Ísafold - 13.06.1900, Page 3
147
Um sóttkvíunina
í Framfarafélagshúsinu, á skarlats-
sóttarsjúkl. ásamt hjúkrunarkonu,
gengur mikið skraf hér í bænum, að
hún muni ekki dyggilega haldin; full
yrt, að hjúkrunarkonan, Guðný Her-
mannsdóttir, er numið hefir þá iðju í
Khöfn með ágætum vitnisburði; hafi
gert sig seka í því stórkostlega broti,
að fara nær allra sinna ferða burt úr
húsinu út um allan bæ. Sem betur
fer,þáer þessi heimskulegi og ógóðgjarn-
legi áburður á stúlku þessa alveg á-
tyllulaus, eftir því sem héraðslækni
hefir komist næst, og hefir hann rann-
sakað það mál mjög rækilega.
Tilefnið er það, að Guðný þessi á
hér systur, sem er henni mjög lík,
og auk þess eins búin — hefir gengið
meira að segja með sjal af Guðnýu.
Hefir það orðið til þess, að ýmsir
hafa vilst á þeim tilsýndar, og bumir
þótst svo ugglausir um það, að þeir
hafa ávarpað hana með nafni systur
hennar og látið í ljósi undran sína og
misþóknan á því, að hún skyldi vera
á gangi úti og svíkjast svona um það,
sem henni hafi verið trúað fyrir!
Álmenningur ætti því miklu fremur
að fyrirverða sig fyrir tortrygni sína
en að ala lengur með sér nokkurn
sviksemisgrun í þessu atriði.
Slgling.
þessi kaupför hafa hingað komið
það sem af er mánuðinum:
5. Kagnheiður (73, Bönnelykke) frá
Troon með kol til W. Christensens.
8. Progres (135, Andersen) frá Dysart
með kol til W. Christensens. —
11. Askur gufuskip (240, T. Randulff)
frá Mandal með viðarfarm til Björns
Guðmundssonar. 8. d. Ingeborg (124,
N. R. Svane) frá Frederiksstad með
timbur til Magnúsar Benjam. o. fl.
12. August (80, Dreja) með alls konar
vörur frá Kaupmannahöfn til H. Th.
A. Thomsens.
Mannalát.
Hinn 3. þ. m. andaðist að Melum
í Hrútafirði Jón Jónsson, jarðar-
eigandi og um langan aldur bóndi þar
á staðnum.
Jón sál var faeddur 25. des. 1824.
Foreldrar hans voru hinn orðlagði vits-
muna- og ráðdeildarmaður Jón Jónsson,
kammerráð og sýslumaður í Strauda-
sýslu, og frændkona hans Sigríður Sig-
urðardóttir. Hann ólst upp hjá föður
sínum á Melum og naut hins mesta
ástríkis, einnig af stjúpu sinni, er fór
með hann að öllu sem eigið barn henn-
ar væri. Árið 1848 reisti hann bú á
Melum, og höfðu þá gömlu hjónin,
faðir hans og stjúpa, gefið honum stór-
mannlega gjöl í fasteign og lausafé, og
sama ár, hinn 27., sept. giftist hann
eftirlifandi ekkju sinni, Sigurlaugu
Jónsdóttur bónda og dbrm. Ólafsson-
ar á Helgavatni í Vatnsdal. Bjuggu
þau á Melum öllum í 30 ár, hinu
mesta rausnarbúi. Efnin voru jafnan
mikil, búinu stýrt með reglusemi og
atorku, og sérlega sómasamlega staðið
í götu hinna mörgu ferðamanna, er
jafnan sækja að Melum, sem standa í
einhverri hinni fjölförnustu þjóðbraut
landsins. Síðustu rúm 20 ár voru þau
hjón ýmist í húsmensku eða búandi á
jarðarparti, og voru síðast að mestu
hjá syni þeirra, sem núbýr á Melum.
Jon sál. var mjög merkur maður.
