Ísafold - 16.03.1898, Side 1
Kemur nt ýinist einu sinni eða •
tvi-sv. i viku. Verð nrg. (SO arka
minnst) 4 kr., eriendis 5 kr. eða
l1/2 doll.; borgist fyrir miðjan
júlí (erlendis l'yiir frain).
ISAFOLD
Uppsögn iskrifieg/ bunum við
áramót, ógild nema komin sje
til útgefanda fyrir 1. október,
Afgreiðslustofí blaðsins er í
Aunturntrœti 8.
Reyk.javík, miðvikuda^finn 16. marz 1898.
________
XXV. árg.
Fomyripasafn opið mvd. og Id. kl.l 1—1‘2
Landsba- kinn opinn bvern virkan dag
kl. 11 -2. Bankastjóri við ll'/s — l‘/i,ann-
ar gæzlustjóri 12 — 1.
Landsbókasafn opið hvern virkan dag
kl. 12—2, og einni stundu lengur (t.il kl.3)
md , mvd. og ld. til útlána.
Póstskip (Laura) væntanl. fd. 1 i- marz
Póstar fara: austnr og vestur 20. þ. m.,
norður 22.
Áskorun I»ingeyinga.
Einkeunileg og eptirtektaverð fund-
arsamþykkt er það, sem j>ingeyingar
hafa gert að Ljósavatni 3. febrúar
síðastliðinn og »Scefnir« skýrir frá.
Fyrst samþykkja þeir yfiriýsing um,
að fundurinn sje algerlega niótfallinu
stjórnarskrárfrumvarpi dr. Valtýs og
þeirri meðferð stjórnarskrármálsins, er
kemur fram í ávarpi því, er 16 þing-
menn hafa sent út um landið eptir
síðustu þinglok.
í öðru lagi samþykkja þeir áskorun
til kjósenda í þeim kjördæmum, ^em
á síðasta þingi höfðu þingmenn þá, er
skrifuðu undir 16 manna ávarpið frá
26. ágúst síðastl., að leitast við að fá
þá til að segja af sjer þingmennsku,
nemaþví að eins, að þeir lýsi yfir því
ðtvírætt, að þeir verði eigi framvegis
fylgjandi líkri stefnu í stjórnarskrár-
málinu, sem fram kemur í ávarpiuu.
Við þetta er látið sitja, nema hvað
eitthvað helmiugur fundarmanna vill
hafa þingvallafund fyrir næsta alþingi,
sjerstaklega til þess að ræða um
stjórnarskrármálið. — -—■ —
Hugsum oss mann á leið yfir örð-
ugt fja.ll. Hann veit, að gatau, sem
hann fer eptir, liggur til byggða, og
hann þekkir engan annan veg, sem
þangað liggur. Svo mætir hann mönn-
um, sem skora á hann að fara ekki
þessa leið. — »Hvaða leið á jeg þá að
fara?« segir vegfarandinn. — »það
ðettur okkur ekki í hug að fara að
skipta okkur af«, segja ráðunautar
hans. »Okkur hefir ekki dottið í hug,
að þú mundirfara að spyrja um það«.
Hvernig ætli maðurinn tæki nú ráð-
leggingunni? Sjálfsagt nokkuð eptir
því, hvað geðprúður hann væri og
hveruig hann annars væri skapi far-
inn yfirleitt. Svo vanstilltur gæti
hann verið, að hann segði mönnunum
að fara hoppandi. Svo tortrygginn
gæti hann verið, að hann færi að
halda, að þeim gengi annað en gott
til. Svo brjóstgóður gæti hann verið,
að hann kenndi í brjósti um þá fyrir
flónskuna. En víst er um það, að
hver óvitlaus maður virti ráð þeirra
að vettugi.
f>ví kynlegra er það, að þingeyinga-
fundurinn skuli hafa látið sjer farast
nákvæmlega eins og þessum ráðunaut-
um. Hann minnist ekki á það með
einu orði, hverja leið hann vilji að
þing og þjóð stefni í sjálfstjórnarmáli
voru. Hann er ánægður með það, að
þeirri stjórnarbót sje hafnað, sem vjer
eigum kost á. Og hann hefir einurð
á, að fara fram á það við önnur kjör-
dæmi, að láta sömu nægjusemina í -
ljós.
