Ísafold


Ísafold - 02.10.1897, Qupperneq 3

Ísafold - 02.10.1897, Qupperneq 3
283 um í einum ættlið að eins, stundum í fleiri ættliðum. En svo koma aptur fram kynferð- isdyr, alveg eins og þau er áður höfðu getið af sjer kynlausu afkvæmin —- og svo koll af kolli eptir ákveðnum reglum. Sem dæmi þessara ættliðavíxla má nefna marglyttuna. Hún verpur eggjum, en úr þeim eggjum koma ekki marglyttur, heldur »pólyp- ar« sem festast hjer og þar, og vaxa þarsem þeir eru komnir. En eptir nokkurn tíma losna ofan af því flögur, sem verða að marg- lyttum. Þá má og nefna annað dæmi, sem vjer Islendingar höfum því miður haft mikil kynni af. Það er bandormurinn, sem hefir kynferði. Ur eggjum hans kemur ekki band- ormur, heldur kynlaus blöðruormur (sullur), en svo er bandormurinn aptur afkvæmi blöðru- ormsins. Uppgötvun þessi aflaði Steenstrup mikillar frægðar. Rannsóknir hans í mvrarfenjunum í Dan- mörku eru og stórmerkilegar. Þar las hann að nokkru sögu landsins betur en gert verður annarsstaðar. Þar sá hann, hvernig trjáteg- undirnar höfðu tekið við hver af annari, og hvernig dýralífið hafði tekið breytingum, samfara breytingunum á loptslagi og gróðrin- um. Þar fann hann og bendingar um lifnað- arháttu mannanna, og á þann hátt varð forn- fræðin honum að hugðarefni. Merkasta skerfinn til fornfræðinnar hefur hann lagt með rannsóknum sínum á gömlum sorphaugum (Kökkenmöddinger), sem enginn maður hafði áður litið við. I þessum haug- um fann hann sannanir fyrir því, hvernig lifnaðarhættir Norðurlandaþjóða hefðn verið löngu áður en sögur hefjast. Hr. cand. theol. Frlðr. Hallgrímssou prjedikar á morgun i dómkirkjunni, í hádegismess- unni. Botnverpingur sektaður. Loks náði Heimdallur í einn hinna mörgu botnverpinga, sem verið hafa að staðaldri að skafa botninn hjer í flóanum sunnantil undanfarnar vikur. Það var á miðvikudaginn 29. f. m., undir Hólmsbergi. Kom herskipið með sökudólg þennan i>Peridot«, frá Hull, hingað inn á höfn þá um kvöldið og varð hann sektaður um 60 pd. sterl., eins og vandi er til, en veiði og varpa gert upptækt. Póstskipið „Laura“ kom í dag, eptir 11 daga ferð frá Khöfn. Með því kom konsúll D. Thomsen. Aukaskipið, sem fara á haustferðirnar í stað »Yestu«, fyrir landssjóðs reikning, verður Hjálmar, hið nýja skip Thor E. Tulinius’s i Khöfn. Fjárflutningar. Það eru um 30,000 fjár, sem þeir Zöllner & Co i Newcastle hugsa til að flytja út í haust, mest til Frakklands (4—5 farma), nokkuð til Belgiu (1 farm), og litils háttar til Newcastle og Liverpool, til slátrunar þar. Weyer & Schou hafa hinar mestu og ódyrustu birgðir af alls konar bókbandsverkefni, öll áhöld til bókbands, nyjustu vjelar, og stýl af öllum tegundum. Viingaardstræde 15. Kjöbenhavn K. Undirskrifuð veitir stúlkum tilsögn í alls konar handavinnu. Þóra Björnsdóttir. (Austurstr 5). Uppboösauglýsing:. Föstudaginn 8. þ. m. kl. 11 f. hád. verður opinbert uppboð sett og haldið á verzlunar- lóð kaupmannanna H. Th. A. Thomsens og W. Christensens og þar selt tómir kassar tunnur og fl. Sölrskilmálar verða birtir fyrir fram. Bæjarfógetinn í Rvík, 2. okt. 1897. Halldór Danielsson. Skiptafundur í dánarbúi Jakobs snikkara Sveinssonar verð- ur haldinn á bæjarþingsstofunni mánudaginn 25. þ. m. kl. 12 á hád., og verður skiptun- um þá væntanlega lokið. Bæjarfógetinn í Reykjavík, 2. október 1897. Halldór Daníelsson. Fundizt hafa snemma í júlímánuði í Hafn- arfirði 3 ljáblöð. Samkvæmt opnum brjefum 8. júní 1811 og 5. des. 1812 getur eigandinn vitjað þeirra hjer á skrifstofunni gegn fundar- launum og borgun auglýsingar þessarar. Skrifst. Kjósar- og Gullbr.sýslu 28. sept 1897. Franz Siemsen. Skiptafundur í dánarbúi Guðrúnar Gísladóttur frá Elliða- vatni verður haldinn mánudaginn 18. þ. m. kl. 12 á hád. á bæjarþingsstofunni. Verður þá lögð fram til yfirskoðunar skrá yfir skuld- ir búsins og yfirlit