Hann hafði góða greind, en var allra
manna frásneiddastur þvi, að láta mik-
ið á sér bera eða halda sér fram; var
fáorður jafnan og fremur fálátur í marg-
menni, en við vini og kunningja ræð-
inn og skemtilegur, þegar svo bar und-
ir. Hann var mjög reglusamur mað-
ur, áreiðanlegur í öllum viðskifturu og
manna tryggastur og staðfastastur, trú-
maður og guðrækinn, háttprúður og
siðavandur. Sem bóndi var hann stjórn-
samur og útsjónarmaður og sveitar-
stoð að því leyti, að hann bar jafnan
einhverja þyngstu byrði af bændum í
sveitarfélaginu. A fé sínu var hann
talinn fastur maður, en sóma síns
gætti hann ætíð fyllilega, og það var
ekkihaft í hámælum á Melum, þótt
einhverjum væri rétt hjálparhönd, en
kunnugir vita, að það var bæði oft
gert og verulega.
Jón sál. var mesti lánsmaður. I upp-
vextinum var hann undir hendi hins
bezta föður og fóstru. Með gifting-
unni eignaðisti hann förunaut, sem
honum reyndist yfir 50 ár hinn holl-
asti og hentugasti, alþekta ágætiskonu,
sem allir kunnugir bera virðingu fyrir.
Hjónaband þeirra var líka farsælt, og
er óbætt að telja það að einu og öllu
sanna fyrirmynd. Börn sín mannaði
hann vel og naut þeirraánægju, að sjáþau,
sem upp komust,vel metin í félaginuogí
flokki merkustu manna. Alla sína
daga hafði hann mjög hrausta heiisu;
mun aldrei hafa Iegið veikur, nema
síðasta sólarhringinn, sem hann lifði.
Börn þeirra hjóna eru: Jón prófast-
ur í Stafafelli; Ingunn, kona Björus
alþingismanns Sigfússonar á Kornsá;
Guðlaug, kona Guðmundar Ólafssonar
á Lundum í Stafholtstungum; Jósep,
bóndi á Melum; og Finnur borgari í
Vinnipeg. þrjú dóu kornung, og 2 upp-
komin: Sigríður, fyrri kona þórðar
Jónssonar á Laugabóli 1888, og Run-
ólfur Magnús 1883, að eins þrítugur,
nýorðinn bóndi á Melum, hinn efnileg-
asti maður.
Með Jóni sál. er horfinn einn af
landsins elztu og beztu bændum, still-
ingar-, ráðdeildar- og staðfestumaður,
er í öllu mátti treysta, góður heimilis-
faðir og yfir höfuð að tala sá maður,
er hverju félagi er bæði gagn og sómi
að eiga.
Einn aý vinum hins látna.
Hinn 28. marz síðastl. andaðist að
Kirkjuvogi í Höfnum ágætis-konan
pórunn Brynjólfsdóttir, 86 ára gömul,
ekkja hins nafnkunna bændahöfðingja
Vilhjálms Kr. Hákonarsonar dbrm.,
hreppstjóra og stórbónda í Kirkjuvogi.
Eftir 30 ára fyrirmyndar-hjónasambúö
og rausnar-búskap í Kirkjuvogi andað-
ist hann 1871; en síðan bjó hún þar
sem ekkja með sömu rausn og sæmd í
15 ár; 1886 lét hun af búskap og var
síðan til dauðadags hjá dóttur sinni,
ekkjufrú Steinunni Sivertsen. Þórunn
sál. var dóttir síra Brynjólfs Sivertsen,
ér síðast var prestur að Utskálum, og
konu hans Steinunnar Helgadóttur, og
var þannig alsystir síra Sigurðar ridd.
af dbr. á Utskálum og hálfsystir Helga
biskups. Þórunn var kona sannmentuð
bóklega og verklega, vitur og vel að
sór gjör; hjá henni var dugnaður og
skörungsskapur svo fagurlega sameinað-
ur hógværð, lijartagæzku og göfuglyndi,
að allir undantekningarlaust, er henni
kyntust nokkuð verulega, urðu að elska
hana og virða. Hjarta hennar var gagn-
tekið af kærleika Krists, og var líferni
honnar fagurt dæmi upp á sannan, lif-
andi og starfandi kristindóm. Líknar-
starfsemi hermar og góðgirni var frá-
bær; aumum og bágstöddum var hún
jafnan og án manngreinarálits eins og
ástúðleg móðir; mörgum börnum, er ým-
ist ekki þótti kennandi fyrir tornæmis
sakir eður höfðu verið vanrækt í þeirri
groin, kendi hún ókeypis til fermingar.
