Ísafold - 14.09.1895, Síða 2
802
þó ekki nema nokkur ár, og er nú komið
timburhús í staðinn, og þó tvö heldur en
eitt, járnvarin, góð hýbýli og myndarleg
nú orðin. Enda hefir verið talsverðu til
þeirra kostað síðan.
III.
Jafnframt því er vitin komst i gagn,var
iagt gjald honum til viðhalds og annars ár-
legs kostnaðar við vitahaldið á »hvert
það skip, að undanskildum herskip-
um og skemmtiskútum er fer fram hjá
Beykjanesi við Faxaflóa og leggst á höfn
einhverstaðar á íslandi.* Er gjald þetta
nú »20 aurar fyrir smálest hverja af rúm-
máli skipsins, ef það leitar hafnar í Faxa-
flóa milii Reykjaness og Öndverðaness, en
15 aurar ef það leggur til hafnar annars-
staðar á íslandi, og er gjaldið hið sama,
hvort heldur það fer fram hjá vitanum að
eins aðra leiðina eða fram og aptur.« Gjald
þetta hefir numið frá 4000 til rúmra 7000
kr. á ári. Er af því launað vitaverði (1200
kr.) og greiddur annar 'árlegur kostnaður
til vitahald3ins, t. d. fyrir steinolíu 1200
kr., samtals venjulega um 3000 kr. Virð-
ast vitavarðarlaunin, 1200 kr., ekki mega
minni vera, er þess er gætt, að hann kemst
ekki af með minna en tvo karlmenn sjer
til aðstoðar, og getur ekki t. d. komið
þeim í kaupavinnu að sumrinn, með því
að þeir þurfa að taka til starfa við vitann
um miðjan heyskapartímann.
Vitavörðurinn, sem nú er og verið hef-
ir 11 ár undanfarin, Jón Gunnlaugsson,
fyrrum skipstjóri, er mikill atorkumaður
og ráðdeildar, og ágsetiega þokkaður. Iiann
hefir grætt út talsverðan túnskika kring
um vitavarðarbæinn, sem gefur nú af sjer
fram undir kýrfóður, girt hann allan og
gengið vel frá. Það er mein, hve illa hef-
ir tekizt að velja bæjarstæði, þegar vitinn
var reistur. Er miklu betra túnstæði og
l>æjarstæði þar á öörum stað, undir Vatns-
felli, og það nær vitanum, bæði mun skýlla
þar og jarðvegur miklu betri og stærra
graslendi. Hefir vitavörðurin hálfvegis
í hyggju að reyna að koma þar upp öðru
túni—heimatúnið er ekki hægt að græða
meir út en búið er—; en ekki láandi, þótt
hann hiki við það, er hann á einskis end-
urgjalds von fyrir þær nje aðrar jarðabæt-
ur, fremur en leiguliðar að jafnaði, en lands-
sjóður nýtur góðs af þeim framvegis, í launa-
sparnaði til vitavarðar o. s. frv. Haglendi
er dálítið þar nærri bænum, svo hrjóstugt
og gróðurlaust sem Reykjanesið erannars.
En slægjur engar. Vitavörður hefir nú 1
kú, og 2—3 hesta, sem hann verður að fá
hey fyrir annarstaöar. Kindur hefir hann
og haft nokkrar, en er friðlaus með þær
fyrir bitvargi, sem þar er krökt af á vetr-
um, vegna hverahlýjunnar þar á nesinu.
Sjávarútveg má hafa þar nokkurn, síðan
lánaðis að fá vör rudda og veg höggvinn
í berg upp frá henni norðan við Valahnjúk,
með nokkrum styrk úr landssjóði. En
sakir ákafra brima verður eigi róið þar
uema í sumum áttum og góðu veðri.
