Ísafold - 13.11.1897, Blaðsíða 3
323
optar en þrisvar; í Hatna og Miðness hreppa átti
hann að fara 5 ferðir; en í Bessastaðahrepp
kom hann áldrei. Hafa nú ekki þessir hreppar
líka ástæðu og Kjósarsýslubúar til að minnast á
tillögur sinar til gufubátsins og hera þær saman
við gagnið, sem þeir hafa haft af honum?
Hess má geta, — þeim til huggunar, sem litið
hafa notað þetta samgöngufæri, — að hinir, sem
mest hafa notað það, hafa ekki fengið það ó-
keypis. — Það er min meining, að gufuhátaferð-
irnar um Faxaflóa sjeu þær einu samgöngubætur,
sem geti orðið Gullbringu- og Kjósarsýslubúum að
verulegu gagni, ef ferðunum er haganlega niður-
raðað, og ætti því enginn hluti sýslunnarað telj-
ast undan að leggja til þeirra sinn litla skerf,
þvi tillögurnar frá hverjum einstökum hreppi geta
ekki þunghærar lieitið. (Niðurl. næst).
Landakoti 29. okt. 1897.
Guöví. Guðmundsson.
íúlskipa-afli kaupm. Th. Thorsteinssons i
Reykjavik 1897. Hann hafði 5 skip við þorsk-
veiðar í sumar og 1 á hákarlaveiðum. Aflinn
varð sem hjer segir:
Margrjet (skipstj. Finnur Finnsson, skipverjar
20) fekk á 25 vikum 79,217 fiska, er úr varð 478
skpd. 204 pd. af verkuðum fiski,; fóru 165ískpd.;
meðaltal á mann 23 skpd. 298 pd. af verkuðum
fiski.
»City of BristoL (Jóhannes Bjarnason, 16 manns)
fekk á 22 vikum 45;540 fiska = 212 skpd. 6 pd.
verkuð; 214 skpd; 13 skpd. 80 pd. á mann.
»Shakspeare« (Magnús Magnússon, 20 manns)
fekk á 13 vikum 43,306 eða 213 skpd. 149 pd.;
203 i skpd; 10 skpd. 215 pd. á mann.
»Gylfi« (Ellert Sehram, 12 manns) aflaði á 23
vikum 43,201 eða 226 skpd. 289 pd.; 190 í skpd.;
18 skpd. 291 pd. á mann.
»Geir litli* (Stefán Bjarnason, 8 manns) fekk
á 13 vikum 17,112.
»Matthildur« (Þorlákur Teitsson, 9 manns) afl-
aði á 25 vikum 578 lifrar (18 kúta mál).
Farsóttír i Reykjavíkurlæknislijeraði.
Júli: Taugaveiki 4. Heimakoma 1. Kighósti
2. Lungnakvef 3. Lungnahólga (Pn. croup) 1.
Maga- og garnakvef 13. Kláði 1.
Agúst: Taugaveiki 3. Lungnakvef 14. Lungna-
hólga 5 (Pn. cat. 2, Pn. croup.) 3. Maga- og
garnakvef 8. Barnsfararsótt 1. Gkmorrhea 1.
íjungnatæring 6. Kláði 3.
September: Taugaveiki 2. Kverkahólga 3.
Barnaveiki 1. Lungnakvef 13. Lungnabólga(Pn.
cat.) 2. Maga- og garnakvef 15. Barnsfararsótt
1. Gonorrhea 2. Kirtlaveiki 5. Lungnatæring 3.
Holdsveiki 1.
Október: Taugaveiki 2. Kverkabólga 4. Lungna-
kvef 25. Lungnabólga (Pn. croup.) 2. Maga- og
garnakvef 13. Kirtlaveiki 2. Lungnatæring 4.
Sullaveiki 2. Kláði 1.
Rv. 8. nóv. ’97.
Guðm. Björnsson.
,,t»jóðólfs“-maðurinn dæmdur. Eins og
marga mun reka minni til, varð hann fyrir því
slysi í vor sem leið, að vera dæmdur í hjeraði í
100 króna útlát fyrir óvandaðan munnsöfnuð um
ritstjóra þessa blaðs. Svo hafði honum þar að
auki ekki líkað formáli sá, er ísafold hafði fyrir
lögsóknartilkynningunni, þar sem hann var kallað-
ur meðal annars ljúfmenni, prúðmenni, snyrtimenni
og mörgum öðrum fögrum nöfnum, — hann fór
i mál til að hrinda af sjer þeim áburði, losa sig
undan ]ieim hvimleiðu nafnagiptum; en það reynd-
ist árangurslanst. Þangað til nú i yfirrjetti. Þeir
hafa miskunnað sig yfir hann, hinir háu yfirdóm-
arar landsins, og láta áminnzt ummæli, tilnefndan
formála, varða 40 króna sekt, — án þess þó að
dæma þau dauð og ómerk.