Starfsamur, veglyndur, hógvær og þol-
inmóður kærleiki var hennar lífseiukenni;
og trúræknari konu hefi eg ekki þekt.
Börn hennar eru: Anna, kona síra O. Y.
Gíslasonar í Nýa-íslandi, og Steinunn,
ekkja þeirra bræðra síra Sigurðar og
Helga hreppstjóra Sigurðarsonar ■ Sivert-
sen frá Útskálum. J. P.
Ýmislegt utan úr heimi.
Meira en 5J milj. manna hefi Breta-
stjórn orðið að leggja lífsviðurværi í
vetur á Indlandi vegna hallærisins, og
mun þó hafa skamt hrokkið.
lýsi eg því hór með yfir, að eg hafði
alls engin mök eða viðskifti við áð-
urnefnda meun, hvorki keypti af þeim
skepnur, né lánaði þeim þeim sparisjóðs-
bók eða péninga á annan hátt.
Hvanneyri 25. mai' 1900.
Hjörtur Snorrason-
þann beyg hafa Bretar fengið af
fjandsamlegum ummælum annara
Norðurálfuþjóða í þeirra garð í vetur
út af Búaófriðinum, að nú eru þeir
farnir að hugsa um að gera rammleg
vígi kringum Lundúnaborg, og eins
að gera virki við Temsármynni og
auka um helming og bæca strandvirki
sín.
Manntjón 1 hernaði Stafar oft minst
af mannfalli í orustum. Bretar mistu
að meðaltali 6 af hundraði á ári af
hermönnum sínum þau 20J styrjaldar-
ár, er kend eru við Napóleon mikla; en
þar af voru ekki nærri því 1 af
hundraði, sem féllu í orustum eða.lét-
ust af sárum; hinir urðu sóttdauðir
eða létust af slysum.
Parísarsýningin. Kringum 320,000
kr. varð prentari sá, er fekk að
gefa út og selja sýningarskrána, látinn
greiða í sýningarsjóð fyrir þau hlunn-
indi. Fyrir einkarétt til að lána þeim
stóla að hvíla sig, er á sýninguna
kæmu, galt annar maður um 140,000
kr. í sýningarsjóðinn. Má af því
marka, hvert smáræði þar er um að
tefla, eða hitt þó heldur.
Veðurathuganlr
í Reykjavik eftir landlækni Dr. J.Jónas-
sen.
*c8 ® Hiti (á Celaius) j Loftvog | (miliimet.) 1 Veðurátt.
nóttu. |umhd| árd. siðd. í árd. slðd.
26. + 5 + « 151.8 751.8 Sa h d Sa h b
27. + 6 + 11 751.8 754.4 Sa h d o b
28. + 7 +12 756.9 762.0 o b o b
29. + 9 + 10 762.0 762.0 Sah d Sv b b
30. + 4 +11 762.0 761.1 o b e d
31. + 5 +10 767.1 762 0 Sa h d S h d
1. + 8 +10 762.0 762.0 S h d S h d
2. + 7 + 8 756.9 762.0 S sv d Sv h d
3. + 5 + 8 762.0 764.5 Sv h d S h d
4. + 5 +10 764.5 764.5 S h b S h b
5. + 4 +11 762.0 759.5 Sa h d S h d
6. + 8 + 13 759 5 759.5 o d o d
7. + 8 +13 759.5 759.5 o d o d
8. + 7 |+ 9 759.5 759.5 o d o d
Undanfarið mesta veðurhægð með úr-
komu við og við; oftast við suðrið.
Meðalhiti í maí á nóttu + 30
á hád. -þ 8.1
Með því að enn hefir eigi verið
settur steinn eða neitt minningar-
mark á leiði konsúls W G- Spen-
cer Patersons Í Reykjavíkur-kirliju-
garði, og eigi lítur út fyrir að frænd-
ur hans erlendis ætli að gera neina
ráðstöfun í þá átt, viljum vér undir-
skrifaðir leyfa oss að skora á vini
hans og kunningja, að leggja fram
eitthvert peningatillag til þess, að
sæmilegt minningarmark verði sett á
gröf hans. Meðundirskrifaður Ásgeir
Sigurðsson veitir væntanlegum sam-
skotum viðtöku, og mun opinber
grein verða gjörð fyrir þeim á eftir.
