Ísafold - 10.07.1897, Blaðsíða 4
19S
rífka: færa aldurstakmarkið til lausamennsku-
niður í 20 ár (úr 22). Lausamenn skulu
jafnan hafa hjá sjer til synis lausamennsku-
leyíið og heimilisfangsskírteinið, staðfest af
hreppstjóra eða bæjarfógeta. Hjví lausamanna
þurfa og að hafa lausamennskuleyfi.
Gutt. Vigf. flytur frv. um að laudssjóður
endurgreiði Hólmapresti í Reyöarfirði eptir-
laun þau til uppgjafaprestsins þar, er hann
hefir greitt fardagaárin 1893—95, og að ár-
gjaldið þaðan færist niður í 200 kr. (úr 600).
Guðl. Guðmundsson vill afnema búnaðar
skólagjaldið (tilks. 12. febr. 1872, 3.og4. gr.)og
láta greiða gjöldin amtsjafnaðarsjóðanna úr
sýslusjóðum, — skipta þeim niður á sýslurnar
eptir samanlagðri tölu lausafjár- og fasteignar-
hundraða og eptir raanntali í hverju sýslu-
fjelagi. Eptir sömu reglum skal og skipta á
hreppsfjelögin gjöldum þeim, er sýslunefnd-
irnar jafua niður. Þeir sem tíunda 1 hndr.
lausafjár eða meira, greiði 2 kr. í hundaskatt,
en aðrir 10 kr. Hundaskatturinn rennur í
sýslusjóð.
Prestskosningafrumv. frá síðasta þiugi bera
þeir upp, Jón Jónsson (N.-Múl.) og Gutt.
Vigfússon.
Stjórnarskrármálið.
Eptir hinar miklu og áköfu umræður um
frv. dr. Valtýs var á kveldfundi 7. þ. mán.
samþykkt með 13 : 10 atkv., að setja nefnd í
málið. Þessir 10, sem hafna vildu nefnd,
voru: Ben. Sv., Guðjón G., Klemens Jónsson,
Pjetur Jónss., Sigliv. Arn., Sig. Gunn., Tr.
Gunn., Þórður Guðm., Þórður Thoroddsen.
Nefndarkosniag hlutu: Ben. Sveinss., Gviðl.
Guðm., Klemens Jónss., l’jetur Jónsson, Sig.
Gunn., Skvili Thor. og Valtýr Guðm.
Að meiri hlutinn í ncfndinni (4) varð úr
flolcki þessara 10, minni hlutans, var af því,
að þeir, minni hl., heimtvvðu hlutfallskosninga-
aðferð hafða við nefndarkosninguna, rjett áður
en ganga skyldi til atkvæða, — í fyrsta skipti,
sem henni hefir beitt verið hjer á þingi —,
sjálfsagt að fyrirhuguðu ráði og með fyrir
fram gerðum samtökum um, hverja setja
skyldi í nefndina. Kom þetta flatt upp á
hiua, meiri hlutann, og fór kosningin hjá þeim
ekki svo fimlega, sem þarf við þessa kosn-
ingaraðferð, af vanaleysi. Bezt hefði átt við,
er þannig stóð á, að fresta fundi, áður en
kosið væri; en því andæpti minni hlutinn á-
kaft. Raunar mun samt þessi samsetning
nefndarinnar ekki hafa mikil áhrif á úrslit
malsins.
Timbur.
Undirskrifaður
á von á timburfarmi
í næ.stu viku.
Vel valið tirnbiir,
af öllum tegundum.
Þeim, sem enn þurfa á timbri
að halda vilja hafa góða
vöru, vil jeg’ ráðieggja að bíða
og líta á gæði þessa timburs
áður en þeir festa kaup ann-
arsstaðar.
Reykjavík 7. júlí 1897.
Th. Thorsteinsson.
(Liverpool).