Maðurinn er þessum dómi fegnari en frá megi
segja. Hann leikur á als oddi. Það gengur næst )
þvi, sem hann hefði nýhrundið af höndum sjer
meiri háttar uppsagnar-atlögu, með harðfengilegu
fulltingi Skjaldvarar.
Hann lýsir innilegri velþóknun sinni á yfirdóm-
urunum, en veitir undirdómarannm þungar átölur;
þykir hann auðsjáanlega hafa stórum inisgert við
sig.
Þannig lagað hugarfar, — að láta sjer vera
skapraun í gullhömrum um sjálfan sig, — hefir ef
til vill eugan veginn verið dæmalanst i kristninni
fyrir mörgum öldum, þegar andlegar og líkamleg-
ar meinlætingar voru metnar með mestu yfirburð-
um frægra trúargarpa, og má vera, að guðsmaður
þessi hafi tekið sjer einhvern slíkan til fyrirmynd-
ar. En nú á thnurn mun slikt í meira lagi fágætt,
ef eigi eins dæmi. Afreksmenn vorrar aldar eru
yfirleitt allt öðru visi skapi farnir. Má mikið
vera, ef þeir treysta sjer einu sinni til að hugsa
sjer það sem óumræðilega sálarkvöl, að verða fyr-
ir maklegu lofi með viðeigandi íburðarmiklum
kenningum, eða þá hitt sem frámunalegt fagnaðar-
efni, að vera dæmdur af öðrum eins fríðindum.
Messufall á morgun í dómkirkjunni; ekki full-
þurr orðin innan.
Hjálmar« komst á stað á Sunuud. 7. þ. m.
Skipstj. Guðmundur Kristjánsson fór með skipinu,
til að bæta úr ókunnugleika skipverja hjer við
land. Annars fór fátt farþega. Sumir settust
aptur.
Gufuskipið „Merkur“ (244 smál., skipstj.
Kvindesland) kom liingað aðfaranótt 11. þ. m. frá
Leith með vörur til Ásgeirs kaupm. Sigurðssonar
hjer og Pöntunarfjelags ísfirðinga. Hefir verið
von á skipi þessu frá því snemma í haust. Það
var 5^/ss sólarhring á leiðinni. Það er eign hins
sameinaða gufuskipafjelags í Kaupmh. Með því
komu farþegar þeir, er eptir urðu af »Hjálmari«
i Leith og nefndir eru i síðasta blaði.
Staðarbruni. Staðurinn að Kirkjubæ i Hró-
arstungu, þar sem síra Einar próf. og alþm. Jóns-
son er prestur, brann snemma í f. m., nýtt timb-
ur íbúðarhús vænt m. m., fjós með 6 nautgripum,
er köfnuðuðu. Fólki bjargað, en litlu öðru. Skað-
inn metiun að sögn 10,000 kr. Allt óvátryggt,
hús og munir.
Sigling. Hjer kom í nótt eptir 16 daga ferð
frá Liverpool skipið »Hermod«, 96 smál., skipstj.
Petersen, með salt og steinolíu til W. Fischers.
Hafði legið 2 daga inni á Tálknafirði vegna storms.
Siys. Eldri sonur Balds timburmeistara, W.
Bald timbursmiður, er ásamt bróður sinum stjórn-
ar verkum við grunnhleðsluna að holdsveikraspí-
talanum í Laugarnesi, varð fyrir því slysi fyrir
nokkrum dögum, að grjótsprengingarhleðsla rauk
framan í hann og særði hann til muna,
einkum augu og enni; þó von urn, að hann haldi
sjón. Unglingspiltur íslenzkur, er var í verki með
honum, fótbrotnaði — annar leggurinn á liægra
fæti.
W. CHRISTENSEN verzlun
Nýkomiö:
Corued Beef. Liaiubatuiiga.
Nautatunga. Kipp. Hennings.
Anchovis. Sardinur.
Fiskaboilur. Fiskabúðingur.
Fedsiid í olíu. Leverpostej.
