Ísafold - 13.01.1900, Síða 4
12
gagnrart bróður bennar á því, að hún
geri ekki neina vitleysu meðan hún er
með mér«.
»Alveg rétt«, segir Barnes. »|>ér eig-
ið fullkomna heimting á að fá svar
upp á spurningu yðar«.
»Gott og vel* — og lafði Chartris
verður hátíðleg í rómnum — »hvað
eigið þér í vændum?«
»í vændum ? |>ér eigið við, að því
er efnahaginn snertir? Eg á ekkert í
vændum«.
«Ekkert í vændum ! Og þér viljið
ganga að eiga þá stúlku, sem í mest
um hávegum var höfð síðasta sam-
kvæmistímabilið í Lundúnum, stúlku,
sem er af einni af elztu ættum á Eng-
landi. stúlku, sem gæti fengið hið
glæsilegasta gjaforð!«
»En eg á það sem betra er«, segir
Barnes með hægð, »eg á peninga!«
»Hvað hafið þér þá miklar tekjur?*
»Eitthvað sextíu þúsundir um árið».
»Pund sterling!«
»Nei — þvf miður ekki nema doll-
ara, en eg held samt, það sé nægilegt«.
•Nægilegt! Já, eg held það svari
því! Eins og þér vitið, er Enid
fræudkona mfn. f>ér hafið fengið
beztu stúlkuna á öllu Englandi, og eg
vona, að þér geríð hana að lánskonu.
Sextíu þúsund dollarar; það er sama
sem tólf þúsund pund sterling um ár-
ið — jú auðvitað verður það farsælt
hjónaband. Eg skyldi kyssa yður, ef
eg væri ofurlítið eldri; en af því að
eg er ekki eldri en þetta, gæti unn-
ustan yðar orðið hrædd um yður!«
Og hún tekur hjartanlega í höndina
á honum.
Barnes þykir í meira lagi vænt um,
að lafði Chartris skuli vera of ung til
þess að kyssa hann. En út úr þessu,
sem hún hefir sagt, fer hann að hugsa
um unnustu sína.
»Lafði Chartris«, segir hann, »viljíð
þér gera mér þann greiða, að senda
Enid hingað inn til mín og lofa okk-
ur að bafa ofurlitla stund umráð yfir
herberginu því arna? Eg þarf að
segja henni, að við höfum fengið yðar
samþykki«.
Lafði Chartris verður tafarlaust
bandamaður hans vegna þessarar virð-
ingar, sem hann ber fyrir valdi henn-
ar. »f>ér megið hafa umráð yfir þessu
herbergi svo lengi sem þér viljið, hr.
Barnes minn góðurU segir hún; og svo
fer hún út til þess að verða við til-
mælum hans.
Meðan hann bíður eftir unnustu
sinni fer hann að hugsa um, að fyrst
hans eigin málum sé nú ráðið svo far-
sællega til lykta, þá sé tími kominn til
þess, að hann fái bundið enda á efa-
semdir sínar, að því er snertir bróður
Enidar. Og hann fer að brjóta heil
ann um þ^ð leyndarmál.
Svo hrekkur hann upp úr þeim
heilabrotum við það að ofurlítil hönd
er lögð á handlegginn á honum og
hvíslað er í eyra honum með mjúkri
rödd : »f>ú vildir tala við mig?«
Hann tekur í höndina og segir:
•Hefurðu skrifað ásróður þínum?«
»Já, hérua er bdpð !« Frk. Anstruth-
er réttir honum það.
»Eg sendi mitt bréf fyrir hálfri
kl.stund, því að það liggur á, Enid!«
Hann hringir og réttir þjónínum bréf-
ið i því skyni að hann fari með það
á pósthúsið.
»Og svo var það víst ekki annað,
sem þú vildir mér, Burton?«
f>etta er í fyrsta sinni, sem hún
nefnir hann skírnarnafni hans. f>eg-
ar hún er nú búin að koma því svona
laglega út af vörum sér, snýr hún sér
við og ætlar að fara.
»Jú, það var miklu meira, sem eg
vildi þér!« hrópar Barnes á eftir
henni. »Nú á eg við þig mikilsvert
erindi, Enid — eg þarf að leggja fyr-
ir þig alvarlega spurningu«.
•Einmitt það?«
*þú verður að segja mér, við hvað þú
áttir, þegar þú sagðist hafa fengið ást
á manninum á mynd Marínu og svo
síðar, að það hefði ekki verið annað
en brella?« Hún rekur upp skellihlát-
ur.
»Ó — svo þú ert hræddur um mig
fyrir mynd, sem ekki er annað en
olíulitur og léreft!«
Ncentum nýr vetrarfrakki til sölu ó-
dýru verði. Reinh. Andersson.
FUNDIST hafa hrauðseölar á götum
bæjarins. Réttur eigandi vitji þeirra i Hafn-
arstræti 8.
Jarðræktarfélag Reykjavíkur-
Félagar er á næstkomandi vori óska
að fá útsæði fyrir tilstuðlan félags-
stjórnarinnar, gefi sig fram fyrir lok
þessa mánaðar.
