Ísafold - 27.03.1897, Blaðsíða 3

Ísafold - 27.03.1897, Blaðsíða 3
79 f’órður Ögmundsson (Ö)fusi) 25. 14. *Gnnnlaug- ur Claessen (br. VI. G). 15. Lárus Þ. Thoraren- sen (t pr. J. Th.). 16. *Sigurður Guðmundsson (Húnav.). 17. Jón Benedikts Jónsson (ísafj.s.). I. bekkur. 1. Þorsteinn Þorsteinsson (b. frá Brú í Bpst.). 2- Ólafur Björnsson (br. III. 4). 3. Einar Arn- órsson (Minna-Mosf. í Grímsn.) 25. 4. Jón Magn- ásson (tómth.m. Stefánss.). 5. Magnús Guð- •nundsson (Svinad. í Húnav.). 6. Jónbjörn Þor- tyarnarson (t kaup. Jónass.). 7. Halldór Stefáns- s°n (Húnav.). 8. Halldór Jónasson (skólastjóra Hirikss. á Eiðum). 9. Bjarni Jónsson (tómth.m.). 10. Eirikur Stefánsson (pr. á Auðkúlu) umsjónarm. 11- Sturla Guðmundsson (f. læknis i Arn.). 12. Hrynjólfur Björnsson (Rangárv.). 13. Björn Stef- ánsson (br. nr. 10). 14. Pjetur Bogason (br. II. 0). 15. Vilhjálmur Finsen (br. IV. 15). 16. Sig- valdi Stefánsson (múrara). 17. Björn Þórðarson (frá Móum á Kjal.). 18. Asgeir Gunnlaugsson (tómth.m. Pjet.). 19. Sigurður Sigtryggsson (lyf- salasv. Sig.). Dáinn er 3. þ. máu. Ami Jónsson hjer- aðslæknir á Vopnafirði. Hann lje/.t í svefni; hafði verið lasinn dagana á undan. (Haiis mun frekar minnzt síðar). Nýfundinn þjóðflokkur, Nýstárleg vísindaleg uppgöt.vun er það,sem eitt af mikilmennum vísindamanna-heimsins hefir gert þessa dagana. Maðurinn er hinn heimsfrægi »Þjóðólfs«-ábyrgðarmaður. Hann hefir uppgötvað þjóðflokk, sem hefir það sjer til ágætis, að bera langt af hinum nafntog- uðu Molbúum í því, sem þeir væru frægastir iyrir, í — heimsku. Og þessi merkilegiþjóð- Hokkur, sem enginn hefir vitað af fyrri, skil- llr íslemku. Má sjá það á því, að maðurinn avarpar hann í blaði sínu í gær og tjáir hon- Um, að persónuleg illmæli nokkur og fúkyrði, setu hann jós nylega á prenti yfir saklausan faann, er hann af einhverjum leyndardóms- iullum ástæðum ber óslökkvandi hatur til, hafi ekki verið annað en nauðsynleg »pólitisk« ötlistun eða hugleiðing, gagndrepa af föður- landsást, en svona hjer um bil alveg græzku- laus, og því óðs manns æði að álíta hana varða við lög. Þannig vaxna »útlistun« hefði verið frá- gangssök að ætla sjer að bera á borð fyrir Holbúana sálugu; þeim hefði verið ómögulegt að renna lienni niður. En með því að snill- lng þessum er ekki lagið að rita nokkurn staf til ónýtis, hlýtur hann að vita af ein- hverri þjóðkvísl einhversstaðar 1 heiminum — hlað hans er alheimsmálgagn, lceypt og lesið öniallan heim—, sem þessi fræði er bæði lyst- ög og auðmelt andleg fæða; hún getur ekki Vei'ið ætluð öðrum. Nánari lýsing á þeirri °kenndu þjóð er að líkindum væntanleg frá hans hendi hið bráðasta, ekki seinna en í neestu heimsferðasögu hans. Söinu lesendum hlýtur að vera ætluð sú liásaga í sama tbl., að hann hafi lögsótt mann fyrir að kalla sig »Þjóðólfsmann, ljúfmennið hógværa, prúðmennið góðgjarua, göfugmennið htilláta, spakmennið snjalla og djúphyggna, Úurniennið glæsta«. Sjálfsagt ætlar hann svo n'ónnurn af þeirrar þjóðar kyni að kveða upp dó® í því máli, og ætlast til að dómur þeirra hljóði þannig að niðurlagi: þvi dcemist rjett vera. ^tefndi N. N. sæti 10,000 kr. sekt, er renni . stefnanda. Svo skulu og orðin »ljúfmenn- hógværa, prúðmennið góðgjarna« og önnur ai5lir talin meiðandi ummæli um stefnanda Vera dauð og marklaus! Skagafirði 10. marz: Tiðin i vetur ágæt, siðan haust-illviðrinu ljetti af. Fjörðurinn al- rauður nú og veður í dag bjart og stillt. — Sýslufundur var haldinn 23. f. mán. og næstu daga. Hin venjulegu mál komu fyrir. Einnig kom til tals brú d Vesturvötnin nálægt sjó, og áætlanir um kostnað hennar. Gjört ráð fyrir, að hún muni kosta nær 30,000 kr. Það væri ákaf- lega mikil framför, að fá slika brú. Siðau brúin kom á Austurvötnin, hefir umferð vaxið að mikl- um mun, og brúarvöntunin á hiu vötnin orðið tilfinnanleg. Vonandi, að menn leggist á eitt, að koma þe8sari brú á sem fyrst. — Beiðni kom úr Lýtingsstaðahrepp um, að sýslan væri í ábyrgð fyrir láni, er hreppurinn vill fá fyrir upprekstr- arland (Eyvindarstaðaheiði), er hann vill kaupa, og gerði nefndin það, eins og sjálfsagt var, en það eptirtektaverða er, að einmitt sams konar beiðni neitaði hún í fyrra, sem varð neitendun- um til minnkunar, svo sem von var. Er nú að fagna þvi, að menn komast fljótt til sannleikans viðurkenningar. Pöntunarfundur var haldinn að Asi í Hegra- nesi 19. janúar. Akveðið að halda pöntun áfram við sömu viðskiptamenn næsta ár. Formaður, hr. Pálmi Pjetursson í Sjávarborg, endurkosinn, og lýst ánægju yfir störfum hans. Aðrir starfsmenn flestir endurkosnir. Ákveðið að fjelagið keypti borgarabrjef og að stofnuð væri söludeild í smá- um stýl fyrst. Sauðir teknir ekki ljettari en 110 pd., og gengur því pöntun fyrir sauði mjög sam- an, þar eð litið verður nú látið af veturgömlum sauðum, og fátækari mennirnir geta lítið eða ekkert pantað gegn sauðum. Hins vegar eru menn svo skuldugir við kaupmenn, að tvisýnt er, hvort öll ull þeirra i vor nægir í þá skuld. — Verzlunarástandið er þannig óefnilegt. Skuldirn- ar ættu að knýja menn til alvarlegrar umhugs- unar og aðgerða til að verða frjálsir menn. Að eyða minna og framleiða meira, eða láta til- kostnað og hagnað standast betur á, þyrfti að verða að alvarlegri viðleitni. Um sýslufundinn voru skemmtanir i Sauðár- króki; leiknir sjónleikir: »hinn þriðji« og »hann drekkur«. Inngangur 75 og 50 aura. Arðurinn gengur mestallur í sjóð, sem síðar á að verja fyrir leikhúsbyggingu á Sauðárkrók. Aðsókn að leikjunum ákaflega mikil og leikið nær viku. Þótti vel leikið yfir höfuð; sumir ljeku furðuvel. Einn galli var á: sá, að málið á leikjunym var afar-illt; er furða, hve skeytingarlausir þýðend- urnir hafa verið með móðurmál sitt, er þeir þýddu. Það er enginn efi á því, að slíkt mál, sem úir og grúir af dönskuslettum (sbr, ó! jeg fæ tilfelli! o. m. fl.), spillir málinu í daglega talinu hjá alþýðu, sem ekki kann að greina illgresið frá hveitinu. Vjer vitum, að sumir hafa einmitt flutt dönsku- sletturnar heim af leikjunum með sjer og þótt gaman að prýða með þeim daglegt tal sitt, vit- andi ekki, hvað þeir í rauninni gerðu. Samsöngur var og haldinn um sýslufundinn i Sauðárkrókskirkju af söngflokk á Króknum, og stýrði Hallgrimur Þorsteinsson organisti honum. Líkaði samsöngurinn vel. Ágóðinn 25 aur. fyrir mann, rennur í