yfir fjárhag þess. Bæjarfógetinn í Reykjavík 2. okt. 1897. Halldór Daníelsson. Skiptafundur í dánarbvíi Þorbjarnar Jónassonar kaupmanns verður haldinn á bæjarþingsstofunni mánudag- inn 8. nóvember næstkomandi kl. 12 á hád. Verður þá lögð fram skrá yfir skuldir búsins til meðferðar á lögboðinn hátt og skýrt frá efnahag þess. Bæjarfógetinn í Reykjavík 2. okt. 1897. Halldór Daníelsson- Mitt innilegasta hjartans þakklæti votta jeg hjer með fyrst og fremst meðlimum Goodtemplar- stúkvmnar »Verðandi«, og svo öllum þeim öðrum Reykjavíkurbúum, sem við hina þungu banalegu míns hjartkæra, góða og efnilega sonar, Bergþórs sál. Bergþórssonar, sem andaðist 4. þ. m., á 23. aldursári, og síðan við jarðarför hans auðsýndu mjer mannkærleiksrika hluttekning í minni djúpu sorg með umhyggjusamri aðstoð, hugsvalandi orð- um, og göfuglyndum gjöfum, og gjörðu mjer þann- ig minn sára sonarmissir ljettbærari. Góður guð launi þeim öllum með sinni blessun. Reykjavík 24. sept. 1897. Vigdís Jónsdóttir. í þakksrávarpi sínu i 44. tölublaði þ. á. getur hr. Páll Ögmundsson í Ey þess, að ferðin hafi verið þeim »kostnaðarlaus, nema ferjutollurinn yfir Ölfusá«. Þetta er ekki rjett: þeir, sem fluttu þá fjelaga yfir ána, voru þeir Bjarni Grímsson og Þorkell Þorkelsson, búðir frá Oseyrarnesi, og tóku þeir engan ferjutoll fyrir; Páll gat þess við ferju- mennina, að hann ekki væri þá svo staddur, að hann hefði ferjutollinn við hendina, og svöruðu þeir honum þvi, að ekki væri venja að krefjast hans af sjóhröktum mönnum, er væru á heimleið. En sje svo, að Páll hafi nokkursstaðar skrifað ferjutollinn inn í viðskiptareikning minn, án þess jeg viti, þá á slíkt ekki að vera. Jeg ætlaðist og ætlast ekki til neinnar borgunar fyrir flutning þeirra í áminnzt skipti. Óseyrarnesi 10. júli 1897. Grimur Gíslason. Ókeypis læknislijálp á spítalanum, þriðjudag og föstudag kl. 11— 12. J. Jónas en. 8auM|e selur undirskrifaður mánudagin>i 4. pessa mán. í porti hr. gullsmiðs Olafs Sveins- sonar- Fjeð selst á fæti eða eptir niðurlagi eptir því sem um semur. Fjeð kemur af góðu haglendi. Reykjavík, 2. okt. 1897. Björn Kristjánsson- 2 herbergi til leigu fyrir einhleypa. Ritstj. vísar á. baðmeðul fi?á S. Barnekow í Malmö Glycerinbað o<>’ Naptalínbað verðlaunað á öllum sýning-um, vel þekkt hjer á landi. Má blanda meö köldu vatni. Selst mjög ódýrt og mikill afsláttur í stærri kaupum. Einka-útsölu á íslandi hefir Th. Thorsteiiisson (Liverpool). Saltfiskur svo sem: Smáfiskur, upsi og keila fæst gegn smjöri og peningum í verzlun Th. Thorsteinssons (Liverpool). STEINOLÍUTUNNUK kaupir Th. Tliorsteinsson Húsið Nr. 13 við Laugaveg, fjölförnustu götu Reykjav., er til sölu; húsinu fylgir stór matjurtagarður, sem er nægileg lóð undir tvö hús sitt við hvora götu. Upplýsingar um verð og borgunarskilmála gefur Ólafur Arinbjarnarson verzlunarmaðúr. Týnzt hefir á Skildinganesmelunum eða á Kaplaskjólsveginura niður í bæ regnkápa svört með tómri hálfflösku í vasanum. Finn- andi er beðinn að skila henni í Apótekið. Lögtak á ógreiddum gjöldum til dómkirkjunn- fer fram eptir nokkra daga. Hestur tapaðist frú Fjelagsgarði 30. sept.,grár, aljárnaður, og i hafti. Mark: blaðst. aptan h., blaðst. fr. v. Finnandi skili honum til Sigurðar Guðmundssonar skólapilts Póstbússtræti 16 Rvík. Jeg undirskrifaður lýsi bjer með yfir þvi, að jeg við nákvæma yfirvegun hefi sannfærzt um að þau móðgandi og meiðandi nmmæli, sem jeg hefi siðastliðinn vetur haft um berra Björn Þor- gilsson í Þórukoti í Njarðvíknm, eru sprottin af rangminni, og apturkalla jeg þau þvi, og bið alla að skoða þau sem ósönn og tilhæfulaus. Þessu til staðfestu er nafn mitt og tveggja und- irritaðra votta. Staddur á Yzta-Skála 25. sept. 1897. Jón Stefánsson frá Miðskála. Vitundarvottar: Einar Jónsson Kjartan Einarsson.

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.