Ísafold - 02.06.1900, Qupperneq 4
Vendetta.
Eftir
Arehibald Clavering Gunter,
Hann fekk brátt vitneskju um, að
Charles Manion Phillipa hafði verið
fiuttur til lndlands, að George Fell-
ows Arthur hafði fallið við Egiptaland
í ófriðinum á »Hafgúunni« og það vissi
hann áður, að hr. Anstruther var í
herþjónustu á skjpi því, sem nýlega
var komið til Nizza. Barnes hafði,
þegar hanu var farinn að fá ást á
systur Anstruthers, alt í einu farið að
gera sér svo títt um eið Marínu, að
hann leitaði hennar, fann hana að
máli og reyndi, með því að færa henni
skilaboðin frá bróður hennar deyandi,
til að fá hana til að hætta við að
eltast við að ná í manninn, sem drep-
ið hafði brójur hennar. Áður hafði
hann ekkert skift sér af þvímáli. Og
að öllum líkindum hafói hann, áður
en hanu fór að láta sig þaó nokkuru
varða, fundið þennan unga lautenant
í Nizza, og séð þá, að hann var ein-
mitt enski liðsforinginn, sem einvígið
hafði háð. Af þessum þremur liðsfor-
ingjum á *Erninum« bárust böndin
bersýnilega einkum að Anstruther.
Danella greifi átti því láni að fagna
að vera í heimboði á »Hafgúunni«.
f>ar hitti hann Anstruther, og þeir
urðu brátt kunningjar, næstum því vin-
ir; því að Mússó gat verið frámuna-
lega ástúðlegur, þegar honum' þótti
það við eiga. Edvin borðaði morgun-
verð hjá greifanum, og greifinn sat í
miðdegisveizlu hjá honum, og þegar
Anstruther var á landi, var hann
stunduoi heima hjá Danellu á kvöld-
in í hótelli hans. En þrátt fyrir allar
sínar viðræðugáfur og hæfileika til að
vekja traust á sér tókst greifanum al-
drei að fá nokkurt orð út úr enska
lautinantinum um einvígið á strönd-
inni við Ajaccio. Mússó þorði ekki
að leggja beiningar spurningar fyrir
hann, og neyddist því til að svipast
um eftir hinum og öðrum Iíkum, sem
af tilviljun kynnu að berast honum í
hendur. Enda fekk hann brátt svo
mikið af þeim, sem hann gat framast
á kosið.
Anstruther hafði fengið brottfarar-
leyfi og hafði sagt greifanum, að haDn
mundi koma á land kvöldinu áður en
hann lagði á stað til Nizza og Món-
acó.
»f>ér flytjið þá farangurinn yðar með
yður, Edvin minn góður, býst eg við?«
sagði greifinu.
»í fyrstu hafði eg hugsað mér, að
senda hann með »Hafgúunui« til Eng-
lands«, svarar Anstruther; »það hefði
mér verið hentugast. En af því að
eg á e&ki að fara aftur á gömlu skút-
una — hún á ekki lengur í neinum
ferðum að vera — og af því að systir
mín er vís til að halda mér nokkuð
lengi á meginlandinu, þá hefi eg ráð-
ið af að flytja farangurinn með mér«.
*Við skulum þá fara út á skip nú,
og eg hjálpa yður til að koma dótinu
£yrir«.
»f>akk’ yður kærlega fyrir, Danella;
en því lauk eg af áður en eg fór á
land«.
»Nú, það var gaman, því að fyrir
bragðið getið þér verið hér allan dag-
inn. Nú sleppi eg yður ekki! Send-
ið þér eftir dótinu. Borðið miðdegis-
mat með mér og verið hér í hótellinu
í nótt. Svo fylgi eg yður á járnbraut-
arstöðina í fyrramálið#.
»Mér þykir fyrir því að hafna þessu
boði, en eg verð að kveðja Harrison
við stórskotaliðið og McDermot við
flotann; það eru gamlir vinir mínir;
þetta er síðasti leiðangurinn, sem eg
verð í, og vel getur verið, að eg komi
aldrei framar til Gibraltar*.
»f>ér skuluð gera hvorttveggja, vin-
ur minn«, segir greifiDn. Mc Demont
og Harrison skulu líka borða miðdegis-
verð hjá mér og síðasta kvöldið, sem
þér eruð í herþjónustunni, skal verða
gleðikvöld«.
Anstruther sendi eftir farangri sín
um. Danella bauð honum og vinum
hans til miðdegisverðar, sem ekki hefði
getað ágætari verið, þó að hann hefði
verið búinn til á Caýé Amjlais f París
— því að MÚ8SÓ greifi hafði fyrirtaks-
gott vit á öllu, sem að mat og drykk
laut. Og með því að spænsku vínin
eru alláfeng, hafði lautinant Edvin
Gerard Anstruther við brezka flotann
töluvert í^rollinum, þegar hann fór að
hátta, og 8ofoaði svefni réttlátra.