Kvennfjelagssjóðinn, nema fyrir eitt kvöldið. Einn fyrirlestur var og fluttur þá á Suðár- krók, að tilhlutun Kvennfjelagsins. Inng. 25 a. í Kvennfjelagssjóðinn. Húsfrú Sigurlaug Gunnars- dóttir á Ási í Hegranesi samdi hann. Hann var um uppeldi og menntun kvenna. Höf., sem er al- kunn sómakona, heldur því fraín, að stúlkur eigi til tvítugsaldurs að læra sem mest heima hjá mæðrum sinum allt, sem lýtur að búsýslustörfum, og yfir höfuð, heima og i skólum, að leggja á- herzluna á það, sem hefir verulegt gildi fyrir lífið, en forðast óþaíft glingur, sem að eins eyðir peningum og tíma — nema einstöku stulkur, er stefni hærra en að verða bændakonur, en að þvi stefni allur fjöldinn. Fyrirlesturinn var mjög skynsamlegur. Húsfrú Anna, tengdadóttir höí., flutti hann, og fór vel. Sunnudag 28. marz (á morgun) engin kveld- guðsþjónusta. Hjer ineð votta jeg ölluin, fjær og nær, sem tekið hafa þátt i sorg minni, mitt innilegasta þakklæti. María Finsen. Gott fædi geta menn fengið kéypt yfir lengri eða skemmri tima. Líka geta stúlkur fengið hús- næði á sama stað. — Ritstj. vísar á. Uppboðsauglýsing. Samkvæmt lögum 16. des. 1885, sbr. lög nr. 16, 16. sept. 1893 verður, aS undangengnu fjárnámi, ljósmyndáskúr, sem stendur á lóðinni nr. 2 í Kirkjustræti og er eign Ágústs ljósr myndara Guðmundssonar, seldur til lúkningar veðskuld til landsbankans á opinberum upp- boðum, sem haldin verða kl. 12 á hád. laug- ardagana 10. og 24. apríl þ. á. á skrifstofu bæjarfógeta og 8. maí s. á. x eða hjá hinni veðsettu eign. Uppboðsskilmálar verða birtir við uppboðin og til sýnis hjer á skrifstofunni degi fyrir hið fyrsta uppboð. Bæjarfógetinn í Reykjavik 25. marz 1897. Halldór Daníelsson. Uppboðsauglýsing. Mánudaginn 10. maí næstkomandi verður húseign dánarbús Sigurðar Hanssonar stein- smiðs við Grundarstíg í Þingholtum ásamt erfðafestulandi á sama stað (viðaukablettur við Grund) seld við opinbert uppboð, sem haldið verður þar á staðnum kl. 12 á hád. Nokkrir lausafjármunir tilheyrandi dánarbúinu verða seldir um leið. Uppboðsskilmálar verða birtir á uppboðs- staðnum og til sýnis hjer á skrifstofunni nokkra daga á undan uppboðinu. Bæjarfógetinn i Reykjavik 25. marz 1897. Halldór Daníelsson. Takið eptirt Jeg undirskrifaður, hef eins og að nndanförnn, hnakka og söðla, og allt sem að reiðskap lýtnr billegra og vandaðra en hjá öðr- nm, og allt unnið úr bezta efni. Yesturgötu 26. Reykjavík. Olafur Eiriksson, söðlasmiður. Brandassurance Compagni for Bygninger, Varer, Effecter, Creaturer og Höe &c., stiftet 1798 i Kjöbenhavn, modtag- er Anmeldelser om Brandforsikring for Sysler- ne Isafjord, Bardastrand, Dala, Snæfellsnes og Hnappadal, samt meddeler Oplysninger om Præmier &c. Islandske Huse (bæir) optages ogsaa i Assurance. N. Chr. Gram. r Samiiel Olafsson, Vesturgötu 55 Reykjavík pantar nafnstimpla, af hvaða gjörð sem beðið er um. Skriflð mjer og látið 1 krónu fylgja hverri stimpilpöntun. Nafnstimplar eru nettustu Jólag.jafir og sumargjaflr. »LEIÐARVÍSIR TIL LÍFSABYRGÐAR fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr.med. J. Jónas- sen, sem einnig gefurþeim, sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.