Vegur er mjög illur úr Höfnunum út á
Reykjanes, yfir illkynjað hraun, hálfþakið
brunasandi. Er þó all-fjölfarinn, forvitnis-
ferðir að skoða vitann, bæði sumar og vet-
ur, á vetrum einkum af vermönnum, er
^eggja saman i hópum þangað úr veiði-
stöðunum í kring í landlegum, og hljóta
að gera vitaverði mikinn átroðning — eru
þar margopt nætur sakir —, þótt ekki heyr-
ist hann kvarta og sjáist ekki fyrir með
gestrisni, án þess að vilja heyra endurgjald
nefnt á nafn, fremur en almennur íslenzk-
ur siður er til, — sem manni íiggur stundum
við að kalla ósið, vegna ójafnaðarskatts
þess, er hann leggur á menn, því þyngri,
sem þeir eru góðsamari og drenglyndari,
en sennileg hlífð og nærgætrii við þá mið-
ur algeng víða. B. J.
Botnvörpuveiðaskip ensk, 5—6 flest,
og 1 minnst, hafa hafzt við áalmennum fiski-
miði hjer í flóanum, Bollasviði, lengi sum-
ars, frá því eptir miðjan júlímánuð, og afl-
að þar mæta vel þótt ekki hafi aðrir feng
ið þar fisk nje anuarstaðar á fiskimiðum
hjer. Þau gjörsópa botninn með sínum
háskalegu veiðarfærum, dautt og lifandi,
hirða það eitt, sem þeim þykir fengur í, svo
sem heilagfiski og kola, og fullkominn
þorsk sum, en sum ekki, en fleygja hinu
útbyrðis, stundum ekki fyr en eptir marga
daga, úldnu þá og skemmdu, eðá þeir
gefa það eða selja mönnum úr landi, er
færa þeim í staðinn ýmislegt góðgæti, svo
sem dilkakjöt, egg, mjólk o. fl. Hafa nokk-
ur skip af Alptanesi, 3—4, fengið í sum-
ar drjúgan afla með þeim hætti, jafnvel
á 4. þúsund í hlut eitt þeirra. í fyrri nótt
vildi einum það slys til, að þeir brutu
bát sinn við botnvörpuskipið — höfðu tyllt
honum aptan í það, en voru sjálfir á skip-
inu í góðu yfirlæti. Skiluðu Englending-
ar þeim hingað á iand í gærmorgun og
leystu þá út með fiskigjöfum.
Lög eru því miður engin til þess að af-
stýra þessum ófögnuði, með því að þetta
fiskimið og flest önnur, sem nokkuð kveð-
ur að hjer, eru fyrir utan landhelgi.
Hellisheiði. Lokið var í gær alger-
lega við vegagerðina yfir Hellisheiði, sem
byrjað var á í fyrra vor, frá Kolviðarhól
og niður fyrir Kamba. Það er mikið
mannvirki og vandað, og mun síðar lýst
verða betur. Er nú vegamannaflokkurinn
af heiðinni, fram undir 50 manns, undir
forustu hr. Erl. Zakariassonar, kominn nið-
ur í byggð og tekinn til við kaflann, sem
eptir var þar í fyrra, frá Kömbum austur
yfir Yarmárbrú. Verða vonandi búnir að
ijúka við hann í haust, þótt tæpt kunni að
standa.
Garða prestskosningin. Það er hvort-
tveggja, að hún var býsna-snörp, kosn-
ingarbaráttan sú, enda er ekki enn runn-
inn vígamóðurinn af sumum, er hana
háðu,—að minnsta kosti ekki af höfundi
mjög óþarfrar greinar í »Þjóð.« í gær,
sem heill hópur af kjósendum kand. Geirs
Sæmundssonar hefir enn veriö nógu æstur
til þess að ljá nöfn sín undir.