Beykjavík 12. jan. 1900.
Þórh. JBjarnarson.
FANGAMÖBK úr silki með
hvaða stöfum sem er til að sauma
innan á yfirfrakka fást mjög ódýr hjá
H- Andersen, Aðalstræti 16.
Tilbúin karlmannsföt eftir
sjálfan mig eru nú til sölu — birgðir
af þeim — fyrir lágt verð hjá
H. ANDEBSEN, Aðalstræti 16.
Nl'J SEM STENDVR má fá saum-
að, efni og til fata mjög ódýrt hjá
H- Andersen, Aðalstræti 16.
Hjá Jóni Magnússyni á Laugavegi
fæst lánað þarfanaut.
A góðum stað í bænum fæst frá 14.
maí 1900 hús til leigu með 5 herbergj-
um auk eldhúss. Ritstj vísar á.
Hús til sölu
Iíið nafnkunna Doktorshús hér í bæn-
um er til sölu með fyrverandi stvri-
mannaskólahúsi, stórri lóð og tveimur
útihúsum, fvrir gott verð og roeð góð
um kaupskilmálum. t>eir sem kunna
að vilja kaupa ofangreint hús semji
sem fyrst við undirskrifaðan eiganda
hússins.
Rvík 11. jan. 1900.
Markús F. Bjarnason.
Ciffonniensjiogiar Sfotu-úr
(Taffel-úr) er til sölu. Ritstj. vísar á.
Hús til leigu
fyrir familíu, frá 14. maí næstkomandi
í Yesturgötu 26. A.
Am. Ámundason
Ágætar KARTÖFLUR fást hjá
S. E. Waage.
Taða er til sölu hjá
S E Waage.
SALTAÐKJÖ'f ódýrt fæst hjá
S. E- Waage-
Isl. skóleður fæst hjá
S. E. WAAGE.
Undirskrifuð vottar hér með
Thorvaldsens-félaginu og sérstaklega
frú Guðrúnu Árnason innilegt þakk-
læti fyrir þá skemtun sem hún lét
mig verða aðnjótandi og óska eg henni
allrar blessunar um ókomin tíma.
Reykjavík 12. jan. 1900.
Ekkjan Ouðný Jónsdóttir.
Laugardaginn h. 20. janúar 1900
kl. 9 síðdegis verður haldinn á Hotel
ísland aðalfundur í »Styrktar- Og
sjúkrasjóði' verzlunarmanna í
Reykjavík.
Reykjavík h. 13. janúar 1900.
C. Zimsen
p. t. formaður.
Utgef. og áhyrgðarra. Björn Jónsson
Meðritstjóri: Elnar Hjörleifsson.
IsafoJdarprentsiniðja.
Leikfélag Reykjavíkur
eftir J. L. Heiberg
og
„Ungu hjónin“
eftir Poul Nielsen.
Annað kveld, sunnudag 14. jan.:
Æfintýri á gönguf.
eftir C. Hostrup.
1 síðasta sinn.
Út er komið :
St. G. Stephansson:
Á FERÐ OG FLUGI,
1 kr.
Kristinn Stefánsson:
VESTAN HAFS.
1 kr. 50 au.
Jón Olafsson, Laugaveg 10.
r I \ I I (skólabækur,
Brukadar
ar bækur)
kaupir Jón OlafsSOU, Laugaveg 10.
Tilsögn í garðyrkju geta einn
eða fleiri ungir menn fengið á næstk.
vori hjá undirrituðum, í 6 vikna tíma
frá byrjun maímánaðar, með þeim skil-
málum að þeir vinni að garðrækt 10 tíma
á dag án endurgjalds.
Reykjavík 12. janúar 1900.
Einar Heigason.
YÖRUSEHLAR hafa fundist á götu í
bænutn. Ritstj. visar á
í. .
Jón Bjarnason söðlasniiður á Stokkseyri
vill selja vandað ibúðarhús sem stendur
þar 4 liontngum stað. Gxóir r,t,iguuarskil-
málar.
Grá hryssa, 4—5 vetra, mark : biti fr.
vinstra, er tekin á gjöf, verður seld ef eig-
andi ekki gefnr sig fram innan 8 daga og
horgar áfallinn kostnað til hreppstjórans á
Varmá.
Bisamskinnhúfa týnd á götn. Finnandi
skili í afgr. ísaf.
Proclama.
Samkv. opnu hréfi 4. jan. 1861 og
skiptalögum 12. apríl 1878 er hór með
skorað á alla þá, sem telja til skulda í
dánarbúi Þorvarðar hreppstjóra Guð-
mundssonar á Litlu-Sandvík, sem and-
aðist 18. nóv. f. á., að koma fram með
kröfur sínar og sanna þær fyrir undir-
rituðum áður en 6 mánuðir eru liðnir
frá síðustu birtingu þessarar innköllun-
ar.
Litlu-Sandvík 8. janúar 1900.
Fyrir hönd erfingjanna
Guðmundur Þorvarðarson.
