Ísafold - 20.06.1900, Qupperneq 2
154
hve nær sum, hverir séu þar húsráð-
endur og hafi verið, ef þeirra þykir að
einhverju getandi. f>á eru síðast dá-
litlir kaflar um túnin í Reykjavík,
um kirkjugarðinn og um Reykjavík
fyr og nú. f>að, sem eftir er óprentað
og von á í næsta hefti, er um götulíf-
ið í Reykjavík, mentalífið, málið, fagr-
ar listir, söfnin, trú og truarlíf, fram-
farir á seinni árum, skemtanir, og þá
niðurlag.
Greinin er yfirleitt hlýlega rituð,
lýst dável náttúrufegurð, og mörgum
höfuð8taðarbúum slegnir gullbamrar,
lífs og liðnum, en fáum rekin oln-
bogaskot og þá oftast græzkulaus,
nema ef nefna mætti Good-Templara
og aðra bindindismenn; við þeim yglir
höf. sig margsinnis, en hýrnar yfir
honum að því skapi, hve nær sem
hann nefnir einhvern brennivínsdrjóla
(frá fyrri tímum). Smáskrítinn er
hann innan um og saman við, eins og
hann á vanda til, og þarf að bregða
sér marga útúrdúra, oftast til þess að
votta velþóknun sína eða vanþóknun
á hinu og þessu, eða þá að eins til
að segja eitthvað skrítíð, t. d. að í
•Nýu aálmabókinni* byrji 67 sálmará
»Ó« og 18 á »Jeg«. Meðal þess, sem
hann hefir vanþóknun á, eru fóður-
jurtir, bankalán og hjólhestar eða
hjólreiðar.
Margt er fróðlegt í greinínni, með
því að margs er minst úr ævi höf-
uðstaðarins á þessari öld, þótt heldur
sé það hraflkent. Skrítlur og stökur
innan um, flestar áður kunnar, þótt
ekki hafi verið bókfestar fyr sumar,
en það er betur gert en ógert látið,
sé dálítið í þær varið að einhverju
leyti og þær rétt eftir hafðar. En áfátt
verður höf. þar stundum. Meðal ann-
ars ætlar hann að leiðrétta á einura
stað (bls. 106) frásögnina í »Jörundar-
sögu hundadagakóngs* (eftir dr. J. þ.
yngri) um viðureign Geirs biskups
Vídalíns og eins »stríðsmanns« Jörund-
ar. Sú saga er eflaust réttari og fyllri,
eins og Páll Melsteð kann hana: Sam-
son (ekki Jóhann) »stríðsmann« elti
einhvern bæarmann eftir Aðalstræti
og ætlaði að höndla hann. Geirbisk-
up stóð í útidyrum hjá sér (í húsi
Helga Zoéga, sem nú er) og studdi
höndum í dyrustafi. Maðurinn leitaði
sér þar athvarfs og skauzt inn undir
handarknka biskups, og ætlaði Samson
á eftir sömu leið að ná manninum.
|>á kreppir biskup að sér handlegginn
utan um *stríðsmanninn«, hrindir hon-
um út og segir: »Par þú til helvítis,
hundurinn þinn, og svei þér«. — Stór-
menskudæmið af þórði í Skildinga-
nesi, föður Einars prentara, að hann
hafi komið til bæarins á skósíðum
kalmúksfrakka með beinhörðum spesí-
um í hnappa stað, raun vera skáld-
skapur. Páll Melsteð þekti vel til
f>órðar og sá hann þrásinnis, en veit
ekkert til þessa um hann.
Ymsar skekkjur eru f greininni um
uppruna sumra húsa í bænum og því
um líkt, eða þá villandi ónákvæmni.
Rangt er t. d. að Baago kaupmað-
ur hafi bygt Melsteðshús við Lækjar-
torg. f>að gerði Gísli kaupm. Símon-
arson, skömmu eftir aldamótin; en
Jakobæus kaupmaður 1 Keflavík keypti
það síðan og gaf Ebbesen kaupmanni
tengdasyni sínum, en síðar eignaðist
Sigurður Melsteð það.
Rangt er og, að ísleifur etazráð hafi
smíða látið Hákonsenshús í Aðalstræti
(nú Breiðfjörðs) handa systur sinni,
konu Einars Hákonarsonar hattara.
Einar var systursonur ísleifs, og kona
Einars, Guðrún, var systir f>orleifs
Guðmundssonar Repps.