það er eins og hann renm’ ekki
grun í, að þingi og þjóð geti verið
nokkur forvitni á, hverja leið hún
eigi að halda. þingeyingum ætti þó
að vera manna kunnugast um það,
aðleiðirnar, sem mælt hefir verið fram
með,. eru fleiri en eiu. því að synd
er að segja það, að leiðtogar þeirra
hafi venð við eina fjölina felldir.
Á þjóðin að hlíta undanfarinni leið-
sögn Benedikts Sv inssonar't Sje svo,
hvora af götum hans á hún þá að fara?
k hún að halda fast við landsstjóra-
frumvarpið hans? Eða á hún að fara
að ráðum hans á síðasta þingi: þiggja
Vay;ýs-frumvarpið, að því viðbættu,
að ráðgjafi vor sitji ekki í ríkisráðinu?
Eða á hnn að taka strikið eptir
bendingu annars mikils háttar þing-
eyings, Jón.s Jónssovar í Múla, sem
enn á ný virðist setja alla vou sína
til miðlunarinnar frá 1889 — eptir að
hafa verið kosinn fylgismaður B n.
Sveinssonar, síðan gerzt miðlunarmað-
ur, þar næst horfið frá þeirri stefnu
og inn í fiokk Ben. Sveinssonar af
nýju og loks brotizt út úr honum og
baldið frám dansk-íslenzku milliþinga-
nefodinni?
Hvernig stendur á því, að fundúr-
inn skuli ekki hafa minnzt á neitía af
þessum leiðum? Er það af einfeldni?
Hefir hann látið belgja í si^; barna-
legum ofsa gegu þeirri stjórnarbót,
sem vjer eigum kost á, án þess að hafa
haft vit á að hugleiða, hvort nokkuð
betra sje fáanlegt?
Sje 8vo, þá hggur það í augum uppi,
að haun hefir ekki verið svo skipaður,
að bann hafi verið fær um að leggja
nein heilræði í jafn-mikilsverðu máli og
sjálfstjórnarmál vort er.
Eða skyldi hann liafa haft veður af
því, að þjóðin sje farin að sjá það, að
allar aðrar leiðir til sjálfstjórnar þjóð-
ar vorrar heldur en sú, sem miðlunar-
menn síðasta þings vildn halda, sjeu
ófærur, blátt áfram villustigir, sem
liggja út í ógöngur, og hafi þess vegna
ekki sjeð sjer til neins að mæla moð
neinni þeirra?
Vjer ætlum þingeyinga svo skyn-
sama menn, að það sje einmitt þetta,
sem fyrir þeim hefir vakað — þetta,
sem nú ætti að vera augljóst orðið
öllum skynsömum og hugsandi mönn-
um hjer á landi. Vjer höfuru ekkert
það um þingeyinga heyrt, er geli oss
ástæðu tíl að ætla þeim annan eins
barnaskap og þann, að uunt sje, eins
og nú er ástatt, að fylkja þjóðinni
utan um landsstjóra-frumvarp Ben.
Sveinssonar eða miðlunina frá 1889
eða ríkisráðsfleyginn eða milhþinga-
nefndina.
En sjeu þeir nú slíkir vitmeun, sem
vjer ætlum þá vera og orð fer af að þeir
sjeu, þá er það í meira lagi torskilið,
að þeir skuli með engu móti vilja lofa
þingi og þjÓð að fara eina færa veg-
nn, sem enn hefir verið á bent, og
heimta a þjóðinni, að hún hafni mik_
ilsverðum rjettarbótum, sem hún á
kost á að fá.