10—20 kr. yerðJaun.
Umdæmisstúkan nr. 1 í Suðurumdæmi
íslands heitir verðlaunum til handa
hverjum þeim, sem kemur upp og sann-
ar brot gegn lögum um verzlun og veit-
ingu áfengra drykkja 11. nóv. 1899.
Lög þessi geta menn lesið í Alþingístíðind-
unum 1899 (C. bls. 535—538), Stjórn-
artíðindunum 1899 (A. hls. 176—184)
og desemberblaðinu af »Good-Templar«
1899, svo og í ísafold í dag.
Þetta tilboð nær yfir Borgarfjarðar-
sýslu, Kjósarsýslu, Reykjavík og Garða-
og Bessastaðahrepp í Gullbringusýslu.
Verðlaunin eru: 10 kr. fyrir uppljóst-
ur fyrsta hrots, 15 kr. fyrir annað og
20 kr. fyrir þriðja brot, sem sannað er.
Reykjavik, 6. jan. 1900.
í umboði umdæmisstúkunnar
Svjurður Jónsson
barnakennari.
Toilöla.
Með væntanlegu yfirvaldsleyfi verð-
ur innan skamms haldin tombóla hér
í bænum til ágóða fyrir samskotasjóð
til líknar
bágstðddum ekkjum og
munaðarleysingjum
eftir mannskaðann
mikla í Noregi í haust.
það er guðsþakkaverk að hlaupa
hér undir bagga og ágætt tækifæri til
að sýna, að vér íslecdingar minnumst
góðrar frændsemi við oss af húlfu þess-
arar náskyldu grannþjóðar vorrar,
Norðmanna, minnumst hins staka góó-
vildarþels og einlægs bróðurhugar, er
þeir bera til vor, svo sem nóg dæmi
votta.
Hægast ætlum vér muni verða að
hafa eitthvað saman, sem dálítið mun-
ar um, með tombólu, og viljum vér
því skora á almenning, innan bæjar og
og utan, að senda oss undirskrifuðum
einhverja muni á slíka tombólu, og
styðja eftir mætti þessa samskotatil-
raun hér, svo að hún komi að tilætl-
uðu haldi og verði landinu heldur til
sóma en hitt.
Reykjavík 9. janúar 1900.
Fyrir hönd Útgerðarmannafél. og Öldunnar:
Bjarni Jónsson 1
trésm.
Hannes Hafliðason
skipstj.
Jóhannes Hjartars.
skipstj.
Páll Hafliðason
skipstj,
Siyurður Jónsson
skipstj.
Tr. Gunnarsson j
'örn Guðmundsson.
timbursali.
Helgi Helgason
kaupmaður.
Kristinn Magnúss.
skipstj.
Pétur Sigurðsson
Hróifsskála.
Stefán Pálsson
skipstj.
>rsteinn Þorsteinss.
bankastjóri skipstj.
Pppboðsauglýsing.
Fimtudagirm 18. þ. m. kl. 11 f. h.
byrjar opinbert uppboð hjá kaupmönn-
unum W. Christensen, H. Th. A.
Thomsen og Chr. Zimsen í Hafnar-
stræti hjer í oænum og verður þar selt
tunnur, kassar o. m. fl.
Uppboðið byrjar hjá hinum fyrst-
nefnda kaupmanni.
Söluskilmálar verða birtir fyrir fram.
Bæjarfógetinn í Rvík, 11, jan. 1900.
Halldór Daníelsson.
Til ábúðar fást í næstu fardögum
þessar jarðir:
T U N G A í Grafningshreppi í Ar-
nessýslu, að dýrleika 20,6 hunaruð.
Hálft M 1 Ð P E L L í Hrunamanna-
hreppi í sömu sýslu, að dýrleika 16,88
hundruð.
Um byggingaskilmála má semja við
undirritaðan.
Garðhúsum í Grindavík 2. jan. 1900.
I Einar Jónsson.
Jörðin Nýlenda 1 Leiru í Rosm-
hvalaneshreppi fæst til ábúðar frá far-
dögum næstk. (1900) og til kaups ef
um semur. Semja mávið H. J. Bart-
els í Reykjavík. Einnig má snúa sér
til hr. P. J. Petersen, Keflavík, þessu
viðvíkjandi.
Jörðin Knörr
í Breiðuvíkurhreppi í Snæfellsnessýslu
fæst til ábúðar í næstu fardögum.
Semja má við Jón borgara Árnason í
Ólafsvík eða Hallgrím biskup Sveins-
son.
Fyrri ársfundur búnaðarQelags
suðuramtsins verður haldinn laug-
ardaginn 27. dag þ. m. kl. 5 eptir
hádegi í »Iðnaðarmannahúsinu« f
Reykjavík, og verður þá skýrt frá að-
gjörðum fjelagsins hið síðasta ár og
fjárhag þess, og rætt um, hversu ráð-
stafa skuli leifum fjelagssjóðsins.
Rvfk 10. dag janúarmánaðar 1900.
H. Kr. Friðriksson.
.