$0F~ Seltirningar geri svo vel að vitja
ísafoldar í afgreiðslu blaðsins (Austur-
str. 8), þegar þeir eiga leið um.
Við undirskrifaðir tilkynnum hjer með bæjar-
búum og öðrum, að HESTAR þeirra i Eossvogi,
sem gjöra okkur ágang á tún eða engjar, verða
teknir fastir á kostnað eigenda eptir birtingu þess-
arar auglýsingar.
Digranesi og Kópavogi, 10. júli 1897.
Jón Guðmundsson. Helgi Guðmundsson.
»Iúorgnet« með festi, sem fundizt, hefir á göt-
unni, skiiist a afgreiðslustofu Isafoldar.
Á morgun, sunmid. 11. jvilí kl. 11.
f. m. prjedikar Mr. Alex. Marshall evangelisti
frá Glasgow í fundarsal HjálpræðísherS'
ins- Allir velkomnir.
Að kvöldi sama dags tekur hann og fjelag-
ar hans þátt í samkomu hersins kl. 6 e. m.
Inngangseyrir sem vandi er til.
Verzlun
Jarpur bestur, 7 vetra, velgengur og viljugur,
mark: stýft vinstra, tapaðist úr heimabögum á
Laugalandi við Reykjavík aðfaranótt hins 7. þ.m.
Hver sem hittir hann er beðinn að koma hon-
um til Jóns Kristjánssonar á Laugalandi við
Reykjavik.
Takiö eptir.
Hjermeð auglýsist, að við undirskrifaðir höf-
um myndað fjelagsskap okkar á milli upp frá
þessum degi og tökum að okkur að inna af
hendi alla þá málara vinnu, sem að húsum,
húsgögnum, skildum og skrúði lýtur.
L. Jörtjenscn og J. Lange,
málarar
heimili: MJÓSTRÆTI nr. 4.
Fumlizt hefir reiðbeizl nálægt Rauðará. Má
vitja að Bergstöðum í Rvík.
Deir, sem kynnu að vilja kaupa sögu- og frœði-
bœkur til að stofnsetja lestrarfjelag, geta snúið
sjer til Sigurðar Erlendssonar á Laugaveg nr. 26.
NB. ef margar bækur eru keyptar í einu fæst dá-
lítill afsláttur, sömul. »Fjallkonan« frá upphafi.
Uppboðsauglýsing.
Eptir kröfu Landsbankans og að undan-
gengnu fjáruámi verður jörðin þóroddstaðir
á Miðnesi, sem er eign Guðrúnar Egilsdótt-
ur Waage, boðin upp til sölu við 3 opinber
uppboð mánudaginn hinn 19. þ. m., 2. og
16. n. mánaðar kl. 12 á hádegi til lúkn-
ingar veðskuld til Landsbankans, að upp-
hæð 350 kr. auk vaxta og kostnaðar.
Hin tvö fyrstu uppboðin fara fram bjer á
sknfstofunni, en hið síðasta á jörðinni sjálfri.
Sölukilmálar verða til sýnis á hinu 1. upp-
boði.
SkriÍ8tofu Kjósar- og Gullbr.s. 4. júlí 1897.
Franz Siemsen.
Uppboðsauírlýsing.
Samkvæmt ályktun skiptarjettarins í þrota-
búi Gísla heitins Jónssonar á Loptsstöðum
verður eign búsins, £ jörðin Eystri-Lopts-
staðir í Gaulverjabæjarhreppi, 9‘/2 hndr. að
dýrl., boðin upp og seld hæstbjóðanda við
3 opinbert uppboð, sem haldin verða hin 2
fyrstu á skrifstofu sýslunnar að Kaldaðar-
nesi laugardagana 21. og 28. ágúst kl. 12 á
hádegi, og hið þriðja á jörðinni sjálfri laug-
ardaginn 4. septemb. næstk. kl. 2 e. h.
Söluskilmálar verða til sýnis á skrifstofu
sýslunnar degi fynr hið fyrsta uppboð.
