Ísafold - 28.07.1897, Síða 1

Ísafold - 28.07.1897, Síða 1
Kemur út ýmist einu sinnieða tvisv.í vibu. Verb árg.(90arka minnst) 4kr., erlendis 6 kr.eða l*/a doll.; borgist fyrir miðjan júli (erlendis fyrir fram). ÍSAFOLD Uppsögn (skritleg)bundinvið áramót, ógild nema komin sje til útgefanda fyrir 1. október. Atgreiðslustota blaðsins er í Austurstrœti 8. XXIV. árg. Reykjavík, miðvikudaginn 28- júlí 1897- 58. blað. Grýlur. Otrúlegar erp grylurnar, sem sumir menn geta búið sjer til í stjórnarbótarmáli voru — eða að minnsta kosti reynt að hræða aðra menn með. I’að stendur víst mörgum fyrir minni, hvern- ig mótstöðumenn þingsályktunarinnar töluðu um þingtímann í hitt ið fyrra. Enda þó þingsályktunin krefðist þess, að sjermál vor væru leyst undan yfirráðum ríkisráðsins, að ráðgjafi vor yrði innlendur maður, búsettur hjer á landi, að hann mætti á alþingi, að hann bæri ábyrgð á allri stjórnarathöfninni og að skipaður yrði landsdómur til þess að dæma þau mál, er konungur cða neðri deild kynni að höfða mót ráðgjafanum — enda þótt alls þessa væri krafizt, þá átti þetta að vera »alger uppgjöf allra vorra landsrjett- inda«. Það hefir heilbrigð skynsemi þroskazt vor a meðal á síðustu tveimur árunum, jafnvel í heilum þeirra manna, sem urðu til þess að unga út þessu skoffíni, að nú verður enginn lengur var við þá grýlu. Svo gersamlega er hún niður kveðin, að höfundar hennar hafa nú sætt sig við að biðja um miklu minna en fram á var farið í þingsályktunartillögunni, og þykjast þó, jafnt eptir sem áður, standa stöðugir á verði gegn þeim, er draga vilja úr landsrjettindum vorum. En grýlulausir geta þeir ekki verið — ekki rneð nokkru lifandi móti. Það er auðsætt, að þeir hafa óviðráðanlega sköpunarþrá. Og af því að engin nýtileg pólitisk hugsun getur kviknað í þeirra heila, þá láta þeir sjer nægja að skapa grýlur. Hvort þeir verða sjálfir myrkfælnir við þær, skal hjer látið ósagt. Hitt er víst, að þeir noca þær til að hræða aðra menn með — þangað til þeir verða þess vísari, að engum lifandi manni stendur minnsti beigur af draugum þeirra. Þa fara þeir sjálf- ir að hjálpa til að koma þeim fyrir og þykj- ast vaskir menn. Ut af tveimur gr/lum eru þeir hróðugastir sem stendur. Önnur er sú, að með þeirri stjórnarbót, sem fram hefir verið haldið hjer í blaðinu, verði ráðgjafaábyrgðin ekkert nema uafnið eitt, að tilboð stjórnarinnar um hana sje ekkert annað en yfirskin, blátt áfram vís- vitandi tál. Röksemdirnar fyrir þessari einkennilegu staðhæfingu virðast vera þær — venjulegast eru þær vafðar í svo miklum umbúðum, að ^eldur er örðugt að komast inn að kjarnan- um — að ríkisráðið sje aldönsk stjórnarstofn- un, og þess vegna hafi íslenzka löggjafarvald- ið engan rjett á að gefa út lög um ábyrgð á hendur íslenzkum ráðgjafa fyrir það, er hann hafist að í ríkisráðinú. Oneitanlega væri mikill sálarfræðislegur fróðleikur í því fólginn, ef komizt yrði að óyggjandi raun um, hvort mönnum er alvara með annað eins og þetta, hvort þeir fælast í raun og veru sjálfir þennan draug, eða hvort hann er eingöngu sending til þeim andlega lítilsigldari manna. Samkvæmt stöðulögunum og stjórnarskránni höfum vjer sjerstök landsrjettindi. Samkvæmt stjórnarskránni eru meðal annara landsrjett- inda vorra þau, að liafa ráðgjafa fyrir Island, sem alþingi geti lögsótt fyrir stjórnarskrár- brot. Engum lifandi manni, hvorki íslenzkum nje dönskum, hefir nokkru sinni til hugar komið að efast um, að vjer hefðum þessi rjettindi, eða binda þau því skilyrði, að brotið sje ekki framið í ríkisráðinu. Ríkisráðið danska hefir samþykkt. þau og konungur staðfest þau. Aldrei hefir verið ymprað á mótmælum gegn þeirc. Þingið