Ísafold - 31.03.1900, Blaðsíða 2
66
ríki þessi hafa brotið af sér allan rétt
til ajálfsforræðis og skyldi nú gengið
milli bols og höfuðs á þeim. f>essu
samsinti þingið brezka með miklum
fagnaðarlátum!
Búar eiga og að hafa leitað máls
við forseta Bandaríkjanna í Norður-
Ameríku um milligöngu, en árangurs-
laust.
„Fyrir fætur Dönum“.
Tilgangur ísafoldar, og hennar liða,
með hlutafélagsbankann á að vera sá,
eftir því sem sagt er allsendum ótví-
ræðum orðum í »|>jóðólfi« í gær, »að
leggja sjálfstæði vort algerlega fyrir
fætum Dönum«.
»Liðar« ísafoldar í þessu máli eru
meðal annars allir alþingismennirnir,
sem á síðasta þingi voru. Fráleitt
vill blaðið halda því fram, að þeirséu
allir það treggáfaðri og skammsýnni en
ísafold, að þeir hafi verið með hluta-
félagsbankanum í blindni, en Isafold
ein sjái afleiðingarnar.
Ásökun »|>jóðólfs« verður þá ómót-
mælanlega þessi:
ísafold og alt alþingi vill leggja
sjálfstæði vort algerlega fyrir fætur
Dönum!
Snoturt er orðalagið, piltar!
Finst ykkur ekki getsakirnar sæmi.
lega góðraannlegar og gætilegar?
Frá Danmörku
fréttist lát Matth. Saxtorphs, er
lengi var yfirlæknir við Friðriksspítala.
Hann komst hátt á áttræðisaldur.
Dr. Frederik Nielsen, háskólakenn-
ari í kirkjusögu, orðinn biskup í Ála-
borg, í stað Schousboes heitins, er þar
var.
Einurð og stefnufesta.
Eigi allsjaldan hefir »f>jóðólfur« ver-
ið spurður um stefnuskrá sína — í
hvert horf ætti að koma málum þjóð-
ar vorrar, svo að henni stæði sem
mest heíll af. Nú hefir hann loksins
tekið sér fyrir hendur að svara þeirri
spurningu. í gær kom hann með
svarið, að því er stjórnarskrármálinu
við kemur.
Og svarið er álíka ljóst og jafn-
myndarlega frá því gengið, eins og við
er að búast.
Hann segist ekki vita, hvort réttast
muni
að halda stefnu meiri hlutans í neðri
deild frá 1897 (þiggja stjórnartilboðið
og ónýta það með ríkisráðsfleygnum),
eða
að vekja benedizkuna upp aftur, eða
að bíða með stjórnarbótarmálið um
einhvern óákveðinn tíma.
pjóðin verði að skera úr því, hvað
af þessu muni nú vera bezt. Sjálfur
gefur hann mönnum von um, að hann
muni ráðleggja þjóðinni það, sem verði
ofan á hjá henni !
|>að er undra-skýr stefna, þetta —
svo sem engin furða, þó að »|>jóðólf-
ur« njóti virðingar landsmanna fyrir
einurð og stefnufestu!
Eða hvað finst mönnum?
Um Saurbæ
eru þessir prestar í kjöri: Ólafur
Ólafsson á Lundi, Einar Thorlacius í
Fellsmúla og Sigurður Jónsson á
þönglabakka.
Aflabrögð
eru mikið góð austan fjalls, í Ár-
nessýslu veiðistöðunum, komið þetta
frá 250—700 í hlut, þar af þorskur
Vio cil Vr. hlutL
Hér eru þilskip vel fiskuð, sem inn
koma öðrU hvoru. *
Herskipið komið.
Höndlaður botnverpingur.
JÞrætir fyrir brotið. Meinsæri.
Heimdallur kom hingað miðvikud.
28. þ. m., færandi hendi, eins og fyr,
— með 2 sökudólga í eftirdragi, botn-
verping og lóðarfiskiskútu, bæði skíp-
in ensk, frá Hull. Botnverpinginn
hafði hann handsamað í landhelgi á
Grindavík, en hitt skipið við Beykja-
nes. það hei ir Harry Cutts og var
sektað um 10 pd. sterl. En botn-
vörpuskipið Faraday, skipstj. Blewett.
Sá kumpánn þrætti og þrætir enn fyr-
ir aðal-brot sitt, fiskidrátt í landholgi.
Játar sig hafa verið að eins staddan
í landhelgi, en læzt hafa haft vörp-
una uppi. Hún var að eins komin
upp fyrir sjávarmál, er herskipið bar
að, og var með lifandi fisk í, enda
var sýnilega verið að draga hana upp.
Grindvíkingar, er þar voru í fiskiróðri
mjög nærri, sögðu bomverping þenn-
an hafa verið þar á sömu slóðum á
3. dag og dregið vörpu sína jafnt bg
þétt kring um dufl, er þar var mjög
nærri landi og Heimdellingar sáu. Tók
herskipið 2 þeirra með sér og hafa
þeir borið þetta og svarið fyrir rétti
hér. En sxipstjóri þrætir jafnt sem
áður. Og með honum ber Islending-
ur einn, er verið hefir á hans vegum
eða skipsins árlangt og er af Akra-
nesi. Hann sór þann framburð sinn,
en var þá settur í gæzluvarðhald og
stendur til sakamálshöfðuu gegn hon-
um fyrir meinsæri.
