Ísafold - 17.08.1895, Síða 4
276
hinn helming' kaupsins og fæöisgjaldsins,
og það þvert ofan í atkvæði dómstóla.
Mundu vera mörg dæmi slíkrar frekju?
Manni dettur í hug önnur þjóðhetja en
þessi ísfirzka, þótt ekki hafi ef til vill ver-
ið hennur jafnoki. Hann hjet Jón Sigurðs-
son. Hann fjekkst taisvert við að hugsa
um landsins gagn og nauðsynjar í 30—40
ár, vann dálílið að því að vekja þjóðina
til dáðar og drengskapar, til meðvitundar
um rjettindi sín, til sjálfstæðra afskipta af
stjórnarhögum sínum m.m. Og hann gerði
það með alvarlegum hugvekjum og rólegri
röksemdafærslu, en ekki með illhryssings-
áreitni við saklausa menn eða taumlaus-
um áaustri á þá, sem settir voru til að
gæta iaga og landsstjórnar. Fyrirsjer og
sínum vann hann á annan hátt, með dag
legu erfiði ianga æfi, en án nokkurs endur-
gjalds af almannafje frá þeirri þjóð, er
hann barðist fyrir rjettindum hennar, veg
hennar og velfarnan. Kostaði meira að
segja til ærnu fje frá sjálfum sjer, af kaupi
því, er hann hafði unnið fyrir hins vegar
með súrum sveita. Ekki mun hafa verið
trútt um, að hann biði stundum atvinnu-
tjón fyrir afskipti sín af velferðarmálum
þjóðar sinnar. En hann rauk ekki í iands-
sjóð og heimtaði harðri hendi skaðabætur
fyrir það. Þjóðin greiddi honum loks
sjálfkrafa og ótilkvödd ellistyrk fáein ár,
er hann var búinn að slita sjer upp til
agna í hennar þjónustu, — búinn að missa
heilsu og þrótt og hættur að geta unnið
tii hlitar fyrir sjer og sínum, af því að
hann hafði iagt svo mikið á sig áður fyrir
fósturjörð sína.
Hann var á eptir tímanum. Hann kunr.i
ekki gröðahnikkina, sem nú tiðkast: að
afla sjer atkvæða á þingi til að hleypa frá
Iokunni fyrir landssjóðnum.
Factorplads.
Til min Forretning paa Isafjord sog-
es til 1. Januar 1896 en dygtig Factor.
Vedkommende maa være i Besid-
delse af Dygtighed tii at kunne lede
og disponere Forretningen, og være
kjendt med "Vragning af de isl. Pro-
ducter; Fisk er den Artikkel, der navn-
ligexportores. Lonningsforholdenegode
samt fri Bolig. Caution maa kunne
stilles. Ansogning om Pladsen, med
Copie af Anhefalingsbreve, sendes tii
mig i Kjohenliavn, og samtidig Copi
deraf til inin Fuldmægtig, Herr Árni
Riis, der fortiden er paa Isaljord.
Kjöbenhavn, Julí 1895.
Leonh. Tang.
IMýjar kartöflur
selur veizlun P. C. Knudtzon & Söns.
Tapazt heflr á Ártúnum 14. þ. m. göngu-
stafur, gulleitur, fremur grannur, meðhorn-
haldi. Finnandi skiii honum til JónsLax-
dals.
Peir af lærisveiriuin Flensborgarskóla sem
seskja, geta iengið þjónustu næstkomandi vet-
ur hjá undirritaðri, sem verður til heimilis í
skólahúsinu.
Reykjavík 16. ágúst 1895.
Hallctóra Árnadóttir._____
Til sölu snemmbæv og góö mólkurkýr.
Ritstj. vísar á.
Beizlisstang-ir, af ýmsum
gerðum, og istöð, úr kopar; — líka smíða jeg
istöð úr nýsilfri, ef um er beðið, en annars
hef jeg þau ekki tilbúin —; svipur af ýmsri
stærð, annaðhvort látuns búnar eöa nýsilfur
búnar, selur undirritaður með góðu verði.
Tekur einnig að sjer aðgerðir á sliku, ogýmsu
fleiru. — Brotakopar tekinn.
Ásgeir Kr. Möller,
Ingólfsstræti 5.
Flensborg-arskólinn.
Þessum nýsveinum veittur skólinn nœsta
vetur.
1. Jón Einarsson, Kjós, Gullbr.sýslu,
2. Guðm. Árnason, Látalátum, Rangárv.
sýslu. 3. Guðni Þorláksson, Hafnarfirði.
4. Jón Einarsson, Tannatsðabakka, Húna-
vatnssýslu. 5. Steingrímur Torfason, Hafn-
arfirði. 6. Sigurður Jónsson, Eyvindarst.,
Blöndudal. 7. Jónatan Kristjánsson, Stykk-
ishólmi. 8. Páll Jónsson, Auðólfsstöðum,
Húnav.sýslu. 9. Sigurður Bjarnason, og
10. Runólfur Þorsteinsson, Gljúfrá, Mýras.,
11. Þorsteinn Þorsteinsson, Stöð, Stöðvar-
firði. 12. Þorleifur Helgasson og 13. Jón
Helgason, Bíldudal. 14. Yngunn Daníels-
dóttir, Kolugili, Húnav.s. 15. Sveinn
Ingvarsson, Kalmanstjörn. 16. Helgi
Guðmundsson, Bíldudal. 17. Jón Jónasson,
Skógum, Dalas. 18. Ólafur Guðjónsson,
Kringlu. Grimsnesí. 19. Gunni. J. Jóns-
son, Narfeyri. 20. Þorleifur Andrjesson,
Bildsfelli — auk þeirra sem voru í
sóklanum siðastliðinn vetur og ekki tóku
burtfararpróf.