hefir meira að segja fengið einn af færustu lögfræðingum Daua, Oetavius Han- sen hæstarjettarmálfærslumann, til þess að kynna sjer sjerstaklega ráðgjafaábyrgðina ís- leuzku, og hann hefir ekki látið uppi nokk- urn minnsta efa um að vjer getum lögsótt ráð- gjafaun fyrir stjórnarskrárbrot. Og svo koma Islendingar, og neita því að vjer höfum þessi landsrjettindi, fullyrða að ráð- gjafaábyrgð vor sje eingöngu háð grundvallar- lögum Dana! Aðalröksemdir þeirra stefua í þá átt að sanna, að vjer höfum ekki þau lands- rjettindi, sem stjórnarskráin segir svo ótví- rætt, sem framast má vera, að vjer höfum. Stjórnarbótarbarátta þeirra er nú komin í það horf, að reyna að svipta oss þeim landsrjett- indum, sem Danir efast ekki um að vjer höfum! Þetta væri nú sök sjer, væri ef til vill ekki eincj ngu botnlaus þvættingur, ef þeir því jafnframt getigju í lið með þeirn mönnum, sem segja að grundvallarlög Dana nái til sjer- ntála vorra. En það gera þeir ekki. I öðru veifinu segja þeir, að grundvallarlög Dana komi oss ekkert við. I hinu veifinu, að alþingi geti ekki haft rjett til að lögsækja ráðgjafa Islands, af því að það komi í bága við gruud- vallarlög Dana, enda þótt það sje heimilað í stjórnarskrá vorri. Annaðhvort hl/tur að vera sjónvitlaust. Það ætti hver maður að sjá. Komist menn nú að þeirri niðurstöðu, sem enginn ágreitiingur hefir verið um fyrr en á þessu þingi, að alþingi hafi rjett til að lög- sækja ráðgjafann fyrir stjórnarskrárbrot, hvort sem þau eru framin í ríkísráðinu eða annars staðar, þá liggur líka vitanlega í augum uppi, að ísleuzka löggjafarvaldið getur breytt ábvrgð- arákvæðunum í það horf, að ráðgjafinn beri ábyrgð á allri stjórnarathöfninni, án nokkurr- ar hliðsjónar á því, hvort hann leggur sjer- mál vor fyrir ríkisráðið eða ekki. Það atriði er svo augljóst, að ekki þarf að líkiudum neinum orðum að eyða því til sönnunar — ekki einu sinni við hr. Benedikt Sveinsson og fylgiblöð hans. Allt veltur þetta á þessu eina: getur alþingi, eins og nú stendur, lögsótt ráðgjafann fyrir stjórnarskrárbrot? Ben. Sveinsson og blað hans segja »nei«. Allir aðrir, Danir jafnt og íslendingar, segja »já«. Oneitanlega virðist oss sönnunarskyldan liggja á neitendunum, þar sem þeir hafna ský- lausu ákvæði stjórnarskrárinnar. Og lakasti hængurinn fyrir þá sjálfa yrði sá, að röksemda- færslan yrði að byrja með sönnun fyrir því að grundvallarlög Dana nái til sjermála vorra. En þá færi pólitík Ben. Sveinssonar að verða í meira lagi kynleg — þó sízt sje fyrir að synja, hvað fyrir kann að koma. — Hin gr/lan er sú, að með því að breyta stjórnarskránni á þann hátt, að skipaður sje sjerstakur ráðgjafi fyrir ísland, sem mæti á alþingi og beri ábyrgð allrar stjórnarathafn- arinnar, án þess að bæta inu í stjórnarskrána því ákvæði, að hann skuli ekki bera sjermál vor upp í ríkisráðinu, lögleiðum vjer það fyr- irkomulag, að sjermálum vorum er haldið þar. Sje ábyrgðar-grylan völt á fótunum, þá er þessi lögleiðingar-gr/la blátt áfram svo lopt- kennd, að það er óhugsandi, að hún þoli minnsta andvara. Allir segjum vjer, Ben. Sveinsson ekki síð- ur en aðrir, að stjórnarskrá vor kveði svo á, að sjermál vor eigi ekki að berast upp í rík- isráðinu. Svo segir Ben. Sveinsson, að ef þeim ákvæðum, sem hann byggir þetta álit sitt á, sje ekki breytt, þá sje þar með lögleiddur skilniugur, sem er þvert á móti þeim ákvæð- um! Nú á það að vera »algerð uppgjöf á landsrjettindum vorum«, að breyta ekki því, sem vjer höfum verið að vitna í oss til stuðn- ings um 23 ár! Eina huggunin gegn tilbúningi þessara gr/lna er sú, að Ben. Sveinsson er manna vísastur

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.