()g það er auðvitað því þungskildara,
sem fundurinn hefir ekki látið svo lít-
ið, að senda með áskorun sinni minnstu
tilraun til að rökstyðja hana á nokk-
urn hátt.
það gefur manni meira að segja á-
stæðu til að ætla, að honum hafi fund-
izt forsendurnar fyrir áskoruninni allt
að því eins örðugar viðfangs, eins og
samkomulag um það, í hverja stefnu
halda skyldi.
Sparisjóðurinn á Siglufirði
og 1. þm. Árnesinga.
1 Alþingistíðindunum frá síðasta
þingi (B. 1752) stendur svolátandi
mákgrein í þingræðu hjá 1. þm. Ar-
nesinga:
»En að veita þeim sparisjóðum al-
menn sparisjóðsrjettindi og sjerstak-
leg hlunnindi, sem eru gróðafyrir-
tæki einstakra manna, finn jeg eoga
ástæðu til, — einn slíkra sparisjóða
er á Siglufirði — — — — og taka
þeir 5°Jo af lánum, en bankinn 4J"/o
— beinlínis gróðafyrirtæki einstakra
manna« — -—
Á aðalfundi sparisjóðsins á Siglufirði
7. þ. m., þar sem viðstaddir voru all-
ir núverandi forstöðumenn sjóðsins, 3
í stjórnarnefnd og 5 í gæzluuefnd, —
alls 8 — lýstu menn óánægju yfir
þessum ummæluni, af því þau væri
ekki rjett að því snerti sparisjóðinn á
Siglufirði, og væru ómótmælt eða ó-
leiðrjett af öðrum á þinginu. þótti
fundarmönnum þetta því lakara, sem
ummælin komu frá forstöðumanni
fyrstu og mestu peningastofnunar
landsins, og skoruðu á mig — sem er
nu einn eptir í nefndinni af hinum
upp.runalegu stofnendum sjóðsins —
að leiðrjetta tjeð ummæli, að því er
þau færu hjá saunleikanum, og koma
því á framfæri í »lsafold«.
Eins og sjest af C. deild Stjórnar-
tíðindanna 1892, var sparisjóðurinn á
Siglufirði stofnaður árið 1872, þannig,
að hann byrjaði reikningsár 3Ín 1. jau.
1873, og var þannig uppruni hans
hjer um bil samhliða sparisjóðsstofn-
uninni í Reykjavík. þessi sparisjóður
á Siglufirði var stofnaður sem almenn-■
ings-eign með ábyrgð 8 rnanna, 200
kr. (100 rd.) frá hverjum, að hann
stæði í skilum. Fyrstu árin blómgað-
ist stofnun þessi allvel, eptir því sem
líkur voru til, enda lögðu menn dálít-
íð fje í hann bæði úr Eyjafirði og
Skagafirði, meðan engir sparisjóðir
voru þar til, svo að hann liafði í
vörzlum aínum árið 1886 ínulög, er
námu rúmum 16,500 kr., og var þá
búinn að eignast varasjóð um 1540
kr. En árin þar á eptir minnkaði
innieign í sjóðnum, mest vegna þess,
hve aðþrengdir menn voru af harðær-
inu þann áratug, en meðfram af því,
að þá voru komnir á fót sparisjóðir
bæði í Ejyafirði og Skagafirði,svo að þeir
menn, sem voru í meiri grennd við
þá, tóku fje sitt, til að ávaxta það þar
eða verja því til sinna þarfa, án þess
nokkuð kæmi í staðinn til að halda
jafnvæginu. þegar nú þessir spari-
sjóðir voru stofnaðir, bæði fyrir aust-
13. blað.