Til þess að ekki standi á sönnun-
um þrátt fyrir þetta, fór sýslumaður
Páll Einarsson suður í Grindavík í
gær til að ná framburði fleiri vitna,
er sjónarvottar hafa verið að fiskidrætti
sökudólgs þessa örskamt frá landi.
Hann bíður dóms á meðan hér á
höfninni.
Ný skipshöfn er á Heimdalli og
heitir yfirmaður Sehluter.
Lokau.
Ef vér þiggjum tilboð stjórnarinnar í
stjórnarskrármálinu, »þá er með því
loku fyrir skotið, að vér fáum nokk-
uru sinni innlenda sjórrn, segir ritst.
»þjóðólf8« í gær í blaði sínu með
breyttu letri.
Vill hann nú einu sinni sýna sig
þann mann að sanna þetta? Vill
hann nú ekki einu sinni nregða út af
venjunni og fær riik að lokunni —
rök að því, að einmitt með þeirri
breyting, að alþingi fái ráðgjafann til
viðtals og samkomulagsviðleitnar, sé
hleypt loku fyrir það, »að vér fáum
nokkuru sinni innlénda stjórn«? Vít-
anlega gerir hann sér ekki þá hug-
mynd um lesendur sína, að þeir séu
mikið fyrir röksemdir gefnir. J>ess
vegna er sjálfsagt blað hans eins og
það er. En þar sem staðhæfingin er
svo furðuleg, virðist ekki frágangssök
að breyta út af venjunni þetta eina
skifti.
f>að er þó myndarlegra, við og við,
að gera ofurlítið meira en að gaspra
og fúkyrðast.
Skynjandi menn og hugsandi hafa
hingað til haft þá skoðun hér um bil
undantebningarlaust, að náin sam-
vinna milli þings og stjórnar (ráðgjafa)
væri eina leiðin til að fá hvort held-
ur er þá eða aðrar umbætur á stjórn-
arannmörkum þjóðanna, en samvinnu-
leysið ræki í gágnstæða átt, sem og
reynsla vor hefir lengi sýnt.
Mein er þeim sem í myrkur rata.
Frúimi á Elliðavatni varð það á, að segja
ósatt og í staðinn fyrir að kannast við yf-
irsjón sina, tók hún það ráð, sem öllum
hefir illa gefist, að þræta og beita stóryrð-
um.
Ekki batnar ástandið, þegar hún er kom-
in í smiðjuna til kunningjans. Hann hrúg-
ar saman fyrir hana brigzlum og ónotum
og lætur hana skrifa undir. Og þetta er
hennar virðingarakkeri.
Vinur er sá, til vamms segir, og það var
eg. Eg skal nú líka leggja henni heilræði,
og það er að snúa á rétta braut, og biðja
fyrirgefningar. Ekki skal þurfa að knýa
mig til að fyrirgefa henni. Má og veraað
hún þurfi á öllu sinu að halda. f>að þarf
bein i heDdi til að gera út prestskosningar-
leiðangra. Ekki fær það á mig, þótt mér
sé brigzlað um elli; þvi við hana mun eg
glima eftir mér gefnum kröftum og taka
fallinu eins og sá sem gert hefir sér far
um að misbjóða ekki sannleikanum.
Fíiuhvammi 28. marz 19C0.
Þ. Guðmundsson.
Hitt og þetta.
Nú er íbúatalan í Lundúnum orðin 6'/»
miljón. í>að er á borð við alla landsbúa í
Norvegi og Svíþjóð. f>eim fjöigar um 80
þúsundir á ári, eða sem svarar öllum ls-
lendingum. Svo telst til, að barn fæðist
þar 3. hverju mínútu og að maður deyi
þar 5, hverja mínútu. Þar kváðu eiga
heima fleiri Skotar en i höfuðstað Skot-
lands, Edinborg, og fleiri írar en í höfuð-
borg írlands, Dýflinni, fleiri kaþólskir menn
en í ,Eómaborg og fleiri G-yðingar en á
öllu Gyðingalandi. Tala brotlegra manna
er lögreglan hefir »i bók« hjá sér, nemur
fullri */« miljón eða meira en þrefaldri tölu
allra landshúa hér.
Skandinavisk export- kaffi- surrogat,
sem vér höfum húið til undanfarin ár, er
nú viðurkent að hafa ágæta eiginlegleika.
Köbenhavn K. F, Hjortlr & Co.
VERZLUN
J. P. T. Bryde
hefir fengið sýnishorn af alls
konar SKÓSMIÐALEÐRI
mjög ífóöu og ódýru.
Þeir heiðruðu skósmiðir, er kynnu
að vilja panta eitthvað af leðri þessu
eru vinsamlega beðnir urn að koma
með pantanir sínar 2 dögum áður en
skip fara.
