Ísafold


Ísafold - 05.06.1897, Qupperneq 3

Ísafold - 05.06.1897, Qupperneq 3
151 Þjórsá. Þannig getur þetta strokfje flutt kláð- ann austur í s/slur, og mundi það tjón verða miklu meira en jarðskjálftatjóuið, og því hryggilegra, sem það yrði að álítast af manna- völdum, en jarðskjálftinn óviðráðanlegur nátt- úruviðburður. Og kæmist kláðinn í suður- hluta Gullbringus/slu, mundi það reynast nú sem fyr, að hvergi á landinu yrði verra að lækna liann, og mundi að líkindum þurfa tilþess fleiri ár, ef ekki hnífur á endauum. Ekki getur verið nokkur vafi á því, að haustið og fyrri hluti vetrar sje eini og sjálfsagði lækn- ingatíminn, ekki heldur hinu að baða með hæfilegu millibili hvern þaun fjárhóp, sem kláða verður vart í. Segjum þessum þjóð- fjanda stríð á hendur og gefum það ekki upp, fyr en allir hans þjónar liggja fallnir á víg- vellinum: Vakið ósmeykir vinir þvi, vakið og takið stál og blý, mál er óveilum hölum, heilum, harða’ í sverða-rimmu’ á ný. Skrifað á Urbanusmessudag 1897. porlákur Guðmundsson. Laufbíað á pófitísku Eeiðí. Eptir Grákoll. I. Herra ritstjóri. — Með mikilli athygli las jeg grein yðar á dögunum um hið »Mein- villandi málaflækjuskjal« Benedikts gamla Sveinssonar. Oneitanlega hafið þjer þar rækilega og röksamlega hrakið rangfærslur hans, synt fram á rökleysi ámæla hans og gífurmæla gegn meiri hluta þjóðfulltrúa vorra, og gert 1/ðum ljósa skamms/ni hans, einstrengings- skap og fjarstæður. Jeg heyri, að margir fagna þessu, og jeg veit, að grein yðar mun hafa þau tilætluðu áhrif, að opna augu manna viðsvegar um landið. Það er nú margra mauna álit, að áhrif og álit gamla Benedikts sem þingmanns sje nú svo þorrið og að þrotum komið, að »mála- flækjuskjalið« muni verða síðasti naglinn í líkkistu þess. Það er ekki heldur hægt að neita því, að eitthvað bendir í þá átt. Sumir hinir atkvæðamestu fylgismenn hans fylgjauú ekki merki hans lengur, svo sem síra Sigurð- ur Stefánsson, og nú síðast Skúli Thoroddsen. Margir fagna nú því, að sjá nú óræk dauða- mörkin á þessari »pólitísku kríu« — svo jeg láni orð eins samþingismanns hans um hann —,»sem hefur gargað svo hátt en gagnað svo smátt á alþingi, og verpt þar svo mörgum fúleggjum, sem aldrei hefir ungi úr skriðið«. Mjer þykir nú þessi dómur nokkuð liarður; en ekki get jeg samt lastað það, þó að þing- sól Benedikts sigi nú til viðar. Jeg álít áhrif hans á þingi, síðustu 10 árin að minnsta kosti, hafa verið landi og l./ð til óbætanlegs skaða. En hins vegar get jeg ekki neitað því, að úr því hann er nú bviinn að grafa sína póli- tisku gröf, þá finnst mjer ekki rjettlátt, að grein yðar um hið »meinvillandi málaflækjuskal« verði hinn eini steinn, sem dreginn er að leg- staðnum sem efni i minnisvarða á leiðinu, þeg- ar búið er að moka ofan í gröfina og gera hana upp. Yfir moldum framliðinna eiga menn að vera óhlutdrægir og minnast kostanna eigi síður en gallanna. Sjer í lagi er mannúðlegt að fylgja þessari reglu, þegar um pólítiskan, en ekki líkamlegan dauða er að ræða, eins og hjer, þar sem hinn framliðni »pólitíkus« er enn þá lifandi í holdinu mitt á meðal vor. Eins og þjer vitið, herra ritstjóri, er jeg maður hniginn á efra aldur, en þó er mjer ekki farið að förla minni enn að neinum mun. Jeghefi verið áheyrandi í alþingissölunum af og til um