Ísafold - 03.08.1898, Síða 2
194
Þvi syngjum nm þá sveit, er mest vér unnum.
Hér svífur ljúfur andi’ um dal og hól:
hinn hreini svalinn upp frá Sögu unnum
og árdagsblær und nýrri þroska-sól.
Já, syngjum inn i sveit þá, mest. er nnnum.
þau sólarljóðin rtýrst, er nokkur kann,
• og veitum hingað heztu lífsins brunnum
og breiðum yfir hana kærleikann!
É. H.
III.
Skagfirðinga.
þeir héldu sinn þjóðminningardag 2.
júlí, eins og til stóð, á hinum forna
þingstað í Hegranesinu. Veðrið var
eigi eins gott, eins og æskilegt var.
f>að var mjög hvast á norðan og mik-
ill kuldi, svo að menn nutu ekki jafn
vel skemtunarinnar, eins og ella. f>ar
voru reist nokkur smátjöld, og veifur
blöktu þar á nokkrum stöngum. Ann-
ars virðist svo, sem útbúnaðurian
þurfi að verða miklu betri en nú var,
ef slíkur dagur verður haldinn hér
aftur. Sérstaklega finna menn nauð-
syn til þessa, er út af ber með veður-
gæðin.
Sjálf skemtunin byrjaði með flokk
göngu sunnan mela að ræðustólnum,
þar sem svo var sungið kvæði, er ort
hafði Jónas bóndi Jónsson í Hróars-
dal; að því enduðu sté sýslumaður E.
Briem í stólinn, og mintist á uppruna
og tilgang þjóðminningardagsins, og
bað menn velkomna. Síðan voru
sungin kvæði fyrir minnum konungs
og Islands eftir barnakennara Baldvin
Bergvinsson og Bögnvald Björnsson,
sýslunefndarmann 1 Béttarholti, en
fyrir minni konungs talaði 3ýslumaður-
inn, og fyrir minni Islands síra Hallgr.
Thorlacius í Glaumbæ. Enn voru
sungin kvæði fyrir minni Skagafjarðar
eftir Jóng,s Jónsson, sýslunefndarmann í
Hróarsdal, og fyrir minni kvenna eftir
Baldvin Bergvinsson, en fyrir minni
Skagafjarðar talaði Friðrik St. Stefáns-
son, óðalsbóndi á Skálá, en fyrir minni
kvenna próf. Z. Halldórsson. Söng-
urinn fór mjög vel. Veðreiðar voru
hafðar og einnig var glímt og hlaupið
og verðlaun veitt fyrir reiðar og glím-
ur af dómnefnd, er til þess hafði ver-
ið valin. Aðgang að hátíðahaldinu
keyptu menn og kostaði 0,50 fyrir
karlmann, 0,25 fyrir kvennmann, og
0,15 fyrir börn. Mjög margt fólk var
komið saman, en eigi veit ég tölu
þess með vissu, en hygg að verið
muni hafa 7—800.
Verðlaun fyrir glímur fengu yngis-
maður Jón Björnsson í Enni í Við-
víkursveit nr. 1 og búfr. Gísli Björns-
son á Okrum nr. 2. Eljótast hlupu
Jón G. Erlendsson, óðalsbóndi á Mar-
bæli í Óslandshlíð, nr. 1, og Jón
Björnsson í Enni, nr. 2. Grár hestur
frá Bjarnastaðahlíð hlaut 1. verðlaun
sem vekringur. Einnig var reynt há-
stökk. Loks var dansað.
Alment skemtu menn sér vel.
IV.
Reykvikinga.
þ>að var í gær, sem þeir héldu sína
þjóðhátíð, eins og til stóð. Framúr-
skarandi hepnir með veður; dimmur
að morgni, en birti af sér; sólskin og
hreinviðri síðari hluta dags með stinn-
ingsgolu á norðac. Sjálfsagt mesta
fjölmenni í einum hóp, sem dæmi eru
til hér á landi; á að gizka eitthvað á
fimta þúðund. Aðalhátíðarstaðurinn,
Landakotstún, hinn bezti, er á verður
kosið; nóg rúm, þurt og hreint, og út-
sýni hið fegursta, og ekki nema stein-
snar frá aðalbænum.
Hátfðin hófst nokkru eftir dagmál
með veðreiðum á Skildinganesmelum.
