Ísafold - 10.08.1895, Page 1
Kemur út ýmisí einu sinni eða
t visv.íviku. Yerð árg.(80arka
minnst) 4 kr., erlendis 5 kr. eða
V/» dolí.; borgist fjrrir miðjan
júlí (erlendis fyrir fram).
ÍSAFOLD
Uppsögn(skrifieg)bundin við
áramót, ógild nema komin sje
til útgefanda fyrir l.oktober.
Afgreiðslustofa blaðsins er i
Austurstrœti 8.
Reykjavik, laugardaginn 10. ágúst 1895.
XXSÍ. árg.
Heiðraðir kaupenður ísafoldar
Aminnast um, að nú er þ. á. gjalddagi
fyr ir blaðið kominn fyrir löngu.
Evik 10. ág. 1895.
Þá er nó loksins endir bnndinn á stjórn-
arskrárfrumvarpsþreflð á þessn þingi.
Frumvarpið var kveðið niður í efri deild
i gær með rökstuddri dagskrá, og virðist
svo, sem mönnnm hafl þótt það eitthvað
vsegilegri aðferð við það, þar sem
það iá i andarslitrunum, en að stytta þvi
aldur á venjulegan hátt. Hvað sem um
það kann nú að mega. segja, hvernig deildin
fór að þvi, að losa sig við þessa erindis-
lausu hoðflennu, sem neytt var upp á
þingið i sumar, og vitanlega hefði ekki
átt þangað að koma, þá er frumvarpinu
nú stiað út af þinginu til fulls og alls að
þessu sinni, og óhætt mun að fullyrða, að
sá spádómur Jóns Jakobssonar rætist, að
það muni ekki optar láta á sjer bóla á
alþingi.
En stjórnarskrármálinu er ekki þar með
íokið á þinginu. Neðri deild á enn eptir
að fjalla um þingsályktunina til fullnustu,
®g gerir það að Mkindum innan skamms,
með því að ekki er sjáanlegt, að nú geti
verið eptir neinu að bíða. Beri formæl-
endur frumvarpsins sáluga stjórnarbótar-
kröfur þjóðarinnar eins rikt fyrir brjósti
eins og þeir segja—og sízt ber að rengja —
þá ætti að mega ganga að því vísu, að
meðri deild samþykki i einu hljóði þings-
ályktunina, sem nú er hinn eini vegur til
að sýsia stjðrninni eindrægni þingsins í
málinu. Á konungkjörnu þingmönnunum
stendur ekki lengur, og væri þá meira en
i meðallagi kynlegt, ef þjóðkjörnu þing-
snennirnÍF Ijetu standa á sjer.
Flutningur íslendinga vestan
um haf.
Hr. Otto Wathne fer fram á það i »Austra«.
að sjer verði veittur landssjóðsstyrkur til
að flytja íslendinga frá Vesturheimi hing-
að tii lands, ritsjóri »Austra« mælir með
þvi og jeg ijefl orðið þess var, að sumir
skynsamir rnenn halda, að það kunni að
vera vel til fundið.
Mjer er óbætt að fullyrða, að slík styrk-
veiting yrði með öllu gerð út i bláinn, og
að það yrði almennt hlegið að henni
vestra.
Styrkbeiðnin er l>yggö á þeirri imynd-
un, að fjölda íslendinga vestra langi til
&ð flytja hingað heim, og svo jafnframt á
þörf landsins á auknum vínnukrapti. Hr.
Wathne gjörir sjer í hugarlund, eins og
svo margir aðrir, að mikið af löndum
vestra lifl neyðarlífl, og að þeir mundu
verða sárfegnir að komast i vistir hjer á
landi, ef þeir að eins ættu kost á því. En
þetta er einber misskilningur.
Meginþorri íslendinga vestra er hændur,
sem hafa allmikið nndir höndum og eiga
við góð kjör að búa. Flestir munu geta
sjeð, hve líklegt það sje, að þeir fari að
rifa sig upp af jörðurn sínum fyrir ein-
hverja ofurlitla linun í fargjaldi. Svo er
í bæjnnum, einkum Winnipeg — auk
margra sjálfstæðra, meira og minna efn-
aðra manna — töluvert af mönnum,
sem hafa haft stopula atvinni hin siðari
árin. Helzt mun vera til þess hugsað, að
fá þá hingað heim. En það mundi sann-
ast, að litið yrði úr því ferðalagi. Ein-
hleypu mennirnir komast heim hvert ár,
sem vera skal, ef þeir eru til nokkurs
nýtir atvinnubresturinn er nú ekki
meiri en það — en fjölskyldumennirnir,
sem ekki gætu komizt beim af sjálfsdáðum,
mnndu ekki vilja það; þeir óttast að lenda
á sveitina hjer og þeir telja hörnum sin-
nm betur borgið vestra, hvað sem sjðlfnm
þeim liður. Svo eru vinnukonurnar; þær
þarf sannarlega ekki að styrkja til heim-
ferðar, en það kemur nokkuð litið af
þeim samt.