8á sem reisa lét »apótekið«, var
Oddur Thorarensen lyfsali, 1834, og
flutti sig þangað það ár frá Nesi um
leið og landlæknir, dr. Jón Thorstein-
son í Doktorshúsið. En í Eimr. seg-
ir, að Möller lyfsali hafi fyrstur búið 1
því húsi.
Aldrei hafði Thorgrimsen landfógeti
átt heima í húsi Sig. E. Waage, sem
nú er. Hann var í húsi því í Aðal-
stræti, er Jón Guðmundsson átti síð-
ar og hús H. Andersens er nú risið
upp úr; og þar andaðist hann.
Ekki eru leifar »Gamla klúbbsins*
neinar eftir við hliðina áHerkastalanum,
heldur var hann torfbær, sem nú er
löngu horfinn og það hús reist á rúst-
um hans. f>etta hús, Kastalinn, var
að jafnaði kallað »gildaskáli«, áður en
það varð spítali, að minsta kosti í
þjóðólfi, sbr. »Gleðileikir á Gildaskál-
anum« o. 8. frv. f>að var Carl Franz
Siemsen, er gaf hús þetta til spítala-
eignar. Vera má þó, að P. C. Knudt-
zon hafi átt eitthvað í því með hon-
um. Sami C. F. Siemsen bygði upp-
haflega húsið nr. 4 í Thorvaldsens-
stræti, en ekki Edv. Siemsen, eins og
segir í Eimr.
Um dómkirkjuna er ógreinilega frá
sagt og villandi. Reykjavíkurkirkja
stóð í gamla kirkjugarðinum fyrrum,
og mun þá ef til vill hafa veriðsíðast
úr timbri, seint á 18. öld; en vitleysa
hlýtur það að vera, að »sú kirkja sé
nú vöruhús það hið mikla, er stendur
í garðinum á bak við »Hotel Alex-
andra««. f>ar sem nú stendur dóm-
kirkjan, var hún fyrst reist nokkuru
fyrir aldamót — grundvöllurinn lagð-
ur 1787, — úr íslenzku grjóti, og hefir
aldrei verið rifin síðan og endurreist,
heldur var aukið við hana 1846 (ekki
1847) bæði kór og forkirkju, og auk
þess hækkuð mikið. Viðbótin öll úr
múrsteini (tigulsteini). Yfirsmiður hét
Scbytte. Með honum var Nielsen
nokkur, er varð síðar »stads-arkitekt« í
Landscrona.
Vitleysa er það, að Laugarnesstofa
hafi kostað 60,000 kr. Hún kostaði
upphaflega rúm 30,000 kr. (16—17
þús. rd.), og viðgerð á henni rúmum
20 árum síðar 6,000 kr. f>á kostaði
og ekki alþingishúsið 150,000 kr., eins
og höf. segir, heldur að eins rúmar
120,000 kr.
Höf. segir töluvert frá Skólavörð-
unni, en lætur þess ógetið, að eins
og hún er nú eigum vér hana mikið
að þakka J. Coghill heitnum hrossa-
kaupmanni; hann hresti hana alla við
fyrir nokkurum árum, setti lóft í hana
og stiga, og þak yfir, að hálfu á kostn-
að bæarsjóðs en hitt með samskotum.
Um mylnuna við Bankastræti hefði
mátt geta þess, að hún var ekki reist
hér að upphafi, heldur hingað flutt frá
Vestmanneyum, en þar reisti hana
og átti Jens Benediktsen kaupmaður.
f>ar sem nefnd er Brydes-búð gamla,
er Káetu-Pétur svo nefndur átti forð-
um, hefði verið fróðlegt að geta þess,að
það hús var þar á undan nefnt Fálka-
hús, frá Róngs-verzlunartíðinni, og að
vestan á því var gapastokkur Reykjavik-
ur. Káetu-Pétur sat í Khöfn á vetr-
um og barst mikið á. Um hann orti
Jónas Hallgrímsson þessa stöku:
Kólgubólgið kálfaljón
Kreikar á Austurgötu.
Rær á gæru gamli Jón
Og getur ei etið skötu.
»Gamli Jón« var faðir Péturs og þá
meðgjafar-ómagi í Kjós, á vist með
Lofti á Hálsi.