Umboðsmannsstörfum fyrir vátrygg-
ingarfélag »Commercial Union« gegnir
hr. verzlunarmaður L. Hansen í fjar-
veru minni.
Reykjavik, 27. marz 1900.
tíighvatur Bjarnason.
Leikfélag Reykjavíkur
Sunnudag 1- apríl:
Skríil!
Leikur í 5 þáttum eftir Th. Overskou.
125” Byrjar stundvísl. kl. 8 e. h.
1 sídasta sinn fyrir
páska.
Þegar þér biðjið um Skandinavisk Ex-
portkaffi Surrogat, gætið þá þess, rð vöru-
morki vort og nndirskrift sé á pökkunum.
Khavn K F. Hjorth & Co.
Týnst hefir þ. 29. þ. m. á götum
bæjarins gullkapsel. Finnandi biAinn
að skila því til Konráðs Stefánssonar
í latínuskólanum gegn sæmilegum
fundarlaunum.
Nýkomið með
,Laura‘ & ,Vesta‘
í verzlun
Nær 30,000 nemur tala seglskipa í heim-
inum, sem eru 50 smál. að stærð eða þar
fram yfir. Og hér um hil 8'/* milj. smá-
lestir taka þau alls.
Það eru 4 þjóðir, sem mestan eiga segl-
skipastólinn: Bretar, Bandamenn i Norður-
Ameríku, Norðmenn og Þjóðverjar. Bret-
ar þó meiri en hin rikin 3 samtals, sem sjá
má á þessu yfirliti yfir seglskip á framan-
greindri stærð, þ. e. 50 smál. minst:
Bretar........................... 7706
Bandamenn . . ................... 3497
Norðmenn......................... 2306
Þjóðverjar.........................981
Svo segja skýrslur þar að lútandi, að
til sén alls í heiminum 11,456 gufuskip
ekki minni en 100 smál. og séu samtals
rúmnr 12 milj. smál.
Þar ern Bretar lang-efstir á blaði, með
fast að helming þess skipastóls alls að töl-
unni til, en meira en helming að flntnings-
magni eða hátt npp í 7 milj. smál. Hér
er samanburður á 7 mestu gufuskiparíkjum
í heimi:
1. Bretland hið mikla og írland . . 5453
2. Þýzkaland...........................900
3. Noregur.............................657
4. Bandaríkin í Norður-Ameriku. . 551
5. Frakkland...........................526
6. Spánn...............................377
7. Japan...............................332
Þess her að geta, að þótt Norðmenn sé'n
3. ríkið í röðinni að gufuskipafjölda, þá
eru þeir minni en hæði Bandamenn og
Frakkar að skipastærðinni.
SAMEININGIN , mánaðarrit til stuðnings-
kirkju og kristindómi Islendinga, gefið út
af hinu ev. lút. kirkjufjelagi i Vesturheimi
og prentað í Winnipeg. Eitstjóri JónBjarna-
son. Verð í Vesturheimi 1 doll. árg., á Is-
landi nærri því helmingi lægra: 2 kr. Mjög
vandað að prentnn og allri útgerð. Fjórt-
ándi árg. byrjaði í marz 1899. Fæst i hóka-
verzl. Sigurðar Kristjánssonar í Reykjavik
og hjá ýmsum bóksölnm viðsvegar umland.
Tli. Thorsteinsson.
Mikið úrval af ULLAR-SJOLUm
svört og ljósleit-SUMAll CASHEMIR-
SJÖL. — HERÐASJÖL hvergi meira
úrval. — SLIFSI. — LÍFSTYKKI
yfir 20 tegundir. — HATTAR. —
KASKETTER. — HÚFUll fyrirJull-
orðnu og börn.
ENSKT VAÐMÁL. — TVLSTTAU.
STUMPASIRZ. — LASTING. — Blátt
NANKIN. — MOLESKIN. -... LÉR-
EET bleikt og óbl.
PRJÓNAÐUR barna-, kvenn- og
karl.m.-NÆRFATNAÐUR. — BLÁAR
PEYSUR. — FÆREYSKAR PEYS-
UR.
NIÐURSOÐIÐ: Roast Beef. Corneil
Beef. Sheep Tongnes. Boiled Mutton.
Pigs Feet. — ÁVEXTIR í DÓSUM:
Perur. Ananas, Apricosur og fl.
SYLTETÖJ. — Gelé. — MARME-
LADE. — CHOCOLADE margar
tegundir. Þar á meðal »CONSUM«.
STEINOLÍUVÉLAR í 6 tegundum.
EMAILERAÐ: The- og kaffikönnur.
Bollar. Diskar. Skálar. Tarínur.
Kasseroller. */4—V2 °g V1 potts mál.
MIKIÐ ÚRVAL af HANDSÁPU og
ILMVÓTNUM. — YFIR 20 teg-
undir af góðu og ódýru KAFFI-
BRAUÐI og KEXI. Þar á meðal
BISCUIT-CONFECT.
Leiðarvísir nt lífsbyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjóranum og hjá dr.
med J. Jónassen, sem einnig gefur þeim
sem vílja tryggja lif sitt, aliar upplýsingar.