Allslausir fjölskyldumenn eru hinn eini
flokkur manna, som nokkurt vit væri í
að setla þennan styrk. Setjum svo þeir
fengist til að snúa heim aptur. Er ekki
nóg til af því fólki hjer á landi? Hvað
segja sveitarstjórnh'nar?
Ekki svo að jskilja, að það sje ekki
töluvert af íslendingum vestra, sem langar
heim. I>á langar fjölda marga til að
Jcoma heim, sjá ættjörðina, sveitina sína
og vini sína og vandamenn. Sjálfsagt
láta þeir líka margir verða af því um
aldamótin, svo framarlega sem ekki verð-
ur þvi harðara í ári þangað til. En naum-
ast vakir íýrir neinum, að styrkja Vestur-
íslendinga af landsfje til slíkra skemmti-
ferða. Og vafalaust mundu þeir margir
heldur kjósa að eyða æfinni á ættjörðunni,
ef þeir gerðu sjer i hugarlund, að þeim
og börnnm þeirra gæti liðið eins vel hjer
og vestra. En mönnnm er óhætt að trúa
því, þrátt fyrir hörmnngasögnr einstakra
manna véstan að, að Vestur íslendingar
hafa enga trú á þeirri ráðbreytni, og þess
vegna mundu þeir sitja kyrrir, þótt þeim
byðist flutningur til Islands fyrir ekkert.
Og það ætti líka hver maður að geta
sjeð, að það er ekkert árennilegt fyrir
fjölskyldumenn að koma hingað, efna-
litla eða allslausa, að óvísri atvinnu.
það eru engin líkinöi iil að ísland fái
67. blað.
að vestan vinnukrapt, sem um munar. En
margskonar nytsama þekkingu mætti það-
an fá, ef menn vildu snúa sjer að þvi, að
fá að vestan valda, reyuda og framtakssama
bændur og duglega iðnaðarmenn. Þeir
mnndu geta kennt mönnum að gera margt
þarfaverkið hjer á landi, sem nú er ógert
látið, og vinna sjer margt handtakið hægara
og fljótara en það er nú unnið. Jeg á
örðugt með að trúa því, að skki tæki
eitthvað stakkaskíptnm, ef kominn væri
greindur og duglegur vestur-íslenzkur
bóndi í hverja sveit hjer á landi. Til slíks
væri veitandi styrkur af landsfje — en
það er hætt við, að hann yrði að nema
meiru en einhverjum dálitlum afslætti á
fargjaldinu.
E. H.
Hlægilegur fruntaskapur
og miður gott kunningjabragð er það, sem
Reykjakots-þjóðmálagarpurinn heflr haft í
frammi við nokkra sveitunga sina og Kjal-
nesinga, þar sem hann heflr ginnt þá til
að skrifa undir skjal til alþingis þess efn-
is, að skipa þingmönnum kjördæmisins af-
dráttarlaust að vera með stjórnarskrár-
frumvarpinu frá 1893 og banna þeim strang-
lega að greiða atkvæði með þingsályktun-
artillögunni í stjórnarskrármálinu, með
þeirri rökstuðning meðfram, að slik at-
kvæðagreiðsla væri »þvert ofan í« álykt-
anir þingmálafundar, sem haldinn var í
Kollafirði 25. júní.
Á þessum Kollafjarðárfundi var sam-
þykkt í einu hljóði í stjórnarskrármálinu
sú áskorun, að »þingið hreifl málinu í á-
varpsformi, og biðji stjórnina að leggja
fyrir þingið frumvarp til stjórnarskipun-
arlaga, en til vara, ef þetta ávarpsform
yrði fellt á þinginu, þá að frumvarpinu
yrði haldið áfram með breytingum, sem
þinginu kynni að geta komið saman um,
að gæti verið til samkomulags«.
Auk fundarins, sfem haldinn var í Hafn-
arfirði 15. júní, að afstöðnu kjörþingi, til
þess að kjósa Þingvallarfundar-fulltrúa,
voru 6 þingmálafundir haldnirí voríGull-
bringu- og Kjósarsýslu kjördæmi, að Gerð-
um21.júní, Brunnastöðum 22. júní, Bjarna-
stöðum á Álptanesi 23. júní, Hatnarfirði
24. júni, Kollafirði 25. júní og Mýrarhúsum
26. júní. Þar af komust, samkv. þingmála-
fnndagjörðunum, sem fram hafa verið lagð-
ar á lestrarsal alþingis, að eins tveir fund-
ir að þeirri niðurstöðu, að halda áfram
stjórnarskrárfrumvarpinu óbreyttu, Brunna-
staðafundurinn með 7 atkvæðum gegn 5
og Gerðafundurinn með ótilteknum at-
kvæðafjölda.
Það er allur sá ríki þjóðvilji, sem kom-
ið hefir fram með stjórnarskrárfrumvarp-