Morguninn eftir leggur hann á
stað til Frakklands. f>egar greifinn
kveður hann, starir hann einkennilega
lengi á tösku eina í farangri Edvins
og segir : »Eg hitti yður sjálfsagt í
Nizza eða Monte Carló. Og verið þér
nú sælir!«
Meðan Danella er að renna hugan-
um yfir alt þetta, hefir alvörusvipur
komið á andlitið á honum og hann
tautar fyrir munni sér: »f>að er illa
farið með jafnskemtilegan mann, en
— alt gerir maður fyrir ástina! Nú
hefi eg efnt loforð mitt, svo litla diif-
an getur ekki lengur sýnt mér misk-
unnarleysi. En hvernig á eg að binda
enda á þetta alt? — Ekki verða nein
vandræði úr því — við flytjum okkur
aftur til Korsíku. Allir Euglendingar
eru íþróttamenn. Eg býð honum á
steingeitaveiðar — Marína miðar á
steingeit og svo! —«
Sundmaga
kaupir hæstu verði fyrir p e n i n g a
Ásgeip Sigupðsson.
Herðasjölin skrautlegu og skó-
fatnaðnr fyrir yngn og eldri kom
nú með »Vesta«.
Svuntutauin skrautlegu úr alull
komu með »Laura«.
Bjorn Kristjánsson
Dekkbdtur til sölu. Semja má við
Kristján jÞorgriir.sson.
Eikar-kommóða, spónlögð selst með
lágu verði i Suðurgötu 10, uppi.
Nú þegar er til leigu mjög lientugt ber-
bergi fyrir einhieypa eða litla fjölskildu.
Ritstjóri vísar á.
Ársfundur búnaðarfjelags Islands
verður haldinn laugardaginn 30. d.
þessa mánaðar kl. ð eptir hádegi í
Iðnaðarmannahúsinu í Reykjavík.
Reykjavík, 1. júnímánaðar 1900.
H. Kr. Friðribsson.
Takiö vel eftir.
Allir þeir sem leið eiga að leifum
skipsins »Moss« er liggja við Effersey,
aðvarast hér með um að spilla ekki
grasinu á eynni með því að ganga
um hana o. s. frv.
Reykjavík 2. júní 1900.
Jón Þórðarson,
Jóns Þórðapsonar.
prentsmiðju í alla vega bandi. 3 kr.,
3 kr. 50 a., 4 kr.; í skrautbandi
6—7 kr. B e z t a fermíngjargjöf.
10—20 liesta
á aldrinum 6 til 9 vetra kaupir und-
irritaður nú þegar. Mig verður að
hitta í Suðurgötu nr. 10 til 6. þ. m.
Rvík 2 júní 1900.
Þorst. Davíðsson.
Utanáskrift : Pósthólf nr. 23 B.
1
KALDA“
fást eins og að undanförnu
verzlun C. ZIMSENS í Reykja-.
^vík. ILímónaði og Sí-
®trónsódavatn (ný teg.^
góð) i o aura. Sodavatn,
(betra en nokkru sinni áður)"
7 a u r a.
Vatnið úr Kaldár-lind er sam-'
f
fkvcemt efnafrœðislegum rannsókn-^g
ium svo lireint og tært aðA
ekki þarf að sía það ▼
Veiðibann.
Hér með er öllum bannað, að veiða
lax og silung í Andakílsárfossi og þeim
hluta árinnar niður til Hrafnagils, sem
Plvanneyri á veiðirétt í.
Hvanneyri 14. maí 1900.
Hjörtur Snorrason.
Saltfiskur
vel verkaður, stór og smár, og ýsa,
verður keyptur í sumar fyrir peninga
við verzl. »EDINBORG« í Keflavík,
Stokkseyri og Reykjavík.
Styrktarsjóður
W.Fischers.
þeir, sem vilja sækja um styrk úr
þessum sjóði, geta fengið sér afhent
eyðublöð í verzlun W. Fischers 1
Reykjavík. Styrkurinn er ætlaður
ekkjum og börnum, er mist hafa for-
sjármenn sína 1 sjóinn, og ungum Is-
lendingum, er hafa í tvö ár verið í
förum á verzlunar- eða fiskiskipum,
sýnt iðni og reglusemi, og eru verðir
þess, að þeim sé kend sjómannafræði
og þurfa styrk til þess. Um ekkjur
er það haft í skilyrði fyrir styrkveit-
ingu, að þær hafi verið búsettar 2
síðustu árin í Rvík eða Gullbringu-
sýslu, og um sjómenn og börn að vera
fæddir og að nokkuru leyti upp aldir
þar.