Heimavist fá þeir, er sótt hafa um hana,
svo framarlega sem þeir hafa rúmföt, hver
fyrir sig.
p. t. Reykjavík 14. ágúst 1895.
Jón Þórarinsson.
Náttúrusafnið
er flutc upp í »Glasgow« í miðsalinn á
loptinu, uppgangurinn er um norðurdyrn-
ar á framhlið hússins. Safnið er opið fyr-
ir almenning fyrst um sinn hvern sunnu-
dag kl. 2—3.
Af því að súmum virðist vera óljóst,
hver sje eigandi safnsins, þá skal þess
getið, að í 2. grein laga hins íslenzka
náttúrufræðisfjelags er með berum orðum
tekið fram, að náttúrusafnið sje eign lands-
ins, og er það því opinber stofnnn.
Reykjavík 17. águst 1895.
Ben. Gröndal.
p.t. form. hins ísl. náttúvu-
fræðisfjelags.
Hjer með auglýsist að Vörðufellsrjett í
Selvogshreppi verður haldin mánudaginn 22.
september og verður hún framvegis haldin
sama vikudag.
Nesi 14. ágúst 1895.
Fyrir hönd hreppsins
Þorbjörn Guðmundsson.
Öll hross sem hjer eptir kunna að verða
i landi ábýlisjarðar minnar án míus leyfis,
hvort heldur er sumar eða vetur, verða tekin
og höfð í aðhaldi á kostnað eiganda. Einníg
fyrirbýð jeg alla umferð með skepnur yfir
tún ofangreindrar jarðar.
Fitjakoti 16. ágúst 1895.
Hans Gíslason.
Þessir vinningar úr lotteríi því er haldið
var á Ártúnum binn 14. þ. m., eru enn ekki
gengnir út: Nr. 239, handsápa í brjefkassk;
nr. 449, kassi með spilapeningum í; nr. 858,
taska. Þeir sem bafa númer þessi snúi sjer
til herra C. Zimsens.
Nýtt blað!
„HEKÓPI Г
embættisblað Hjálpræðishersins á íslandi,
byrjar að koma út 1 okt.; 12 arkir um
árið, í sama broti og ísafold. Flytur út-
lendar og innlendar herfregnir, stuttar sög-
ur, sálma, og ritgjörðir eptir ýmsa helztu
menn hersins. Ennfremur ágætar myndir
af merkum roönnum og stöðum, og upp-
drætti efninu til skýringar.
Kostar í Reykjav. og nágrenninu kr. 109
sent með pósti...............— 1,25
I Danmörku...................— 1,59
og í Ameriku ...............50 cent.
Borgist fyrir fram; allar pantanir sjeu.
sendar til:
Chr. Eriksen,
Skólavörðustíg nr. 3 Jivlk,
sem verður útgefandi og ábyrgðarmaður
blaðsins.
Héilagfiski geta sveitamenn og bæjar-
búar hjer í Reykjavík fengið frá íshúsinu
í næstu viku 10.—24. þ. m. hvern dag frá
kl. 10 til 2 e. m. með góöu verði.
Alþingishúsgarðurinn opinn á morg-
un fyrir almenning kl. lx/2—3‘/2• Er nú i
sem beztum blóma og fegurstum.
Tapazt hefir úr pössun á Lauganesmýr-
unuru ljósgrár hestur, lltill vexti, vetrarafrak-
aður. Mark: standfjöður framan h., hangandi
fjöður apt. vinstra. Finnandi er beðinn að
skila hestinum til Þórarins bókbindara Þor-
Iákssonar í Reykjavik eða gjöra honum að-
vart.
Nýjar birgðir af yörum komu
nú með s. s. ,Laura‘ til yerzl-
unarinnar ,Edinborg‘.
Ýtarlegri auglýsing í næsta blaði.
Ásgeir Sigurðsson.
Nokkra hesta, 2 til 5 vetra, helst
einlita, kaupir undirskrifaður, milli
19. og 22. þessa mánaðar.
17. ágúst 1895.
W. G. Spence Paterson.
Lemonade- Kola- Gingerale
og Gingerbeer
fást nú aptur í
Ensku verzluninni
Vesturgötu nr. 3.
Veðurathuganlr í Rv;k, optir Dr.J Jónassen
ágúst. Hiti (á Uelsius) Loptþ.xn»l. (milL.met.) VcöiU'átt
á nótt. | um h l. fm. bf n frr.
Ld. 10 + 8 + 17 754.4 754 4 0 b 0 b
Sd. 11. + 11 + 15 754.4 764 4 N h b 0 b
Md. 12. + 10 + 18 + 16 1756.9 756.9 0 b N h b
Þd. 13. + 10 756 9 756.9 0 b N h b
Mvd.14 + 9 + 15 762 0 764.5 N h b 0 h
Fd. 15 + 12 + 14 764 5 764 6 0 d V h b
Fsd 16. Ld. 17. + 11 + 11 + 15 762 0 756.9 759.5 N, h b A h d 0 b
Svo má heita að logn hafi verið dag og nótt
og bezta sumarveður alla umliðna viku. I
morgun (17.) hægur á austan, ýrir regn úr
lopti; dimmur.
Útgef. og ábyrgðarm.: Björn Jónsson.
Meðritstjóri: Flnar Hjörleifsson.
Prentsmiðja ísai'oldai.