Fyrst var þreytt skeið á 140 faðma
spretti, er fljótasti hesturinn fór á 25
sekúndum; það er bleikur hestur, er
eldri sonur landshöfðingja, Magnús
Stephensen, á, en skólapiltur Jakob
Havsteen (amtmanns) reið; hann
hlaut því fyrstu verðlaun (50 kr.).
Onnur verðlaun (30 kr.) hlaut bleik-
skjóttur hestur frá Miklaholti í Bisk-
upstungum, og reið honum Erlendur
Erlendsson frá sama bæ; en þriðju
(20 kr.) brúmi hestur Hannesar ().
Magnússonar í Beykjavík, en hesta-
sveinn, Helgi frá Garðaholti, reiðhon-
um. Fallegast bar sig og fljótastur
hefir líklega verið hestur, sem ekki
hlaut verðlaun, eign Jörgen Hansens,
kaupmanns í Hafnarfirði; en hann
stökk upp af skeiðinu nokkrum föðm-
um áður en kom að markinu, líklega
fyrir ólag eða misskilning þess, sem
reið, bónda af Alftanesi; gat því eigi
komið til greina.
Fljótastur á stökki varð brúnskjótt-
ur hestur Elis verzlunarmanns Magn-
ússonar í Beykjavík, er eigandi reið
sjálfur, fór 159 faðma sprett á 21J
sekúndu; en honum næstur grár hest-
ur Björn8 kaupmanns Kristjánssonar,
sá er verðlaun hlaut í sumar á Ar-
mótsbökkum og reið honum Björn
smiður þorláksson frá Alafossi; en
þriðju verðlaun brúnn hestur Bunólfs
bónda þórðarsonar í Saltvík á Kjal-
arnesi, og reið honum reykvískur
hestasveinn, Jóhann frá Holti. Verð-
laun hin sömu og fyrir skeiðið.
þá hófst aðalhátíðin á Landakots-
túni, laust fyrir hádegi, með hátíðar-
göngu neðan úr bæ þangað uppeftir,
undir merkjujn; fremst hinn skraut-
legi viðhafnarfáni Good-Templara, en
hornaflokkur Heimdellinga gekk á
undan og blés á horn. jþar var reist-
ur ræðupallur og ræðustóll, er hæst
ber túnið, og danspallur allstór skamt
þaðan, en 15 tjöld á víð og dreif um
túnið, til alls konar veitinga, stærst
og fegurst tjald Good-Templara; það
tekur hátt á annað hundrað manna;
auk þe8s hafði Halberg veicingamað-
ur stóran járnskúr til sinna veitinga.
Alt var hátíðarsvæðið fagurlega skreytt
margvíslegum fánum og veifum; höfðu
Heimdellingar lánað mikið af þeim,
auk þess sem þeir höfðu skreytt skip
sitt á líkan hátt til hátíðabrigðis.
Sams konar fánaskraut var og á »St.
Paul«, spítalaskipinu franska.
Formaður hátíðarnefndarinnar, Jón
Ólafsson ritstjóri, setti hátíðarsam-
komuna og mælti fyrir minni konungs
en hornalið Heimdellinga lék »Kong,
Kristian stod« o. s. frv.
f>á mælti fpórhallur Bjarnason lekt-
or fyrir minni Islands, Guðm. Björns-
son héraðslæknir Beykjavíkur, Einar
Hjörleifsson ritstjóri Islendinga erlend-
is og D. Tbomsen konsúll Danmerk-
ur; en kvæði sungin þess í milli, eftir
Ben. Gröndal (ísland), Guðm. Guð-
mundsson stúdent (Beykjavík), «Já
vér elskum ísafoldu* (J. O.) og leik-
ið á horn á eftir Danmerkur-ræðunni
»Vift stolt paa Codans Bölge«.
|>á reyndu þrír sig á hjólum, frá
Melshúsi á Seltjarnarnesi inn undir
Bræðraborg; fljótastur var Karl Fin-
sen. *
þá þreyttu fáeinir kappgöngu, frá
Mýrarhúsaskóla inn undir Bræðraborg,
og var Jón bóndi Guðmundsson frá
Digranesi langfljótastur.
Glímur reyndu nokkrir á umgirtri
flöt á Landakotstúninu. Fræknastur
var fporgrímur Jónsson söðlasmiður.
Honum næstur Chr. Zimsen verzlun-
armaður, og þá Jón nokkur Gíslason
iðnarnemi, alt innanbæjarmenn; verð-
laun 40, 30 og 20 kr.; auk þess var
tveim dæmd medalía, Magnúsi Hann-
e8syní gullsmið og Érl. Erlendssyni
frá Miklaholti.