Reykjavík, 11. júní 1900.
Asgeir Sigurðsson Kristján Jónsson
kaupmaður. yfirdómari.
Kr. Jónasarson Pike Ward
verzlunarmaður. kaupmaður.
Þar eð eg hefi heyrt það liaft eftir
þeim félögum Kristgeir Jónssyni frá
Bakkakoti í Skorradal og Guðmundi
Narfasyni frá Gullberastöðum, sem fóru
til Ameríku í síðastliðnum apríl, að eg
hafi keypt af þeim hokkuð af skepnum
þeirra og í tilefni af því fengið þeim
sparisjóðsbók, sem eg hafi átt, og sem
þeir hafi haft í höndum í Reykjavík, þá
t Þ. 9. þ. m. andaðist Sigríður Magn-
úsdóttir Waage, eftir sex vikna legu á
heimili sínu hér i bænum.
Jarðarföriu fer fram föstud. 15. þ. m.
kl. 12 á hádegi.
Tapast hetir frá Þing-nesi i Borgarfiiði
rauðblesóttur hestur stór og vakur aljárn-
aður með mark: sýlt hæði. Finnandi er
beðinn að koma honum á leið fyiir vestan-
eða norðanpóstanna sem ganga frá Reykja-
vik.
Hans Hannesson, póstur.
Til leigu frá 1. októher 3—4 rúmgóð
herbergi, eidhús og geymslupláss í húsi
Steingr. Guðmundssonar snikkara Lauga-
veg nr. 23.
Drengjaföt^toS
komu nú með »Laura« í verzlun Jóns
þórðarsonar, verð frá 6—11 kr. Karl-
manns sumarföt frá 15—30 kr.
Gjörið svo vel að koina
og skoða áður en þið kaup-
ið annarstaðar.
Hálstau og höfuðföt
af öllum sortum er nýkomið í verzlun
Jóns þórðarsonar.
íslenzkt snyör
fæst nú í verzlun Jóns pórðarsouar fyrir
60 aura pundið; afsláttur ef mikið er
keypt.
Notið nú tækifærið!
Cement,
Þakpappi
og allskonar farfayörur
ódýrast gegn peningaborgun í verzlun
G. Zoega
Kartöflur
Laukur og
Grulrófufræ
í verzlun G- Zoega-
Til heimalitunar viljum vérsér-
staklega ráða mönnum til að nota
vora pakkaliti, er hlotið hafa verð-
laun, enda taka þeir öllum öðrum lit-
um fram, bæði að gæðum og litarfeg-
urð. Sérhver sem, notar vora liti,
má öruggur treysta því, að vel muni
gefast. — í stað hellulits viljum vér
ráða mönnum til að nota heldur vort
svo nefnda »Castorsvart«, því þessilit-
ur er miklu fegurri og haldbetri en
nokkur annar svartur litur. Leiðarvís-
ir á íslenzku fylgir hverjum pakka.—-
Litirnir fást hjá kaupmönnum alstað-
ar á íslandi.
Buchs Farvefabrik
CRAWFORDS
ljúffenga BISCUITS (smakökur) tilbúið
af CRAWFORDS & Son
Edinborg og London
Stofnað 1813.
Einkasali fyrir ísland og Færeyjar :
F. Hjorth & Co.
Kjöbenhavn.
The Edinburgh Roperie &
Sailcloth Company
Liimited, stofnað 1750.
Verksmiðjur í Leith og Glasgow.
Búa til færi, strengi, kaðla og segl-
dúka. Vörur verksmiðjanna fást hjá
kaupmönnum um alt land.
Umboðsmenn fyrir Island og Færeyjar.
F. Hjort & Co. Kaupmh. K.
Munið eftir að í verzlun Jóns
þórðarsonar er tekin öll íslenzk vara.