Höf. er afarreiður út af því, að ísafold
28. f. mán. talar um, að fráleitum meðul-
um hafi verið beitt af sumum fylgism'önn-
um kand. G. S., snýr því upp í áburð á
sig og aðra kjósendur hans, og rausar mik-
ið út af því. Hefði höf. ekki reiðzt svona
háskalega—hálfum mánuði eptir að hann
las greinina!—, mundi hann hafa áttað sig
á því í tima, að það er ekki sama orð,
»fylgismenn« og »kjósendur« (getur verid
fullt af fylgismönnum, sem ekki eru kjós-
endur), og að hvorki hann nje þeir fjelag-
ar aðrir geta neitt um það fullyit, hvorki
af nje á, hvort beitt hafi verið ljótum eða
óheiðarlegum meðulum til að afla skjói-
stæðing þeirra atkvæða. Þeir geta að eins
sagt fyrir sig, að þeir hafi ekki gert sig
seka í slíku, og það allra frekasta, sem
þeir geta ætlast til, er, að þeim sje trúað
til þess. Aðra geta þeir ekkert ábyrgzt.
Það getur hafa verið beitt ótæpt frá-
leitum meðulum án þeirra vitundar. Eng-
inn, sem það gerir, er það flón, að fara
að gera það í margra viðurvist. Hann fer
ekki að hafa votta að því.
Hjer á og við um leið sú athugasemd,
að höfundinum stoðar ekki að ætla sjer
að skáka í því hróksvaldi, að óhætt muni
að fortaka allar þess háttar misfellur vegna
þess, að þær sannist aldrei með vottum.
Það stendur ekki til nokkurn tíma, að
slíkt sannist með vitundarvottum. Það
liggur í augum uppi og leiðir af sjálfu
sjer, eins og nú var á vikið. En hitt er
það, að enginn rjettsýnn maður efast um, að
það sem margir heiðvirðir menn bera sinu
í hverju lagi skriflega, og tjá sig viðbúna
að standa við hvar sem fer, að það muni satt
vera, þótt ekki sje vottfast, og hvað sem
líður lagalegri sönnun fyrir þvi. Leiðin
til að fá hana, ef á þyrfti að halda, væri
auðvitað almennileg og óhlutdræg rjettar-
rannsókn.
Vilji höf. vita, hvað átt er við með »frá-
leitum meðulum«, þá eru það auðvitað ekki
jafnvel frekjulegustufortölurog niðrunarum-
mæli um keppinauta óskabarnsins,efcfct höfð-
ingjabrjef úr Reykjavík, ekki innrás ófyr-
irleitinna atkvæðasmala úr öðru prestakalli,
með ítrekuðum heimreiðum nál. á hvern
bæ, jafnvel 5 — 6 atreiðum að sama kjós-
anda sama daginn, og ekki húsvitjan um-
sækjanda á þorra heimila í prestakallinu á
nndan kosningu (þótt allmjög aðfinnslu-
verð þyki annarsstaðar). Það er ekki átt
við neitt af þessu eða því um líku. Það
er átt við það, er kjósendum eru boðnar
mútur eða sama sem mútur, svo sem hin
og þessi hlunnindi, sem þeim eru sama
sem peningavirði eða jafnvel beinlínis.
mikilla peninga virði. Þaðer ekki of tal-
að, að kalla slíkt fráleit meðul. Og þau
eru fráleit fyrir því, þó að umsækjandi
eigi sjálfur engan þátt í þeim, — þó að þeim
sje beitt alveg án hans vilja og vitundar.
Og fari að brydda á þess konar ófögnuði
við prestskosningar, þær kosningar, sem
ættu hvað sizt að vera blandnar nokkrum
sora, þá er síður en svo, að blöð sjeu víta-
verð fyrir að skipta sjer af sliku; hvert
heiðvirt blað hlýtur að telja sjer skylt að
láta það ekki hlutlaust; og það fer ekki
að bíða eptir því, að fengin sje full laga-
sönnun fyrir misfellunum; það yrðu
lítilsverð afskipti blaða af því, sem miður
fer, ef bíða skyldi jafnan eptir því. Þeim
einum, er hafa miöur góðan inálstað að
verja, er ami í því; hinir eru og mega
vera þakklátir fyrir það.
Annað, sem höf. hefir reiðzt ísafold fyr-
ir, er tilvitnun i brjef frá óhlutdrægum
sóknarmanni um framkomu 2 umsækjand-
anna við kosninguua, — að hún hefði ver-