Kapphlaup á túninu reyndu 3 full-
orðnir og var Einar Eiríksson frá
Helgastöðum í Arnessýslu fljótastur
(5 kr.). f>á reyndu sig piltar 12—16
ára (fljótastur Pétur Arni Jónsson,
Suðurgötu), s!ðan 9—12 ára (fljótast
ur Karl Andersen) og loks 6—9 ára
(fljótastur .Jón Halldórsson, Suðurgötu).
þá reyndu telpur sig í tveirn flokkum,
fyrst eldri en 12ára, og var Gíslína As-
grímsdóttir (13 ára) fljótust, og síðan
yngri en 12 ára, fljótastar Bagna
Gunnarsdóttir og f>óra Guðjohnsen,
báðar 10 ára og jafnfljótar.
Kappsiglingar reyndu 2 bátar, £ mílu
hér á höfninni í þríhyrning; H. Th.
A. Thomsen sigraði, á bát er hann á
sjálfur, á 44 mín. 39 sek.
Kappróður reyndu 5 bátar, 2 ís-
lenzkir og 3 af Heimdalli. Vegaíengd
2000 álnir. Beynt í 2 flokkum. Heim-
dellingar sigruðu í báðum flokkum, á
7 mín. 35 sek. og 8 mín. og 5 sek.
(ísl. bátarnir 10 og 30 sekúndum
seinni).
Gjörspilt lýðstjórn.
V. •
Einhver svívirðilegasti þátturinn 'í
óhæfubálki þeim, erj varð lýðum ljós
við rannsóknir Lezownefndarinnar, er
meðferðin á konu einni, sem hét
Caela Urchittel. Hún var bláfátæk
ekkja,j( fjögra barna móðir, aP rúss-
neskum Gyðinga-ættum og hafði flutst
vestur til New-York 1891. Trúar-
bræður hennar höfðu styrkt hana; og
þegar lögreglan fór að hlutast til um
mál hennar, hafði hún eignast dálitla
tóbaksbúð í New-York.
Fám dögum eftir að hún hafði tekið
við búðinni kemur maður inn til henn-
ar og biður hana að lána sór ofurlítið
af munntóbaki. Hún neitaði, sagði,
sem satt var, að hún þekti hann ekki
og engan mann þar í grendinni og
lánaði því engum. Hann borgaði þá
fyrir tóbakið, kvaddi og fór leiðar
sinnar.
Um kvöldið sama daginn kom ann-
ar maður inn í búðina og sagði kon-
unni, að maðurinn, sem beðið hefði
um tóbakslánið, væri leynilögregla og
hefði í höndunum heimild til að taka
hana fasta; hún gæti komist hjáþeim
óförum með því að greiða lögreglu-
manninum 50 dollara; en þverskallað-
ist hún við því, þá yrði hún sett í
fangelsi og svift börnum sínurn, þang-
að til þau yrðu tuttugu og eins árs.
Konan var sór þess ekki meðvitandi,
að hún hefði neitt ólöglegt aðhafst
gerði ekki nema hlæja að hótunum
þessum, sagðist ekki greiða nokkrum
manni eyrisvirði, og kæmi þessi mað-
ur aftur, kvaðst hún mundi keyra
hann á dyr með sóflinum. sínum.
Lögreglumaðurinn, sem um tóbakið
hafði beðið, hét Hussey. Næstakvöld
kom hann aftur, einni stundu fyrir
miðnætti, og sagði þá konunni, að
sér væri kunnugt um, að hús hennar
væri saurlífisbæli og að hún græddi
600 dollara á því athæfi. Hún yrði
að gefa honum 50 dollara, ef hún
vildi komast undan hegningu. Konan
neitaði sakargiftinni þverlega, kvaðst
ávalt hafa unnið fyrir sór á heiðar-
legan hátt og vildí enga peninga gefa
honum. Maðurinn hafði hana þámeð
valdi á burt.
Spölkorn frá búð hennar mættu þau
manni, sem hún þekti, Hochstein að
nafni. Hann var veitingamaður og
vasaðist í kosningamálum í þjónustu
Tammany-samkundunnar. Konan
sagði honum, í hverjar raunir hún
væri að rata og tjáði honum sakleysi
sitt. f>að varð til ónýtis; Hochstein
sagði henni, að lögreglumaðurinn vildi
fá 75 dollara, en þóttist mundu geta
fengið hann til að láta sér 50 nægja;
án peningagjalds yrði benni ekki við
fangelsi forðað; jafnframt gaf hann
henni það ráð, að borga lögreglumann-
inum 10 dollara á mánuði hverjum ;
þá mundi enginn áreita hana, hvað
sem hún hefðist að. Konan hélt því
enn frara, að hún hefði ekkert ólög-
legt aðhafst, og svo varð hún að halda
áfram ferð sinni. Hochstein slóst í
förina.