•Frönsku húsin« svo nefnd við Aust-
urvöll norðanverðan eru svo alræmd
sem bæar-óprýði, að vel hefði mátt
geta um uppruna þeirra, ekki síður en
ýmissa húsa annara, með því og að
hann er all-sögulegur. Annað þeirra,
hið vestara, er hér um bi! sjötugt að
aldri, en hitt ekki nema fertugt. f>að
var P. C. Knudtzon gamli, sem reisti
eldra húsið og það í þeim ein-
kennilega tilgangi, að spilla útsjón
fyrir keppinaut sínum einum, kaup-
manni þeim, er þá átti heima í húsi
skamt vestur þaðan og G. Lambert-
sen átti heimá í síðar, en nú er Isa-
foldar-prentsm. risin upp úr. Sá mað-
ur hét Christian Magdalus Thestrup
Cold Leigh, danskur maður ungur og
mikill oflátungur. f>að var viðkvæði
hans, er hann þurfti að fullyrða eitt-
hvað: *Det siger jeg og Bardenfleth«,
þ. e. Bardenfl. stiftamtmaður; hnýtti
honum aftaní sig. Hann hafði
búð í austurenda hússins og voru
gluggar á gaflinum, erblöstu viðlesta-
mönnum, sem komuniður á Austurvöll,
er þá náði austur að læk og var þar
alt óbygt að kalla. Knudtzon sá of-
sjónum yfir því og reisti því geymslu-
hús þversum fyrir gluggunum hjá
Leigh. f>ví skírði f>órður Jónasson,
er síðar varð háyfirdómari, geymslu-
hús þetta Drillenborg, en aðrir köll-
uðu það f>verspyrnu; og má það vel
teljast réttnefni enn. Á undan Leigh
var í áminstu húsi kaupmaður sá, er
Gunnlaugur hét, og kallaður var Lér-
efta-Laugi.
Um hús Péturs biskups (Aust-
urstr. 16) segir höf., að þar hafi
áður verið »Möller nokkur, kaupmað-
ur«. f>að smíðaði danskur maður, er
Paulsen hét, sumarið 1831, fyrir Hans
Möller, er síðar átti Guðnýu, »madm.
Guðnýu Möller«, sem lifði mann sinn
nál. hálfa öld og bjó í litla húsinu
beint á móti hinum megin við Póst-
hússtræti. Hans Möller var bróðir
þeirra Krístjáns M. og Óla M. kaup-
manna og Jóhanns M. lyfsala, en systir
þeirra var frú M. Finsen, móðir Ó. Fin-
sens póstmeÍ8tara og þeirra systkina.
Faðir þeirra var Ole Möller kaupmað-
ur i Rvík.
»Ullarstofa« hafði og heitið húsið efzt
í Aðalstræti, er Magnús Arnason á
nú; það var frá verksmiðju-tíðinni.
Davíð Helgason sá, er höf. nefnir að
þar hafi átt heima um 1836, kallaði
sig Davíð Bergmann og varbróðurson
Bjarnar umboðsmanns Ólsens á f>ing-
eyrum, en móðurbróðir Jóhanns Heil-
manns, sem enn lifir.
Mestalt þetta, sem hér hefir sagt
verið frá fyrri tímum höfuðstaðarins,
er haft eftir Páli Melsteð, sem al-
kunnugt er um, að mjög er bæði minn-
ugur og réttorður.
Rangnefnd er hjá höf. ein gatan í
bænum, Mjósund fyrir Mjóstræti. Og
rangnefndir tveir húseigendur, sem nú
lifa: Einar J. Pálsson (Einarssonar í
Sogni), kallaður Einar Helgason; og
f>órður Guðmundsson frá Görðunum,
síðar í Glasgow, kallaður f>órður Jóns-
son. Á landsuppdrætti bæarins eftir
höf. sjálfan er Vonarstræti sett svo
við Suðurgötu, að engum dettur í hug,
að það liggi, eins og það gerir, alla
leið milli hennar og lækjarins, beina
stefnu milli Iðuaðarmannahússins að
sunnan og G.-T.-hússins að norðan.
Höf. er með skringilegar ágizkanir um,
hvernig á því nafni standi. En gatan
var blátt áfram skírð þetta vegna þess,
að hún var þá að mestu og er enn
að nokkuru leyti vonargripur, þ. e. ó-
orðin til upp úr Tjörninni. Annars
er töluvert varið í þann uppdrátt eða
verður síðar meir til samanburðar.
f>ó hefði þurft að geta þess einhvers-
staðar, að þó að markað sé þar fyrir
ýmsum húsum, auk þeirra, er nefnd
eru sérstaklega, þá er það ekki
nema hrafl að handahófi og lítið sem
ekkert að marka lögun þeirra þar eða
stærðar-hlutfall, sem varla er heldur
von á jafn-litlum uppdrætti. Misskiln-
ingur mun það og vera hjá höf., að
»Batteríið« hafi nokkurn tíma verið
kallað Arnarhóll. Fléstir munu kalía
svo aðalhæðina í landshöfðingja-tún-
inu.