Bónarbréf þarf að vera kornm til
stjórnenda sjóðsins (landshöfðingja eða
forstöðumanns Fischers-verzlunar í
Reykjavík) fyrir 16. júlí þ. á.
Tannlæknir
O. St. Stefánsson
ferfasc kring um land miðsumars.
Býðst þá einstakt tækifæri til að fá
nýar tennur með hægu móti og vægu
verði; nýar tennur eru mörgum ó-
missandi heilsubót og andlitsprýði.
Nánari upplýsingar og leiðbeiningar
munu innan skamms geta fengist hjá
héraðslæknum í kaupstöðunum.
Uppboösauglýsing.
Eftir kröfu sparisjóðsins á ísafirði
og að undangengnu fjárnámi verður
1-J hdr. f. m. í jörðinni Hesteyri í
Sléttuhreppi, tilheyrandi Guðmundi
Jónssyni á Hesteyri, selt við 3 opin-
ber uppboð, sem haldin verða mánu-
dagana 12. júní, 25. júní og 9. júlí
næstkomandi, tvö hin fyrri á skrif-
stofu sýslunnar kl. 11 f. h., en hið
síðasta að afloknu manntalsþingi í
Sléttuhreppi.
Söluskilmálarnir verða fram lagðir við
öll uppboðin.
Skrifst. ísafjarðarsýslu, 25. maí 1900.
H. Hafstein.
Eg hefi nú þjáðst á annað ár af
sárum brjóstþyngslum og taugaveiklun
og hefi eg allan þennan tíma tekið
mestu kynstur af meðulum en alt ár-
angurslaust. Eg fór því að reyna
Kínalífs-elixír frá Waldemar Petersen
og þegar eg hafði tekið inn úr 1|
glasi fór mér að batna til muna, og
get eg engu öðru þakkað það en þessu
heilsnlyfi.
Arnarholti á íslandi
Guðbjörg Jónsdóttir
Kínaiífs-elixínnn fæst hjá fiest-
um kaupmönnum á Islandi.
Til þe83 að vera viss ura', að fá
hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupend-
ur beðnir að líta vel eftir því, að VÁ-'
Btandi á flöskunni í grænu lakki, og
eins eftir hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Kínverji með glas í
hendi, og firmanafnið Waldemar Pet-
ersen, Frederikshavn, Danmark
Trélistar
mjög miklar birgðir, úr ágætu, gufu-
þurkuðu efm, heflaðir gólfplank-
ar 2 þuml., gólfborð, rustik, þilju-
borð, langbönd, rapnings-listar
m. m. svo og compo-boards fúst hjá
hlutafélaginu
Fredriksstad Listeiabrik.
Umsóknir um skóla fyrir næsta
vetur (1900—1901) verða að
vera komnar til undirskrifaðs fyrir
ágústmánaðarlok í sumar. þeim,
sem ganga í kennaradedd skólans, er
ætlaður kenslustyrkur, 50 kr.
hverjum (upp að 10). þeir sem óska
að fá heimavi-t (íbúð 1 skólahúsinu
með sameiginlegu mötuneyti og þjón-
ustu) verða að láta þess við getið í
umsóknarbréfum sfnum.
Flensborg 17. maí 1900.
Jón Þórainsson
Stýrimannaskólinn.
þeir nýsveinar, sem ætla sér að
ganga á Stýrimannaskólann næstkom-
andi skólaár, verða að vera búnir að
senda skriflega umsókn um það til.
mín, 8tílaða til stiftsyfirvaldanna, fyr-
ir 15. ágúst þ. á. Aríðandi er að
umsóknum fylgi áreiðanleg vottorð um
þau atriði, sem gerð eru að skilyrði
fyrir iuntöku í skólann. þessi skil-
yrði má sjá í Reglugjörð fyrir Stýri-
mannaskólann í B-deíld Stjórnartíð-
anna 30. nóvember 1898.
Sömuleiðis gerist þeim lærísveinum,
sem síðast sóttu skólann, viðvart um,
að láta mig vita munnlega fyrir ofan-
greindan tíma, hvort þeir ætli að halda
námi sínu áfram næsta skólaár.
Reykjavík 24. maí 1900.
M. F. Bjarnason.
U M B 0 1)
Undirskrifaðir taka að sér að selja ísl.
vörur og kaupa útlendar vörur gegn
sanngjörnum umboðslaunum.
p. .1. Thorsteinsson & Co.
Tordenskjoldsgadc 34 Kjöbenhavn K
Swidinagar
vel verkaðir verða keyptir fýris pen-
inga við verzl. »EDINBORG« í
Keflavík, Stokkseyri og Reykjavík
Asgeir Sigurðsson.
Sundmaga
fyrir peninga kaupir hæsta verði
W. Christensens-verzlun
Ritstjórar: Björn .Tónsson(útg.og áhm.jog
Elnar Hjörleifsson.
ísafoldarprentsmiðja.