an og vestan, lá beinast við, að álíta
8parisjóðinn á Siglufirði eign þeirra
sveitarfjelaga, er höfðu stofnað hann,
borið ábyrgðina, meðan hennar þurfti
við, og annazt hann að öllu leyti frá
upphafi hans fram á þennan dag, en
sveitir þessar eru Siglufjörður og Fljót,
eða sveitarfjelog þau, er teljast til
þessara byggðarlaga. Af þessu stafaði
það, að aðalfundur sjóðsins samþykkti
fyrir nokkrum árum, að veita mönn-
um í þessum sveitum dálítil verðlaun
fyrir nnnar jarðabætur, sem hann og
hefur gert, til að reyna að vekja menn
og hvetja í þeim atriðum. Emnig
hefur hann veitt dálítinn árlegan
styrk til kirkju, er reist var fyrir
nokkrum árum á Siglufirði og var
mikilli fjárþröng, til þess að ljetta
dálítið undir vaxtagreiðslu af skuldum
hennar. Eins og áður er á minnzt,
eru nú flestir af stofnendum sjóðsins
dánir, án þess nokkur þeirra b ær
nokkurn eyri upp af ágóða hans, eða
erfingjum þeirra hafi dottið í hug að
gera tilkall í þá átt; og svo hef jeg
og heldur ekki notið nokkurs eyris af
sjóðnum — og mínir ættingjar eiga
heldur enga von til þess —, jafnvel
þó jeg hafi stundum haft nokkurt að-
kall fyrir hann, sjer í lagi á árunum í
kringum 1890, því þá þurfti »á roðum
og uggum að halda« við forstöðu sjóðs-
ins. þá fór nefnil. innieign manna í
8jóðnum niður í rúm 10,000 kr. úr
áðurnefndri upphæð, sem hún var
komin í.
Af þessu framanritaða vona jeg að
mönnum verði Ijóst, að sparisjóðurinn
á Siglufirði er ekki »gróðafyrirtæki
einstakra nianna«, eins og 1. þm. Ár-
nesinga kunngjörir, svo að sjóðurinn
þarf ekki þess vegna að fara á misvið
nein hlunnindi, ef hann ætti kost á
að njóta þeirra úr einhverri átt.
Tvö fyrstu æfiár sín tók ekki epari-
sjóðurinn á Sigluf. hærri vexti en étf
af útlánum, enda gat það ekki, þegar
fasteign var að veði, og þau árin
borgaði hann 3% af innlögum. En
síðan fjekk hann 10. októbr. 1875
»sparisjóðsrjettindi« samkvæmt lögum
5. jan. það ár, og hækkaði hann þá
vexti af útlánum upp í 5%, en setti
leiguburð af innlögum fyrst upp í
3£%, þá upp í 3þ% og árið 1879 upp
í 4%. Hærri vexti en 5% hefur
sparisjóður þessi aldrei tekið af nokkru
láni, hvorki bráðabirgðalánum nje
öðrum, jafnvel þó jeg viti til þess, að
aðrir sparisjóðir hafa gert það. Og
nu fyrir 2 árum lækkaði hann vexti f
útlánum ofan í 4^%, og hefir engan
eyri meira tekið af þeim lánum, er
hánn hefir sfðan veitt, svo ummæli 1.
þm. Árn. eru ekki helduríþessu atriði
rjett. þessa vexti tekur líka sparisj.
á Sigluf. eptir d (þegar árið er liðið),
en landsbankiim vexti af sínum lán-
um fyrir Tram, og vil jeg biðja menn
athuga, þegar þessa er gætt, hvort
sparisjóðurinn á Sigiufirði af fátækt
sinni veitir viðskiptamönnum sínum
mikið lakari kjör en hinn stórauðugi
landsbanki í Reykjavík, fyrst þing-
maðurinn er að gera samanburð á því
í ræðu sinni.
Að öðru leyti leyfi jeg mjer að skír-
skota til áðurnefndrar skýrslu í Stjórn-
artíðindunum C. 1892 bls. 48—83 —