, eðnr á ann-
an hátttóku þátt í sorg okkar, vottum
við hjermeð okkar innilcgasta lijartans
þakklæti.
Reykjavík 19. júlí 1895.
SiBurður E. Waage. Magdal. M. Waage.
4?
yý ægte Jiormal-Kaffe
(Fabrikken
»Nörrejyiland«),
/
'<yy sem er miklu ódýrra, bragbbetra og
hollara en nokkuð annað kaffi.
Herbergi óskast til leigu sem fyrst. Ritstj.
vísar á.
Jóhannes Jóhannesson
settur sýslumaður í Húnavatnssýslu,
Gjörir kunnugt: Með því að ætla má,
að veðskuldabrjef, útgefið 23. janúar 1849
af G. G. Halldórssyni til handa Skaga-
strmdarveizlun, þinglesið 16. maí s. á.
með veði í 57s hndr. úr Ási fyrir 160 rdl.
og veðskuldabrjef útgefið 24. janúar 1849
af sama til handa Hólanesverzlun, þing-
lesið 16. maí s. á., með veði i 3 hndr. úr
Ási fyrir 40 rdl., sem eru yfir 20 ára göm-
ul, erf standa óafmáð í afsals og veðmála-
bókum sýsiunnar sjeu, úr gildi gengin, þá
stefnist hjermeð ,samkvæmt 2. og 3.gr. laga
16. september 1893, um sjerstaka heimild
til að afmá veðskuldbindingar úr veð-
málabókunum, handhöfum tjeðra veðbrjfa
til þess að mæta fyrir aukarjetti Huna-
vatnssýslu. sem haldinn verður að Kornsá
í Áshreppi fyrsta miðvikudag i september-
mánuði 1896 kl. 12 á hádegi, koma fram
með veðbrjef þessi og sanna heimild
sína til þeirra. Komi enginn innan þessa
tíma eða á stefnudegi fram með veð-
brjef þessi munj með dómi verða á-
kveðið, að þau beri að afmá úr veðmála-
bókunum.
Til staðfestu er nafn mitt og embættis-
innsigli.
Skrifstofu Húnavatnssýslu 3. janúar 1895.
Jóh. gJóhannesson
Ókeypis. settur.
Lög nr. 16 16/s ’93,4. gr. (L. S.)
Jóh. Jóh.
Skírt íslenzkt silfurberg,
stórir molar og smáir,
er keypt fyrir hátt verð
i Bredgade 20, Khöfn, hjá Salomon.