langan aldur, allt frá því að Benedikt Sveinsson var konungkjörinn þingmaður á ráð- gjafarþingi voru og fram á þennan dag, og því er það svo skiljanlegt, að mjer stendur ljósara fyrir sjónum heldur en hinumyngri mönnumeða þeim, sem fjarlægari hafa verið höfuðstaðnum, yfirlit yfir þingmennsku Benedikts. Því minnist jeg og nú opt með átiægju þingmennsku-eiginlegleika hans, sem meira bar á hin fyrri árin, meðan hann var í fullu fjöri, heldur en nú hin síðustu ár, síðan stirðleiki ellinnar fór að færast yfir sálina. Jeg geng nú að því vísu, að sá pólitiski Benedikt liggi nú á líkbörunum. Af því að menn eðlilega vilja ekki hraða jarðarförinni ósæmilega, þá b/st jeg við að hann verði lát- inn »standa uppi« á alþingi til næstu kosn- inga, ekki aleinn, heldur með svo sem einn eða tvo vökumenn yfir líkinu, þangað til að kosningar fara fram næst og kjósendur »grafa« hann og Isafold kastar á hann rekunum. Jeg veit það verður enginn skortur þá á prestum til að halda líkræðuna. En jeg vildi, að þeir gleymdu þá ekki kostum hins fram- liðua. Sjálfur er jeg nú farinn að hrörna, svo að tvís/nt er að jeg lifi þrjú ár enn. Þó hefir mjer nú dottið í hug, með yðar góðu leyfi, herra ritstjóri, að minna hjer á nokkur atriði, sem mjer finnst að fram ætti að taka yfir nnldum hins framliðna. Þessi atriði eru einkum tvö: 1. Hið stóra »pólitiska« þrekvirki, sem hinn framliðni vann á alþingi. 2. Sú hjól-lipra og þvengmjúka lipurð í skoðana-viðbrigðum, sem einkenndi hann frem- ur öllum öðrum nafnkenndari þingmönnum honum samtíða. Að vísu veit jeg, að það er almannarómur, að aldrei hafi hinn framliðni allt frá vögg- unni til grafarinnar á sínum »pólitiska« æfi- ferli verið frumkvöðull að eða unnið framgang neinu máli eða neinni rjettarbót, sem þ/ðing hafi haft fyrir þjóðlíf vort, eða, eins og þing- maðurinn orðaði það, að öll þau egg, sem hann verpti, hafi orðið tóm fúlegg eða vind- egg- En þó að þetta máske yfir höfuð að tala sje rjetthermi, þá er þó ein undantekning, sem mjer er minnisstæð, og rjettvíst er að halda á lopt. Eina stefnu hóf hann í ís- lenzkri pólitík, sem bar árangur. Það er að vísu satt, að hann fordæmdi þessa stefnu á sínum efri árum. En það dregur þó ekki úr heiðri þeim, sem honum ber sem höfundi hennar og öflugasta talsmanni, sjer í lagi af því að sú starfsemi hans var hin eina í líf- inu, sem bar heillarikan árangur. Þetta var á þingunum 1869 og einkum 1873, þegar hann »sló striki yfir« allar sínar fyrri »lögfræðislegu« og »ríkisrjettarlegu« og »þjóð- legu« rjettarkröfur, og gerðist bljúgur miðl- unarmaður í stjórnarskrármálinu. Árang- urinn af því varð nefnilega sá, að vjer feng- um fyrir bragðið stjórnarskrána 1874 — las- inn garm að vísu og magurt bein, en þó ekki magrara en svo, að hann gat soðið súpu á því beini sjer til næringar til dauðadags. Þetta er hans óvisnanlegi lieiður í stjórn- mála-baráttu vorri, að hann, Benidikt Sveinsson, er vor fyrsti miðlunarmað- ur og höfundurinn að islenzkri miðl- unar-pólitík. Hitt lofið á hann líka moð fullum rjetti, að liprari mann að fóta sig á ólíkustu skoð- unum og m/kri 'mann að vinda sjer við í gagnstæðustu stefnur í einu og sama máli höfum vjer ekki átt meðal nafnkenndra þing- manna. 