Skrifstofu Arnessýslu, 1. jiilím. 1897.
Sigurður Ólafsson.
Skiptafundur
í dánarbvii Björns heitins Eyjólfssonar í Her-
dísarvík verður haldinn að Nesi í Selvogi
fimmtudaginn 26. ágústmán. næstk. kl. 12
á hádegi. Verða þá leidd vitni um það,
hvort arfleiðsluskrá sú, er hinn látni ljet
eptir sig, sje rjett, og að því búnu skiptun-
um væntanlega lokið. Áríðandi er, að allir
erfingjar mæt: eða láti mæta.
Skrifstofu Árnessýslu, 30. júnf 1897.
Sigurður Óiafsson.
H. CLAUSENS i Co.
Nýkomið með »Botnia«:
Alla vega litt flauel,
Alla vega litt flos (Plyds),
Silkiefni í svuntur,
Musselin (netludúkur),
alla vega litt atlask silki-
Silkihnýti (slips).
Silkiborðar af öllum litum,
Silkiblæjur (slör) og margt, margt fl.
Við timburyerzlun
CHR. CHRISTIANSEN S
í Reykjavlk fást keypt ágæt
OFNKOL
á 20 kr. pr. ton. - Einnig ágætt
FISKSALT
fyrir 21 kr. pr. ton.
Hvorttveggja verðnr til sýnis hjá und-
irskrifuðum.
Reykjavík 9. júlí 1897.
B- Guðmundsson.
AGÆTUR
f»akpappi
(klæðningspappi)
fæst í verzlun
Th. Thorsteinssons
(Liverpool).
Við sem ritam nöfn okkar hjer undir, gjörum
vitanlegt, að frá útkomu þessarar auglýsingar,
tökum við ekki HESTA af ferðamönnum til pöss-
unar fyrir lægra gjald en lö aura fyrir hvern
hest um 24 tima, og er það af þeim ástæðum, að
okkur hefir fundizt meiri skaði en ábati að passa
hesta og leggja til haga fyrir 10—12 aura.
9. júlí 1897.
fíisli Björnsson
Laugarnesi.
Ólafur Gnnnlaugsson
Artúnum.
Jón Kristjánsson
Laugalandi.
Jón Olafsson
Bústöðum.
Oddur Einarsson
Kleppi.
Olafur Björnsson
Lækjarbakka.
Jón Guðmundsson
Digranesi.
Veðurathuganir í Reykjavik, eptir Dr. J. Jónassen
Hiti I (A CeUiua) Loptþ.mælir (millimet.) Veðurátt.
á nótt jum hd. fm. , em. fm. em.
Ld. 3. + 7 + 13 754.4 754.4 N h b N h b
Sd. 4. + 7 -f 13 754.4 749.3 0 b N h b
Md. 5. + 7 + 13 746.8 '<49.3 N h b 0 b
Þd. 6. + 7 +13 751.8 749.3 N h b V h b
Md. 7. + 6 + 12 749.3 746.8 A h d Sa h d
Ed. 8. + N + 10 736.6 736.6 A h d 0 <1
Ed. 9. + 8 + 10 744.2 749.3 Sv h d 0 d
Ld. 10. + 8 746.8 Sa hvd
Bjart og fagurt veður til hins 7. er hann fór
að dimma af austri og rigndi mikið aðfaranótt
h. 8. og þann dag mikið eptir miðjan dag; h. 9.
útsunnan, hægur með regnúða fyrri part dags
logn að kveldi. I morgun (10.) landsynningur,
hvass, hefir rignt i nótt.
Ein eða tvær heldri stúlkur geta feng-
ið mjög þægilega stöðu við VERZLUNAR-
STARF. Ritstj. vísar á.
Útgef. og ábyrgðarm. Björn Jónsson.
Meðritstjóri Einar Hjörleifsson.
ísafoldarprentsmiðja.