Holl. ostur á 55, 70, 75, 80 a. pd.
Sveitzerostur, mej.ostur, Vínber o. m. fl.
RJÚPUR
eru keyptar ,í vezlun
G. Zoega.
EIMREIÐIN
I.—III. ár, á 6 kr. 50 au.; sjerstök hepti á 1 kr.
selur hókbindari Sigurður Jónsson Rvik.
Ung kýr, helzt borin fvrir jól, óskast til
kaups. Semja má við Jón Valdason, Skóla-
bænum.
Dúkstrangi- stór gólfábreiða, ofin í
hegningarbúsinu, er til sölu fyrir mjög væga
borguu. Ritstjóri vísar á seljanda.
Lóðin í Þingholtsstræti fyrir sunnan húsið
nr. 17 er til sölu uú þegar ágætt; bygg in
arstæði, götur á 3 vegu. Listhafendur snúi sjer
til hr. Þórðar Guðmundssonar frá Glasgow og
semji við hann um kaupin.
Nýkoinið ineð »Hjáiinar« og >Mercur«
í Ensku Wunina.
Hindber Syltetöi og fleiri tegundir
Ananas. Perur. Apricoser.
Sardinur og margt niðursoðið.
Margs konar kaffibrauð og kex.
Pipar. Canel. Allehaande. Kardemommer.
Succat. Citronolía. Gærpulver.
Eggjapulver. Muskatblóm.
Te, þrjár tegundir. Hollenzkur ostur.
Lemonade. Kola. Ginger-Ale. Ginger-beer
Cocoa. Chocolate. Cadbury’s Coeoa.
Bollapör. Diskar. Skálar. Könnur.
Vaskastel. Tarínur. Sósuskálar.
Kartöfluföt. Steikaraföt, o. fl.
Ostakúpur. Smjörkúpur. Sykurker.
Regnlcápur, mjög ódýrar, handa
konum og körlum.
»Sport«, húfur. Sjómanna-húfur.
Vefjargarn. Prjónagarn.
Galoscher handa herrum og dömum.
Bollabakkar. Bindingssporjárn.
Hefiltannir, axir, sagir o. fl.
W. G. Spence Patei'son.
Fyrir margvislega sæmd og vinarhót mjer auð-
sýnd af sveitungum mínam í haust i minningu
þess, að jeg hefi haft hjer hreppstjórn á hendi í
28 ár. votta jeg þeim mitt innilegasta þakklæti.
Skal jeg sjerstaklega minnast fjölmenns samsætis
mjer til virðingar að Álafossi 24. þ. m. (40 manns),
þar sem mjer var afkent sæmdargjöf, silfurbúinn
stafnr með nafni minn á og dagsetningu, og konu
minni Bifliuljóðin í skrautbandi.
Miðdal í Mosfelksveit 10. nóv. 1897.
Guðm. Einarsson.
Tryppi. Þrjú tryppi, — eitt dökkjarpt
2 v. mark: gagnbitað hægra, — eitt móbrúnt
2 v., og eitt rautt vgl. — töpuðust úr port-
inu hjá C. Zimsen vikuna sem leið. Sá sem
hitta kynni þessi tryppi, er beðinn að koma
þeim til
C. Zimsens, Reykjavík
I?aö ódýrasta liús
eptir stærð og gæðum er húseign Samúels
Olafssonar í Vesturgötu.
Mjög stór lóð fylgir.
Fæst keypt nú þegar.
Jörðin Meðalfellskot í Kjósarhreppi er til
kaups og laus til ábúðar i næstkomandi fardögum
1898.
íbúðarhúsin á jörðinni eru nýleg loptbaðstofa,
portbyggð, 12 ál. á lengd og 6 ál. á breidd með
kjallara undir; fjárhús fyrir 150 fjár, 6 kúa fjós,
hús fyrir 14 hesta, 2 heyhlöður með járnþaki
sem taka um 500 hesta heys báðar. Landsnytjar
sem jörðinni fylgja; eru: móskurðir, torfrista, lax
og silnngsveiði itak í skógarliöggi
Semja má við ábúanda jarðarinnar, Einar Brinj-
ólfsson. sem gefur nánari upplýsingar.
Jörðin Aðalból í Húnavatnssýslu er til sölu
og ábúðar frá næstu fardögum. Semja má við
óðalsbónda Björn Jónsson á Barkarstöðum i Mið-
firð! eða Sigurð Benediktson i Skildinganesi fyr-
U' árslok.