Höf. hefir alveg rétt fyrir sér, er
hann telur það lýti á Alþingishúsinu,
hve það er þunglamalegt og nær því
eins og sokkið í jörðu, af því ekkert
þrep er undir því. En geta hefði átt
þess, hvernig á því stendur, og að það
er ekki að kenna húsagerðarmeistaran-
um, Meldal etazráði. Hann ætlaðist
til að væri hátt þrep undir því. En
Hilmar Finsen landshófðingi fekk F.
A. Bald, yfirsmiðiun, til að sleppa því,
og gekk það til, að hann vildi vinna
upp með þeim sparnaði kostnað þann,
er fylgt hafði undirstöðugrefti undir hús
ið uppi í Arnarhólstúni við Bankastræti
og öðrum undirbúningi þar, en honum,
H. F., var alt af illa við að hafahús-
ið þar og fekk því loks ráðið í síðustu
forvöðum, að það \ar sett þar, sem
það stendur, niður við Tjörn, og keypt-
ur undir það dýrum dómum kálgarð-
ur H. Kr. Friðrikssonar. En Meldal
reiddist svo Bald fyrir tillátsemi hans
eða meinleysi, að hann vildi ekki sjá
hann eða veita viðtal á eftir, erhann
kom til Khafnar; þótti hann hafa spilt
svo fyrir sér útliti hússins, að aldrei
biði þess bætur.
Fáir munu höf. samdóma um, að
Laugarnesspítali sé Ijótur útlits, en
Stýrimannaskólinn snotur. Hann virð-
ist hafa þar beint hausavíxl á réttu
og röngu.
Mikið fróðlegur er uppdráttur sá af
Reykjavík frá árinu 1800, er greininni
fylgir, eftir þá Ohlsen og Aanum
landmælingamenn. Sömuleiðis er gam-
an að uppdrættmum frá 1715, úr
Árna-Magnússonar-8afni, af Reykja-
vík með Seltjarnarnesi mestöllu og
Hólminum (Örfirisey), þar sem kaup-
staðurinn var þá; grandarnirbáðir, út í
Hólminn og Akurey, þá langt upp úr
sjó um flæði. J>á var Reykjavík ekki
annað en bóndabær og kirkjustaður.
þáeru þará eftir ýmsar smágreinar:
tvö sönglög eftir Jón nokkurn Frið-
finnsson; tvær stökur eftir Y. G.; Afl-
ið í bæarlæknum, eftir ritstj. (V. G.),
þörf grein um reglur fyrir mæling
vatnsafls; því næst Ritsjá eftir ýmsa
höf. um nokkurar fsl. bækur, þar á
meðal ein eftir danskt skáld, Olaf
Hansen, um Sverð og bagal; ogsíðast
íslenzk hringsjá (um ísland ogíslenzk-
ar bókmentir erlendis).
Skarlatssóttin.
Ekki fleiri sýkst enn hér f bænum.
En ofan úr Borgarfirði komu þau
slæmu tíðindi rétt fyrir helgina, að
sóttin er þar komin, að Bakkakoti við
Hvítá. Bóndinn þar, Jóhann Bjöms-
son frá Svarfhóli, hafði róið vetrar-
vertíðina suður á Kalmanstjörn, eða
réttara sagt stundað þaðan botnverp-
inga, en fært sig eftir lok inn á Akra-
nes og haldið þar áfram sömu afla-
brögðum, með whisky-beitu og öðrum
venjulegum tilfæringum; verið stund-
um laugdvölum úti í botnverpingum,
nótt sem dag, að dæmi ötulustu sam-
iðnaðarmanna sinna, er láta vel yfir
vistinni þar, gæðarratarhæfi og öðr-
um góðgerðum. Kring um hvítasunnu-
hátíð kemur hann síðan heim til sín
Upp að Bakkakoti, og skömmu síðar
fá börnin þar 3 skarlatssótt hvert á
fætur öðru, og loks systir hans, þá f
ferð niðri f Borgarnesi, í húsi Helga
faktors. Hún bafði þó komist heim
aftur, og var síðan hús Helga sótt-
hreinsað. En Bakkakot sóttkvíað.
Maður af vegum Jóhanns hafði og
komið beint sunnan frá Kalmanstjörn
eigi alls fyrir löngu og gist á Akra-
nesi í gistihúsinu þar, en veikst síðar
að sögn af skarlatBsótt, er heim kom
að Bakkakoti.
Alt virðist þetta benda á, að úr
botnverpingum sé sóttin komin, fyr