1 fjárkláðamálinu var hanu þannig á víxl 3'mist lækningamaður eða niðurskurðar- maður. í stjórnarskrármáli voru hefir hann barizt /mist með eða móti sömu skoðuninni á sömu málsatriðum. Og hann hefir gert það með þeim yl og fjöri, sem honum er jafnan svo eiginlegt, og vottað hefir, að hann í hvert sinn hefir af innilegri »helgustu hjartaus sann- færingu« haft fulla tröllatrú á þeim málstað, sem hann í það skipti fylgdi fram. Þetta er ekkert hjegóma-skraf eða gamans- mál, heldur fyllsta alvara. Og með leyfi yð- ar, herra ritstjóri, skal jeg nú færa sönnur á mál mitt|með tilvitnunum til eiginorða hins framliðna, ^ein og þau »stauda skrifuð með óafmáanlegu letri í þingtíðindunum« (svo sem hinn framliðni mælskumaður sjálfur hefir að orði komizt). Vil jeg nii minnast lítillega a hvorttveggja þetta í tveimur þáttum: II. Benedikt Sveinsson sem miðlunarmaður. III. Benedikt í ýmsum áttum. [Framh.]. Fásjeður visindamanns- skapnaður. Hann »Þjóðólfs«-manni okkar hefir komizt i vandasamar vísindalegar hugleiðingar og heilabrot út af því tilfelli, sem getið var um í ísafold fyrir skemmstu, að mannætur 3 i Khöfn hefðu jetið heilan mann þar á einni nóttu, og það stóran mann og þungan; telur ósennilegt, að þeir hafi getað torgað svo miklu kjöti á ekki lengri tíma, og kemst i mestu kröggur út af því. En með þvi að ísafold er jafnan umhugað um að hlynna eptir megni að æskilegum árangri af allri landsheillalegri viðleitni þjóðskörungs þessa og vísindahetju, vildi hún í allri auðmýkt og und- irgefni benda honum á, hvort ekki mundi reynandi að gera ráð fyrir, að likami manns þessa hafi eigi verið eintómt kjöt, heldur talsvert af beinum með, eing og almennt gerist, og hvernig reikning- urinn yrði þá. Þetta er sem sagt reynandi, þó að það líkleg- ast komi i bága við þá vísindalegu niðurstöðu, sem hann, »Þjóðólfs«-maðurinn, virðist hafa kom- izt að í þetta sinn, nefnil. að mannslikaminn sje eintómt kjöt eða annað linmeti, sem tennur vinna á, joví hætt er við, að aðrir visindamenn vilji ekki kannast við nema í hæsta lagi eitt dæmi slíks, og það er of litið til þess að byggja þar á almenna reglu. Þetta eina dæmi hlýtur nefnilega að vera >- Þ jód- ólfs't-maðurinn sjálfur. Hver er sjálfum sjer næstur og sínum hnútum kunnugastur. Vjer viljum nú ekki staðhæfa, að enginn kunni að hafa getað imyndað sjer áður, að einn partur af líkama hans mundi, ef til vill, vera beinlaus eða beinlítill, nefnil. höfuðið, sbr. orðið »Kad- hovedt-, sem mun finnast í dönskum visindamanna- ritum; en að allur líkaminn sje sama eðlis, — það er sjálfsagt öllum öðrum fullkomin nýjung, og ber þvi að skoða sem nýja visindalega upp- götvan í líkamsskapnaðarfræði. Uppgötvun þessi er ekki einungis merkileg í visindalegu tilliti, heldur getur hún orðið stórkostleg fjeþúfa á slnum tima. Hafi læknar hjer gefið sjálf- sagt 100 tieyringa fyrir likama Þórðar Malakoffs að honum lifanda og kostað þar á ofan útför hans að hálfu, hvað mundi þá ekki gefið fyrii jafn-fágætan líkama og þennan á hinum vísinda- lega heimsmarkaði? En eitt yrði væntanlegur kaupandi að hafa í skilyrði: að »vísindamaðurinn« megi i lifanda lífi ekki hætta sjer i neina heimsskoðunarferð, þar sem hann gæti t. d. lent i mannætubyggðum. Það yrði of mikil freisting fyrir þá, aumingjana, jafn-gómsætur, alveg beinlaus biti.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.