þeir drusluðu nú konunni a£ einu
götuhorninu á annað, þangað til klukk-
an var orðin 3 um morgunmn, og full-
yrtu stöðugt, að hrin væri með 600
dollara í sokkunum sínum. Hún var
þá orðin örmagna af þreytu, settist
niður á götuhorni, fór úr sokkunum
og sýndi þeim, að engir peningar væru
þar. Lögreglumaðurinn sagði henni,
að hún yrði þá að halda áfram ferð-
inni, fyrst hún vildi ekkert áta af
hendi rakna. Hún tók þá 25 dollara
upp úr vasa sínum — alla þá pen-
inga, sem hún átti í eigu sinni — og
fekk lögreglumanninum þá. þeir Hoch-
stein skiftu þeim á milli sin; annar
fekk 12, hinn 13 dollara.
Fyrir þessa þóknun létu þeir hana
fara heim til sín aftur, en ámintu
hana jafnframt um, að hafa til 50
dollara, hvenær sem eftir þeim yrði
gengið. það var ekki heldur látið
dragast lengi. Kl. 7 um morguninn
kom Hussey og krafðist peninganna.
Hún fór að gráta, bað hann vægðar
og sagðist ekki með nokkru móti geta
greitt honum þetta fé. Hann hafði
hana þá burt með sér og hún var
dregin fyrir lög og dóm.
Tveir illræmdir strákar voru fengn-
ir til að bera ljúgvitni gegn henni
fyrir lögregluréttinum. |>eir lugu jafn-
vel upp nákvæmum atvikum að þvír
hversu þeir hefðu fengið hana sjálfa
til lags við sig, og fyrir hvað ; annar
þeirra hefði henni þótt bjóða sér of lítið.
Undir Tainmaný-stjórninn varð það
beintaðatvinnu, aðfremja meiusæri.bve
nær sem lögreglan þurfti á þeim greiða
að halda, og höfðu meinsærismennirnir
reglubundinn fólagsskap með sér. Lög
regludómarinn úrskurðaði, að hún
skyldi setja 500 dollara veð, en ann
ars bíða málsúrslita í gæzluvarðhaldi.
Veðið gat hún ekki sett, svo að ekki
var annað en fangelsið fyrir hendi.
En að réttarhaldinu nýafstöðnu kom
Hussey enn til hennar og sagði henni,
að nú væri búið að taka börnin henn-
ar frá henni, en samt gæti hann enn
hjálpað henni, ef hún að eins vildi
stinga þessurn 50 dollurum aðhonum.
A dómþingið, þar sem mál hennar
var dæmt, komu um 50 manna, sem
voru reiðubúnir til þess að bera það,
að hún hefði ávalt unnið fyrir sér á
sómasamlegan hátt; en þessir vottar
voru aldrei spurðir. Konan kunni
ekkert í ensku og gat ekki varið sig.
Málfærslumaður, sem trúbræður henn-
ar höfðu sent henni, kom of seint, og
gat að eins lagt fram vottorð um, að
hún stundaði heiðarlega atvinnu. Hún
var sektuð um 50 dollara. Bróðir
hennar seldi búðina hennar fyrir 65
dollara og galt með því sektina.
En nú átti hún eftir að hafa upp á
börnunum sínum, og það var ekki
hlaupið að því. Félag eitt er í New
York, er veitir viðtöku börnum, sem
sæta illri meðferð heima hjásér; það
er stutt og verndað af ríkinu, og er
auðvitað stofnað í bezta tilgangi. En
í þvi eru fólgin skilyrði fyrir einhverri
örgustu kúguninni, sem dæmi eru til.
það er á valdi eins manns, að taka
börnin frá aðstandendum þeirra og fá
þau í hendur fólagi þessu, og enginn
dómstóll né vaidsmaður getur neytt
hann til að láta uppskátt, hvar börn-
in séu niður komin, því síður til að
skila þeim aftur. Börn konunnar
höfðu verið fengin í hendur þessu fé-
lagi. Eftir langa mæðu, fimm vikur,
tókst henni að fá að vita, hvað af